Þjóðviljinn - 03.04.1982, Blaðsíða 9
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 3.— 4. april 1982.
Helgin 3.-4. aprll 1982. ÞJÓDVILJINN — SIÐA 9
Jón dýralæknir sker fyrstu hnlfsbrög&in.
Kýrin stendur uppi meðan öll aðgerðin fer fram en I byrjun fær hún nokkurs konar kæru
leysissprautu og siðan er hún staðdeyfð f kringum skurðinn.
Búið er að skera gat á legið og ná út afturfótum kálfsins en hann er f stærra lagi svo að lengja verður skurðinn
WWWWUMIBW
Keisara-
skurður í
Geirakoti
Þetta eru myndir frá keisaraskurði sem skorinn
var á kú hjá Ólafi Kristjánssyni bónda i Geirakoti i
Flóa. Kýrinsem heitir Rjúpa, átti með réttu að bera
27. desember. Hún bjóst vel til og stálmaði mikið,
svo sem titt er um úrvalsgripi, en burðurinn lét á
sér standa. Loks var kallaður til dýralæknir sem
sprautaði i kúna lyfi, sem átti að framkalla burðinn,
en það kom ekki að gagni. Dýralæknirinn, Jón Guð-
brandsson á Selfossi fann þá út að vegna einhvers
þykkildis i leghálsi kýrinnar væri eðlilegur burður
ómögulegur og ákvað að taka kálfinn með keisara-
skurði. Eftir mjaltir kvöldið 9. janúar var svo hafist
handa. Svona aðgerðir eru núorðið nokkuð algengar
og lánast yfirleitt vel, t.d. er þetta þriðja kýrin sem
skorin er upp hjá Ólafi bónda i ellefu ára búskapar-
tið hans.
Stefán Gissurarson togar I meö Jóni Guöbrandssyni dýralækni.
Kálfurinn dreginn út i allri sinni lengd en þvi miöur steindauöur.
Á mynd 1 og 2
sést þegar Jón sker fyrstu
hnifsbrögðin. Kýrin stendur uppi
meðan öll aðgerðin fer fram, en i
byrjun fær hún nokkurs konar
kæruleysissprautu og siðan er
hún staðdeyfð i kring um skurð-
inn. Kýrin hefur aðeins tilfinn-.
ingu i húðinni og vöðvunum en
innri liffæri eins og legið er til-i
finningalaust.
Á mynd 3
er búið að skera gat á legið og
ná út afturfótum kálfsins, sem
greinilega er i stærra lagi, enda
reyndist skurðurinn of litill þann-
ig að Jón varð að lengja hann.
Á mynd 4________________I
er afturendi kálfsins kominn i
ljós og Stefán Gissurarson frá
Selfossi togar i með dýralæknin-
um og kemur það sér vel þar sem
Ólafur bóndi er upptekinn viö að
ljósmynda.
Á mynd 5
er kálfurinn dreginn út i allri
sinni lengd. Kolsvartur tudda-
kálfur undan skosku holdanauti
frá einangrunarstöðinni i Hrisey
en þvi miður steindauður og fóru
þar margir hamborgarar i súg-
inn.
Á mynd 6
kafar Jón eftir hildunum (fylgj-
unni). Þær reyndust alveg lausar
við legið og var þar komin skýr-
ing á dauöa kálfsins. Vegna þess
hve langt var komið fram yfir
eðlilegan burð voru hildirnar los-
aðar frá leginu og samband kálfs-
ins við móðurina rofið og þar með
var kálfurinn dauður. Kýrin
stendur grafkyrr og lætur sig að-
gerðina litlu skipta.
Á mynd 7
er Jón dýralæknir langt kominn
með að sauma saman skurðinn en
það er mjög timafrekt þar sem
sauma þarf fyrst legið, siðan
magálinn og loks húðina. Samt
sjást engin þreytumerki á Jóni
þótt klukkan sé orðin hálf tólf
enda eins gott þar sem ein vitjun
var eftir.
Kafaö eftir hildunum. Kýrin stendur grafkyrr og lætur sig aöigeröina
litlu skipta.
Langt komiö meö aö sauma saman skuröinn en þaö er mjög timaferkt
þar sem sauma þarf fyrst legiö, slöan magálinn og loks húöina.
Frásögn og myndir
eftir Ólaf Kristjánsson
bónda í Geirakoti
í Flóa
En það er af kúnni Rjúpu að
segja að daginn eftir uppskurðinn
var mjögaf hennidregið. Hún var
komin með slæman doða og hita,
sem stafaði af júgurbólgu, og auk
þess hafði hún fengið eins konar
meltingartruflun þannig að hægð-
irnar voru þunnar sem vatn.
Hjartslátturinn var mjög veikur
og ör. Enn var Jón dýralæknir
kvaddur til og laldi hann að að-
eins væri timaspursmál hvenær
beljan dræpist þar sem svo marg-
ar banvænar plágur væru saman
komnar i einum grip.
En upp á von og óvon var hafist
handa með lækningu. A næstu
dögum var óteljandi glösum af
bórkalki.sem er doðameðal, dælt
i æðar og skrokk kusu. Herjað var
á jUgurbólguna með pensilin-
sprautum sem einnig skyidu
koma i veg fyrir igerð i skurðin-
um, og reynt var aö koma melt-
ingunni i lag með súlfatöflum og
dufti af malaðri krit og eikar-
berki. Þetta dugöi til að halda lif-
tórunni i kúnni en ekki tók hún i
hey i þrjá daga. Jón kom og gaf
henni glúkósasprautur i æð og
stöðugt var reynt að koma vamb-
arstarfinu og lystinni i lag með
lyfinu „Kýrhaus” sem svo kallast
af þvi að utan á pakkanum er
mynd af stórhyrndu kýrhöfði.
Duft þetta er Ur geri og alls kyns
eksstöktum og er einstaklega
lystaukandi fyrir kýr.
Þetta hafði þau áhrif að smám
saman fór kýrin Rjúpa að nasla i
hey og sýndidaglega framför. Að
mánuði liðnum var hún heil heilsu
og komin i þó nokkra nyt. Og núna
um miöjan mars þarf aö athuga
vandlega á henni siðuna til að
finna öriö eftir skurðinn. Það má
segja að margt lánist þegar
mannleg viðleitni og móðir nátt-
úra vinna saman.