Þjóðviljinn - 03.04.1982, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 3,— 4. april 1982.
Framhald af 1
hjóli i vinnuna og segir að það
væri bara sýndarmennska og
endaleysa ef hann léti bilstjóra
biða eftir sér á kvöldfundum þeg-
ar hægt er að fara i strætisvagni
heim til sin.
A vinnustaö er Villó talinn dug-
legur, atorkusamur og fljótur að
átta sig á málum. Samstarfs-
mönnum finnst hann vera vand-
virkur og er hann mjög vinsæll á
vinnustaðnum. Fulltrúi i borgar-
stjóraembættinu segir, að það sé
þægilegt andrúmsloft eftir að
hann tók við stöðu borgarstjóra.
Það sé auðvelt að umgangast
hann og að hin stifu samskipta-
form séu ekki lengur viðhöfð.
Eins og geta má nærri rekur Villo
framsækna pólitik i ráöningamál-
um. Yfirmannastöður eru frekar
VILLO
mtkiu striði sem ibuasamtok á Nörrebro I Kaupmannahöfn áttu við lögreglu og stjórnvöld var Villo Sigurdsson, borgarstjóri skipulagsmála,
mikill stuðningsmaður ibúanna. Myndin er frá þeim átökum.
skipaðar konum en körlum, ef
konur þykja jafn hæfar og karlar
meðal umsækjenda. Það eru þvi
fleiri konur en annars staðar i
kerfinu sem eru i toppstöðum i
borgarstjóraembætti hans. Hann
var lika eini borgarstjórinn sem
neitaði að draga laun frá starfs-
fólki vegna eins dags verkfalls.
Fólkiö skilaði sinum störfum,
sagði hann þegar fjölmiðlarnir
ætluöu að gera veöur út af mál-
inu, hvers vegna ætti þá að draga
af launum þessa?
Villó Sigurdsson hefur aldrei
veriðhræddur við að vera á þvers
i pólitikinni. Tvisvar sinnum hef-
ur hann neitað að hlýða meiri-
hlutaákvörðunum i borgarstjórn-
inni. Fyrra máliö var hið svokall-
aða „Epoxymál”, þar sem hann
studdi verkamennina sem neit-
uðu aö vinna meö hiö stórhættu-
lega eiturefni epoxy (tilefni langs
verkfallsi. Hitt máliö var i átök-
unum um Byggeren á Nörrebro-
hverfinu. (Þar áttust ibúasamtök
á Nörrebro viö húsnæöishákarla
og lögreglu. Byggeren var leik-
svæði fyrir börn i hverfinu og þar
vorueinnig gömul hús sem átti að
rifa niður. Margra daga götu-
óeirðir vegna þessa máls). í bæði
skiptin var valdíð tekiö frá Villo i
þessum málum og sett lög um að
hægt væri að taka völdin af borg-
arstjóra sem ekki færi i einu og
öllu eftir vilja meirihlutans i
borgarstjórninni. Og Villo á stöð-
ugt á hættu að verða fórnarlamb
þessara laga, þegar hann setur
réttlætið ofar reglunum. Og það
gerir hann.
,,Ég geri það mér ekki til
skemmtunar að standa i pólitisku
striði hvað eftir annað. Ég geri
það vegna þess að hér er um mik-
ilvæg mál fyrir þá sem kjósa mig
að ræða. Ég hef ábyrgð gagnvart
þessufólki sem ég fylgi.” Það orð
liggur á Villo að hann sé mikið á
ferðinni. Sjálfum finnst honum
hann vera alltof mikið á kontórn-
um.
— Ég hef eytt alltof miklum
tima i papþirsvinnu á skrifstof-
unni. Eg ætti að vinna meira útá-
við, ætti að fara á fleiri i'búafundi.
Það er lika mun skemmtilegra að
tala viö fólk af holdi og blóði en
róta i pappirsgögnum. Viðsvegar
i borginni er fólk hins vegar
þeirrar skoðunar að einmitt i
þessu efni hafi orðið megin breyt-
ing á. Fólki finnst að leiðin til ráð-
hússins hafi styst.
