Þjóðviljinn - 13.05.1982, Side 15
El
Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla
virka daga, eöa skrifið Þjóðviljanum
Refir í refarækt
Miklar vonir eru enn bundnar
viö ioðdýrarækt á landi voru;
ský hrannast upp á þeim himni
eins og öörum. Nú er vorhret á
glugga, napur vindursem hvin i
þeirri atvinnugrein. Látum
kyrrt liggja þótt öll opinber
gjöid af landbúnaði til fram-
færslu þessa hvitvoöungs hafi
veriö innheimt aö fullu, þvi aö
atvinnuvegur er ekki nema
hann standi undir sköttum og
skyldum og hafi þó afgang.
Gamlir menn hafa þó sagt eins
og viö sjálfa sig, að ekki skaöi
örlitil aöhlynning aö nýgræöingi
áöur en uppskeran hefst, en
stjórnvöld i þessu landi halda
sig hins vegar viö þá kenningu,
aö sjaldan launi kálfurinn of-
eldið og haga sér samkvæmt
þvi.
Mestur ljóminn við upphaf
loðdýraræktar hér á landi staf-
aði hins vegar af hinu geysilega
magni af innlendu hráefni i
refafóður, nefnilega úrgangi frá
fiskiðjuverum og sláturhúsum i
landinu, sem hafði verið fleygt
fram að þvi, og er enn aö mestu.
Hins vegar hefur verið tekin
upp annars konar refarækt, með
blessun stjórnvalda i formi inn-
flutningsleyfa á refafóðri frá
Finnlandi og kannski viðar að.
Hollusta þessa fóðurs fyrir hina
ferfættu refi i landinu er þó svo
takmörkuð, að þeir missa nátt-
úruna eða að minnsta kosti frjó-
semina, nema með bætiefna-
gjöf. Aftur á móti virðast hinir
tvifættu refir þrifast ágætlega
af þessu ljúfmeti, að minnsta
kosti hef ég ekki heyrt talað um
náttúruleysi i þeim stofni. Um
verðið á feldinum af þeim veit
vfst enginn, né heldur um mark-
aðshorfur.
Til þess að ekki fari á milli
mála að hægt sé að hagnast á
refarækt á Islandi krefst ég þess
aö birt verði i dagblöðum lands-
ins nöfn þeirra bráðsnjöllu
manna, sem að þessum inn-
flutningi standa ásamt
reikningum fyrirtækisins frá
stofnun til þessa dags. Setjið
ekki ljós ykkar undir mæliker,
stendur einhvers staðar skrifað.
Fjármálasnilli þessara fórnfúsu
manna hlýtur að vera lærdóms-
rik fyrir þig og mig, lesandi
góður.
Með vissu um skjót og góð
svör,
Lesandi nr. 6797-5987
~1
u
u
Barnahornid
Þrautir:_________
V ölundar-
hús
Teikningin sýnir
völundarhús, en það er
hús, sem afskaplega erf-
itt er að rata um. En nú
skalt þú reyna að finna
leið frá staðnum A til
staðarins Z. Þú mátt ekki
fara yfir línurnar og
aðeins ein leið er fær. Og
reyndu nú.
Best er að gera þetta
með því að leggja gagn-
sæjan pappír (t.d.
smjörpappír) yfir teikn-
inguna og draga strikin á
þann pappír. Þegar þú
hefur fundið réttu leiðina
er auðvelt að færa hana
yfir á teikninguna.
Lausn á
héra-
þrautinni
Þaö var aöeins einn héri eftir á
akrinum — sá dauöi. liinir fjór-
ir uröu svo hræddir, þegar þeir
heyröu skothvellinn, aö þeir
foröuðu sér.
Fimmtudagur 13. mai 1982 þjóÐVILJINN — SIÐA 15
Dagskráin í kvöld endar á „Kvöldstund meö Sveini Einarssyni”,
cn þessi þáttur hefur notiö mikilla vinsælda. Sveinn blandar
saman ýmiss konar tónlist og fróðleik og kennir þar jafnan
ýmissa grasa. Þáttur Sveins byrjar kl. 23.OÓ.
•Útvarp
kl. 19.40
Bein lína
í útvarpi
Útvarpiö heldur simallnu
opinni i kvöld til frambjóö-
enda i borgarstjórnarkosning-
um i Reykjavik, og útvarpar
öllu saman. Þátturinn sem
hefst kl. 19.40, er tveggja og
hálfrar klukkustundalangur og
fimin minútum betur. Komast
áreiðanlega miklu færri aö en
vilja, ef marka má reynsluna
af slikum „beinuin linum”.
Eftirtaldir frambjóðendur
munu mæta og svara spurn-
ingum fyrir hönd sins flokks:
Alþýöubandalag:
Adda, Bára Sigfúsdóttir
Guðmundur Þ. Jónsson
Alþýðuflokkur:
Sigurður E. Guðmundsson
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
Framsóknarflokkur:
Kristján Benediktsson
Sigrún Magnúsdóttir
Kvennaframboö:
Guðrún Jónsdóttir
Kristin Astgeirsdóttir
Adda Bára og Guðmundur
veröa fulltrúar Alþýöubanda-
lags.
Sjálf stæöisflokkur:
Davið Oddsson.
, Umsjónarmenn eru þeir
Helgi H. Jónsson og Vilhelm
G. Kristinsson, fréttamenn.
Þátturinn „Gagnslaúst gaman” veröur I leikformi og
stjórnendurnir, sem hér sjást galvaskir viö upptöku, taka á
málefnum aldraöra I gamansömum tón. Taliö frá vinstri: Asa
Ragnarsdóttir, Hilmar J. Hauksson og Þorsteinn Marelsson. —
(Ljósm.: gel.)
Gagnslaust gaman?
- þáttur um ellina
• Útvarp
kl. 22.35
Aö loknum hátiölegum og
alvarlegum umræöum um
pólitik I útvarpinu, þar sem er
bcin lina til frambjóðenda,
tekur viö grinþáttur sem nefn-
ist „Gagnsiaust gaman”.
t þættinum veröur fjallaö
um málefni aldraöra i gaman-
sömum tón. Einn stjórn-
endanna, Asa Ragnarsdóttir,
sagöi okkur, aö þeim heföi
fundist timi til kominn aö taka
létt á ellinni, enda ekki ástæða
til annars.
Þátturinn veröur i leikformi
og hafa stjórnendur samiö
handrit og flytja einnig verkið.
Stjórnendurnir eru leikari
(Ása Ragnarsdóttir), rit-
höfundur (Þorsteinn
Marelsson) og kennari
(Hilmar J. Hauksson — kennir
i fjölbrautaskóla Breiðholts,
liffræði). Það ætti þvi aö hafa
reynst þeim auövelt að sniða
þáttinn.
— ast.