Þjóðviljinn - 13.05.1982, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 13. mai 1982
Hafnarfjörður
Sýning og borgarafundir um
skipuiagsmál
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ákveðið
að efna til sýningar á tillögum að nýju
aðalskipulagi og miðbæjarskipulagi.
Ennfremur verða kynntar tillögur að
deiliskipulagi nýs ibúðahverfis við Set-
berg og tillögu að skipulagi suðurhafnar.
Sýningin verður i félagsheimilisálmu
iþróttahússins við Strandgötu og er opin
13. og 14. mai n.k. frá kl. 18:00 til kl. 22:00,
15. og 16. mai kl. 14:00 til kl. 18:00 og 17.
mai frá kl. 18:00 til kl. 22:00.
í tengslum við sýninguna verða haldnir á
sama stað fjórir borgarafundir:
1. Fimmtudagskvöldið 13. mai kl. 20:30.
Fjallað verður um aðalskipulagið,
miðbæjarskipulagið og skipulag við Set-
berg.
2. Laugardaginn 15. mai kl. 14:00. Þá
verður fjallað um atvinnumál og at-
vinnuuppby ggingu.
3. Mánudagskvöldið 17. mai kl. 20:30. Þá
verða kynntir ákveðnir þættir aðal-
skipulags.
4. Miðvikudaginn 26. mai kl. 20:30. Þar
verður fjallað um sama efni og á fyrsta
fundinum.
Hafnfirðingar eru hvattir til þess að koma
á sýninguna og fundina og kynnast þar þvi
sem framundan er i skipulagsmálum
bæjarins.
Bæjarstjóri.
Utboð
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboð-
umieftirfarandi:
RARIK—82014.
Aðveitustöð Hveragerði, smiði á stáli
fyrir útiyirki
Efnisþyngd ca. 4.000 kg.
Opnunardagur 3. júni 1982 kl. 14:00
RARIK—82029.
Þéttasett
Opnunardagur 18. júni 1982 kl. 14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik, fyrir opnunartima, og verða
þau opnuð að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld frá og með föstu-
degi 14. mai 1982 á skrifstofu Rafmagns-
veitna rikisins, Laugavegi 118, 105
Reykjavik.
Verð útboðsgagna:
RARIK—82014 —
RARIK—82029 —
150 kr. hvert eintak.
25 kr. hvert eintak.
Reykjavik, 12. mail982
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
FÉLAGSMÁLASTOFNUN reykjavíkurborgar
Félagsstarf eldri borgara
í Reykjavík
Sala á munum unnum i Félagsstarfi eldri
borgara verður að Norðurbrún 1 laugar-
daginn 15. og sunnudaginn 16. mai n.k. frá
kl. 13:00 til 18:00 báða dagana.
Félagsmálastofnun
Reykjavikurborgar
Kveöja
Jóhanna Egilsdóttir
Trúðu á tvennt I heini
tign sem æðsta ber:
Guð I alheimsgeimi,
Guð í sjálfum þér.
Þegar ég tek mér penna i hönd
og minnist þeirrar mætu konu,
sem við kveðjum i dag, frú
Jóhönnu Egilsdóttur, fyrrverandi
formanns Verkamannafélagsins
Framsóknar, kemur margt fram
i hugann. Ljóðlinurnar hér að
ofan tel ég eiga vel viö Jóhönnu.
Hún var mikil baráttukona og
fórnaði verkalýöshreyfingunni
starfskröftum sinum i von um
jafnrétti, velfarnaö og betra
mannlif. Hún barðist fyrir högum
þeirra sem minna mega sin i
þjóöfélaginu og trú hennar á
réttlæti var óbilandi. Sjálf var
hún fingerð og ljúf, en um leið
bæöi þrekmikil og kjarkmikii.
Ég tel það mér til gæfu og riki-
dæmis að hafa kynnst Jóhönnu
jafn vel og raun varð á. I febrúar
1954 geröist ég starfsmaður
Verkakvennafélagsins
Framsóknar, og mun ég seint
gleyma móttöku Jóhönnu og Jónu
Guðjónsdóttur, þáverandi vara-
formanns, þegar ég hóf störf hjá
félaginu. 1 fæstum orðum sagt
voru þær ómetanlegir lærimeist-
arar minir. Eftir aö Jóhanna lét
af formennsku áriö 1962 og hætti
störfum hjá félaginu, tók Jóna viö
formannsstarfi. Gagnkvæm vin-
átta þeirra og traust voru einstök
og fram á slöasta dag höföu þær
daglegt simasamband. Brenn-
andi áhugi þeirra á velfarnaði
verkalýðshreyfingarinnar var
alltaf sá sami. — Frumherjum
okkar i verkalýðsbaráttunni
verður seint fullþakkað.
