Þjóðviljinn - 21.08.1982, Page 5

Þjóðviljinn - 21.08.1982, Page 5
Helgin 21.-22. ágúst 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 2) Útlánareglur, lánstimi og vaxtakjör hjá öllum fjárfestinga- lánasjóðum atvinnuveganna verði sambærileg. Rikisstjórnin hefji undirbúning aö þvi að sam- eina fjárfestingalánasjóði at- vinnuveganna i sameiginlegan atvinnuvegasjóð. 3) Skipuiag á löndun taki mið af þvi að vinnslustöðvar taki ekki við meiri afla en þær hafa bol- magn til að nýta meö arðbærum hætti. Til að stöðva lélega meðferð afla og þá gæðaminnkun, sem komið hefur i ljós á undanförnum mánuðum og stefnir verði is- lenskra sjávarafuröa á erlendum mörkuðum i hættu, veröi strax settar hertar matsreglur og ströng viöurlög gegn brotum. 1 þvi skyni verði m.a. athugað að beita timabundnum missi á vinnslu- og veiðiréttindum. Á næstu þremur mánuðum verði 5 miljónum króna sem komi af gengismunarfé varið til sér- stakrar fræðsluherferðar um gæði og meðferð sjávarafla. 4) Verðlagskerfi sjávarútvegsins og lög um Fiskveiðisjóð verði endurskoðuð á næstu þremur mánuðum og miðist endur- skoðunin við að kanna möguleika á arðbærara skipulagi á fjárfest- ingu, veiðum og vinnslu. 5) Stefnt verði að þvi að sniða hefðbundinni búvöruframleiðslu (kjöt- og mjólkurafurðum) stakk eftir innanlandsneyslu um leið og þróaðar verða nýjar búgreinar vegna innanlandsmarkaöar og arðbærs útflutnings. Mótuð verði hið fyrsta áætlun um búrekstur á jöröum i sam- ræmi við landgæði og markaðs- aðstöðu. A komandi hausti verði hafist handa um fækkun sauðfjár i samræmi við niðurskurðartil- lögur Framleiðsluráðs land- búnaðarins og á grundvelli sam- þykktar rikisstjórnarinnar. Stefnt verði að þvi að draga úr rétti til útflutningsbóta i áföngum i samræmi við áætlun um fækkun búfjár og verði útflutningsbóta- réttur afmarkaður eftir afurða- greinum. Fjármunir sem að óbreyttu hefðu farið til útflutningsbóta verði að hluta til notaðir til að auðvelda aðlögun i landbúnaði, m.a. til að efla ný jar búgreinar og auðvelda bændum er það kjósa aö hætta búskap. Við endurskipulagningu land- búnaðarframleiðslunnar verði leitast við að verja kjör þeirra bænda sem viö þrengstan hag búa. 6) Framkvæmdastofnun rikisins i núverandi mynd veröi lögð niður. Áætlunarverkefni stofnunarinnar verði færð til annarra hagstofn- ana og ráðuneyta. Byggðasjóður verði sjálfstæöur sjóður sem starfi undir sérstakri stjórn og verði framkvæmdastjóri sjóðsins ráðinn til fimm ára i sgnn. Þessar breytingar taki gildi frá og með 1. janúar 1983. 7) Sett verði lög um að stjórn- endur rikisstofnana, ráðuneyta, rikisbanka og Seðlabanka verði einungis ráðnir til fimm ára i senn og taki sú löggjöf gildi á árinu 1983. 8) Sérstakt tækniátak verði gert til að koma á sjálfvirkni i snyrt- ingu og pökkun fiskiflaka og ann- arri tæknivæöingu i vinnslu sjávarafla. 9) 1 stað oliugjalds verði tekið upp kerfi sem stuðli að þvi aö sjómenn hafi hag af orkusparnaði fisk- veiðiflotans. 10) Tryggöur veröur nú þegar viðunandi áfangi varöandi jöfnun á orkuverði til húshitunar i sam- ræmi við yfirlýsingar stjórn- valda. 11) Stofnaðverði oliufélag á vegum rikisins er hafi með höndum inn- flutning á oliuvörum til landsins og athuganir á innlendri tiirauna- vinnslu og nýjungum varðandi eldsneytismál. pTilboð frá þrem í Ikarus Eitt tilboð kom i alla Ikarus vagnana þrjá sem nú eru á sölu- lista hjá Innkaupastofnun Reykjavikur. Það var Mosfells- Ileið h/f sem gerði tilboð upp á kr. 1.200.000,- tólf hundruð þúsund i alla þrjá vagnana. Tii- boð bárust frá tveimur öðrum * aðilum, Keflavikurbæ og I Strætisvögnum Kópavogs. I Keflavikurbær gerði tilboð i • einn tiltekinn vagn upp á kr. ^ 310.000,- og SVK geröi tilboð i þennan sama vagn og hljóðar tilboð þeirra upp á 455.000.- SVK gerðu annað tilboð i tvo tiltekna vagna og hljóðaði það tilboð upp á kr. 550.000. Að sögn Sævars Fr. Sveins- sonar skrifstof ust jóra Inn- kaupastofnunar Reykjavikur- borgar, fara þessi tilboð fyrir Borgarráð og það ákveður hvað gert verður næst i málinu, hvaða tilboðum verður tekið og hvort þeim veröur tekiö. — kjv Fjórðungsþing Norðlendinga á Sauðárkróki Fjórðungsþing Norölendinga verður haldið á Sauðárkróki 26.