Þjóðviljinn - 02.06.1982, Page 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 2. júni 1982
SÖGUM
fyrir gluggum og huröum
gegnum járnbenta steinsteypu
Hagkvæmasta lausnin er að fá okkur til þess
að saga fyrir gluggum og hurðum gegnum
járnbenta steinsteypu.
Við vinnum með fullkomnustu tækjum og
bjóðum því lægra verð.
Við gerum tilboð yður að kostnaðarlausu.
Tökum að okkur verk um allt land
Ryklaust — Hagkvæmt — fljótvirkt
DEMANTSSÖGUN
SIGÚ©
byggingaþjónusta sími 83499
Ölafur Kr. Sigurðsson hf., Suðurlandsbraut 6.
Útboð Tilboð óskast i loftræstikerfi nýbyggingar Grunnskóla á Eskifirði. Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofu Eskifjarðar og hjá verkfræðistofunni Hönnun h.f. Höfða- bakka 9, Reykjavik, gegn 500 kr. skila- tryggingu. Tilboðum skal skilað á sömu staði fyrir kl. 14.00, föstudaginn 11. júni n.k. og verða þau þá opnuð að viðstöddum bjóðendum. Bæjarstjóri
Staða sveitarstjóra i Vatnsleysustrandahreppi er laus til um- sóknar. Umsóknarfrestur er til 25. júni. Umsækjandi þarf að geta hafið störf i ágúst. Umsóknir sendist til oddvita, Kristjáns Einarssonar, Hofgerði 5, Vogum, simi 92- 6529 sem gefur nánari upplýsingar. Upplýsingar einnig veittar hjá Guðlaugi R. Guðmundssyni simi 92-6649.
Laus staða Dósentsstaða f efnafræði við efnafræðiskor verkfræöi- og raunvisindadeildar Háskóla Islands er laus til umsóknar. Launsamkvæmt launakerfistarfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf um- sækjenda, ritsmiðar og rannsóknir svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamáiaráðuneytinu Hverfisgötu 6,101 Reykjavik, fyrir 1. júnin.k. Menntamálaráöuneytiö, 27. mai 1982
Staða sveitarstjóra i Eyrarbakkahreppi er laus til umsóknar. Upplýsingar um starfið gefur oddviti Eyr- arbakkahrepps, Magnús Karel Hannes- son, Háeyrarvöllum 48, simi 99-3114. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un, fyrri störf og launakröfur sendist odd- vita Eyrarbakkahrepps fyrir 19. júni n.k. Hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps
Lúðvíg Th. Helgason, Tálknafirði skrifar
Eg ákæri
Þann 23. desember 1981 birtist
grein eftir mig i ÞjóBviljanum
undir fyrirsögninni Fikniefnamál
i Skógaskóla. Tekiö var skýrt
fram, aö greinin væri „opiö bréf
til skólastjóra, lögreglu og ráöu-
neyta”.
Þessir aöilar hafa hingaö til aö-
eins svaraö oröum minum með
þögn. Hvort um er aö ræða ein-
hvers konar samtryggingarþögn
veit ég auðvitaö ekki, en að mér
hefur læöst sá grunur, aö sann-
leiksást og réttlætiskennd áöur-
nefndra aöiia hljóti að vera mjög
skammt frá lágmarki.
í greininni komu fram nöfn eft-
irtalinna manna og stofnana:
Sverrir Magnússon, skólastjóri
Skógaskóla, Bjarnþór Aöalsteins-
son, Asgeir Friöjónsson og Gisli
Björnsson, starfsmenn fikniefna-
deildar rannsóknarlögreglunnar,
Rannsóknarstofa Háskóians, lög-
regluyfirvöid i Rangárvallasýslu,
Birgir Thorlacius, ráðuneytis-
stjóri I menntamálaráöuneytinu,
Reynir Karlsson, deildarstjóri I
æskulýösmáladeild i sama ráöu-
neyti og dómsmálaráöuneytiö.
Sverrir Magnússon, skólastjóri
Skógaskóla: Ég ákæri þig fyrir aö
háfa ráöist á mannorö þeirra
þriggja ungmenna, sem þú rakst
úr Skógaskóla þann 26. október sl.
Þú sakaðir þá um mjög alvarlegt
athæfi án nokkurra sannana og
dæmdir siöan.
Krafa mfn er sú, fyrir hönd
unglinganna, að þú annað hvort
leggir fram sannanir I Flkniefna-
máli Skógaskóla eöa berir fram
afsökunarbeiöni opinberlegai þvi
dagblaöi, sem grein þessa birtir.
Hafir þú hvorugt gert innan hálfs
mánaöar frá birtingu þessara
oröa máttu mannorösþjófur
heita.
Asgeir Friðjónsson, yfirmaöur
fikniefnadómstóls rannsóknar-
lögreglunnar: Ég ákæri þig fyrir
aö svikja það ioforö, sem þú gafst
varöandi rannsókn á Flkniefna-
máli Skógaskóia. Krafa min er
sú, aö þú gerir grein fyrir málinu
frá sjónarhóli þins embættis i
þessu dagblaði. Hafir þú ekki gert
þaö innan 15 daga hér frá aö telja,
má embættisæra þin aum teljast.
