Þjóðviljinn - 07.10.1982, Side 3
Fimmtudagur 7. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Fyrsta skipti sem Norski verkamannaf 1. tekur afstöðu gegn NATO í mikilsverðu máli
Ekkert fé í eldflaugaáætlun NATO
Stjórnarfundur í Norska
verkainannaflokknum ákvað á
laugardag að flokkurinn skyldi
greiða atkvæði gegn því að
norska ríkið tæki þátt í kostnaði
við undirbúning að staðsetn-
ingu 579 meðallangdrægra eld-
flauga í Evrópu, en mál þetta
verður lagt fyrir norska Stór-
þingið nú í mánuðinum.
Sem kunnugt er ákvað NATO í
desember 1979 að komið skyldi
upp 579 meðallangdrægum eld-
flaugum í Evrópu á árinu 1983
nema samningar hefðu tekist um
það í millitíðinni að Sovétríkin
tækju niður sínar meðallangdrægu
eldflaugar af gerðinni SS-20.
Norski verkamannaflokkurinn
var við völd í Noregi er þessi
ákvörðun var tekin, og átti Thorv-
ald Stoltenberg, þáverandi varn-
armálaráðherra, aðild að þessari
ákvörðun með samþykki ríkis-
stjórnarinnar. Andstaða gegn
kjarnorkueldflaugaáætlun NATO
hefur hins vegar verið mikil innan
Verkamannaflokksins og norsku
verkalýðshreyfingarinnar, og það
er undan þeim þrýstingi sem stjórn
flokksins hefur nú látið með því að
taka upp breytta stefnu á þeim
forsendum að of lítið hafi miðað í
afvopnunarviðræðum Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna í Genf.
Sú ákvörðun, sem lögð verður
fyrir norska Stórþingið í mánuðin-
um varðar fjárveitingu til undir-
búnings á framkvæmd eldflaugaá-
ætlunarinnar. Byggja þarf eld-
flaugapalla, vegi og önnur mann-
virki, og á hlutur Noregs í þeim
framkvæmdum að verða 49 mill-
jónir norskra króna.
Þjóðviljinn hafði í gær samband
við ritstjórnarfulltrúa Dagblaðsins
í Osló. Hann sagði að þótt Verka-
mannaflokkurinn hefði nú tekið af-
stöðu gegn þessari fjárveitingu
þýddi það ekki að hann hefði end-
anlega tekið afstöðu gegn hinni
svokölluðu „tvöföldu ákvörðun"
NATO. Hins vegar er þetta í fyrsta
skipti í .sögu Norska Verkamann-
aflokksins að hann tekur afstöðu
gegn NATO í meiri háttar máli,
sagði ritstjórnarfulltrúinn.
Þingmenn sósíalista munu einnig
greiða atkvæði gegn fjárveiting-
unni. Óvissa ríkir um þá þingmenn
borgaraflokkanna, sem hafa lýst
sig andvíga eldflaugaáætluninni,
en ritstjórnarfulltrúi Dagblaðsins
sagði að þeir þingmenn Kristilega
þjóðarflokksins, sem hafa verið
andvígir áætluninni, myndu ekki
verða til þess að fella stjórnina.
Taldi hann sennilegt að stjórn
hægri flokksins myndi ná fram
meirihluta fyrir fjárveitingunni.
Það eru hins vegar söguleg tíð-
indi að stjórn Norska verkamann-
aflokksins hefur tekið afstöðu gegn
NATO í mikilsverðu máli í fyrsta
skipti.
-ólg.
Með látbragði er margt hægt að gefa í skyn
Nýstárlegt námskeið
Því er ekki að neita að þeir
tilburðir, seni við sáunt í fund-
arsal Norræna hússins sl. mán-
udag komu okkur kynlega fyrir
sjónir. Þar var þá að byrja
þriggja daga námskeið fyrir
talkennara, talmeinafræðinga
og starfsfólk við stofnanir fyrir
þroskahefta. í stuttu kaflihléi
tókst okkur að ná tali af Friðrik
Rúnari Guðmundssyni, tal-
kennara við Heyrnar- og
talmeinastöðina, en Friðrik er
jafnframt formaður Félags ís-
lenskra talkennara, - og inntum
hann frétta af því, sem þarna
færi fram. Við spurðum hann
fyrst að því, hver tilgangurinn
væri með námskeiðinu.
