Þjóðviljinn - 13.05.1982, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 13.05.1982, Blaðsíða 9
ulýðsstarf í Reykjavík í sumar KFUM og K: Biblíu- ratleikir Úr sundhöllinni. Þar veröa haldin tvö sundnámskeiö I sumar. Sumarbúöir KFUM og K hafa veriö reknar um áratugaskeiö. Þessar búöir hafa ávallt veriö vinsælar sem sést hvaö best á þvi, aö á hverju ári koma i búöirnar meira en 1500 ungmenni, piltar og stúlkur. Kristilegar sumarbúöir eru einnig i ölveri skammt frá Akranesi og þær draga aö sér fjöidann allan af ungu fólki. Sum- arbúöirnir i Vindáshlfö, þar sem stúlkurnar eru, og i Vatnaskógi þar sem piltarnir eru, munu vera reknar á likan hátt i ár sem fyrri ár. Búðirnar i Vatnaskógi byrja 28. mai og siöasti hópurinn fer i lok ágústmánaöar. Langflestir hóparnir eru eina viku í senn, en þeir elstu sem eru á aldrinum 12 - 17 ára geta fengiö aö vera allt upp i 10 daga. „Þaö má segja, aö markmiöiö meö þessum búöum sé aö út- breiða fagnaöarboöskapinn,” sagöi Stefania Haraldsdóttir starfsstúlka hjá KFUM og K, aö- spurö um það starf sem fram fer i búöunum. „Dagskráin er á þá leiö aö krakkarnir eru vaktir kl. 8.30 á morgnana. Kl. 9 er svo morgun- kaffi og þar á eftir bibliuleikir. Upp úr hádeginu er farið göngu- feröir, siglingar og annaö i þeim dúr. Eftir miödegiskaffiö er svo keppni i hinum ýmsu greinum iþrótta. Fer keppnin fram á milli borða. Siöasti dagurinn er svo bibliuratleikur á dagskrá og má segja aö sú athöfn sé hápunktur dvalartimans. Dagskráin i Vind- áshlið og Vatnaskógi er á allan hátt mjög svipuö,” sagöi Stef- ania. Hún sagöi aö þaö væri mjög algengt aö sömu krakkarnir kæmu aftur og aftur. Nú mun vera alveg fullt á báöa þessa staði en í ölveri er pláss laust fyrir nokkra einstaklinga. Það hefur alltaf þótt góö og gild regla fyrir þá sem áhuga hafa aö dveljast á þessum unglingabúö- um aö hafa vaöiö fyrir neöan sig og vera búnir aö tryggja sér dvöl meö góöum fyrirvara. — hói. Nú þegar vorið er að sönnu komið eru börn og ung- lingar farnir að hugsa hvað sumarið beri i skauti sér. A höfuðborgarsvæðinu verður rekin öflug æskulýðs- starfsemi og er það mál manna að sjaldan eða aldrei hafi verið boðið upp á jafn mikið umfang leikja og tómstunda. Þjóðviljinn mun kynna að nokkru leyti það sem fram fer á vegum Æskulýðsráðs og fleiri aðila. Hér er aðeins stiklað á stóru, fjölmörg atriði verða skilin undan eins og t.d. kynning á starfsemi knatt- spyrnufélaganna. Það er reyndar gert i þeirri góðu trú að unglingar, nú sem endranær, nái að þefa upp þá staði þar sem boltinn rúllar. Upplýsingar um æsku- lýðsstarfið er að finna á allmörgum stöðum en affar- arsælast hlýtur að vera að hafa samband við Æsku- lýðsráð Reykjavikur i simum 15937 og 21769. íþróttaiðkanir um alla borg Skólagarðar á fjórum stöðum Skóiagarðar borgarinnar starfa á höfuðborgarsvæð- inu í ár sem endranær. Þeir verða á fjórum stöð- um í borginni. Við Holtsveg hjá trjágarði í Laugardal. Við Ásenda sunnan Miklu- brautar. I Árbæ vestan Ár- bæjarsafns og i Breiðholti við Stekkjarbakka. Innritun f skólagaröana hefst um mánaöamótin mái—júni, en áætlaö er aö skólagaröarnir á höfuöborgarsvæöinu geti tekiö viö 1100 til 1200 börnum á aldrinum 9 - 12 ára. Þátttökugjald er 60 krónur yfir sumartimann. Hvert barn fær 25 fermetra gróöurreit eg leiösögn viö ræktun á algengustu plöntum. Umhiröa og annaö er innifaliö i kennslunni. Ætlast er til aö börnin veröi u.