Þjóðviljinn - 13.10.1982, Síða 2
2 SIÐ'A -t- ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. október 1982
Ósannur
orðrómur
Góðir hálsar, þér, sem berið
það út og suður, að ég hafi keypt
ölföng fyrir 2 rd. eða meir þegar
„Ballið“ var haldið við Goðafoss
28. ágústm. næstl. og viljið með
því sverta mig saklausan. En ég
lýsi því hér með yfir, að þessi
orðasveimur.er með öllu ósann-
ur. Ég keypti aðeins fyrir 16
skildinga, og megið þér spyrja
herra E. Halldórsson að því, yður
til trúarstyrkingar, hvort ég hafi
keypt meir, því hann skrifaði hjá
sér hvað ég keypti.
En gáið þér að því: að þeir sem
kasta saur á aðra, þeir ata sjálfa
sig mest.
Hriflu, 17. okt. 1870.
Þ. Jónsson
Njarðvík
Börn kveiktu
í video-
stöðinni
Það gerðist á dögunum suður
með sjó, samkvæmt upplýsingum
Víkurfrétta, að slökkvilið Bruna-
varna Suðurnesja var kvatt út að
Njarðvíkurbraut í Innri Njarð-
vík.
Er að var komið var mikill og
þykkur reykur út frá einangrun-
arplasti í bílskúr við hús eitt. í
gryfju undir skúrnum var staðsett
útsendingarkerfi fyrir videó, sem
þjónar öllu hverfinu í Innri Njarð-
vík.
Útsendingartækin eru að sögn
Víkurblaðsins talin ónýt, auk
þess sem skemmdir urðu á ein-
angrunarplasti sem var í
skúrnum. Eldsupptök voru af
völdum barna.
Það tók mig 15 árað uppgötva
að ég hafði enga hæfileika til að
verða rithöfundur. Ég gat engan
veginn hætt við að skrifa þrátt
fyrir það, þar sem ég var þá orð-
inn.alltof þekktur fyrir skrif mín.
Robert Benchley
(1889—1945)
bandarískur rithöfundur,
ritstjóri og lcikari.
Gætum
tungunnar
Heyrst hefur: Gestir komu
hvaðanæva að af landinu.
Rétt væri: Gestir komu hvaðan-
æva af landinu.
Dœmisaga úr bílaiðnaðinum
Rangsnúinn
raunveruleiki
Gamall málsháttur segir, að
þegar bandarískt efnahagslíf fái
kvef fái það evrópska lungna-
bólgu. Málshætti þessum hefur
nú verið snúið upp á bandarískan
bílaiðnað. Samdráttur og mark-
aðsörðugleikar hafa hrjáð
bandarískan bílaiðnað alvarlega
frá 1980, þegar erlendir og þá sér-
staklcga japanskir bílar juku
stórlega hlutdeild sína í markaðn-
um.
Síðan hefur allt stefnt í eina átt,
og samdrátturinn í fram-
leiðslunni í ár verður 18% miðað
við síðasta ár sem þó var óvenju
lélegt. Þrátt fyrir minnkandi sölu
bíla í Bandaríkjunum hefur hlut-
deild innfluttra bíla aukist og er
nú kömin upp í rúm 28%, og því
hafa kröfur um verndaraðgerðir
nú orðið æ háværari samfara stór-
auknu atvinnuleysi í bílaiðnaðin-
um.
Efnahagskreppan í Bandaríkj-
unum hefur m.a. haft það í för
með sér að meðalaldur þeirra bíla
er aka á bandarískum vegum hef-
ur hækkað úr 3 í 6.5 ár á fáum
árum, og þótt nýtni hafi eitt sinn
talist til sannkristinna dyggða þá
hefur sú dyggð snúist upp í and-
hverfu sína í kapitalismanum og
ógnar nú bílaiðnaðinum og
atvinnuöryggi miljóna manna.
Stjórnvöld hafa með „frjáls-
um“ samningum fengið Japani til
að draga lítilsháttar úr útflutningi
sínum til Bandaríkjanna, en nú
sem í andstöðu við yfirlýsta
markaðspólitík frjálshyggjunnar
setur m.a. þau skilyrði að bílar
sem seldir eru í yfir 500 þúsund
eintökum verða að vera 90%
bandarísk framleiðsla, en þeir
sem seljast í 100—500 þús. ein-
tökum verði að vera bandarísk
framleiðsla að einum fjórða.
