Þjóðviljinn - 13.05.1982, Page 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 13. mal 1982
viðtalið
Rætt við Sigurð
Magnússon um
Hjólreiða-
daginn
mikla 23.
maí n.k.
Hjólreiöadagurinn mikii, eins
og hann er kallaður, verður á
dagskrá 23. mal næstkomandi
og er það i annað sinn sem
dagur hjólreiða er haldinn með
. pompi og pragt hér á landi. Það
er styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra sem stendur fyrir hjól-
reiðadeginum, en i fyrra þótti
dagskrá hans heppnast svo frá-
bærlega vel að ástæða þótti
tilendurtekningar. 24. mai I
fyrra söfnuðust eitthvað i
kringum 6 þúsund hjólreiða-
menn á öllum aldri og hjóluðu
frá fjölmörgum stöðum i
Iteykjavik niður á Laugardals-
völl. Þegar þangað var komið
söfnuðust þátttakendur saman á
vellinum, og lá við algjöru um-
ferðaröngþveiti á brautum
vallarins, svo mikil reyndist
þátttaka vera. Sigurður Magnús
son er formaður þeirrar nefndar
sem hefur meö hjólreiðadaginn
i ár að gera, en auk hans sitja i
nefndinni Bryndis Schram,
Baldvin Ottósson lögregluvarð-
stjóri, Asgeir Heiðar formaður
Hjólreiðafélags Reykjavikur,
Þór Jakobsson veðurfræðingur
ogsonur hans Vésteinn Þórsson
og svo Jóhannes Pálmason for-
maður Lionsklúbbsins Njarðar.
Sigurður var spurður um ýmis-
legt varðandi hjólreiðadaginn
og þá fyrsthverjir komu með þá
hugmynd að hjólreiöadagur
skyldi haldinn:
„Þór Jakobsson veður-
fræðingur og sonur hans Vé-
steinn Þórsson komu með þessa
hugmynd fyrstir manna til okk-
ar i Styrktarfélagi lamaðra og
fatlaðra. Slikur dagur hefur
verið haldinn t.d. i Kanada þar
sem þeir bjuggu um nokkurt
skeið o g þaðan fengu þeir feðgar
upphaflega hugmyndina.”
Hver er svo tilgangurinn meö
deginum?
Sigurður Magnússon formaður þeirrar nefndar Spjald það sem þátttakendum á hjólreiöadeginum
sem sér um hjólreiðadaginn mikla. verður fengið I hendur. Þátttakendum er gert aö
safna sem flestum styrktaraðilum og skulu þeir
skrá nafn sitt á spjaldiö.
„Þetta er i raun og veru fjár-
söfnun fyrir styrktarfélagið.
Þátttakendur, sem i fyrra voru
mestmegnis börn og unglingar,
fá kort og þeir safna siðan nöfn-
um á kortiö. Þar eru yfirleitt á
ferðinni vinir og vandamenn,
fjölskyldumeðlimir o.þ.h. og um
leiö borga þessir aðilar ein-
hverja upphæð, og er fólki
alveg i sjálfsvald sett hvað það
borgar mikið. Hagnaður sem i
fyrra var u.þ.b. 330 þús. krónur
rann óskiptur til iþróttaaðstöðu
fyrir fötluð börn. Nú hyggjumst
við styrkja aldraða á einn eða
annan hátt.”
Eru þátttakendur eingöngu
bundnir við ibúa Iteykjavikur?
,,t fyrra voru þátttakendur
svo til eingöngu frá Reykjavik,
en nú koma inn i myndina Kópa-
vogsbúar, Hafnfirðingar, Sel-
tirningar og Garðbæingar.
Þátttaka frá þessum stöðum
ætti að auka þátttökuna frá i
fyrra, þvi eftir þvi sem næst
verður komist, þá er áhugi á
hjólreiðaiþróttinni ekki minni i
ár en i fyrra.”
Hvaðan verður svo hjólaö?
