Þjóðviljinn - 03.04.1982, Síða 5
Helgin 3.-4. april 1982. ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 5
Rætt við Benedikt Sigurðarson frá Grænavatni:
Hið tvöfalda áðgæði
— Þó aö þessi sveitarstjórnar-
ráðstefna hafi nú staðiö í tvo
daga, þá tel e'g það vel þess virði
að eyða til hennar þeim tfma og
þótt lengra væri, sagði Benedikt
Sigurðarson frá Grænavatni,
áður kennari á Hdsavik, nú við
nám I Háskólanum. Hér hittast
menn héðan og þaðan af landinu,
kynnast og skipast á skoðunum,
ogaðþvier ævinlega ávinningur.
Ogekki væriþað lakara, ef takast
mættí á svona ráðstefnu að finna
einhvern samnefnara fyrir
baráttumálin I heild, þó að hvert
og eitt byggðarlag hafi að sjálf-
sögðu sfn sérmál við að fást. Hér
heyrum við að hverju hefur verið
unnið á hverjum stað, hvaða erf-
iðleikar hafa mætt mönnum við
einstakar framkvæmdir, hvernig
við þeim hefur verið brugðist og
hvaða málaflokkar það eru, sem
Alþýöubandalagið vill leggja
megin áherslu á.
Við störfum í rikisstjórn, sem
að standa tveir stjórnmálaflokkar
og hluti af þeim þriðja. Við
stöndum viða f bæja- og sveita-
stjómum að meirihlutasamstarfi
við aðra flokka. Við gerum þetta
af því við teljum að með þessu
samstarfi getum við þokað ein-
hverjum málum i rétta átt og
komið I veg fyrir ýmiss konar
„slys”, sem annars mundu
henda. En það er mjög
nauðsynlegt að við komandi kosn-
ingargeri Alþýðubandalagsmenn
glöggan greinarmun á sjálfri
stefnu flokksins og þeim mála-
miðlunum, sem ekki verður kom-
ist hjá i samstarfi við aðra og
ólika flokka i rikisstjóm og
bæjarstjórnum viðsvegar um
land. Jafnframt þarf svo að
leggja áherslu á að sýna fram á
hverju Alþýðubandalagiö hefur
þó getað þokað áfram með þvl að
taka þáttl sliku samstarfi. Þetta
er mjög nauösynlegt.
Annað atriði, — og ekki litil-
vægt, — sem ég vil benda á er
það, að koma þarf á gleggri
skipan á samvinnuverkefni rikis
og sveitarfélaga, þannig að þau
fái meira forræði yfir þvi
fjármagni, sem I hlut þeirra
kemur og vald til þess að verja
þvitilákveðinna verkefna. Það er
hreint og beint ótrúlegur timi, fé
og fyrirhöfn sem getur farið i það
fyrir menn utan af landi að reka
erindi fyrir sfn sveitarfélög hér i
höfuðstaðnum, slfelld seig-
drepandi ganga frá Heródesi til
Pilatusar, enda kerfið orðið slikur
óskapnaöur, að engu tali tekur.
Og svo endar þetta oftmeð þvi, að
menn fara heim I jafn mikilli
óvissu og þeir komu. Allt þetta
þarf að einfalda og gera sveitar-
félögin óháðari rikisvaldinu en
þau eru nú. Hér mætti Alþýðu-
bandalagiö gjarnan taka til hönd-
unum.
Ég er andvigur hækk-
uðum sköttum á almennar
launatekjur og nauðsynjar. Það
þarf ekki að þýða lækkun tekna
rikis og sveitarfélaga. Ef við
Ekki á það
að ætla
Kerlingar tvær áttu eitt sinn tal
saman. Höfðu þær lengi lifað á
vergangi og vlða farið. Nú var
önnur orðin svo hrum að hún gat
ekki flakkað lengur og hélt sig
eiga skammt eftir ólifað. Hin var
ernari og bjó sig til ferða; ráð-
gerði hún I þeirri ferð að kanna ó-
kunna stigu. En er hin heyrir það
segir hún: „Blessuð min, ef þú
kannt að koma I himnarlki þá
skilaðu kvéöju minni til hennar
sankti Máriá og segðu henni að nú
sé ég orðin aumingi og hefði ég
verið nær henni hefði ég beðið
hana að gefa mér smjörklipu eða
tóbakslauf i nösina.” „Nei,
hættu,” segir hin, „Það er ekki
neitt á að ætla að ég komi I
himnariki; ég kann að fara þar
annað hvort fyrir neðan eða of-
an.”
(tlr Islens cum þjóðsögum og
ævintýrum Jóns Arnasonar)
litum I kringum okkur, þá held ég
að engum geti dulist, að það eru
nógir peningar til I þessu
þjóðfélagi þó aðþá sé kannski slst
aðfinna meðalþeirra, sem skapa
hin raunverulegu verðmæti. Og
þeim ber eðlilega fyrst og fremst
að greiöa til þarfa samfélagsins
sem efnin eiga.
Svo er ráð fyrir gert, sam-
kvæmt svonefndum Ólafslögum,
að ráðstöfunartekjur rikisins fari
ekki yfir 29% af vergum þjóðar-
tekjum. Þetta er slæmt ákvæði,
sem þarf aö afnema, svo hægt sé
að beita rikisvaldinu til meiri
tekjujöfnunar.Hér er um að ræða
spurninguna um samneyslu og
einkaneyslu, spurninguna um
hvert eigi að vera hlutverk rikis-
valdsins. Auðvitað geta afskipti
þess gengið út i öfgar. Það hagg-
ar þó ekki hinu aö það hlýtur,
ásamt sveitarfélögunum, að
standa undir margháttaðri
félagslegri þjónustu, eigi hún á
annað borð að vera innt af hendi.
