Þjóðviljinn - 13.05.1982, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 13. mai 1982
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds
hreyfingar og þjóðfrelsis
Ctgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
ólafsson.
Kréttastjóri: Þórunn Siguröardóttir.
L'msjónarmaöur sunnudagsblaös: Guöjón Friðriksson.
Auglý-singastjóri: Svanhildur Bjarnadóttir.
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson.
Blaöamenn: Auöur StyrkársdóHir, Helgi Ólafsson
Magnús H. Gislason, Ólalur Gislason, Óskar Guðmundsson,
Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson, Valþór Hlöðversson.
iþróttafréttaritari: Viöir Sigurðsson.
Ctlil og hönnun: Andrea Jónsdóttir Guöjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir:Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Elias Mar, Trausti Einarsson.
Auglvsinga
Hildur Kagnars, Sigriður H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson.
Afgreiösla: Bára Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Sigriður Kristjánsdóttir, Sæunn óladóttir.
HUsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bilstjóri: SigrUn Báröardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar
SigUrmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen
Jónsdóttir.
C'tkeyrsla. afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6,
Keykjavik, simi 81333
Prentun: Blaöaprent hf.
A Iþýðuflokkurinn
• Fyrirfram veit enginn, hvort Sjálfstæðisflokkn-
um tekst að endurheimta meirihluta sinn í borgar-
stjórn Reykjavíkur í kosningunum annan laugardag.
• Eitt er þó f yrirf ram víst, — þar getur munað einu
atkvæði. Síðast munaði 56 atkvæðum sem var 0,12%
kjósenda. Hver og einn kjósandi getur vænst þess nú,
að einmitt hann fari með það vald á kjördag sem úr-
slitum ræður.
• En er þá tryggt að við getum áfram vænst vinstri
stjórnar í borgarmálefnum Reykjavíkurá næsta kjör-
tímabili, ef Sjálfstæðisflokknum mistekst að ná
hreinum meirihluta?
• Til þess standa vonir, en um vissu er ekki hægt að
tala. Fyrir alla vinstri menn, alla jafnaðarmenn, er
rétt að minnast þess, að það var fyrst og f remst hinn
ótvíræði stórsigur Alþýðubandalagsins í síðustu borg-
arstjórnarkosningum, sem tryggði það vinstra sam-
starf í borgarstjórn, sem staðið hefur með sóma í
f jögur ár.
• Sá frambjóðandi sem skipar annað sætið á lista
Alþýðuflokksins við borgarstjórnarkosningarnar nú,
lagði á það mikla áherslu á framboðsf undinum í sjón-
varpssal s.l. sunnudag, að Alþýðuf lokkurinn gangi til
kosninga með öllu óbundinn varðandi samstarf á
næsta kjörtímabili. Með öðrum orðum: Sjöfn Sigur-
björnsdóttir býður kjósendum Alþýðuf lokksins upp á
að kaupa köttinn í sekknum. Fyrirf ram eiga þeir ekki
að fá neitt um það að vita, hvort atkvæði þeirra verði
notað til að smíða fyrir íhaldið þá hækju, sem það
kynni að vanta eftir kosningar. — Við munum „við-
reisnarárin".
• Fyrir vinstra fólk og verkalýðssinna ætti hins
vegar að vera óþarfi að taka neina áhættu í þessum
efnum. Enginn er nauðbeygður til að ganga blindandi
til verks á kjördag, eða kaupa köttinn hennar Sjaf nar í
sekknum.
• Aðeins stuðningur við Alþýðubandalagið felur í
sér ótvíræða kröfu um vinstri stjórn og vinstra sam-
starf. Ekkert annað svar dugir gegn því pólitíska
áhlaupi sem svörtustu hægri öflin í landinu hafa nú
hafið. k.
Kvennaframboðið
• Frambjóðendur Kvennalistans sögðu á framboðs-
f undinum í sjónvarpssal, að þeir sæu ekki neinn mun á
vinstri og hægri stefnu í íslenskum stjórnmálum, og
gætu varla hugsað sér að mynda meirihluta með
einum né neinum í borgarstjórn.
