Þjóðviljinn - 13.10.1982, Qupperneq 3
Miðvikudagur 13. októbcr 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Fjárlaga-
frumvarp ársins
1983 lagt fram
í gær
Ég tel að hallalaus fjárlög séu
forsenda þess að viðunandi
jafnvægi haldist í þjóðar-
búskapnum og því er stefnt að
því nú, 4. árið í röð. Árið 1980
var tekjuafgangur 3,7% af
heildarútgjöldum, 1981 2,9%
og það sem af er þessu ári hefur
fjárhagur ríkissjóðs verið í við-
unandi jafnvægi, sagði Ragnar
Arnalds, fjármálaráðherra á
fundi með fréttamönnum í gær,
þegar hann kynnti þeim
fjárlagafrumvarpið fyrir árið
1983.
Ragnar benti á að vitaskuld
settu þeir miklu efnahagsörð-
ugleikar, sem þjóðin býr nú
við, mark sitt á: fjárlagafrum-
varp næsta árs, enda mætti bú-
ast við að til enn frekari sam- .
dráttar geti komið á næsta ári en
verið hefur í ár.
Niðurstöður fjárlaga-
frumvarpsins eru þær að
heildartekjur ríkissjóðs verði
12.773 miljónir króna en út-
Fjármálaráðherra lýsir fjárlögum. (Ljósm.
Hallalansfjárlög
gjöld 12.691 miljónir króna,
þannig rekstrarafgangur verði
82 miljónir króna. Tekjur
hækka um 60,3% frá fjárlögum
1982 og um 36,6% frá
endurskoðaðri tekjuáætlun
fyrir sama ár.
Þá er gert ráð fyrir að haldið
verið áfram að grynnka á
skuldum ríkissjóðs við Seðla-
banka íslands, en verulegt átak
hefur verið gert í þeim efnum á
síðustu árum. Þannig svaraði
skuld ríkissjóðs við Seðlabanka
íslands4-5,2% af vergri þjóðar-
framleiðslu á árunum 1975 til'
1978. í árslok 1981 var skuldin
komin niður í 1,1%. Verður á
árinu 1983 varið 100 miljónum
króna til að grynnka enn frekar
á þessari skuld.
Á næsta ári er gert ráð fyrir
samdrætti í opinberum fram-
kvæmdum, sem nemur um 8%
frá þessu ári, sem, eins og ráð-
herra sagði, er eðlileg afleiðing
af þeim efnahagsörðugleikum,
forsenda þess
að jafnvœgi
haldist í þjóðar-
búskapnum
sagði Ragnar
Arnalds, fjár-
málaráðherra
sem við búum nú við. Ekki er
gert ráð fyrir nýjum álögum við
mat á beinum sköttum í tekju-
áætlun fyrir árið 1983, því mun
skattbyrði einstaklinga verða
svipuð og á yfirstandandi ári.
Tekjur af beinum sköttum í
fjárlagafrumvarpinu ganga út
frá skattvísitölunni 152 stig
miðað við 100 1982. Er þetta
gert til að mæta verðbólgu milli
ára, til að minnka skattbyrði,
sem aukast myndi verulega
vegna verðbólgunnar væri ekk-
ert að gert.
Þrátt fyrir nokkurn niður-
skurð á opinberum fram-
kvæmdum á næsta ári, er gert
ráð fyrir að framlag til veganiála
haldi hlutfalli sínu, en til vega-
mála er gert ráð fyrir að verja
838 miljónum króna. Þá má
einnig nefna það að framlag til
Lánasjóðs Isl. námsmanna
hækkar um 82% vegna ákvæða
um aukna þátttöku sjóðsins í
umframfjárþörf námsmanna.
Þá er í frumvarpinu gert ráð
fyrir 200. milj. kr. sérstaklega
til þess að mæta útgjöldum
vegna aðgerða, sem getið er í
ágúst yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar. Eru það fyrst og fremst
láglaunabætur og viðbótar-
framlag til húsnæðismála, sem
nemur 85 miljónum króna og
skiptist milli áranna 1982 og
1983. S.dór
Öll íslensk myndlistar-
félög stofna samtök!
Baráttudagur norræna myndlistarmanna á morgun
Baráttudagur norrænna myndlistarmanna er á morgun, 14. okt-
óber og í tilefni af því boðuðu íslenskir myndlistarmenn blaðamenn
á sinn fund í gær. Þar kom m.a. fram að ákveðin hefur verið
stofnun sambands íslenskra myndiistarfélaga og verður stofnfund-
urinn haldinn 20. nóvember.
íslenskir myndlistarmenn búa
við mjög ótrygga afkomu og krefj-
ast þess að hún verði tryggð betur.
Kom fram á fundinum að tollalög-
gjöf um innflutning á myndlistar-
verkum til sölu og sýninga er mjóg
vel að sínum myndlistarmönnum.
Finnar veita t.d. starfslaun í allt að
3 ár og Hollendingar ráða lista-
menn á laun og fylgjast jafnframt
með því að þeir selji þá ekki meira
en sem nemur ákveðinni upphæð.
betri starfsaðstöðu og launum. Ber
þar m.a. að nefna kröfu um dag-
leigu og sýningargjöld fyrir verk
sem sýnd eru á opinberum vett-
vangi, en þetta er nú sameiginleg
krafa allra norrænna myndlistar-
manna. Talið er að í hinum 6
myndlistarfélögum, sem nú ætla að
stofna samband, séu um 250 nrynd-
listarmenn.
- þs.