- Tilgangurinn með námskeið-
inu er að kynna möguleika á að
nota táknmál heyrnarlausra til
málörvunar hjá þroskaheftum og
málfötluðum, sem hafa heyrn. Eru
táknin, sem við getum sagt að tekin
séu þannig að láni notuð til stuðn
ings, jafnframt talinu. Látbragð
er hluti af tjáningu og það kemur
að gagni þeim, sem erfitt eiga með
að tjá sig með orðum éinum.
- Hverjir eru leiðbeinendur á
námskeiðinu?
-Leiðbeinendur eru þau Lars
Nygaard og Maríana Bjerregaard
frá Árósum. Þau byrjuðu með
svona námskeið í Danmörku fyrir
12 árum og hafa eirinig haldið þau í
Noregi. Þykja námskeiðin hafa
gefið ágæta raun. Þetta er hinvegar
f fyrsta sinn, sem slíkt námskeið er
haldið hér á fslandi,
- Hvað eru þátttakendur
margir?
- Þeir eru 65 og hvarvetna að af
landinu, en nokkuð vantar á, að
allir kæmust að, sem vildu. Til þess
að fá meiri breidd í námskeiðið
fengum við með okkur starfsfólk
við stofnanir þroskaheftra og einn-
ig foreldra.
Ætlast er til að námskeiðinu
ljúki á rriiðvikudaginn en á fimmtu-
dag verður Nýgaard með fund íyrir
starfsfólkið í öskjuhliðarskóla.
Síðan verður opinn fundur
hér í Norræna húsinu á fimmtu-
dagaskvöld, til kynningar á þessari
startsemi, og vonumst við til þess
að ná þá til sem flestra þeirra for-
sldra, sem þetta mál snertir. Sam-
vinna við Þroskahjálp um þetta
námskeið, hefur verið mjög góð og
ánægjuleg í alla staði, sagði Friðrik
og bætti því við, að mikill skortur
væri á talkennurum hér á landi.
Auðvitað kostar svonanámskeið
töluvert en Félag tlugfreyja Svöl-
urnar gengust fyrir því, að styrkur
fékkst hjá Flugleiðum í formi eftir-
gjafar á fargjöldum. Menntamála-
ráðuneytið hefur og sýnt málinu
skilning og greitt fyrir því, að unnt
yrði að halda námskeiðið.
Félag talkennara er aðeins árs-
gamalt. Með þessu námskeiði hef-
ur það fært sjálfu sér verðuga og
viðeigandi afmælisgjöf, en þó eink-
urn þeim, sem hjálpar þurfa við í
þessum efnum. -mhg
Tilboðum
í Ikarus
hafnað
„Ég lýsti mig ósamþykka þeirri
greinargerð sem stjórn SVR lét frá
sér fara vegna tilboðanna í Ikarus,
en samþykkti engu að síður að
hafna öllum tilboðunum", sagði
Adda Bára Sigfúsdóttir í gær, en
borgarráð samþykkti á þriðjudag
með öllum greiddum atkvæðum að
hafna tilboðunum sem bárust.
Adda sagði að tilboðin hefðu
verið alltof lág og hefði það því
jafngilt gjöf að taka þeim. Hins
vegar gæti hún ekki samþykkt að
þessir vagnar væru ekki nýtanlegir
fyrir SVR og því hefði hún ekki
greitt atkvæði þeirri tillögu Sjálf-
stæðisflokksins, sent einnig var
samþykkt í borgarráði, að finna
skyldi önnur verkefni fyrir vagnana
innan borgarkerfisins. Sú tillaga
hlaut 3 atkvæði Sjálfstæðisflokks-
ins. -ÁI
Bókagjöf
Borgarráð hefur samþykkt að
gefa Blindrafélaginu þann bóka-
kost og gagnakost Borgarbóka-
safnsins sem notaður hefur verið
við Blindrabókasafnið. Rennur
þessi gjöf inn í Hljóðbókasafn
ríkisins, sem stofnað var með sér-
stökum lögum frá í vor, en borgin
hafði áður rekið sérstaka þjónustu
við blinda í Borgarbókasafninu.
