Þjóðviljinn - 29.04.1982, Page 16
NOBVIUINN
Fimmtudagur 29. april 1982
Alkalstmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga.
Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn
hlaösins í þessum stmum : Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot
8i285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná i af-
greiöslu blaösins I sima 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og
eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími Kvölclsími Helgarsími
81333 81348 afgreiðslu 81663
Endurnýjun
bónussamninga
í fískvinnslu:
Starfsfóik f frystihúsum i
Reykjavik hefur hótaö aö hætta
aö vinna eftir bónuskerfi veröi
ekki búiö aö endurnýja bónus-
samninginn fyrir næstu helgi.
Samningar um bónus i frysti-
húsavinnu stóöu yfir i gær hjá
Vinnuveitendasambandinu.
Á skrifstofum Verkamanna-
sambandsins og Verkakvenna-
félagsins Framsóknar var eng-
inn i gær, sem gat skýrt frá þvi
út á hvaö þessir bónussamn-
ingar gengu eöa hverjar kröfur
verkafólksins væru, en i
vinnslusal Bæjarútgeröarinnar
hittum við fyrir þær Málhildi
Sigurbjörnsdóttur, Ástu Þórar-
insdóttur og Margréti
Eggertsdóttur.
Asta Þórarinsdóttir sagöi aö
núgildandi bónussamningar
væru gamlir og úreltir og nýir
samningar hefðu átt aö taka
gildi 1. febrúar s.l. Hún sagði að
þær væru fyrst og fremst
Asta Þórarinsdóttir: Núgildandi bónussamningar eru aö veröa 4
ára gamlir og eru löngu úreltir
Bónusvinna verður
stöðvuð ef ekki semst
óánægðar með nýtingarstuðul-
inn i bónusnum, en mátti ekki
vera að þvi að útskýra það
nánar.
Málhildur Sigurbjörnsdóttir
er öryggistrúnaöarma ður
verkafólksins I vélasal. Hún
sagði að ekki væri fullt sam-
ræmi á bónuskerfinu á milli
húsa. Sums staðar væri t.d einn
ormur talinn sem einn galli en
annars staðar tveir, en hver
galli þýðir að rifa verður upp
svo og svo mikið af pakkningum
og skoða hvert einasta flak.
Þá sagði Málhildur það vera
réttlætiskröfu að bónusinn
hækkaði i eftir- og næturvinnu.
Margrét Eggertsdóttirer um-
sjónarkona með bónusnum i
pökkunarsal og fyrrverandi
trúnaðarmaður um bónus. Hún
sagöi okkur að bónus i fiskvinn-
unni væri reiknaður út sem
margfeldi af nýtingu og hraða,
en með nýtingu er átt við hversu
mikið eða litið skerst af við
snyrtingu flakanna. Hún sagði
að það nýtingarhlutfall, sem
miðað væri við i bónusútreikn-
ingum væri meðaltalsnýting
þess þriðjungs borðanna, sem
hefði besta nýtingu. Hún sagði
að þetta kerfi gerði þaö aö verk-
um, að þær sem afkasta mestu
eða hafa besta nýtingu gætu
dregið hinar niður i bónus, og
þessu þyrfti að breyta.
Margrét sagði að margar
konur gerðu sér ekki grein fyrir
þvi hvernig bónusinn væri út-
reiknaður, en hins vegar er dag-
Málhildur Sigurbjörnsdóttir:
Ekki samræmi I bónuskerfinu á
miilihúsa —og viö viljum hærri
bónus i eftir og næturvinnu.
lega sett upp á vegg tölvuút-
skrift sem sýnir nýtinguna á
hverju borði frá deginum á
undan.
En þótt bónusinn sé orðinn úr-
eltur eins og hann er, þá er þessi
vinna svo leiðinleg, sagði
Margrét, að það er ekki hægt að
vinna hana i timavinnu. Kappið
Margrét Eggertsdóttir: Nýt-
ingin hjá þeim bestu dregur
hina niður í bónus — þessu þarf
að breyta!
styttir timann og gerir starfið
skemmtilegra. Hér erum við
sérstaklega dugleg i að vinna
karfa, og konurnar eru alltaf
ánægðar þegar þær fá karfann
þvi þær trúa á hann. Maður
verður að trúa á það sem maður
gerir, sagði Margrét að lokum.
-ólg
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
1. maí fundur
á Hótel Borg
Að venju boðar Alþýðubandalagið i Reykjavik til fundar að Hótel
Borg er fundi verkalýðshreyfingarinnar lýkur á Lækjartorgi.
Ræöumenn: Guörún Agústsdóttir ritari og Þorbjörg Sæmundsdóttir
verkamaöur.
Fundarstjóri: Siguröur G. Tómasson borgarfulltrúi.
Fulltrúi Alþýðuflokks dró tillöguna til baka:
Ikarusvögnum
ekki skilað
Á stjórnarfundi hjá Strætisvögnum Reykjavikur i
gær, dró fulltrúi Alþýðuflokksins i stjórninni til
baka tillögu sina frá siðasta stjórnarfundi um að
Ikarus vögnum SVR yrði skilað eða þeir seldir.
