Þjóðviljinn - 21.08.1982, Blaðsíða 31
Helgin 21.-22. ágúst 1982 ÞJ6BVILJINN — SIÐA 31
Horfir illa fyrir skipasmíði innanlands
Furðulegt að
ætla að stöðva
alla nýsmíði
segir Gunnar
Ragnars forstjóri
Slippstöðvarinnar
á Akureyri
„Það er veruleg óvissa fram-
undan hjá okkur. öll fyrirliggj-
andi verkefni eru á lokastigi og
við vitum ekki hvað tekur við.
Það er verst af öllu aö lenda i
slíkri aðstöðu. öli afköst hér
minnka vegna þess aö menn eru
skiljanlega ekki aö keppast við aö
klára sin verk þegar ekkert er
framundan”, sagði Gunnar
Ragnars forstjóri Slippstöðvar-
innar á Akureyri á fundi sem
stjórn stöðvarinnar boðaði til meö
fréttamönnum á dögunum.
Tilefni fundarins er sú óvissa
sem skapast hefur i málefnum
skipasmiðaiönaöarins i kjölfar
yfirlýsinga hagsmunaaöila i
sjávarútvegi, m.a. sjómanna og
útgeröarmanna um að stööva
beri alla nýsmiöi fiskiskipa hér
innanlands næstu tvö árin. Mik-
inn ugg hefur sett að bæöi
stjórnarmönnum og ekki siöur
starfsmönnum Slippstöövarinnar
á Akureyri vegna þessara yfirlýs-
inga, en Slippstöðin annar 40% af
öllum nýsmiöum og viögerðum
skipaflotans hér innanlands.
„Þaö er alveg ljóst aö tveggja
ára stöövun á allri nýsmiði myndi
gera miklu meiri usla i þjóðfélag-
inu en margur hyggur og þetta
eru þvi furðulegar yfirlýsingar
sem menn hafa verið að gefa út
að það verði aö stöðva alla smiöi
þvi flotinn sé oröinn það stór”,
sagði Gunnar ennfremur.
Þorleifur Jónsson fram-
kvæmdastjóri félags dráttar-
brauta og skipasmiðja tók i sama
streng og sagöi að allt tal um að
skrúfa fyrir endurnýjun á fiski-
skipaflotanum væri út i hött. „Þó
flotinn sé of stór er endurnýjun
alltaf nauðsynleg og við viljum að
sú endurnýjun fari fram hér á
landi en ekki erlendis.”
Ureltur vertíöarf loti
Sem dæmi um þörf fyrir endur-
nýjun flotans var bent á að á sið-
asta ári voru i islenska vertíðar-
flotanum 76 tréskip af stærðinni
50—99 brúttólestir. Meðalaldur
þessara skipa var þá 27 ár en
meðalending er áætluð 25 ár.
Stálskip af sömu stærö eru 29 og
meðalaldur þeirra orðinn 21 ár og
meðalending áætluð 25 ár.
Þessar tölur sýna glögglega að
vertiðarflotinn er orðinn gamall
og úreltur og þarfnast endur-
nýjunar. Svipaða sögu er að segja
um stærri báta. 39 stálskip
150—199 brúttólestir voru til um
siðustu áramót og var meðal-
aldur þeirra þá orðinn 19 ár en
meðalending talin um 20 ár. Þessi
skip eru þvi mörg á siðasta
snúningi.
75% endurnýjun
Bárður Hafsteinsson skipa-
tæknifræðingur hefur áætlað að
endurnýjunarþörf islenska fiski-
skipaflotans sé á næstu 5 árum
eftirfarandi:
Smiða þyrfti 38 fiskiskip sem
eru 26 m löng og 47 skip sem eru
35 m löng. Auk þess þyrfti að
endurnýja 8 skip skuttogara-
flotans. Þessar.tölur eru miðaðar
við að endurnýjunin sé aðeins
75% af núverandi fiskiskipastól.
Miðað við afköst islenskra
skipasmiðastöðva undanfarin ár
ættu þær að geta annað um 35% af
þessari endurnýjtinarþörf.