Er það ekki að snúa guðspjöll-
unum upp á andskotann þegar
sparnaður, nýtni og frjáls verslun
eru orðin einn helsti þyrnirinn í
augum bandarískra bílafram -
leiðenda? Hvað er þá orðið um
frjáishyggjufræðin, Hannes
Hólmsteinn? Hvar er ósýnilega
höndin? Hvar er hinn frjálsi
markaður, sem allan vanda átti
að leysa? Éða er það kannski svo,
að þegar kenning og raunveru-
leiki stangast á, þá sé við raunver-
uleikann að sakast?
Heyrðu Gunnar, hvar fékkstu þennan jakka?
Eilítið fréttablað að hefja göngu
sína á Suðurlandi
Frá Lómagnúpi
til Herdísarvíkur
- Við þykjumst þess fullvissir
að þörf sé á blaði sem þessu. íbú-
ar Suðurlands eru margir og það
er ansi hart, ef ekki er grundvöll-
ur fyrir óháð, pólitískt fréttablað,
sem flytur efni af öllu tagi úr kjör-
dæminu, sagði Ólafur Th. Ólafs-
son kennari á Selfossi en hann i
félagi við Þorlák H. Helgason
*eg&ía síðustu hönd á undirbún-
ing fyrir útgáfu á nýju fréttablaði
í Suðurlandskjördæmi. „Eilítið
fréttablað” mun króinn heita og
er von á fyrsta tölublaði í lok
þessa mánaðar.
Aðstandendur blaðsins hafa
heitið á allt áhugafólk að veita
sér liðsinni. Þeir hafa auglýst eftir
fréttariturum allt frá Lómagnúpi
í austri til Herdísarvíkur í vestri.
- Jú,undirtektirhafaveriðmeð
ágætum. Ég get ekki sagt að það
sé búið að festa niður fréttaritara
í öllum hreppum en það fólk sem
við höfum rætt við, hefur tekið
málaleitan okkar á besta veg.
- Hvað á að vera í þessu blaði?
- Allt mögulegt. Okkur hefur
alls ekki fundist fara nóg fyrir al-
mennum fréttum úr byggðum og
sveitum Suðurlands í þeim pólit-
ísku blöðum sem koma hér reglu-
lega út. Hugmyndin er að hafa
þetta alhliða fréttablað, taka við
fyrirspurnum lesenda og leita
svara við þeim og reyna að hafa
létt efni innanum, og setja þetta
síðan skemmtilega upp.
- Hvað er það sem ýtir ykkur
af stað út í útgáfu sem þessa?
- Já það er nú það. Ætli það
hafi ekki ráðið mestu um, hvað
bæði við og allt of margir vita
mest lítið um það sem er að gerast
í næsta nágrenni, hrepp, eða
Ólafur Th. Ólafsson, annar fram-
taksmanna um nýja blaðaútgáfu
á Suðurlandi.
sveit. í raun vitum við miklu
minna um það heldur en ýmislegt
það sem gerist erlendis og þó vi-
tum við ekki alltaf mikið um,
hvað er á seyði þar.
- Hvað stefnið þið að koma
blaðinu oft út?
- Við miðum við að það komi
út mánaðarlega. Þetta verður 8
síðna blað í dagblaðabroti. Við
sjáum svo til hvernig viðtökurnar
verða, en hingað til hefur allt
gengið ágætlega og við erum
bjartsýnir, sagði Ólafur.
Broslega
hliðin á
þjóðaríþrótt
Það slær enginn Kínverjum við
þegar „ping pong“ er annars veg-
ar, eða borðtennis eins og íþróttin
er nefnd á íslcnsku.
Það kom því kannski ekki svo á
óvart þegar við rákumst á þessar
skrýtlur í kínversku tímariti nú á
dögunum. Þessi þjóðaríþrótt
fjórðungs mannkyns getur vissu-
lega haft sínar broslegu hliðar
eins og teiknarinn Fa Naiguang
hefur hér dregið upp.