Þjóðviljinn - 13.05.1982, Síða 6
6.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 13. mai 1982
Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins skrifar:
_
Ofrægingarherferðin gegn
húsnæðiskerfinu er leiftur-
sókn á yerkamannabústaðina
í kosningabaráttunni að undan-
förnu hafa ihaldsöflin haldið fram
hrikalegum villukenningum um
húsnæðismál. Það er eðlilegt að
ihaldið vilji gera allt til þess að
ófrægja hið félagslega íbúða-
byggingakerfi sem núverandi
rikisstjórn kom á laggirnar.
Sjálfstæöisflokkurinn greiddi at-
kvæði gegn þessu húsnæðislána-
kerfi vorið 1980. Þó var hér verið
að efna loforð sem margar rikis-
stjörnir höfðu gefið verkalýðs-
hreyfingunni allt frá 1974 en allar
rikisstjórnir höfðu svikið jafn-
harðan, eins og Gunnar Thorodd-
sen forsætisráöherra benti á i út-
varpsþætti á dögunum. Það sem
kemur á óvart i þessum efnum er
ekki afstaöa Sjálfstæðisflokksins;
það sem kemur á óvart er afstaða
Alþýðuflokksins sem hefur reynt
allt sem mögulegt er til þess að
ófrægja hið félagslega ibúöa-
byggingakerfi og hefur tekiö þátt
i þvi ásamt Sjálfstæðisflokknum
að stöðva á alþingi frumvarp um
skyldusparnaö á hátekjur sem þó
átti allur að ganga til ibúðalána-
kerfisins.
En hvað hefur verið að gerast i
húsnæðismálum? Hafa allar þær
breytingar sem viö höfum beitt
okkur fyrir verið til bölvunar en
ekki til bóta? Hefur húsbyggjend-
um veriö neitaö um lán hjá hUs-
næðismálastjórneins og alþingis-
maður hélt fram á dögunum?
Um það verður fjallað
í þessari grein
Helstu breytingar sem gerðar
voru á hUsnæðislánakerfinu vorið
1980 voru sem hér segir:
1. Félagslega ibúðalánakerfið
var stórlega eflt frá þvi sem
áður haföi verið og þessu kerfi
tryggður tekjustofn af 1%
launaskatti. 1 frumvarpi Al-
þýðuflokksins haustiö 1979 var
ekki gertráð fyrir neinum tekj-
um i þennan sjóð, Byggingar-
sjóð verkamanna.
2. Almenna hUsnæðislánakerfið
er nU sveigjanlegra en áður,
það hefur fleiri lánaflokka,
skapar möguleika til þess að
iána hærri upphæðir til stórra
fjölskyldna o.s.frv.
3. Ávöxtunarkjör skyldu-
sparnaðar voru stórlega bætt
frá þvi' sem verið hafði.
íbúðalán hafa hækkað
um 77% að raungildi
á 5 árum og um
16% á siðasta ári.
Þetta má segja að hafi verið
grundvallarbreytingarnar, en
þróunin hefur svo verið sem hér
segir:
Samkvæmt tölum frá Þjóð-
hagsstofnun um breytingar
ibúðalána 1976 til 1981 kemur
fram: Ibúðalán frá opinberum
sjóðum ( þe. byggingarsjóðirnir)
lifeyrissjóðum og innlánsstofnun-
um þróuðust sem hér segir miðað
við raungildi og 1975=100:
1976 122 21.9%
1977 128 5.2%
1978 129 0.5%
1979 144 12.0%
1980 152 5.2%
1981 177 16.0%
Ráðstöfunarfé opinberu
ibúðalá nas j óða nna
hefur vaxið að raungildi
um nær 50% á 5 árum og
vex um 17,7% iár
Ég hef einnig undir höndum töl-
ur frá Þjóðhagsstofnun sem sýna
þróun ráöstöfunarfjár ibúðalána-
sjóðanna einna þ.e. Bygginga-
sjóðs rikisins og Byggingarsjóðs
Verkamanna frá 1970. Sé miðað
við 1970 = 100, þá litur dæmið
þannig út og er þá miðað við
byggingalánasjóðina tvo saman-
lagt,þvi þaðer eina leiðin til þess
að átta sig á heildarstöðu
sjóðanna, með öðrum orðum þvi
hvort staða þeirra hefur versnað
— eins og stjórnarandstaöan
heldur fram — eða lagast — eins
og við höfum haldiö fram.