Ekki vantar það, að háværar
raddir heyrist, sem krefjast
lækkunar á opinberum gjöldum
til samfélagsþarfa. En hafa menn
tekið eftir þvl, að einmitt ýmsir
þeir, sem kyrja háraddirnar i
þeim kór, eru hvað kröfu-
harðastir um auknar fjárveit-
ingar frá rikinu til þeirra opin-
beru stofnana, sem þeir sjálfy
staFfa við eða veita forstöðu? „É'g
erá móti háum sköttum, en ég vil
bara fá meira til min”. Hver
skilur samræmið og hverskonark
hugsunariiáttur er þetta eigin-
lega? Ég ætla ekki að nefna hér
nöfn þótt nærtæk séu og hver
kannast lika ekki við þessa
menn?
Ég tel að Alþýðubandalagið eigi
að snúast hart gegn þessu tvö-
falda siðgæði og sýna fram á
ósamræmið i þessum kröfum.
— mhg.
Benedikt Sigurðarson: ,,Það er
mjög nauösynlegt að viö komandi
kosningar geri Alþýðubandalags-
menn glöggan greinarmun á
sjálfri stefnu flokksins og þeim
Knálamiðlunum, sem ekki veröur
koraisth já I samstarfi við aðra og
óllka flokka”.
KLÆÐNING
ÁPÖK
RÚLUJR-m
MOTTUR&
Oft er utanáliggjandi einangrun besta
lausnin til aó einangra þök, bæði
tæknilega og hagrænt. Er í mörgum
tilfellum sú eina lausn sem finnst.
Þessvegna höfum vió framleitt þak-
einangrunarplötur sem leggja má á
þök bæöi flöt, sem og önnur, í þykkt-
um frá 100 mm — 400 mm. Þakein-
angrunarplöturnar er hægt að fá
sniðnar til aö fá fram yatnshalla. jafn-
framt þvi að um góða einangrun er að
ræða. Einangrunarplöturnar e,rusmeð
sterku asfaltlagi.
GLERULLAR-RULLUR OG MOTTUR I
ÖLLUM STÆRÐUM. A-gerð. B-gerð.
með ál-lagi. með pappa-lagi.
Glerullar
ÞRÍHYRNA
Þegar einangra á eldra húsnæði. er
oft erfitt að koma einangrun út undir
þakskeggið. Þessvegna framleiddum
við þríhyrnuna, hana er hægt að fá i
þrem mismunandi stærðum eftir halla
þaksins og þykktar þeirrar einangrun-
ar sem nota á, á loftplötuna. Þríhyrn-
an er framleidd úr samanþjappaðri
glerull og varin með plastlagi (gatað
til útgufunar).
Glérull
Leysir
vandann
Glerullar
GONGUBRÚ
Þegar endureinangrun á sér stað
ofaná gömlum eða nýjum loftum. þarf
að styrkja þann hluta endureinangr-
unarinnar sem ganga skal á, eða það
svæði sem ér notað til geymslu.
Glerullar-göngubrúin er framleidd úr
samanþjappaðri glerull sem er kant
skorin. með hörðu yfirlagi. Glerullar-
göngubrúin fæst i þrem mismunandi
þykktum.
Glerull
A-GERÐ
Glerullar
BATTINGAR
Nýja A-geróin er mjög sterk. Hægt er
að rúlla ullinni út i langar lengjur.
Varla finnst betri einangrun á mark-
aðnum. Skjótur árangur og minni
kuldaleiðarar. A-gerðin vegur minna
en önnur jarðefnaeinangrun. Það fer
minna fyrir þjappaðri glerull i flutn-
ingi, sem þýðir lægri flutningskostn-
aður. Einnig er A-gerðin mjög teygjan-
leg. Stigi einhver á ullina færist hún i
fyrra horf og heldur fullu gildi. Alls
þessa getur maður ekki vænst að ann-
arri jarðefnaeinangrun.
Hingað til hefur verið svo til ómögu-
legt að endureinangra eldra húsnæði
án kuldaleiðara. En meö framleiðslu
glerullar-battinga hefur þetta orðið
mögulegt. Glerullar-battingar notast á
stað trégrindar, og eru settir upp á
sama hátt. Battingarnir eru búnir til úr
samanþjappaðri glerull, og klæddir
með krossviði. Einangrunin er lögð á
rryilli að venju og er þá veggurinn ein-
angraður án kuldaleiðara. Engin
hætta er á að. glerullar-battingur vindi
sig.
Sölustaðir; Húsasmiðjan hf. Reykjavik
Burstafell, Reykjavik
Þ. Þorgrimsson hf. Reykjavik
J. L. Byggingavörur, Reykjavik
T. Hannesson, Byggingavörur, Reykjavik
J. Þorláksson & Norðmann hf. Reykjavik
Blikksmiðjan Vogur, Kópavogi
Sesam hf. Hafnarfirði
RÖRA HOLKAR
i öllum stærðum og þykktum
HUÓÐ
EINANGRUN
Fyrir skóla, skrifstofur. verslanir, verk-
smiðjur og stofnanir o.fl.
Jón Fr. Einarsson, Bolungarvik
Timburverslunin Björk, isafirði
Versl. Sigurðar Pálmasonar, Hvammstanga
Stuðlafell hf. Akureyri
Hiti hf. Akureyri
Fjalarhf. Húsavik
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs,
S. G. Einingahús, Selfossi
Trésmiðja Þórðar, Vestmannaeyjum
FSuperfosr
Gléruli
Gerir búsetu á íslandi hlýlegri
Umboð: O. Johnson & Kaaber hf.
Steintúni — Sími 24000
Hringið og fáið senda upplýsingabæklinga varðandi allskonar einangrun. Hugsanlega höfum við lausnina sem þú ert