Þjóðviljinn - 21.08.1982, Qupperneq 30
30 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 21.-22. ágúst 1982
ALOÝÐUBANDALAGIO
Alþýðubandalagsfélag
Selfoss og nágrennis
Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags Selfoss og nágrennis verður hald-
inn fimmtudaginn 2. september að Kirkjuvegi 7 og hefst hann kl. 20.
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjörnin.
Alþýðubandalagið í Hveragerði — Berjaferð i Dali
Alþýðubandalagslélagiö i Hveragerði fer i berjaferð vestur að Laugum
i Dalasýsluhelgina 27.-29. ágúst n.k. — Lagt af stað kl. 16 á föstudegi og
komið heim al'tur á sunnudag. Gist verður i svefnpokaplássi — eldhús-
aðstaðaog sundlaugfyrir þásem vilja sulla. — Laugardagurinn verður
notaður til berjatinslu i nágrenni skólans. Fólk er beðið að skrá sig hjá
Ingibjörgu i sima 4259 og Guðrúnu i sima 4518 eða Sigurði i sima 4332
fyrir 24. ágúst.
Allir eru velkomnir i þessa ferö og ætti fólk að notfæra sér þetta tæki-
færi til aö safna vetraríoröa. — Ferðanefndin.
Alþýðubandalagið á Vestfjörðum — Kjördæmis-
ráðstefna.
Kjördæmisráðstefna Alþýðu-
bandalagsins á Vestfjörðum
verður lialdin i Kcykjanesi við
isafjarðardjúp dagana 28. og 29.
ágúst. ltáðstefnan íiefst kl. 2 eftir
hádegi laugardaginn 28. ágúst.
Dagskrá ráðstelnunnar er á
þessa leiö:
1. Stjórnmálaviðhorliö, 2. Sjáv-
arútvegsmál, 3. Byggöamái á
Vestíjöröum, 4. Félagsstarl' Al-
þýðubandalagsins á Vestfjöröum,
5. önnur mál.
Framsögumenn á ráöstefnunni
eru Guövarður Kjartansson,
Flateyri, Gestur Kristinsson,
Súgandaliröi, Kjartan Ólafsson,
ritstjóri og Skúli Alexandersson,
alþingismaöur.
Alþýðubandalagsfélögin á
Vestijöröum eru hvötl til aö kjósa
fulltrúa á ráöstefnuna sem allra
fyrst.
Stjórn kjördæmisráðsins
Gestur Guðvarður
Kjarlan Skúli
Frá
F j ölbraut askólanum
í Breiðholti
Stúlka óskast til skrifstofustarfa við Fjöl-
brautaskólann i Breiðholti. Um er að ræða
3/4 hluta starfs. Vélritunarkunnátta
áskilin. Upplýsingar á skrifstofunni i sima
75600 mánudag og næstu daga.
Skólameistari
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Skólinn verður settur miðvikudaginn 1.
september kl. 14.
Einungis nýnemum er ætlað að vera við
skólasetningu. Að henni lokinni fá þeir af-
hentar stundaskrár og bókalista. Aðrir
nemendur komi kl. 16 þá verður þeim
skipað i bekki.
Kennarafundur verður kl. 10 árdegis.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá
fimmtudaginn 2. september.
Félag íslenskra
rafvirkja
Félagsfundur
verður haldinn mánudaginn 23. ágúst 1982
kl. 20.30 i félagsmiðstöð rafiðnaðarmanna
Háaleitisbraut 68, Reykjavik.
Fundarefni: Nýir kjarasamningar
Félagar fjölmennið.
Stjórn Félags islenskra rafvirkja.
Móðir mín
Sigurrós Guðjónsdóttir
til heimilis að Borgarholtsbraut 19 Kópavogi lést 12. ágúst í
Borgarspítalanum. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 23. ágúst kl.3.
Sverrir Sigþórsson.
Undirskriftasöfnun
á Lækjartorgi
Fjársöfnun og undir-
skriftasöfnun hófst í gær
til stuðnings Palestínu-
mönnum i Líbanon. Voru
menn með listana niðri á
Lækjartorgi og söfnuðust
þegar fyrsta daginn
margar undirskriftir/ en
listarnir verða siðan sendir
rikisstjórninni.