Ar Visitala Breyting
1970 100
1971 107,0 7,0%
1972 101,2 -í-5,4%
1973 121,3 19,9%
1974 125,8 3,7%
1975 129,7 3,1%
1976 136,5 5,2%
1977 146,3 7,2%
1978 143,4 -5-2,0%
1979 177,2 23,6%
1980 158,2 -5-10,7%
1981 171,3 8,3%
1982 201,7 17,7%
Tvö sibustu árin eru miðuð við
lánsfjáráætlun. Auðvitað er þessi
aukning — tvöföldun á ráð-
stöfunarfé sjóðanna — fyrst og
fremst vegna þess að margföldun
hefur orðið á fjármagni Bygg-
ingarsjóðs verkamanna, en allt
um það: Hér er á ferðinni stór-
felld aukning á ráöstöfunarfé
byggingarsjóöanna á mjög
skömmum tima. Niðurstaðan er
þvi þessi: Það er ekki fjárskortur
byggingarsjóðanna sem veldur
húsbyggjendum erfiöleikum
þannig að ibúöabyggingar hafi
dregist saman frá þvi sem áður
var. Til þess liggja aðrar ástæður
sem síðar verður gerð grein fýrir.
Nú fá menn lánaðan
stærri hluta en áður
af kostnaði við
vísitöluíbúð
Þvi er haldið fram að ibUðalán
á hveija Ibúð hafi lækkað. Þetta
er rangt. Samkvæmt upplýsing-
um HUsnæðisstofnunar eru
meðallánin nú hærri en sam-
kvæmt eldri lögum og lán til
stærri fjölskyldna mun hærri en
áður. Um þennan samanburð við
eldri lög segir hUsnæðisstofnun
orðrétt i bréfi til min 15. april s.l.:
,,Ef eldri lög um stofnunina
hefðuverið i gildi, hækkuðu lánin
til nýbygginga um hver áramót i
samræmi við hækkun byggingar-
vfsitölu frá 1. október tii 1. októ-
ber. A árinu 1981 hefði lánið num-
ið kr. 121.000 og á árinu 1982 kr.
182.000 kr. Miðað við 3. árs-
fjórðung bæði árin eru lánin skv.
nýju lögunum um 6,6% hærri.”
Umræður um lánshlutföll hafa
veriö talsverðar á undanfömum
mánuðum og þrátt fyrir
ábendingar og upplýsingar frá
Svavar Gestsson.
Húsnæðisstofriun um málin hafa
óvandaðir stjórnmálamenn og
blaðaskrifarar haldið áfram að
klifa á óhagstæöum lánshlutföll-
um sem hafi versnað frá þvi' sem
áður var. 1 september sl. aflaði
félagsmálaráöuneytið upplýsinga
um þessi hlutföil hjá HUsnæðis-
stofnun og sendi Ut fréttatilkynn-
ingu þar sem ma. kemur fram að
lánshlutfallið er nU hærra en
áður:
l978kostaði visitöluibúðin 117.000
kr., lánið var 36 þúsund
krónur eða um 30,8% af
byggingarkostnaði.
l979kostaði visitöluibúðin 161.000
kr., lánið var 54.000 kr. eða
33,5% af kostnaði.
1980kostaði ibUðin 263.000 kr.,
lániðvar 1. júli 80.000 kr.eða
30,4% af kostnaði.
198lkostaöi ibúðin 394.000 kr.,
lánið var 129.000 kr. eða
32,7% af kostnaði.
Og stærri fjölskyldur
fá hærri lán
1981 var lánað samkvæmt nýju
ltíunum, 6,6% hærra lán en sam-
kvæmt eldri lögum. En það segir
,þó ekki nema hálfa söguna þvl
stærri fjölskyldur fengu hærri lán
en þetta og fá. Þannig sagði i
fréttatilkynningu félagsmála-
ráðuneytisins 9. september 1981:
,,... fær 5-6 manna fjölskylda nU
25,6% hærra lán en að óbreyttum
lögum og stærri fjölskylda allt að
45,5% hærra lán en áður að
óbreyttum lögum. 5-6 manna fjöl-
skylda fær nU lán sem riemur
38,5% af kostnaðarverði „visi-
töluibúðar” en stærri fjölskylda
44,7% kostnaðar við „visitölu-
ibúðina” — auk þess sem stórfelld
aukning hefur orðið i félagslegum
ibúöabyggingum þar sem láns-
hlutfallið er 90%.” Lán úr Bygg-
ingarsjóði rikisins til nýbygginga
nema nU 123 þUsund krónum til
217 þúsund krónur á hverja ibúð
eftir fjölskyldustærð og staðli
.Ibúðar á fyrsta fjórðungi þessa
árs.
í fyrra var lánað út á
4200 ibúðir
Mikið hefur verið rætt um
ibúðafjöldann og bent hefur verið
á að Ibúðum hafi fækkað. Þeim
hafði fækkað, en flest bendir til
þess að á sl. ári hafi ibUðasmiði
tekiö við sér aftur eftir höggið
sem raunvaxtastefnan reiddi
Þetta súlurit sýnir breytingar á raungildi sameiginlegs ráðstöfunarfjár Byggingarsjóðs rikisins og
Byggingarsjóðs verkamanna á árunum 1970 til 1982. Tölurnar eru frá Þjóðhagsstofnun og upphæð ráð-
stöfunarfjár sjóðanna árið 1970kölluð 100 stig.
5-
Tvöföldun á ráðstöfunarfé byggingarlánasjóðanna