Þjóðviljinn - 03.04.1982, Side 16
DWÐVIUINN
Helgin 3.— 4. april 1982.
Unnib af kappi þótt hver mlnúta sé ekki timamæld
Asta Jónsdóttir — okkar fyrirkomulag þaö besta...
Aöaisimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfsmenn hlaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382,81482 og 81527, umbrot 8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt að ná i af- greiöslu blaösins i sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Saumastofan PR ÝÐI á Húsavík:
Ekkert slítandi bónuskerfi
Samt greiö-
ir stofan á
milli 30%
og 40%
ofan á
kaup af
aröi fyrir-
tœkisins
Guömundur Hákonarson fram-
kvæmdastjóri prjóna-saumastof-
unnar Prýöi á Húsavik
A timum hins ómanneskjuiega
og slitandi bdnuskerfa-fyrir-
komulags hlytur þaö aö vekja at-
hygli þegar prjóna-saumastofa
hafnar þessu vinnufyrirkomulagi
en greiöir starfsfólki sínu eigi að
siður kaupauka sem er ekki lægri
en það sem fólk fær útúr bónus-
fyrirkomulaginu. En einmitt
svona er þaö hjá prjóna-sauma-
stofunni Prýði á Húsavik sem er
sameignarfyrirtæki bæjarfélags-
ins, verkalýösfélagsins og ein-
staklinga, en alls eru hluthafar
28. Fyrirtækið hcfur gengið mjög
vel undanfarin ár og hefur aröi
þess verið varið til að greiða
starfsfólkinu kaupauka sem num-
ið hefur 30% til 40% ofan á venju-
legt timakaup. Hefur þessi kaup-
auki verið greiddur út tvisvar á
ári.
Manneskjulegra kerfi
Hér höfum viöúrvals starfsfólk
sem við getum treyst fullkomlega
og við höfum aldrei viljað taka
upp þetta svo kallaða bónuskerfi;
teljum það ómanneskjulegt og
höfum hafnað þvi. Samt sem áður
hefur veriðhægt að greiða starfs-
fólkinu þennan kaupauka. Hann
var 30% á siðastaári, greiddur af
arði. Þá höfðum við samt keypt
þessa hæð undir starfsemina og
greitt hana á borðið, sagði Guö-
mundur 'Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri prjóna-saumastof-
unnar, þegar hann sýndi okkur
stofuna.
Hún er til húsa i nýju og vist-
legu húsnæði og þarna vinna 22
manneskjur en heilsdagsstörfin
eru 16 og sumar vinna bara hálf-
an daginn. Saumaður er margs-
konar fatnaður Ur prjónavoðum
sem keyptar eru að. öll fram-
leiðslan er flutt út.
Við fórum nú ekki i þessa
rekstrarhagræðingu, sem gekk
yfir prjóna-saumastofurnar i
fyrra, en samt hefur reksturinn
gengið jafn vel hjá okkur og
öðrum,sagði Guðmundur og hann
gat þess um leið að slíkur úrvals-
mannskapur starfaði á stofunni,
að leitun væri að öðru eins. Hér er
engin bónuspressa á fólki en allir
vita að ef fyrirtækið gengur vel,
þá hækkar kaupaukinn. Að auki,
bætti Guðmundur við, heyrir það
til undantekninga að starfsmaður
segi upp hjá fyrirtækinu og það er
ákaflega mikils virði að vera með
vanan og samhentan mannskap.
Eftirvinna þekkist ekki, aðeins
unninn 8 stunda vinnudagur Kon-
urnar eru flestar húsmæður og
þvi vinna margar þeirra hálfan
daginn.
Litum ekki við
bónuskerfinu
Að sögn Guðmundar er voðin,
sem saumað er úr öll aðkeypt.
Hann sagðist ekki vera viss um að
hagkvæmt væri fyrir þessa stærð
af saumastofu aö annast sjálf
vefnaðinn, sennilega þyrfti hún
að vera stærri til þess að það
borgaði sig. Velta saumastofunn-
ar á siðasta ári var 4,3 miljónir
króna og er fyrirtækiö svo til
skuldlaust, enda, eins og áður
segir, var húsnæöið sem sauma-
stofan keypti um sl. áramót
greiddá borðið eins og sagt er, en,
um er að ræða 300 ferm. hæð i
nýju húsi.
Ég hef unnið eftir bónuskerfi á
saumastofu, þar sem öll handtök-
in voru tímamæld og það þýðir
ekki að bjóða mér slikt kerfi
aftur, eftir að hafa kynnst þvi
kerfi sem hér er, sagði Guðrún
Jónasdóttir, verkstjóri á sauma-
stofunni. Allt sem heitir að hafa
ánægju af vinnunni hverfur þegar
unnið er eftir bónus. Launin eru
auk þessmisjöfn og það verður til
þess að skemma allan móral á
vinnustað. Þegár unnið var i bón-
us var bannað að segja öðrum
hvað maður hafði i kaup til þess
að reyna að draga úr óánægjunni.
Hér hjá okkur fá allir sömu
prósentu ofan á útborguð laun og
ekki lægri upphæð en þótt unnið
væri i bónus og allir eru ánægðir,
sagði Guðrún. Undir þetta tók
Asta Jónsdóttir, sem sagði að
mjög góður andi rikti á þessum
vinnustað. —S.dór
Guðrún Jónasdóttir — þýöir ekki aö nefna bónuskerfi viö mig....