Er þess krafist:
• að rlkisstjórn Islands geri
rikisstjórn Israels ljóst, að
það geti haft alvarlegar af-
leiðingar i för með sér fyrir
samskipti tslands og tsraels,
ef ísraelsstjórn láti ekki
þegar af árásarstríði sinu i
Libanon og dragi herlið sitt
þaðan.
• að tsland veiti PLO formlega
viðurkenningu sem fulltrúa
Palestinuþjóðarinnar, og
hafi samráð við liknarstofn-
anir Palestinumanna og
Libana um brýna aðstoð við
þá sem eiga um sárt að binda
vegna árásarstriðs tsraels-
hers.
Lífeyrissjóðimir hafa
staðið við sinn hlut
segir Eðvarð
„I frétt Þjóöviljans í gær
um skuldabréfakaup líf-
eyrissjóðanna i landinu og
hinn mikla bifreiðainn-
flutning er þess m.a. getið
að Byggingasjóður ríkisins
sé fjárvana vegna þess að
lif eyriss jóðirnir hafi
brugðist. Þarna gætir
nokkurs misskilnings sem
ég tel nauðsyniegt að leið-
rétta"/ sagði Eðvarð
Sigurðsson stjórnarmaður
Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar
og Framsóknar í samtali
við blaöið í gær.
,,bað er vissulega rétt að enn
hafa lífeyrissjóðirnir i heild ekki
keypt fyrir sömu upphæð i ár og á
sama tima i fyrra en þess verður
að geta aö margir þeirra hafa
fyllilega staöið við skuldbindingar
sinar og vel það. Þá er þess ekki
getið i fréttinni i gær að auk
þeirra 75,7 miljóna sem sjóðirnir
hafa keypt af Byggingasjóði
rikisins, hafa þeir i ár keypt fyrir
32,8 miljónir króna af Bygginga-
sjóði verkamanna. Sambærileg
Vlltu safna
lúpínufræi
í Heiðmörk?
A undanförnum árum hefur
Landvernd iengið nema hér i
Reykjavik og Kópavogi til sjálf-
boðavinnu við aö safna lúpinufræi
i Heiðmörk. Nú er lúpinan tilbúin
með sin fræ og ekki hægt að bíða
cftir að skólar taki til starfa.
Landvernd vill þvi biðja þá sem
hafa tima og tækifæri til að koma
i Heiðmörk i dag og á morgun kl.
13.00 og aðstoða við fræsöfnun.
Mcnn frá Landvernd og Land-
græöslunni verða til staöar i
Jaðarshliðinu kl. 13.00.
Sigurðsson
tala fyrir siðasta ár var hins-
vegar 8 miljónir króna af þeim
sjóði. Þannig að i ár hafa lifeyris-
sjáðirnir keypt skuldabréf af
Byggingasjóði rikisins og Bygg-
ingasjóði verkamanna fyrir
41,1% hærri upphæö i krónutölu
en árið á undan, sagði Eðvarð
Sigurðsson ennfremur. Er þá
ótalið það sem sjóðirnir hafa
keypt af fjárfestingalánasjóð-
um.”
,,Ég fæ ekki betur séð en að
þessi kaup séu vel yfir þeirri visi-
töluhækkun sem rikisstjórnin
geröi ráð fyrir”, sagði Eðvarð
Sigurðsson.
,,Þá vil ég að komi skýrt fram
að hvaö Lifeyrissjóð Dagsbrúnar
og Framsóknar varðar, má full-
yrða aö ekki minna en 75% lán-
anna fari til húsnæðismála i einu
eða öðru formi. Væri raunar
gaman að vita frá hvaða sjóði
Þjóðviljinn fær þær upplýsingar
að 2/3 hluti lána hans hafi farið til
bifreiðakaupa, eins og fram kom i
blaðinu i gær”, sagði Eðvarð
Eðvarð Sigurðsson
Sigurðsson stjórnarmaður i
Lifeyrissjóði Dagsbrúnar og
Framsóknar að lokum.
— v.
A
Leyfi til daggæslu
í heimahúsum
Félagsmálaráð vekur athygli á að leyf i til
daggæslu i heimahúsum eru veitt á tima-
bilinu 1. ágúst til 15. október ár hvert. Skil-
yrði fyrir leyfisveitingu er að viðkomandi
sæki námskeið á vegum félagsmálastofn-
unar sem haldin eru árlega. Ennfremur
þarf að skila læknis- og sakavottorði og
samþykki húsfélags ef um slikt er að
ræða.
Félagsmálastofnun Kópavogs