Lausar fH
stöður l|í
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar við Heilsugæslu-
stöðina að Asparfelli 12, Reykjavík.
1. Meinatæknir, hlutastaða. Laus nú þegar.
2. læknaritari, tvær hálfar stöður. Lausar frá
1. desember 1982
Upplýsingargefa hjúkrunarforstjóri Heilsugæslustöðvarinn-
ar aó Asparfelli 12, daglega kl. 9-17, í síma 75100, og
framkvæmdastjóri heilsugæslustöðva í Reykjavík í síma
22400.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf
skal skilað til framkvæmdastjóra heilsugæslustöðva í
Reykjavík, Barónsstíg 47, eigi síðar en 10. nóverpber 1982.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur og Heilsugæslustöðinni að Asparfelli 12.
HEILBRIGÐISRÁÐ REYKJAVÍKURBORGAR
VILTU TAKA ÞER TAK?
VIÐ LEITUM
AÐ FÓLKI MEÐ
HUGMYNDIR
Ef þú ert að'velta fyrir þér hug-
mynd um smáiðnað eða skyldan
rekstur geturðu sótt um þátttöku í
verkefni um stofnun og þróun smá-
fyrirtækja.
Kannski viltu líka reyna nýjung-
ar í rekstri, sem þegar er hafinn.
Ekki er krafist sérstakrar þekking-
ar eða reynslu, aðeins brennandi áhuga á að koma hug-
myndum í framkvæmd.
Við stofnum ekki fyrirtæki fyrir þig, en veitum aðstoð við
að meta möguleikana og koma þér I startholumar.
Samstarfsnefnd um iðnráðgjöf i landshlutunum skipu-
leggur verkefnið í umboði iðnaðarráðuneytisins og I sam-
starfi við iðnráðgjafa í landshlutunum.
Verkefnið er m.a. styrkt af Iðnþróunarsjóði, Iðnrekstrar-
sjóði og Byggðasjóði. Það miðar að því að fjölga litlum
fyrirtækjum, efla þau sem fyrir eru og auka þannig f jölbreytni
i atvinnulifinu.
ÞU VERÐUR
AÐ LEGGJA
HART AÐ ÞÉR
Þetta er ekkert venjulegt
námskeið: Þú leggur sjálfur
til efniviðinn og það er frum-
kvæði þitt og vinna sem
ræður úrslitum um árangur-
inn.
Þú átt auðveldlega að
geta sameinað þátttöku I
verkefninu núverandi starfi, en gerðu ráð fyrir að mikið af
frítíma þínum fari í verkefnið.
Við hittumst á fjórum vinnufundum um helgar með um
þriggja mánaða millibili. Þar verður unnið I hópum og leið-
beinendur aðstoða þátttakendur við að meta hugmyndir
þeirra og skipuleggja starfið stig af stigi.
Milli vinnufundanna þarftu að gltma við verkefni sem öll
tengjast hugmynd þinni um stofnun fyrirtækiseða nýbreytni
í rekstri.
Þátttakendur verða valdir úr hópi umsækjenda. Áður en
valið fer fram færðu tækifæri til að gera grein fyrir hugmynd
þinni og aðstæðum i viðtali.
UPPLÝSINGAR GEFA:
Halldór Ámason
Vinnusími 91-42411
Heimasími 91 -37865
Þorsteinn Garðarsson
Vinnusimi 99-1350
Heimasimi 99-3834
Theodór Blöndal
Vinnusími 97-2300
Heimasími 97-2260
SAMSTARFSNEFND UM IÐNRÁÐGJÖF í LANDSHLUTUNUM.
Iðntæknistofnun fslands, Vesturvör27,200 Kópavogur, sími 91-42411.