þ.b. 2 klst. á degi hverjum viö garö- störf en starfseminni lýkur um miöjan september og eiga þá börnin aö vera búin aö ljúka viö hreinsun og uppskerustörf. Þess má einnig geta aö börnin sem stunda skólagaröana fara einnig i skoöunarferöir um nánasta um- hverfi þeirra. Skólagarðarn- ir hafa ávallt verið ,mjög vin- sælir og mikil ásókn i þá. Vill fara svo aö færri komast aö en vilja. Upplýsingar fást hjá Garðyrkju- stjóra rikisins i sima 18000. — hól. Leikrit og ýmsar uppákomur eru tiö I Vatnaskógi og Vindáshliö. Fyrir börn fædd 75 og síðar: Sundnámskeið Fjöldamörg sund- námskeið fyrir börn fædd 1975 og síðar verða í Reykjavík í sumar. Hvert námskeið samanstendur af 18—20 kennslustundum og kosta þau öll 175 krónur. öll fyrstu námskeiðin byrja 1. júni og skal þá hafist handa við að kynna þau: Laugardalslaug, Sundhöll Reykjavikur, Vesturbæjarlaug, Breiðageröislaug, Sundlaug Fjöl- brautaskólans i Breiðhoiti, Sundlaug Arbæjarskóla, Sund- laug Breiöholtsskóla. Aliar þessar laugar eru meö námskeiö sem hefjast 1. júni og enda 30. júni. Innritun á námskeiðin hefst 26. mai á öllum þessum stööum nema hvaö innritun i námskeiöin i sundlaug Arbæjarskóla, Breiða- geröisskóla og Breiöholtsskóla hefst 28. mai.Upplýsingar eru hjá viðkomandi sundlaug. I sundlaug Reykjavikur, Vest- urbæjarsundlauginni og sundlaug Fjölbrautar I Breiöholti veröa einnig námskeiö sem hefjast 1. júli og standa til 28. júii. Þaö sama gildir um þessi námskeiðin og önnur, innritun fer einnig fram I malmánuöi. Þá má geta þess, aö sund- námskeiö fyrir fullorðna veröa haldin I öllum sundlaugunum i júnlmánuöi ef næg þátttaka fæst. Upplýsingar er aö fá á sund- stööunum. — hól. lþrótta- og leikjanámskeiö fyrir börn 6 - 12 ára vcröa haldin dag- ana 1. - 15. júni. Þessi námskeið Fótbolti er meöal þess sem drengjum eg stúlkum gefst tæki- færi til aö iöka á iþróttanám- skeiöum i sumar. veröa á Ijólmörguin stööum I bænum, hefjast kl. 9 á morgnana fyrir börn á aldrinum 6 - 9 ára, standa til kl. 10.15 en eldri krakk- arnir byrja kl. 10.30 og eru aö tii 11.45. Þá eru nokkrir staöir sem eru meö námskeið eftir hádegiö. Hinir fyrstnefndu staöir eru þess- ir: Leikvellir viö Arbæjarskóla, Fellaskóla, Álftamýrarskóia, Grimsbæ, iþróttavöll Þróttar viö Grimsbæ og á leikvelli viö Breiö- beltsskóta. Þá veröa einnig námskeiö fyrir börn 10 -12 árafrá kl. 13.30-15.00 á Laugardalsvelli, Melavelli og iþróttaveliinum við Fellaskóla. A námskeiðum þessum verða kenndar frjálsar iþróttir, knatt- spyrna og ýmsir aðrir leikir. Þátttökugjald er 30 krónur. -Y 51 ■' 3Y? mae > nam- skeið í allt sumar Siglingaklúbburinn Siglunes veröur meö siglinganámskeiö fyrir byrjendur sleitulaust I allt sumar. Þessi námskeiö byrja 1. júni næstkomandi og standa til 20. ágúst I sumar. Ahugi á siglingum hér á landi hcfur vcriö mjög vax- andi og er þaö ekki óalgeng sjón þegar horft er út af Nauthólsvlk i góöu veöri aö sumarlagi, aö þar séu fyrir seglbátar af ýmsum sortum svo tugum skipti. Námskeiöin standa hvert i 10 daga og er hámarksfjöldi á nám- skeiðum fyrir byrjendur tak- markaður við 40 nemendur. Kennd verður meðferð og sigling á seglbátum, einfaldar siglinga- reglur, varúö og viðbrögð Við óhöppum á sjó og umhirða búnaö- ar. Innritun á námskeiðin fer fram aö Frikirkjuvegi 11 og er ætlast til þess aö veröandi þátt- f itakendur komi á Frikirkjuveg og tilkynni sig, þvi ekki er tekið við tilkynningum i gegnum sima. Framhaldsnámskeiöin veröa einnig á dagskrá i suraar og þá fyrir börn á aldrinum 11 - 14 ára. Hámarksfjöldi á hverju nám- skeiöi er 15 nemendur. Þessi námskeiö eru einkum ætiuö þeim sem veriö hafa áöur á námskeið- um i siglingaklúbbnum. Þá má geta þess að Siglunes er einnig með starfsemi fyrir ein- stakar fjölskyldur. Gjaldi á þess- um námskeiðum er mjög i hóf stillt. Nánari upplýsingar er að fá hjá Æskulýðsráði að Frikirkju- vegi 11. — hól Ýtt úr vor.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.