„Þessi 35% af endurnýjuninni
sem við gætum sinnt, geta alls
ekki sett þjóðfélagið á hvolf. Lf
öll nýsmiði og endurnýjun veröur
hins vegar stöðvuð næstu tvö ái
eins og sumir virðast vilja, þá er
vist að allt fari á hvolf”, sagði
Gunnar Ragnars. Hann bætti þvi
við að menn yröu að gera sér'
grein fyrir þvi að nýsmiði hjá
skipasmiðastöðvunum væri alger
forsenda þess að þær gætu haldið
úti þeirri viðgerðaþjónustu við
flotann sem þær sinna i dag.
Raðsmiðin á
rikisábyrgð
A vegum iðnaðarráðuneytisins
og félags dráttarbrauta- og skipa-
smiðja hefur verið unnið að sam-
eiginlegu raösmiöaverkefni til
endurnýjunar á vertiðarflot-
anum.
Teikningar liggja fyrir og búið
var að semja um smiði þriggja
slikra báta i Slippstöðinni, þegar
Fiskveiðisjóður tók i taumana og
stöðvaði allar frekari fram-
kvæmdir með þvi aö lækka láns-
hlutfall sitt til smfðanna úr 75% i
60%.
Rikisstjórnin ákvað þá uC eita
rikisábyrgð á siöustu lánsfjár-
lögum fyrir smiöi fjögurra 35 m
fiskiskipa. Þar af yrðu tvö smiðuð
hjá Slippstöðinni. Smiði hvors um
sig mun taka um 17% af afkasta-
getu Slippstöðvarinnar en á
siðasta ári nam nýsmiði 40% af
allri starfsemi stöðvarinnar.
„Við höfum miklar áhyggjur af
þessum málum. Hér er búið að
Nýsmíði er alger forsenda fyrir þvi að við getum sinnt viðhaldsþörf
skipaflotans, segir Gunnar Ragnars og bendir út á dráttarbrautina.
Auk blaðamanns er á myndinni Jóhannes Óli Garðarsson forstöðu-
maður nýsmiðadeiidar Slippstöðvarinnar. Mynd — eik.
okkar samkeppnisaðila”,
Gunnar.
sagði
þróa upp stórfyrirtæki sem er
mjög mikilvægt fyrir s varút-
veginn vegna viðgerðarþjónustu,
sem við getum einungis haldið úti
i skjóli þess að hafa ætið ný-
smiðar i takinu”, sagði Gunnar.
Mikil endur-
skipulagning
„A siðustu árum hefur átt sér
stað geysimikil uppbygging og
endurskipulagning á allri starf-
seminni hér i stöðinni sem hefur
skilað þeim árangri að við stönd-
um algerlega jafnfætis og að
sumu leyti framar samkeppnis-
aðilum okkar i Evrópu varðandi
afkastagetu i skipasmiöum. Hins
vegar hefur fjármagnskostnaöur
verið gifurlegur, þvi að við
smiðum út á bandarikjadollar
meöan okkar helstu samkeppnis-
aðilar miða við evrópugjald-
miðla. Það eru alls ekki afköst
eða fákunnátta sem hafa gert
okkur erfitt fyrir i samkeppni við
erlendar skipasmiðastöðvar
heldur fyrst og fremst gengis-
þróun og fjármagnskostnaður.
Það er að okkar áliti algerlega
útilokað að miða lengur við
bandarikjadollar i skipasmiðum.
Við höfum óskað eftir þvi við
Seðlabankann að fá sömu afuröa-
lánafyrirgreiöslu og fiskiðn-
aöurinn og landbúnaður búa við.