„Það verður haldið upp frá
fjölmörgum stöðum, Haga-
skóla, Hvassaleitisskóla, Hliða-
skóla, Langholtsskóla, Réttar-
holtsskóla, Laugarnesskóla,
Breiðholtsskóla, Arbæjarskóla,
Seljaskóla og Fellaskóla. Þetta
eru staðirnir i Reykjavik en
ekki hafa verið gefnir upp stað-
ir á öðrum stöðum. Það verður
gert mjög bráðlega. Nú, ferð-
inni er svo heitið niður á
Laugardalsvöll irteð ýmsum
krókaleiðum eins og gengur og
þar fá þátttakendur viður-
kenningarskjöl, kók, freska,
fanta, sprite eða tab. Einnig
fara fram ýmis skemmtiatriði á
meðan afhending verðlauna-
skjalanna fara fram.”
Hvernig veröur öryggis þátt-'
takcnda gætt?
„1 fararbroddi hvers hóps
verður lögreglumaður á mótor-
hjóli, auk þess sem félagar úr
Hjólreiðafélagi Reykjavikur
verða i fararbroddi hvers hóps
og einnig á eftir. Þetta er gert til
að gæta öryggis þátttakenda
gagnvart annarri umferð.”
—hól.
Úr galdraskræðum
■€
e_
. rT\ <> ^
htftf- f /W ‘rtRtn IJl thhdinni O*
rmi-ták ttt nm v- * n-m
l'H'í't YteHt iin
; 7 'VasTYtarr&ta {irf-'»nát cB&ah ojidu**
t-iAcc conr vyitLÍYÓuvtmi
áf em^/Qry) ojouu&t oJs&L
f t/Or^eu.
Skýring 7: Varnarstafir mót illum öndum. Stafi þessa skal skrifa
úr messuvini og mannsblóði til samans á liknarbelg og ber innan
klæða og munt þú ekki ásóttur verða.
Svínhardur smásál
Eftir Kjartan
Arnórsson
S6GCXJ rO£i?, FOSl,
ft TTU NOKKOI?
S'YS.TK-Vríl ?
OO £ieu PftO ÖLLt UH, f)
SftÖO/9 GPiTMPiLTlOrl OG
HE|rOSK/9iei BN
Eaí l°4 HL2ÖTF) TftO f)T>
rtPtFft \Z£fZi£> ALG-Ers/K
Fugl dagsins
Lóuþrællinn er algengasti
vaðfugl i Evrópu. Algengur hér
á landi og hefur a stundum vetr-
ardvöl. A sumrin er hann auð-
þekktastur á stórri svartri
skellu á niðurbringu. Gullbrúnn
með svörtum rákum að ofan og
á kolli. Hvitur og mjórákóttur á
bringu. Nefiö talsvert langt og
litið eitt bogið. Á flugi er hvitt
vængbelti og hvitar gump- og
stélhliðar alláberandi.
Röddin er stutt og hátt nasa-
hljóð „trir”. Söngurinn suðandi
hvell. Verpir i mýrunvflóum og
á þurru graslendi. Tiður gestur i
fjörum og á sandleirum.
Rugl dagsins:
Sjálfsagt hvaö?
— Já, það er þetta meö text-
ana. Eru þeir enskir?
„Já, við filum það betur. Það
passar einhvern veginn betur
við okkar tónlist.”
— En hafiöi ekki verið kriti-
seraðir mikið fyrir það?
„Jú, mjög mikiö en við látum
það ekki hafa áhrif á okkur.
Okkur finnst þaö eins sjálfsagt
og kvennaframboð.”
(Jrpopparaviðtali
GÆTTU
TUNGUNNAR
Sagtvar: Þeir þvældust
fyrir hvor öörum.
Rétt væri: Þeir þvæld-
ust hvor fyrir öðrum.
Rúnar Erlingsson,
bassaieikari i Bodies.
Grýlurnar
og Bodies
á Borginni
í kvöld
llljómsveitirnar Grýlur og
„Bodies” halda hljómleika á
Hótel Borg I kvöld, og sam-
kvæmt fréttatilkynningu eiga
þeir að byrja kl. 22.00 og standa
til kl. 1.00. Sem sagt dynjandi
rokk I þrjár klukkustundir, ef
allir eru stundvisir.