Þvi miður getur Jóna Guðjóns
af heilsufarsástæðum ekki veriö I
þeim hóp sem kveður Jóhönnu I
kirkjunni, en biður mig fyrir
þakkir fyrir samstarfið og hug-
heilar samúðarkveðjur til fjöl-
skyldu Jóhönnu.
Sjálf þakka ég það að hafa átt
samstarf við slikan öðiing, þakka
góða leiðsögn og góða vináttu.
Börnum Jóhönnu og ættingjum
sendum við Kristln dóttir min
innilegar samúðarkveðjur.
Þar sem góðir menn fara eru
Guðs vegir.
Þórunn Valdimarsdóttir.
Þegar Jóhanna Egilsdóttir er
nú til grafar borin minnast henn-
ar margir með djúpum trega,
einlægri virðingu og innilegri
þökk. Þegar hún lézt hafði hún
lokiö miklu lifsstarfi og andlát
svo aldraðrar manneskju kemur
að sjálfsögðu engum á óvart. En
þrátt fyrir þá ævilöngu baráttu,
sem hún háði af algjörri ósér-
hllfni og fórnfýsi i þágu reyk-
vlskra verkakvenna og annars al-
þýðufólks — og var oftsinnis
blandin ótrúlegri hörku þessarar
fallegu og mildu konu — var hún
sátt við alla sína samferðamenn
og þeir við hana. 1 ferðalok naut
hún með réttu óskiptrar virðingar
alls vinnandi fólks sem og þeirra,
sem hærra teljast settir.
Ekki man ég hvenær ég kynnt-
ist Jóhönnu fyrst en sjálfsagt eru
nú ein 30 ár siðan. Það var i
margvislegum störfum fyrir Al-
þýðuflokkinn, þar sem hún var
óþreytandi eins og á svo mörgum
öðrum sviðum. Sannarlega bját-
aði á ýmsu i starfsemi hans á
þeim árum eins og svo oft, fyrr og
siðar. En kátlnan, llfsgleðin og
fjörið var ætlð ofarlega i herini.
Það er ógleymanlegt að hugsa til
þess þegar hún skellti upp úr af
minnsta tilefni og geislaði slnu
fallega brosi með augu sem
sindruðu eins og stjörnur.
Fyrir einum tlu árum siðan
gafst mér kostur á að gera sjón-
varpsþátt um Jóhönnu, sem
nefndur var „Kona er nefnd”. Við
undirbúning hans kynntist ég þvi
m.a. hve umtalsgóð og hlý hún
var I garð þeirra baráttubræðra
sinna i Alþýðuflokknum og verka-
lýðssamtökunum, sem þó höfðu
valdið henni mestum sársauka og
vonbrigðum. Hún talaði um verk
þeirra og mistök af skilningi og
umburðarlyndi án minnsta kala
eða styggðaryrða. Slikt viðhorf
ber vott um stóra sál. Þegar þátt-
urinn var sýndur náði hún til
hjarta hvers einasta manns.
Hlýjan og ástúðin sem til hennar
geislaði frá ótrúlegum fjölda
manna um land allt, kom henni
gersamlega á óvart. Oft hringdi
hún til min á siökvöldum fyrstu
vikurnar á eftir og sagði mér frá
simhringingum, blómum, skeyt-
um, slmtölum og bréfum, sem
bláókunnugt fólk I mörgum til-
fellum sendi henni. Stundum vissi
hún ekki fyrri til en ókunnugt fólk
umfaðmaði hana úti á götu og bað
henni guösblessunar fyrir allt og
allt. Sannarlega unni fólk henni
og virti fyrir alla hennar baráttu I
þágu hinna lægstlaunuðu og ann-
arra alþýöumanna.
Allt frá þvi að þetta gerðist
hringdi Jóhanna stundum til min
á siðkvöldum til að spjalla við
mig um stjórnmálin. Um þau mál
hugsaði hún klárt og skýrt fram
til siðustu stundar. Hún fylgdist
vel með og hafði fastmótaðar
skoðanir á þeim, sem mér þóttu
alltaf athyglisverðar og mikils
virði. Það var mér ætið fagnaöar-
efni aö heyra að hún var I siman-
um og ég saknaöi þess löngum að
heyra ekki meir og oftar i henni.