Stúlka úr ibúasamtökum
Nörrebro segir: „Fyrir okkur i
ibúasamtökunum hefur það ótrú-
lega mikla þýðingu að Villo gegn-
ir þessu starfi. Við fáum upplýs-
ingar frá ráðhúsinu sem við áður
áttum ekki kost á aö fá. Og þær
upplýsingar fáum við nægilega
snemma til að geta komið þeim
áleiðis til ibúanna i hverfinu og
við getum efnt til umræðna. Villo
á mjög auðvelt með að hlusta á
fólk og skilja vandamál þess auk
þess sem hann hefur náið samráð
með okkur. Hann er alltaf reiðu-
búinn til að stiga á hjólhestinn og
hjóla hingað i hverfið til að tala
við okkur. Þess vegna er hann
mjög vinsæll á Nörrebro og öllum
finnst hann vera traustur lýðræð-
issinni.”
Einn félaga hans úr VS sem
einnig vinnur i ráðhúsinu segir:
„Maður getur treyst á Villo og
sýnthonum trúnað. Honum finnst
lika litið til framans koma og er
ekki upp með sér af vegsemdinni.
I hreinskilni sagt, maðurinn er
elskuleg manneskja”.
„Ef ég væri hálauna-
maður — fjarlægðist ég
kjósendurna”
— Það er erfitt fyrir vinstri só-
sialista einsog Villo að hreykja
sér hátt á kostnað almennings.
Flokkurinn hefur nefnilega
tvenns konar reglur innáviö sem
koma i veg fyrir spillingu og for-
ingjadýrkun. Menn mega ekki
gegna trúnaðarstörfum lengur en
i tvö kjörtimabil — og launin
mega ekki vera hærri en faglærð-
ur verkamaður nýtur úti i þjóðfé-
laginu. Þannig fær Villo Sigurds-
son 120 þúsund danskar krónur i
laun á ári en afgangurinn af uþb.
300 þúsundum sem hann á að fá i
laun rennur i flokkssjóöinn.
Þetta er sannarlega góð regla,
segir Villó. Ef ég fengi há laun
einsog til dæmis Thomas Nielsen
(forseti danska alþýðusambands-
ins), þá fjarlægðist ég þá sem ég
er fulltrúi fyrir. Nú hef ég sömu
peningavandamál og allir aðrir.
Og vinnutimi hans er langur.
Þrátt fyrir að það sé krefjandi
starf þá finnst honum að pólitisk-
ur ávinningur taki erfiðleikunum
fram. Þaö hefur tekist að sýna
fram á að þetta kerfi getur verið
opnara. Og umræður hafa aldrei
verið jafn liflegar og undanfarin
ár um málefni borgarinnar, segir
Villo.
Ég hugsa um byltinguna
við hátiðleg tækifæri
Hvað með byltinguna? Ég hef
hana i huga við hátiðleg tækifæri,
segir Villó. Sósialisminn kemur
ekki einsog þruma úr heiðskiru
lofti. Það gerist á löngum tima,
það er ferli sem felur m .a. i sér að
sósialistar sinni ýmsum stjórnun-
arstörfum. Þannig er mitt starf
skref I áttina segir Villó Sigurds-
son.
Skaplyndi hans er með ágætum
segja félagar hans. Hann er yfir-
vegaður en hláturmildur og sér-
staklega þolinmóður. En hann
getur lika látið til sin heyra á
fundum borgarstjórnar. Honum
hefur lfka lukkast að taka hlutun-
um mátulega alvarlega. Villo tel-
ur það lika þvi að þakka að hann
Það hefur varíafariðjramfijá námim
aðfaðemað koma páskar
Að minnsta kosú höfum við
hjá Nóa og Sirrns
eMi aíáóíis gleymt pví.
Undcufama daga höfum við
unmðdagog nótt
við að búa ti£ p áskaegg.
