Þjóðviljinn - 24.04.1982, Qupperneq 15
Helgin 24.-25. aprll 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
Bjarni Benediktsson frá Hofteigi:
Dönsk rúða í
Bjarni Benediktsson frá Hof-
teigi, gagnrýnandi, leikritahöf-
undur og einn ágætasti penni
Þjóðviljans um langan aldur
hefði orðið sextugur á morgun 25.
april. t þvi tilefni birtum við grein
sem Bjarni ritaði fyrir þrjátiu
árum hér i blaðinu og fjallar um
mál sem enn eru efst á baugi,strfð
og frið. Greinin sýnir vel hinn
snarpa og persónulega stll
Bjarna.
Dómkirkjan í Kantaraborg er
áhrifamesta kirkjan I breska
heimsveldinu, auk þess viðkunn
fyrir fegurð sina og aldurdóm.
Þar messar annanhvern sunnu-
dag yfirbiskup allra breskra bisk-
upa, maður svo sannhelgur að
hann metur atómsprengjuna
lambasparð eitt. Svo huggunarrik
er trúin á guð sé hún nógu bjarg-
föst. Kirkja hans varð fyrir
miklum skemmdum á striðsár-
unum seinustu. En nú er bráðum
lokið að gera við hana á nýjan
leik, lof sé guði. Og það er komin
dönsk rúða i einn gluggann.
Á einum vegg nýju ferðaskrif-
stofunnar, Orlofs h.f. i Hafnar-
stræti 21 i Reykjavik, hangir
danskt landkynningarskjal á
ensku. Þar greinir frá þvi að
Friðrik IX, af guðs náð núverandi
konungur Danaveldis, sé kominn
af Gormi hinum gamla danakon-
ungi; sem reyndar er lýgimál þvi
Friðrik er ættaöur frá Aldinborg,
sem var ekki einu sinni til á
dögum Gorms hins gamla. En
hvað um það: nafn Friðriks eitt
er Danmörku góð landkynning.
Maðurinn er mikill vexti og
gjörfulegur, svo sem ljóst má
verða af dönskum fréttamyndum,
sem hér háfa sést, enda er hann
viðfangsefni þeirra flestra; vel
iþróttum búinn, auk þess list-
elskur maður og hefur stjórnað
heilli sinfóniuhljómsveit upp á
eigin spýtur. Kannski gæti hann
lappaö eitthvað uppá tónlistar-
málin okkar hér nyrðra. Honum
þykir afarvænt um prinsessurnar
sinar. Dómur sögunnar mun falla
honum mjög i vil.
í vetur skrapp Friðrik til Eng -
lands að borða hjá breska kóng-
inum áður en hann dæi. Það var
opinber heimsókn. Með vordög-
unum brugðu þau sér aftur til
Lundúna, dönsku konungshjónin;
að þessu sinni i einkaerindum,
enda var þá breski kollekinn bú-
inn að deyja. Óbrotin máltið á
gistihúsi sætir engum stórtið-
indum, enda fór fáum sögum af
ferðalagi þessu — uns islenska
rikisútvarpið skýröi frá þvi einn
góðan veðurdag fyrir skömmu að
Friðrik IX danakonungur hefði i
dag afhjúpað litskreytta rúðu i
einum glugga dómkirkjunnar i
Kantaraborg. Það var
minningarrúða um 1250 danska
hermenn, sem féllu i stórbreskum
herdeildum i heimsstyrjöld
númer tvö. Nýir danskir her-
menn voru viðstaddir þessa in-
dælu athöfn, og Friðrik mun hafa
tárast litið eitt um leið og hann
sveipaði gardinunni frá glugg-
anum. Það var mjög hátiðlegt.
Fátt er fegurra en minnig lát-
inna manna, ekki sist ef þeir dóu
fyrir þá sem eftir lifa. Þvi miður
verðum vér flest að sætta okkur
viö litið kuml i lágum garði,
þegar jarðvistinni er lokið.
Vandamenn vor flestra eru
óbreytt fólk, og það er aðeins
fáum sem fellur sú hamingja i
skaut að konungur tárist yfir
þeim. Það er sannarlega ekki á
hverjum degi sem menn fá litað
gler i minningu sina.
En sögunni af rúðunni lýkur
ekki hér. Snilldin er eftir, hin ein-
stæða og tragiska snilld veru-
leikans sjálfs.
