Þjóðviljinn - 13.05.1982, Page 3
'Fímmtudagur 13. máí 1982 WóÐVlLJINN — SÍÐA 3
/
10. þing Málm- og skipasmiðasambands Islands
Rísum gegn árás Vinnu-
veitendasambandsins
segir í kjaramálaályktun þingsins
10. þing Málm- og skipasmi&a- eftirfarandi varðandi kjara- og
sambands islands, sem haldið atvinnumál:
var um siðustu helgi álykta&i íslensk verkalýðshreyfing á nú
Mjög alvarlegt1
ástand er nú
við Sundahöfn
Guðmundur J. kveður koma til greina
að loka vinnustaðnum vegna slysahættu
„Ef ekki tckst að koma i veg
fyrir þessi tiðu vinnuslys i
Sundahöfn sé ég ekki fram á
annað en það verði að loka þess-
um vinnustað”, sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar við blaðið i
gær, en Dagsbrúnarmenn hafa
þu ngar áhyggjur af mikilli
slysaöldu á þessum vinnustað.
Siðastliðinn mánudag ók lyft-
ari á mann á sjörutgaldri, Sig-
urð Sveinsson og fótbrotnaði
hann á öðrum fæti og skaddaðist
töluvert á hinum. Liðan hans er
eftir atvikum. Fyrr um daginn
datt hafnarverkamaður 7 metra
niður i skipalest i Sundahöfn.
Hann slasaðist hins vegar ekki
og þótti þaðhin mesta mildi.
Þessi slys urðu til þess, að all-
ir verkamenn við Sundahöfn
lögðu niður vinnu skömmu eftir
að Sigurður slasaðist og héldu
heim til sin. A þriðjudagsmorg-
unn hófst vinna ekki fyrr en um
niuleytið,en þeir Guðmundur J.
og Skúli Thoroddsen starfsmað-
ur Dagsbrúnar, heldu fund með
verkamönnum.
Þeir Guðmundur og Skúli
héldu siðan á fund yfirmanna til
viðræðna. Guðmundur sagði við
blaðið, að ýmislegt hefði verið
reynt gegnum tiðina i þess-
umefnum m.a. var skipaður
fyrir nokkrumuárum öryggis-
fulltrúi frá Eimskip og skipuð
hefur verið samstarfsnefnd til
slysavarna. ,,Það virðist þó
ekkert duga”, sagði Guðmund-
ur J. Guðmundsson og lét þau
orð falla, er að ofan greinir um
aðloka vinnustaðnum. —ast
fyrir höndum þýðingarmikia
kjarasamningagerð. Við þá
samningagerð ber verkalýðs-
hreyfingunni sameiginlega að
leggja megináherslu á eftirfar-
andi:
Verðlagsbætur greiðist hlut-
fallslega á laun miðað við óskerta
framfærsluvisitölu, sem byggi á
nýrri neyslukönnun Hagstofu
Islands, eigi sjaldnar en árs-
fjórðungslega. Leitað verði eftir
sem skýrustum svörum og sam-
ráði frá hendi stjórnvalda um
niðurgreiðslur og meðferð þeirra,
eftir að nýr grundvöllur tekur
gildi.
Kaupmáttarskerðing launa-
taxta verði leiðrétt þannig að
kaupmáttur launa verði eigi
lakari en eftir kjarasamn-
ingana 22. júni 1977. A tima-
bilinu frá júli 1977 til april 1982
nemur skerðing á kaupmætti
launa um 11—13% þrátt fyrir
kjarasamninga um grunn-
launahækkanir i júni 1979, i
október 1980 og nóvember 1981,
sem námu rúmlega 20% sam-
tals.
Eftirvinna þ.e. tveir timar
með 40% álagi á mánudögum
til og með fimmtudögum verði
felld niður i áföngum án skerð-
ingar heildartekna.
Samtök atvinnurekenda,
Vinnuveitendasambands Islands,
hefur hafnað eðlilegum og rétt-
mætum kröfum Alþýðusambands
Islands og jafnframt sett fram
gagnkröfur um enn frekari skerð-
ingu verðbótavisitölu. Einnig að
grundvallaratriði allra kjara-
samninga um forgansrétt félags-
manna verkalýðsfélaga til vinnu
og innheimta félagsgjalda verði
endurskoðuð.
10. þing M.S.l. skorar á verka-
fólk að risa gegn þessari árás
Vinnuveitendasambands Islands
á verðbótavisitölu og grundvall-
arrétt félagsmanna verkalýðsfé-
laga og svara henni með sam-
stöðu og fullri einurð, og vera
reiöubúið að beita verkfallsað-
gerðum til verndar rétti sinum i
þessum efnum og jafnframt til að
knýja samtök atvinnurekenda til
viðræðna um meginatriði i kröfu-
gerð verkalýðsfélaganna.
Skúli Johnsen borgarlæknir:
Engiim
pólitiskur
ágreinmgur
um uppbyggingu heilsugæslustöðva
— Sem embættismaður hef ég ekki þurft að
kvarta vegna pólitisks ágreinings um uppbyggingu
heilsugæslustöðva, sagði Skúli Johnsen borgar-
læknir á blaðamannafundi sem forvigismenn heil-
brigðismála efndu til á dögunum.
