Þjóðviljinn - 03.04.1982, Side 1
SUNNUDAGS
DIOÐVIUINN
BLa
40
SÍÐUR
Helgin
2.—3. april
77.—78.tbl.—
47. árg.
Fjöl-
breytt
lesefni um
helgar
Verð kr. 10.00
ffifflllffl
SlffiBffi
H BðHNStFÍP
O ggfl ^ALÚNífJ
fPUCtl^HcPgwr
mttML.
GULD
Vinstri
sósíalisti
og
borgarstjóri
Arið 1978 var Villo Sig-
urdsson kosinn í borgar-
stjórn Kaupmannahafnar
fyrir Vinstri Sósialista og
þá þegar valinn borgar-
stjóri skipulagsmála þar í
borg. I bæjarstjórnarkosn-
ingunum sl. haust hlaut
hann flest persónuleg at-
kvæði allra þarlendra
stjórnmálamanna (21 þús-
und atkvæði) Villo Sigurds-
son er 37 ára gamall# is-
lenskur að faðerni og ir-
anskur að móðerni. Hann
er stundum kallaður borg-
arstjórinn á gallabuxunum
og þykir gott dæmi um
stjórnmálamann sem tap-
ar ekki jarðsambandi og er
ekki múraður á bak við
þykka veggi valdsins. Villo
Sigurdsson hefur hvað eft,
ir annað sett borgarstjóra-
starfið að veði í pólitískum
átckum# hefur staðið með
verkamönnum og íbúa-
samtökum í hörðum deil-
um við aðra í borgarstjórn
Kaupmannahafnar. Hann
nýtur þvi ekki jafn mikilla
vinsælda meðal borgar-
anna og hann nýtur hjá
verkafólki og fólki í gras-
rótarstarf inu.
Vinstri sósialistarnir eru litill
flokkur sem klofnaði út úr SF
(vinstra megin við sósialdemó-
krata) árið 1968 á dögum stúd-
entauppreisnarinnar. Og Villo
Sigurdsson þykir á margan hátt
dæmigeröur fulltrúi þessa flokks.
Þingmenn VS vekja jafnan mikla
athygli i Danmörku, þeir eru
ábyrgir byltingarsinnar á þjóð-
þinginu og annars staðar þarsem
flokkurinn á fulltrúa. Þar i landi
gerist það lika að byltingarsinnar
njóta virðingar meðal borgar-
anna — þ.e.a.s. dagar umburðar-
lyndisins eru ekki taldir.
— En persónulegar vinsældir
koma Villo einnig til góða. Margir
kjósendur hefðu aldrei látið sér
detta i hug að kjósa VS, ef hann
kæmi þar ekki til. En hvers vegna
er hann svona vinsæll?
—-Hann hrærir upp i drullupoll-
inum i stjórnmálunum. Og hann
er svo óformlegur að það er frels-
andi i samanburði við aðra
stjórnmálamenn, segir einn kjós-
enda hans. — Annar segist hafa
kosið hann vegna þess, að hann
þori að standa á meiningu sinni
þó það geti kostað hann stööuna.
Sá þriðji segir að afstaða Villos i
skipulagsmálum skapi honum at-
rn&re jrTCr yxx J
l
!LL —1 ZL
Villo Sigurðsson borgarstjóri
skipulagsmála í Kaupmannahöfn
nýtur mestra persónulegra vinsælda allra
stjórnmálamanna i
Danmörku samkvæmt síðustu
bæjarstjórnarkosningum.
Villo Sigurðsson er íslenskur í aðra ættina.
kvæðin. Borgarstjórinn er þekkt-
ur fyrir aö standa við hlið hinna
minni máttar i þjóðfélaginu.
Hann stendur með ibúasamtök-
unum i báráttunni við húsnæðis-
spekúlanta og byggingarfélög
(sem reyna aö ryðja burtu göml-
um ódýrum húsum og byggja ný
dýr hús), en hann stendur með
hjólandi og gangandi vegfarend-
um gegn blikkbeljunum i umferð-
inni, og hann stendur með þeim
sem berjast fyrir valddreifingu á
kostnað miðstýringar.
Villo Sigurdsson er alinn upp i
Iran og kom ekki til Danmerkur
fyrr en hann var 15 ára. Hann
kynntist þvi fátækt og hörmung-
um i lran. Þegar hann kom til
Danmerkur varð honum ljóst að
fátækt er ekki náttúrulögmál. Og
hann segir að sú niðurstaða sé
frjóangi pólitiskrar meðvitundar.
Hann hafði ætlað sér að starfa i
þróunarlöndunum og lærði i þeim
tilgangi landbúnaðarverkfræði.
„En smám saman komst ég að
raun um að það eru riku löndin
sem arðræna þau iátæku og ef ég
vildi breyta einhverju væri nær
að vera hérna i Danmörku”.
Einsog áður sagði var Villo virk-
ur i stúdentauppreisninni, en fékk
leið á allri naflaskoðuninni.
Hann komst að raun um að best
væri að breyta þjóðfélaginu i
samfélagi við aðra og gekk i VS
1969 og hefur verið þar virkur fé-
lagi siðan. Hann var fyrst i fram-
boði 1974 en hlaut ekki kosningu.
En hann var kosinn i borgarstjórn
1978 og hefur veriö borgarstjóri
skipulagsmála siðan i Kaup-
mannahöfn.
Villo tók við þeim starfa af Al-
fred Wassard, sem bælt hafði
borgarstjórasætið i 16 ár og var
úr danska ihaldsflokknum. Það
hefur farið um margan grá-
myglulegan embættismanninn,
þegar sósialistinn rétti út höndina
og sagði hæ, ég heiti Villo. Það
var ekki tónninn sem 4000 starfs-
menn embættisins höfðu vanist i
tið Wassards borgarstjóra sem
þéraði starfsmenn sina og ekki
var minnst á þann mann öðruvisi
en i þriðju persónu sem „borgar-
stjórinn”.
Borgarstjórabilinn i not-
kun
Figúruskapur og hátiðlegheit
eru Villo viðs fjarri. Hann hefur
látið „þjóðnýta” borgarstjórabil-
inn með einkabilstjóranum fyrir
löngu, þannig að allir sem starfa i
borgarstjóraembætti hans geta
fengið bilinn til afnota eftir þörf-
um. Sjálfur kemur hann á reið-
Sjá næstu síðu