Það var lika heimsstyrjöld
númer eitt. Og þá féllu sömuleiðis
danskir menn i baráttunni fyrir
réttlætinu, að ógleymdum guði og
fósturjörðinni. Einnig þá lifðu
menn sem kunnu full skil á verð-
mæti þess blóðs sem til moldar
var runnið. Einnig þá var sett
lituð rúða dönsk i dómkirkjuna i
Kantaraborg, til minningar um
þá sem féllu; og ekkert er lik-
legra en þáverandi konungur
Dana (og íslendinga) hafi af-
hjúpað hana með tári. Siöan skall
sem sagt önnur heimsstyrjöldin
á, af þvi strið er náttúrulögmál og
manneskjan syndum spillt og allt
i grænum sjó. Og þá brotnaði
rúðan einn daginn i loftárás. Hér
er það sem skopinu slær yfir i
andstæðu sina, tragikin hefst:
hvernig heföum vér átt aö
minnast hinna nýföllnu ef rúðan
hefði ekki brotnað? Ekki getum
vér þó heimtað heilan glugga eftir
hvert strið. Nei gangurinn er
þessi: við förum i strið, litum
siðan gler til minningar, förum i
nýtt strið, brjótum rúðuna og
litum enn meira gler til minn-
ingar. Ein rúða per strið — það er
mátinn. Þeir sem fyrstir féllu
verða að sætta sig við það að ekki
heldur minningin um þá vari að
eilifu. Allt liður.
Þaö er vandi að framleiða góða
málningu. Og gler er dýrmætt
efni. Hinsvegar getur hver skussi
framleitt nothæfa menn, og þeir
eru mjög billegir. Manneskjan er
ekki annaö en padda úr vatni.
Tortiming mannslifa hefur lika
um langt skeiö verið einn arð-
bærasti atvinnuvegur hér vestur
frá, og er vitaskuld ekkert við þvi
að segja úr þvi það er I einu nauð-
synlegt og óhjákvæmilegt.
Frelsið og lýðræðið útheimtir
sinar fórnir, að guði og dyggð-
unum ógieymdum. Enn sem fyrr
er það ekkert áhorfsmál að fórna
nokkrum af þessum vatnsfullu
pöddum; og enginn skal nokkru
sinni ganga i grafgötur um þaö aö
strið er betra en til dæmis
kommúnismi og kúgun, svo eitt-
hvaö sé nefnt. Og þegar jafnvel
fátækar þjóðir taka sig til og mála
rúður til heiöurs hinum föllnu, þá
má segja aö ekki sé um neitt aö
sakast framar. Er það ekki
fagnaðarefni að Kristján XI. af-
hjúpi þriðju rúðuna?
Fæðing vor er jafnan þrautum
bundin. Lif vort er löngum erfitt
eftir þvi. En svona ánægjulegur
er dauði vor með köflum: vér
fáum litað gler in memoriam.
Þjóðviljinn 21. mai 1952.
Þolplast
nýtt byggingaplast-
varanleg vöm gegn raka
Plastprent hefur nú hafið framleiðslu á
nýju byggingarplasti, ÞOLPLASTI, í sam-
ráði'við Rannsóknarstofnun byggingar-
iðnaðarins. Framleiðsla á ÞOLPLASTI er
árangur af auknum kröfum sem stöðugt
eru gerðar til byggingarefna.
ÞOLPLAST hefur aukið endingarþol gegn
langtímaáhrifum Ijóss, lofts og hita.
ÞOLPLASTersérstaklegaætlaðsem raka-
vörn í byggingar, bæði í loft og veggi.
ÞOLPLAST er varið gegn sólarljósi og því
einnig hentugt í gróðurhús, vermireiti
og í glugga fokheldra húsa.
ÞOLPLAST er framleitt fyrst um sinn
280 sm breitt og 0,20 mm þykkt.
nýtt byggingaplast sem
slær öðrum við
Plastprent hf.
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 85600
2.-9. MAÍ
HEILSUVIKA
Á
HÚSAVÍK
Þarftu aö missa nokkur aukakíló?
Viltu losna við streitu og eril hverdagsins?
Viitu njóta heilsusamlegrar útivistar í
þægilegu og fallegu umhverfi?
VIÐ HÖFUM LAUSNINA
MEGRUN - HVÍLD - LÍKAMSRÆKT - ÚTIVERA
Á HEILSUVIKU Á HÚSAVÍK bjóðum við upp á létt en
girnilegt fæði -sund -leikfimi -gufuböð - heitan pott -
nudd - gönguferðir - ýmiskonar tómstundagaman
og fræðileg erindi.
SÉRHÆFT STARFSFÓLK svo sem læknir -
sjúkraþjálfari - íþróttakennarar leiðsögumenn
og lipurt (hótel) starfsfólk munu sjátil þess að
þér líði sem best.
HÓTEL HÚSAVÍK býður þér að dvelja í vistlegum
tveggja manna herbergjum með baði meðan á
þessari sæluviku stendur.
VERÐIÐ fyrir allt þetta er aðeins frá kr. 3950 fyrir
manninn og flugfar innifalið.
ALLAR UPPLÝSINGAR fást hjá Flugleiðum h.f.
sími 26622 og Hótel Húsavík sími 96-41220.
VERTU VELKOMIN
Hótel
HúsavUf