Þess i stað bar hann fram nýja
tillögu um aö Ikarusvagnamir
yrðu reyndir áfram i 2-3 mánuði,
og var sú tiilaga samþykkt af
meirihlutaflokkunum, gegn
tveimur atkvæðum fulltrúa Sjálf-
stæöisflokksins.
Guðrún Agústsdóttir stjórnar-
formaður SVR lét bóka á fund-
inum, að hún væri á móti þeim
timamörkum sem tillagan sem
samþykkt var kveður á um.
Ekki komin reynsla
á vagnana
„Þessir vagnar komu hingað i
janúar sl. og þeir eru f fullri
ábyrgð seljenda i 1. ár. Ég tel að
enn sem komið er sé alls ekki
komin full reynsla á þessa vagna,
og aö eitt ár sé alveg lágmarks-
reynslutími.” sagði Guðrún i
samtaii við Þjdðviljann I gær.
„Það liggja engin rök fyrir þvi
að nauösynlegt sé að selja þessa
vagna. Sjálfsagt er að athuga
gaumfæfilega með lagfæringar á
þeim göllum sem bilstjdrar hafa
bent á. Einnig vil ég minna á að
athyglisvert er hversu vel Ikarus
vagnarnir hafa reynst í Kópa-
vogi.”
A stjórnarfundinum i gær,
bókaði annar fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins að timinn frá siðasta
stjórnarfundi hefði verið notaður
til að hafa áhrif á skoðanir full-
trúa Alþýöuflokksins varðandi
tillögu hans um sölu á Ikarus
vögnunum.
Aðspurð um þessa ásökun,
sagði Guörún, að hún teldi hana
alveg fráleita. Það væri ekkert
nýtt að menn skiptu um skoðun. i
þvi sambandi mætti minna á, að
fyrir rúmum mánuöi lýsti annar
fulltrúi Sjálfstæðismanna i stjórn
SVR, því yfir á borgarstjórnar-
fundi að hann myndi ekki styðja
söhi á Ikarus vögnunum. Sú
skoðun hans virtist greinilega
ekki i gildi lengur.
-Ig.
! Hvetju :
I spáði !
j íhaldið j
j fyrir j
! fiórum ■
I árum? j
• Fyrir kosningarnar 1978 ■
Ivoru þær margar hrak- I
spárnar sem Morgunblaðið I
og önnur ihaldsmálgögn ,
• spáöu vinstri flokkunutn >
Inæðu þeir meiri hluta i I
borgarstjórn Reykjavikur. |
Hér verður til gamans og ,
■ fróðleiks birt nokkur „guli- ■
!korn” frá þessum tima og I
getur svo hver og einn borið I
það saman við raunveruleik- ,
■ ann s.l. 4. ár.
I,,Minnihlutinn i borgar- I
stjórn Reykjavíkur hefur af I
fáu að státa i stjórn borgar- ,
■ innar, öðru en sundurþykkj- ■
Iunni og samstöðuleysinu i I
hverju máli. Það yrði raun- I
verulega „happa- og glappa- ,
■ aðferð” á stjórn borgarmála •
Ief öll þau brotabrot þyrftu að
semja um hvert mál, er I
kæmi til kasta borgar- ,
■ stjórnar.Þettahefur flestum ■
IReykvikingum verið ljóst, I
hvar svo sem þeir standa i I
landspólitik”
• (Staksteinar, 6. mai 1978) •
Leikhús þjóðanna í Búlgaríu :
Salka Valka valin
Aðrar tvær sýningar höfðu verið tilnefndar
Sýningu Leikfélags
Reykjavíkurá Sölku Völku
hefur verið boðið á „Leik-
hús þjóðanna" sem í ár
verður í Sofia i Búlgaríu.
Valdar eru sýningar frá 20
löndum og í skeyti sem
Leikfélaginu barst í gær
segir að Salka sé bókuð á
hátíðinni 28. og 29. júní.
Fulltrúi hátíðarinnar var
hér á dögunum til að velja
sýningu frá Islandi og
höfðu „Ofvitinn" og
„Stundarfriður" verið til-
nefndar og átti hann að
velja á milli þeirra. öllum
að óvörum kom skeyti í
vikunni frá stjórn hátíðar-
innar þar sem tiikynnt var‘
að Salka hefði orðið fyrir
valinu.
Stefán Baldursson, leikhús-
stjóri í Iðnó og leikstjóri Sölku
sagði i viðtali við blaðið að
óneitanlega væri freistandi að
fara út með Sölku á hátiðina, en
þetta er i fyrsta sinn sem Leikfé-
lagi Reykjavikur er boðið að
senda sýningu á hátiöina. Það er
þó ekki alveg kostnaöarlaust.
Hátiðin borgar allan kostnað i
Búlgariu, en hvert land verður aö
kosta sýningarnar á staðinn.
Sagði Stefán aö Leikfélag
Reykjavikur biöi nú svars frá
menntamálaráöuneytinu vegna
þessa máls.
Þess má geta að Islendingar,
Finnar og Sviar verða fulltrúar
norrænnar leiklistar á hátiöinni,
en engar sýningar fara frá Noregi
og Danmörku.
Hól