Þaö eru gleðitiðindi aö geta skýrt
frá þvi að stjórn Seðlabankans
hefur nú ákveðið að verða við til-
mælum okkar þannig að við eig--
um nú kost á 50% afuröaláns-
kjörum á 29% vöxtum. Þetta á að
tryggja að við getum keppt við
13 miljón kr. munur
f jármagnskostnaðar
Sem dæmi um fjármagnskostn-
að má nefna að vegna smíði á
skuttogara i Slippstöðinni á
siðasta ári varö fjármagns-
kostnaður 23 miljónir kr. af sam-
tals 78 miljón króna heildarverði
togarans. Með þeim nýju kjörum
sem Seölabankinn hefur sam-
þykkt, hefði fjármagnskostn-
aðurinn við umræddan togara
oröið 10 miljónir. Þarna munar
hvorki meira né minna en 13
miljónum á heildarverði togarans
eða rúmum 17%.
„Þetta snarbreytir vissulega
okkar aðstöðu og við ættum að
geta vel við unað ef við fáum þá
verkefni til aö vinna að. Um þaö
snýst höfuðmálið”, sagði Gunnar
Ragnars.
-»g
Hróp skipasmíðastöðvanna
eru alls ekki ástæðulaus
segir Hjörleifur Guttormsson
iðnaðarráðherra
í sambandi við þessa umræðu um cfnahagsmál núna, þá hefur komið
fram bæði hjá samtökum hagsmunaaðila sjómanna og útgerðarmanna
að stöðva alla nýsmíði næstu tvö ár. Við höfum auðvitað sett okkur
alveg á móti því hér í iðnaðarráðuncytinu og ekkert slíkt getur verið á
dagskrá að mínu mati því það væri fásinna að gera slíkt þó að ég taki
undir það að gæta verði hófs varðandi skipastólinn, en bátaflotinn er
orðinn gamall og þarfnast endurnýjunar. Raðsmíðaverkefnið byggir
einmitt á því að endurnýja þann veiðiflota,” sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson í samtali við Þjóðviljann í gær.
En að hróp og köll skipasmíða-
stöðvanna séu ástæðulaus vil ég
alls ekki segja. Það er eðlilegt að
þeir séu kvíðnir yfir verkefnum,
en af hálfu stjórnvalda hefur bæði
verið reynt að byggja stöðvarnar
upp og greiða fyrir þeim með
ýmsum hætti til að gera þær sam-
keppnishæfar og það eru ýmis
mál þar að lútandi í athugun núna
í samvinnu við hagsmunasamtök
þeirra, m.a. varðandi aðgang að
fjármagni, en fjármagnskostnað-
urinn hefur verið veikasti hlekk-
urinn hér heima gagnvart er-
lendum samkeppnisaðilum.
— Hvað með raðsmíðaverk-
efnið, er það fyrir bí?
— Nei alls ekki. Þessi áætlun
var samþykkt af ríkisstjórninni á
sínum tíma og á það lögð áhersla
af iðnaðarráðuneytinu að hún
næði fram að ganga.
í vor ákvað hins vegar stjórn
Fiskveiðisjóðs einhliða að lækka
lánshlutfall til innlendra skipa-
smíða úr 75% í 60% auk þess að
samþykkja ekki samninga sem þá
lágu fyrir út á raðsmíðaverkefnið
fyrir. árið í ár.
En hins vegar er heimild fyrir
smíði á 8 bátum samkvæmt þessu
verkefni á næstu tveimur árum,
en þá miðað við þetta iægra láns-
fjárhlutfalls sjóðsins.
Þessi lán voru síðan auglýst og
mig minnir að það hafi komið 5
umsóknir um þessa 8 báta. Það
endurspeglar þá erfiðleika seni
eru af hálfu útgerðarmanna til
eiginfjármögnunar.
Við afgreiðslu lánsfjárlaga í
vor var fjármálaráðherra heimil-
að að veita ríkisábyrgð fyrir smíði
allt að 4 báta samkvæmt rað-
smíðaverkefninu. í framhaldi af
því var gefin út reglugerð um
þessa ábyrgð ríkissjóðs og í fram-
haldi af henni heimilað að hleypa
af stað í ár fyrstu verkefnum í
þessari raðsmíði og þau verkefni
eru nú komin af stað.
Framleiðum ekki á lager
Síðan kæmi inn í þetta dæmi
heimild fiskveiðisjóðs fyrir smíði
á næsta ári. Hins vegar fer þetta
alveg eftir því hver eftirspurnin
verður eftir þessum skipum því
það verður ekki farið að frarn-
leiða hér skip á lager. Það þarf að
vera markaður fyrir þau.