Nóapáskaeggin eru auðvitað
íandspeídt fyrir (öngu, afpví
að þau eru svo góð,
en okkurfumst rétt að
mxnna sérstaldega á pau núna
eídd síst vegna pess aðffamhoð
á eríendu sceígcetx hefur aídrei
verið meira hér á iandi.
En eggin fians Nóa eru édú
hara ísíensk, - pau eru (íka
einstaídega gómsæt.
er ekki uppfullur af streitu. Hann
tekur ekki vandamálin með sér
heim og þegar áróðursherferð er i
gangi i fjölmiölum gegn honum
tekur hann það ekki nærri sér.
„Mér finnst þá ég vera hluti af
ákveðinni heild, min æruverðuga
persóna er þá ekki mikilvæg”. Og
hann telur aö hann sé kosinn til
starfa til að reka ákveðna pólitik
Vinstri Sósialista, en að sjálf-
sögðu kann hann að meta klapp á
axlirnar og persónulegu atkvæðin
sem hann fékk við siðustu kosn-
ingar.
Heim að fæða frá kosn-
ingafundi
Á kosningafundi með ungu fólki
i Kaupmannahöfn þarsem hann
héltræðuum æskulýðinn á Nörre-
bro sem lauk með þeirri sögu-
legru hvatningu: „Styrkið lýð-
ræðið, yfirtakið verksmiðjuna”
fiskaði hann vissulega nokkuð
mörg atkvæði. Unglingarnir yfir-
tóku verksmiðjuhúsnæði rúg-
brauðsgerðar siðar (og það hefðu
þeir svo sem gert án hvatningar
frá borgarstjóranum).
Þá urðu margir fúlir, af þvi þeir
skynja mig sem einskonar yfir-
vald. Það geri ég hins vegar ekki
sjálfur og er albúinn að segja
þetta aftur á morgun, þó mér
verði stungið á bak við las og slá.
Mér finnst ég eigi að styðja æsku-
lýðinn af öllum mætti, segir Villo
sjálfur um þetta mál.
Sama yfirvald hefur margsinn-
is I sinni borgarstjórnartið tekiö
þátt i mótmælaaðgerðum eins og
til að verja gamalt húsnæði fyrir
hákörlunum, i aðgerðum með
leigjendasamtökum og fleira. Ef
til vill er það ekki annað en við
má búast af borgarstjóra sem er
vinstri sósialisti.
Daginn fyrir siöustu kosningar
varö Villo að sleppa fundi hjá
Burgmeister og Wain skipa-
smiðastööinni af þvi hann þurftí
að vera við fæðingu dóttur sinnar.
Það mýkir hjartað að eignast
barn, segir hann. Og hann tekur
virkan þátt i umönnun dóttur
sinnar. Það er sorglegt ef karlar
taka ekki þátt i umgengninni við
smábörn. Það er nefnilega dá-
samleg upplifun. Og Villo telur að
það gæti veriö alveg ágætt ef
smábörn væru að leik i ráðhúsinu
meðan foreldrarnir eru við vinnu.
Hann er mjög ánægður með
starfið, en honum finnst alveg nóg
að gegna þvi i tvö kjörtimabil. Ég
vildi gjarna hafa meiri tima fyrir
fjöiskyldu mina og sambýlið
(hann býr i sambýli i Vesterbro
hverfinu). Ef konan min væri
ekki virkur félagi i VS þá hefði
hún áreiðanlega ekki getað haldið
mig út. Ég vildi lika hafa tima til
að stunda iþróttir, það á ekki alls
kostar við mig að hanga á skrif-
stofunni allan liðlangan daginn.
Auk þess vildi ég hafa einhvern
tima til að stunda menningarlifið
i Kaupmannahöfn, af nógu er að
taka, segir Villó.
Hvað ætlar Villo Sigurdsson að
gera þegar kjörtimabilinu lýkur?
Ég mun miðla af reynslu minni
fyrir þann sem gegnir starfinu á
eftir mér. Siðan verð eg að leita
að öðru starfi. Hvað ég læt mig
dreyma um? 14 börn og litið hús
uppi i sveit.
(„Allt fyrir döinurnar”, _ <jg