Heilbrigðisráð Reykjavikur Heilsug.st.v/Barónsstig.
hefur lengi unnið að breytingu á 11. Melasvæði ög Vesturbæjar-
heimilislæknakerfinu þannig að i
borginni verði 10 til 12 heilsu-
gæslustöðvar sem sinni allri al-
mennri heilsugæslu. A blaða-
mannafundinum kom fram, að
samningar við samtök lækna og
annarra hlutaðeigandi hafa farið
fram og að samkomulag er i
augsýn um breytinguna. Borgar-
stjórn Reykjavkur samþykkti
áætlun um uppbyggingu heilsu-
gæslustöðvanna árið 1980 og var
þá ekki pólitiskur ágreiningur um
málið i borgarstjórn. Heilbrigðis-
ráðuneytið hefur einnig sam-
þykkt áætlun þessa þvi sem næst
óbreytta þarsem gert er ráð fyrir
aðhverheilsugæslustöð geti þjón-
að um 10 þúsund ibúum. Fyrir-
huguð skipting þeirra er svohljóð-
andi:
1. Arbær/Selássvæði að Hraun-
bæ 102
2. Breiðholtssvæði I, „Mjóddin”
samkv. staðfestu deiliskipu-
lagi.
3. Breiðholtssvæði II, samkv.
staðfestu deiliskipulagi.
4. Breiðholtssvæði III, samkv.
staðfestu deiliskipulagi.
5. Gerðasvæði.óákveðið.
6. Fossvogssvæði. Borgar-
spitalinn.
7. Heima/Vogasvæði, óákveðin
staðsetning.
8. Laugarnes/Kleppsholtssvæði,
óákveðið
9. Háaleitis/Túnasvæði, stað-
setning óákveðin.
10. Miðbæjarsvæði og Norð-
urmýrar og Hliðarsvæði,
svæði, staðsetningóákveðin.
12. Seltjarnarnessvæði, Mela-
braut, Seltjarnarnesi
Gert er ráð fyrir að kostnaöur-
inn við breytinguna frá almennu
heimilislæknakerfi til heilsu-
gæslustöðva sé um fimm miljónir
króna. Borgaryfirvöld hafa vænst
samkomulags við rikisvaldið um
þátttöku i greiðslu vegna kostn-
aðarins við breytinguna. Með
frumvarpi til laga um málefni
aldraðra er gert ráð fyrir
heimilisþjónustu við aldraða i
Reykjavik á vegum rikisins, sem
felur i sér kostnaðarauka fyrir
rikið uppá fimm miljónir, og er
þvi komin forsenda fyrir sam-
komulagi á milli borgar og rikis.
Adda Bára Sigfúsdóttir for-
maður Heilbrigðisráðs Reykja-
vikur upplýsti á fundinum, aö
borgarstjórn heföi á siðasta fundi
sinum frestaðað taka nýja kerfið
til afgreiðslu og ákveðið að láta
það biða nýrrar borgarstjórnar.
Það hefði þvi miður i för með sér,
að gildistöku nýja heilsugæslu-
kerfisins yrði frestað, en hún var
fyrirhuguð 1. október nk. Stefna
Verslunarráðsins og frambjóð-
enda Sjálfstæðisflokksins um að
kanna einkarekstur á heilsu-
gæslustöðvum hefur ekki komið
til álita á vegum Heilbrigðisráðs-
ins og ekki verið minnst á nein
einkagróðasjónarmið i sambandi
við þessi mál þartil nú nýverið.
Páll Gislason læknir er fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins i Heilbrigðis-
ráði Reykjavikur. —óg
| Sigurjón Pétursson. Guðrún Helgadóttir.
Kappræðufundur á Lækjartorgi á morgun
Sigurjón og Guðrún
tala fyrir G-listann
Kappræðufundur verður haldinn á vegum Ás-
geirs Hannesar Eirikssonar (i Pylsuvagninum) á
Lækjartorgi kl. 16.30 á morgun, föstudag. Ræðu-
menn af hálfu G-Iista Alþýðubandalagsins verða
Sigurjón Pétursson og Guðrún Helgadóttir.
Frambjóðendur listanna i
Reykjavik hafa hver um sig
fimm til sjö minútur til umráða
i tveimur umferðum. Af hálfu
D-lista Sjálfstæðisflokksins tala
Davið Oddsson og Albert
Guðmundsson, Sigrun
|Magnúsdottir og Jósteinn
Kristjánsson fyrir B-lista
Framsóknarflokks, Sjöfn Sigur-
björU^dóttir og Sigurður E.
Guðmundsson fyrir A-lista
Alþýðuflokks, og Guðrún Jóns-
dóttir og Magdalena Schram
tala af hálfu V-lista kvenna-
framboðs. __ekhj
Bæjar- og
sveitarstjórnarkosningar 22. maí
1982
c~
O
2500
frambjóðendur
eru í kjöri á nærri
200 listum
Kosninga-
handbókin
er ómissandi
upplýsingarit
• • •
Tryggðu þér
eintak
í næstu bókabúð