—28. ágúst n.k. Fundarstaður verður hús Gagníræðaskólans á Sauðárkróki. Þingið verður sett á fimmtudagskvöld kl. 8. Um atvinnumál á Norðurlandi Þegar á fimmtudagskvöld verður, á sérstökum fundi þings- ins, fjallað um atvinnumál á Norðurlandi. Framsögumenn verða fjórir. Gunnar Ragnars forstjóri, ræðir um stóriönað með tilliti til orkunýtingar sem undir- stöðu stærri iðnþróunar. Björn Dagbjartsson, forstjóri Rann- sóknarstofnunar fiskiönaðarins, ræðir um matvælaiðnaö, nýjar leiðir og nýtingu afurða til lands og sjávar. Páll Hlööversson, tæknifræðingur, ræðir um almennan iðnað og þá einkum framleiðsluiðnað. Guðmundur Sigvaldason, landfræðingur, fjallar um þjónustu- og viðskipta- starfsemi og áhrif þessara starfs- greina og þá einkum rikisgeirans á búsetu og atvinnuþróun. Avörp munu flytja fulltrúar vinnumarkaðarins, sem stóðu að atvinnumálaráöstefnu Fjórð- ungssambandsins i vetur. Bjarni Aðalgeirsson, formaöur Fjórðungssambandsins, mun kynna tillögu, sem lögð veröur fyrir þingið um atvinnumál og aðgerðir i þeim efnum. Um verkefni rikis og sveitarfélaga Eftir hádegi á föstudag verður fjallaö um verkaskiptingu milli rikis og sveitarfélaga. Egill Skúli Ingibergsson, fyrrverandi borgarst jóri, formaður samninganefndar rikisins og Samb. isl. sveitarfélaga um verk- efnaskiptingu milli rikis og sveitarfélaga, flytur framsögu- erindi um verkefni nefndarinnar og verkefnaskiptingu almennt. Sturla Böðvarsson, sveitar- stjóri, sem á sæti i nefnd, sem endurskoðar sveitarstjórnalögin hefur framsögu um sveitar- stjórnarkerfið og þær hugmyndir, sem koma til meöferðar viö endurskoðun sveitarstjórnalag- anna. Jón G. Tómasson, form. Sambands ísl. sveitarfélaga, mun flytja ávarp á þessum fundi, sem m.a. fjallar um störf sambands- ins á þessum vettvangi. Askell Einarsson, framkvstj. Fjórðungssambandsins, mun hafa framsögu fyrir tillögu, sem lögð verður fyrir þingið og fjallar um verkefnamál og samstarf sveitarfélaga. Bílbelti — Af hverju notar þú þaðekki yUJgFEROAR Þingstörfum lýkur Fyrri hluta föstudags skila milliþinganefndir áliti og flytja tillögur. Afgreiðsla mála fer fram á laugardag og lýkur þinginu siðari hluta dags með kjöri i fjórðungsráð, milliþinganefndir og aðrar stjórnir, sem kjörið er til á þinginu. Fjórðungsþingið munu sitja yfir 100 manns, fulltrúar og gestir. A laugardagskvöld verður i Bif- röst á Sauðárkróki, boð fyrir þingfulltrúa og gesti á vegum bæjarstjórnar Sauðárkróks, ásamt kynningarkvöldvöku. — mhg RIKISSPITALARNIR lausar stödur LANDSPÍTALINN AÐSTOÐARDEILDARSTJÓRI óskast sem fyrst á skurðstofu Kvenna- deildar Landspitalans. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i sima 29000. AÐSTOÐARMAÐUR óskast við hjartarit Landspitalans. Upplýsingar veittar i sima 29000-389. STARFSMAÐUR óskast sem fyrst i fullt starf á barnaheimili H.S.Í. Upplýsingar veitir forstöðumaður barnaheimilisins i sima 16077. KRISTNESIIÆLI Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa sem fyrst eða eftir samkomulagi. Húsnæði og barnaheimili á staðnum. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i sima (96) 31100. Reykjavik 22. ágúst 1982. RÍKISSPÍTALARNIR Pípulagningarmenn Pipulagningarmenn óskast strax. Mikil vinna. Upplýsingar i sima 76631. Steinullarfélagið hf. Hlutafj árútboð Aðalfundur Steinullarfélagsins hf. hefur samþykkt að auka hlutaíé félagsins úr 1.000.000 kr. í 30.000.000 kr. vegna byggingar steinullarverksmiðju. Með tilliti til forkaupsréttar núverandi hluthafa og eignaraðildar ríkissjóðs hefur verið ákveðið að takmarka útboð hlutabréfa á almennum markaði við 9.000.000 kr. Hlutabréf eru að upphæö: 2.500., 25.000 kr. og 250.000 kr. Hlutafjárloforð að upphæð 5.000 kr. eða hærri greiðast á árunum 1982-1984. Sauðárkróki. 26. júlí 1982. stjórn Steinullarfélagsins hf. Arni Guðmundsson / 'Ðá/ir \^/ Jón Asbergsson , Ol^ur Friðriksson cf&i C V. /ft tdv Víáj** J ~ 'Stefán Guðmundsson / Sftefán S. Gílðmundsson ' Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins: Sauðáricrókur: Suðurgötu 5, sími 95-5321. Reykjavík: c/o Hagvangur hf., Grensásvegi 13, sími 91-83666.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.