V erkf öllin
í Póllandi
Verkfallsaðgerðir héldu áfram við skipasmíða-
stöðvarnar í Gdansk í gær, en þær hófust á mánudag
eftir að þingið hafði samþykkt nýja vinnumálalöggjöf,
sem bannaði starfsemi óháðra verkalýðsfélaga.
Ekki er vitað hversu almenn
þátttakan var, en sjónarvottar
segja, að lögregla hafi notað tára-
gas og vatnsbyssur til þess að ryðja
torgið fyrir framan verksmiðjurnar
í fyrrakvöld. Fulltrúi stjórnvalda
sagði að 10-13% verkamanna hefði
tekið þátt í aðgerðunum í gær og að
vinna hefði verið lögð niður á sjö
vinnustöðvum í Gdansk í gær.
Sjónarvottar sögðu að hundruð
verkamanna hefðu safnast við hlið
skipasmíðastöðvanna í gær og
hrópað vígorð eins og „Eining mun
lifa“ og „látið Walesa lausan!“
Allt síma- og skeitasamband var
rofið við Gdansk á mánudag og
þriðjudag þannig að fréttir voru
óljósar, en sumir sögðu að þátttaka
hefði verið um 80% í verkfallsað-
gerðunum og að áframhaldandi
verkföll hefðu verið boðuð þar til
Lech Walesa - halda verkföllin
áfram þar til hann hefur veritS
leystur úr haldi?
Lech Walesa yrði leystur úr haldi.
ólg.
Safnaði 1,7 milljón kr.
1.704.183.90 kr. söfnuðust í.
landssöfnun Hjálparstofnunar
kirkjunnar til stuðnings endurný-
junar á fjarskiptabúnaði slysa-
varna- og björgunarsveita. Fulltrú-
um Slysavarnafélags íslands,
Lándssambands hjálparsveita
s|cáta og Landssambands flug-
björgunarsveita hefur þegar verið
afhent söfnunarfé. í frétt frá Hjálp-
arstofnun segir að þetta sé góð nið-
urstaða og lýsi skilningi lands--
manna í verki á brýnu málefni.
Formlegir þingfundir hófust í gær:
Forsetarnir
endurkjörnir
Jón Helgason var endurkjörinn
forseti sameinaðs alþingis í gær og
Svcrrir Hcrmannsson forseti neðri
deildar og Helgi Scljan forseti efri
deildar.
Fyrsti varaforseti var kosinn
Karl Steinar Guðnason og annar
varaforseti Steinþór Gestsson í
sameinuðu alþingi. í neðri deild
var Alexander Stefánsson kosinn
fyrsti varaforseti og Garðar Sig-
urðsson annar varaforseti. í efri
deild var Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson kosinn fyrsti varaforseti og
Guðmundur Bjarnason annar
Skrifarar sameinaðs alþingis og
deildanna beggja voru einnig
endurkjörnir frá síðusta þingi. Fátt
bar nýstárlegt til tíðinda í þessum
kosningúm. Þó brá svo við að ráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins fengu
allir eitt atkvæði við forsetakjör í
sameinuðu. Helgi Seljan og Guð-
mundur Bjarnason voru kjörnir
með öllum greiddum atkvæðum í
efri deild.
Kosningu í nefndir var frestað
þangað til í dag. Viðmælendur
blaðamanna í baksölum alþingis
töldu líklegast að Sjálfstæðis-
flokkurinn léti sameinað þing
kjósa á milli þeirra Friðjóns
Þórðarsonar dómsmálaráðherra
og Eggerts Haukdal um sæti í fjár-
veitinganefnd, en hefði sameigin-
lega kosningu um aðrar nefndir.
-óg
hordfag \HJ2
ábótavant, svo og löggjöf um tolla
af efni til gerðar listaverka.
Staða íslenskra listamanna er um
flest lakari en í nágrannalöndum og
má nefna t.d. Finna og Hollend-
inga sem dæmi um þjóðir sem búa
Er þv í fylgt eftir með því að hver sá
sem kaupir listaverk fær endur-
greitt frá ríkinu hluta af því.
Myndlistarmenn binda miklar
vonir við hin nýstofnuðu samtök og
að þau geti orðið vettvangur fyrir
umferðaróhöpp
Uml'erðin gekk stórslysalaust
fyrir sig á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu í gær. Um kl. 18 í gær höfðu
verið bókaðir 9 árekstrar og ein bíl-
vclta hjá lögreglunni í Reykjavík,
en cngin alvarleg slys á mönnum.
Var það mikil bót frá deginum áður
þegar árekstrar urðu hvorki fleiri
né færri en 34.
Hjá lögreglunni í Hafnarfirði
hafði allt gengið tíðindalítið fyrir
sig, aðeins einn minniháttar árekst-
ur og hið sama var uppi á teningn-
um hjá lögreglunni í Kópavogi.
Menn hafa greinilega ekið þar með
gát, því enginn árekstur hafði
mælst um kl. 18 í gær.
Menningar-
skipti Færeyja
r
og Islands
Hér á landi er nú staddur
Heðin Klein, kennari og Ijóð-
skáld frá Sandey í Færeyjum.
Hann mun í kvöld kl. 20.30
halda fyrirlestúr í Norræna
húsinu um nýjar hugmyndir
um aukin menningarsam-
skipti Færeyja og Islands, en
viðræður hafa að undanförnu
farið fram um þau mál á niilli
Norrænu félaganna í Fær-
eyjum og á Islandi.
Heðin Klein var áður full-
trúi Þjóðveldisflokksins á fær-
eyska lögþinginu og gegndi
um skeið embætti sjávarút-
vegsráðherra. Þjóðviljinn
mun á næstunni birta viðtal
við Heðin.