Hafa lögregluyfirvöid i Rangár-
vallasýslutekiö skýrslu af Sverri
Magnússyni, skólastjóra, vegna
Ffkniefnamáls f Skógaskóla? Ef
þaö hefur ekki veriö gert, hver er
þá ástæöan? Hafi svör ekki borist
þessu dagblaöi til birtingar innan
15daga hlyt ég aö draga þá álykt-
un aö vföa sé maökur I mysu.
Ingvar Gislason, menntamála-
ráöherra: Varðandi afskipti, eöa
afskiptaleysi, undirmanna þinna,
Birgis Thorlacius og Reynis
Karlssonar, hvaö snertir mál
þetta, vil ég aöeins segja eftirfar-
andi: Menn sem svikjast um I
vinnunni, eins og stundum er
sagt, ætti annaö hvort aö hýru-
draga eða færa til I starfi.
Ég krefst þess af þér sem
menntamálaráöherra, og þar af
leiðandi yfirmanns Sverrir
Magnússonar, skólastjóra Skóga-
skóla, aö þú látir þegar i staö fara
fram Itarlega rannsókn á þvi
Fikniefnamáli f Skógaskóla sem
um er aö ræöa.
Dæmisögu setti ég fram i grein
minni 23. desember sl. 1 fram-
haldi þeirra oröa kom þessi
Lúövig Th. Helgason.
spurning: „Hver yröu viöbrögö
menntamálaráöráöuneytisins I
sliku tilviki?” Hér meö óska ég
eindregiö eftir þvi, aö þú svarir
þeirri spurningu.
Friðjón Þóröarson, dómsmála-
ráöherra: Ég bar fram eftirfar-
andi spurningu i áðurnefndri
grein: „Veitti dómsmálaráöu-
neytiö Sverri Magnússyni umboö
til aö dæma umrædda unglinga?”
Nú óska ég eftir svari þinu viö
þeirri spurningu.
Svavar Gestsson, félagsmála-
ráöherra: Ég fer hér meö fram á
þaö viö þig, félagsmálaráöherra,
aö þú kynnir þér Fikniefnamál i
Skógaskóla — sem fyrst. Þegar
þú hefur gert það, biö ég þig aö
skýra opinberlega frá þinum niö-
urstööum.
Tálknafirði, 1. maf 1982,
Lúövig Thorberg Ilelgason.
Aðalfundur SÍ:
Olympíu-
mót hér?
Gunnar Gunnarsson
einróma kjörinn
forseti S.í.
„Ég lýsi þvf yfir, hér og nú, aö
ég er reiðubúinn til þess persónu-
lega að taka að mér framkvæmd
ólympiumótsins hér á landi 1986,
án nokkurra styrkja frá hinu op-
inbera, fari svo að menn finni
ekki önnur ráð”.
Þessi orð mælti Jóhann Þórir
Jónsson, ritstjóri timaritsins
SKÁKAR á aðalfundi Skáksam-
bands Islands, sem haldinn var á
laugardaginn. Tilefni þessara
orða var hnútukast miili hinna
tveggja arma innan Skáksam-
bandsins um störf fráfarandi
stjórnar. Högni Torfason hafði
lýst þvi sem miklum barnaskap
af fráfarandi stjórn S.í. að bjóð-
ast til að halda ölympiumótið hér
á landi 1986, það kom fram á
fundinum að á næstunni verður
gerð itarleg áætlun um
framkvæmd mótsins og það
kannað hvort möguleiki er á að
halda þaðhér.
Gunnar Gunnarsson var ein-
róma kosinn forseti Skák-
sambandsins, og sagði við það
tækifæri, að það væri ekki einn
maður, heldur samstilltar hendur,
sen gætu unnið góða hluti fyrir
skákhreyfinguna.
Með honum i stjórn voru kosnir
þeir Þorsteinn Þorsteinsson,
Friðþjófur M. Karlsson, Guð-
bjartur Gunnarsson, Trausti
Björnsson, Þráinn Valdimarsson
og Garðar Guðmundsson. Þrir
siðast nefndu eru nýir i stjórninni,
en úr henni gengu Öttar Felix
Hauksson, Helgi Samúelsson og
Arni Jakobsson.
Fram koma á fundinum ein-
róma stuðningur við framboð
Friðriks ólafssonar til forseta
FIDE i haust, og var nýkjörinni
stjórn falið að vinna að þvi máli
eins og kostur vær i. —eik—
Högni Torfason hélt uppi málþófi á aðalfundinum, þannig aö mörgum
fannst nóg um.
A innfelldu myndinni er Gunnar Gunnarsson, nýkjörinn forseti Skák-
sambands tslands. Myndir: —eik —
Guömundur Arason var, ásamt Ásgeiri Þór Asgeirssyni geröur aö
heiöursfélaga Skáksambandsins. Þeir voru báöir forsetar S.í. A mynd-
innisést er dr. Ingimar Jónsson afhendir Guömundi merki til staöfest-
ingar.