Jóhanna Egilsdóttir átti hug og
hjarta okkar allra, alþýðuflokks-
manna I Reykjavik. Við vorum
stolt af henni og elskuðum hana
og virtum. Fyrir okkur var hún
framherjinn mikli, sem ætið stóð
fremst þar sem baráttan var
hörðust. 1 augum okkar haföi lík-
amnast i henni öil barátta jafnaö-
armanna og verkalýðssinna um
áratugi fyrir nýju og betra þjóð-
félagi, þar sem öllum liöi vel og
enginn þyrfti að líða skort eða
aðra nauð. En þótt hún sé nú farin
frá okkur eigum viö hana enn i
minningunni, sem ætið verður
okkur bjartur kyndill I baráttu
okkar fyrir framgangi jafnaðar-
stefnunnar og jöfnum rétti vinm
andi fólks, fyrir réttlæti og jafn-
rétti á öllum sviðum. Þeim mark-
miðum var líf hennar helgað.
Blessuö veri minning hennar.
Sigurður E. Guðmundsson
•
Kvenréttindafélag Islands
kveður heiðurfélaga sinn Jóhönnu
Egilsdóttur með virðingu og
þökk.
Þegar baráttusaga islenskra
kvenna verður skráð ber þar hátt
nafn Jóhönnu Egilsdótur.
Hún var alla tið ötull liðsmaður
við að vinna að réttindmálum
kvenna og áttu verkakonur alltaf
skeleggstan málsvara þar sem
Jóhanna var. Snemma i sögu
Kvenréttindafélagsins gerðist Jó-
hanna þar félagi og var um skeið
varaformaður.
Kvenréttindafélag Islands
stofnaði árið 1914 Verkakvenna-
félagið Framsókn. Þar var Jó-
hanna formaður á þriðja tug ára
og átti hún i þvi félagi merkustu
sporin á starfsferli sinum.
Jóhanna Egilsdóttir sat eitt
sinn á Alþingi sem varaþingmað-
ur og lét þá, að vonum, réttinda-
mál kvenna til sln taka.
íslenskum kvenréttindakonum
er það vel ljóst að það eru konur
eins og Jóhanna sem hafa verið
styrkur þess og stoð á liðnum ár-
um. Megi þjóðin eignast margar
slikar konur. Jóhanna Egilsdóttir
mun lifa i sögu og minningu
Kvenréttindafélags Islands.
Stjórn KRFl
•
Kveöjuorð frá
Verkakvennafélaginu
Framsókn:
Stjórn og félagskonur Verka-
kvennafélagsins Framsóknar
þakka Jóhönnu Egilsdóttur
ómetanlegt forystustarf I þágu
félagsins og vona, að mikill
baráttuhugur og óeigingjarnt
starf um árabil gleymist ekki, en
verði höfð aö leiðarljósi um ó-
komin ár.
Félagið sendir börnum, tengda-
börnum og barnabörnum Jó-
hönnu innilegar samúðarkveðjur.
Nýir flugfreyju-
búningar
„Við erum komnir i samkeppni
við önnur flugfélög. Við hlið okkar
er komið islenskt flugfélag og
SAS er einnig komið inni mynd-
ina. Þess vegna bryddum við
uppá ýmsum nýjungum i sömu
mund og sumaráætlunin gengur i
gildi”, sagði Sigurður Helgason
forstjóri Flugleiða i upphafi
blaðamannafundar þar sem ýms-
ar nýjungar i starfsemi Flugleiða
voru kynntar.
Má þar nefna aö Flugleiðir hafa
gerbreytt farskrárkerfi félagsins.
Nýtt tölvukerfi hefur leyst hið
gamla af hólmi. Sumaráætlun fé-
lagsins var kynnt svo og ýmsar
breytingar á fargjöidum. Ein sú
breyting sem hvaö mesta athygli
vekur er að flugfreyjur og flug-
þjónar Flugleiða munu nú varpa
fyrir róða búningum þeim sem
notaðir hafa verið yfir vetrar-
mánuðina og taka upp klæönaö af
léttari sortinni. Þar er um að
ræða ljósbláan búning úr þunnu
efni, gjörólikan fyrri flugfreyju-
búningnum. —hól
Flugfreyjur tvær og flugþjónar: Erna, Stefán og Sigurlaug kynna hina
nýju búninga sem eru Ijósbláir aölit. — Ljósm.: — gel.