• Þetta var reyndar einkar fróðlegt að heyra, ekki
sist með tilliti til þess, að Morgunblaðið hefur lagt
kappá að koma þvf á framfæri að þessi f ramboðslisti
stæði eiginlega vinstra megin við Alþýðubandalagið.
• Einn stærsti atburður í íslenskum stjórnmálum á
þessari öld var fall borgarstjórnaríhaldsins í Reykja-
vík fyrir fjórum árum. Það var mesti ósigur, sem
hægri öf lin á Islandi hafa beðið í marga áratugi, en að
sama skapi glæsilegur vinstri sigur. Getur nokkur
sem þá fagnaði sigri skrifað upp á það nú, að munur-
inn á hægri og vinstri stef nu sé í rauninni ekki til.
• Baráttuna fyrir jafnrétti kynjanna þarf að heyja
af f ullum þrótti á öllum sviðum, en sú barátta verður
tæplega sigursæl ein sér heldur í tengslum við marg-
vísleg önnur þjóðfélagsátök. Það skiptir máli að
hlutur kvenna og karla er nú álíka stór hvað varðar
efstu sæti á f ramboðslistum Alþýðubandalagsins. Hitt
er aftur á móti ekki víst, hvort nokkru breytti þótt
konur og karlar skiptu jafnt með sér sætum í stjórn
Vinnuveitendasambandsins. Alþýðubandalagið vill
vera jaf nréttishreyf ing, Vinnuveitendasambandið
ekki. Sá er munurinn.
• I íslenskum stjórnmálum er það styrkur Alþýðu-
bandalagsins og verkalýðshreyfingarinnar annars
vegar og styrkur Sjálfstæðisflokksins hins vegar sem
einn skiptir máli, fyrir jafnréttismálin, fyrir kjara-
mál verkafólks og fyrir sjálfstæðismál þjóðarinnar í
bráð og lengd.
• Og gleymum því ekki að ósigur Alþýðubanda-
lagsins væri stærsti sigurinn sem Sjálfstæðis-
flokkurinn, Vinnuveitendasambandið og Verslunar-
ráðiðgætu unnið • k.
klrippt
1982
ÞRÓUN VERÐLAGS 0G LAUNA
FRÁJÚM1979 THMARS 082
0
1979
1980
HAKKUN
---VEROBÓTA-
VÍSITÓIU
HÆKKUN
MMRSLU
VÍSITOLU
aunamálin
Verslunarráðið
og
Morgunblaðið
Handbragöið er sláandi likt og
enginn þarf að efast um að
hugarfariö er hið sama. Innan-
um alla þá hulduhrúta sem eru
hvunndags á beit á blaðsiðum
Morgunblaðsins birtast reglu-
lega linurit sem sýna og sanna
það eitt að Alþýðubandalagið er
skelfilega vondur flokkur. Rikið
tekur til sin stóra hluta af kök-
unni og ekkert verður eftir fyrir
einkaneysluna.
ar en inná gafli hjá höfuðand-
stæðingunum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
tekið stefnu Verslunarráðsins
uppá sina arma i veigamiklum
málaflokkum. Enda er oft erfitt
aö sjá hvað er Verslunarráð og
hvað Sjálfstæðisflokkur. Sam-
spil þessara tveggja tækja at-
vinnurekenda gengur út á það
að viðhalda ákveðnum völdum
og forræði atvinnurekendanna i
þjóðfélaginu og cr fátt til
sparaö. Kjör forstjóra tsal
dótturfyrirtækis Alusuisse til
formennsku i Verslunarráðinu
væri einmitt dæmigert fyrir
þetta samspil. Þá var hægt að
sýna fram á að enginn einhugur
væri rikjandi meðal Islendinga
komin á varir frambjóðenda
leiftursóknarihaldsins. Markús
Orn Antonsson og Katrin Fjeld-
sted viðruðu þá hugmynd i
kosningasjónvarpi sl. sunnudag
að athuga ætti einkarekstur á
heilsugæslustöðvum. Þetta er
hin dæmigerða hugmyndafræði
þeirra sem betur mega sin. í
sama mund stungu þau upp á
þvi, að dagvistargjöld yrðu
hækkuð og skattar lækkaðir sem
þvi næmi.