Möguleikar útgerðarmanna til
að eignast þessi skip verða háðir
því hvaða lánsfjárfyrirgreiðsla
stendur til boða. Það hefur verið
leitað leiða til að greiða úr þessu
máli í samráði við félag dráttar-
brauta og skipasmiðja að útgerð-
armenn geti eignast þessi skip
þrátt fyrir að það stefni í að eigin-
fjármögnun þurfi að vera meiri
en upphaflega var áætlað. Út af
fyrir sig er æskilegt að eiginfjár-
mögnun í fiskiskipum aukist, það
tel ég mjög æskilegt vegna þess
að lána- og vaxtabirgði er ntikil af
þessum tækjum. Hins vegar má
það ekki verða til þess að koma í
Hjörleifur Guttormsson:
Fásinna að ætla að stöðva allar
nýsmiðar i tvö ár.
veg fyrir skikkaniega endurnýjun
flotans.
Tryggja verkefni
innanlands
Eru þá þessi hróp skipasmíða-
stöðvanna að einhverjum hluta
ástæðulaus?
— Nei, ég segi alls ekki að þau
séu ástæðulaus. Það er Ijóst að
þaö hefur dregið úr nýsmíði skipa
og það virðast vera takmörkuð
verkefni framundan varðandi ný-
smíði, en á móti hefur verið
leitast við að tryggja breytinga-
og viðgerðaverkefni hér innan-
lands og koma í veg fyrir að þau
fari til útlanda svo fremi að þau
geti hér keppt með. eðlilegum
hætti. Þannig að jafnhliða því að
ljóst er að það dregur eitthvaö úr
nýsmíði á næstu árum þá verði
aukning á viðhaldsviögerðum og
breytingum hjá skipasmíðastöðv-
unum.
— Nú er vandi Fiskveiðisjóðs
að mestu leyti vegna innflutnings
á fiskiskipum. Hvernig verður
tekið á þeim málum?
— Þaðereinaftillögumokkar
að stöðva alveg innflutning á er-
lendum fiskiskipum, einkum á
gömlum skipum. Það er mjög
eðlileg aðgerð að mínu mati að
loka á þennan innflutning um
nokkurt skeið og á sama tíma
verði gerðar ráðstafanir til að
innlendu stöðvarnar geti ráðið
við þessi verkefni með sæmilega
samkeppnishæfu verði, að
minnsta kosti þannig að það sé
þjóðhagslega skynsamlegt að
verkefnin séu leyst hér innan-
lands.
Togaraflotinn verði
endurnýjaður hér
— Forráðamenn skipasmíða-
stöðvanna halda því mjög á lofti
að forðast beri þessi stóru og
miklu stökk í endurnýjun togara-
flotans eins og raun hefur verið á
hér á landi og jafna frekar endur-
nýjuninni út. Hefur ráðuneytið
eitthvað lagt til í þcssum efnum?
— Stjórnvöld hafa ekki verið
að leggja neinar línur þar að lút-
andi. Hinu er ekki að neita að
það fer að koma að því að við
verðum að endurnýja togaraflot-
ann og þá þarf að miða við að það
verkefni verði leyst hér innan-
lands. Hins vegar getur verið
skynsamlegt að fækka eitthvað
togurum, það verður að ráðast af
almennum sjónarmiðum og fisk-
veiðistefnu, en það getur ekki
þýtt að til endurnýjunar þurfi
ekki að koma og við getum vel
leyst hana hér innanlands. Stóra
verkefnið sem ég hef hins vegar
verið að beita mér fyrir undanfar-
in ár er endurnýjun vertíðarflot-
ans og það verkefni á að öllu
óbreyttu að geta haldið áfram
með kannski eitthvað hægari
hætti en við hefðum kosið og
uppálagt í fyrstu, en hins vegar er
ekki útséð með það, sagði Hjör-
leifur Guttormsson iðnaðarráð-
herra.
— le