Til þess að dæmið gangi upp,
til þess að búa andfélagslegri og
hugmyndafræði og borgaralegri
sérhyggju þann búning að ein-
hver geti fallið fyrir henni þarf
einhverju að kosta til. Og Versl-
unarráðið kann á þetta með
"34
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. MAl 1982
bRáðstefna iim atvinnulifið og höfuðborgina:
Dregið verði úr skattlagningu
jigna og atvinnurekstrar í Rvíj
Verslunarráð íslands er
höfuðbólið og Morgunblaðið
hjáleigan þegar linuritapólitikin
er annars vegar. Þar er gefin
linan einsog dæmin sanna.
Barlómur Verslunarráðsins
hefur nú tekið á sig nýtt birt-
ingarform, sem stefnuskrá
frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins við borgarstjórnar-
kosningarnar. I Mogganum i
gær er enn ein opnan frá Versl-
unarráðinu, þar er sagt frá
Hótel Borgarráðstefnu, sem
orðið hefur tilefni frásagna æ
siðan hún var haldin i lok mars.
1 rauninni kom ekkert fram nýtt
á þessari ráðstefnu annað en
það sem löngu er vitað að allir
þeir sérgóðu eru sammála um,
nefnilega aö „skattlagning
eigna og atvinnurekstrar” er
alltof há að mati þeirra. 1 fram-
hjáhlaupi má geta þess, að rit-
stjóri Alþýðublaðsins Jón Bald-
vin sá ástæðu til að ljá burgeis-
unum fylgi sitt og má sú hin is-
lenska sósialdemókratia muna
sinn fifil fegurri og annars stað-
gegn hinum illræmda auð-
hring.Formaður Sjálfstæðis-
flokksins fer heldur ekkert i
grafgötur með það á opinberum
vettvangi með hvorum hann
stendur i þvi deilumáli, hann
stendur meö Alusuisse gegn
islenskum stjórnvöldum.
Frambjóðendur
Verslunarráðsins
Verslunarráð íslands hefur
komið sér upp öflugu áróðurs-
kerfi þarsem hamrað er á
stefnumálum ráðsins. „Mennta-
heilbrigðis- og tryggingarmál
verði fjármögnuð þannig, að
einkaaðilar eigi þess kost að
veita þjónustu á þessum sviðum
til jafns við opinbera aðila”.
Þessi tilvitnuðu orð eru úr
stefnuskrá Verslunarráös
Islands. Nú eru þau einnig
Sjálfstæðisflokknum og hefur
fordæmin frá kosninga-
maskinum skoðanabræðra
sinna: Ronald Reagans,
Thatcher og Willochs i Noregi.
Verslunarráðið hefur fengið til
sin kunnan forstjóra aug-
lýsingastofu til að kenna sinum
mönnum að koma fram i sjón-
varpi. (Margir þykjast þekkja
handbragð sömu auglýsinga-
stofu á frambjóðendum Fram-
sóknarflokksins).
Þá hefur Verslunarráðið haft
hjá sér i vinnu til að kenna
mönnum að skrifa greinar i blöð
þann rithöfund sem alþjóð veit
hvað fátækastan, Indriða G.
Þorsteinsson. Og er nú allt
komið undir eina svarta sæng:
leiftursóknin, Verslunarráðið,
Morgunblaðið, frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins og Svart-
höfði. Megi það allt saman hvila
óáreitt og fylgissnautt i svart-
nættinu.
— óg
-09 shorrið