Þjóðviljinn - 13.10.1982, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. október 1982
Valdaleysi Samelnuðu þjóðanna
Aðildarríki Sameinuðu
þjóðanna ættu að endurnýja
þau heit, er þau eitt sinn gáfu
við stofnun samtakanna, segir
Javier Perez de Cuellar,
aðalritari Sameinuðu þjóðanna
í skýrsiu, sem birt var í síðasta
mánuði.
- Mig grunar, að þessi heit séu
ekki tekin jafn aivarlega nú og
þegar þau voru gefin í skugga
heimsstyrjaldarinnar.
Skýrsla aðalritarans er eins og
örvæntingarfull tilraun til þess að
rjúfa það vonleysi og máttleysi sem
einkennt hefur allt friðargæslustarf
Sameinuðu þjóðanna á síðustu
árum.
Perez de Cuellar telur í skýrsl-
unni upp þær misheppnuðu til-
raunir, sem Sameinuðu þjóðirnar
hafa gert á síðustu árum til þess að
varðveita frið:
★ Sameinuðu þjóðunum tókst
ekki að hindra innrás ísraels í
Líbanon með þeim hörmulegu
afleiðingum sem hún hafði í för
með sér.
★ Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki
haft bolmagn til þess að tryggja
palestínsku þjóðinni rétt til
eigin ríkis, sjálfstjórnar og
lands, né heldur hafa þær verið
færar um að auðvelda lausn
deilunnar fyrir Miðjarðarhafs-
botnum.
★ Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki
getað stöðvað styrjöldina á milli
Iraks og Iran.
★ Sameinuðu þjóðirnar hafa stað-
ið máttvana gagnvart hcrnaði
Sovétríkjanna í Afghanistan.
★ Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki
getað stuðlað að friðsamlegum
lausnum á deilumálum í Mið-
ameríku og verið valda- og á-
hrifalausar í Kampútseu.
★ Sameinuðu þjóðirnar hafa
reynst vanbúnar að stöðva það
ofbeldi, sem blökkumenn eru
bcittir í sunnanverðri Afríku,
og þær reyndust allsendis ófær-
ar um að koma í veg fyrir að
stríð brytist út á milli Bretlands
og Argcntínu.
Þetta er langur og átakanlegur
listi, en gæti sennilega orðið enn
lengri.
má rekja
til áhuga-
leysis
stór-
veldanna
FRÉTTASKÝRING
Dœmi íraks
s
og Iran
í síðustu viku samþykkti Örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna ein-
róma ályktun, þar sem írönum og
frökum var boðið að gera tafar-
laust vopnahlé og hörfa með her-
sveitir sínar inn á landsvæði við-
komandi lands. Hvað gerðist?
Samkvæmt reglugerð Samein-
uðu þjóðanna eru samþykktir Ör-
yggisráðsins bindandi þegar um
einróma ályktanir er að ræða.
Hvorugt ríkið tók hins vegar
minnsta tillit til ályktunarinnar, og
sendiherra írans hjá Sameinuðu
þjóðunum hélt því fram, að sam-
þykktin væri „ólögleg".
Hvað gerir Öryggisráðið þegar
aðildarríki brjóta með þessum
hætti gagnvart reglum- samtak-
anna? Því er fljótsvarað, - ekkert.
- Það verður æ algengara, sagði
de Cuellar í skýrslu sinni, að Ör-
yggisráðið reynist þess ekki megn-
1X2 1X2 IX
7. leikvika — leikir 9. október 1982
Vinningsröð: 2x1 -211 -x1x-11x
1. vinningur: 11 réttir - kr. 15.950.-
934(4/10) 20609+ 69486(4/10) 90642(6/10)96827(6/10) +
11017 66842(4/10) 74054(4/10) 90647(6/10)
15388+ 68334(4/10) 74114(4/10) 92725(6/10)
2. vinningur: 10 réttir - kr. 425.-
61 8256 17069 63316 71766+ 90985 67211(2/10)
70 8971 17445 63417 73102 91877 67707(2/10j +
81 9027 19068 63921+ 73467 92311 70438(2/10)
230 9033 19067 64278 73591 92719 71546(2/10)
844 9645 20092 65210 73607 93624+ 74582(2/10)
869 9691 20310 65612 74896+ 94207+ 76713(2/10)
923 9970+ 20325 65940 74985 94254 77724(2/10)
931 11397 20403 66288 75378 94588+ 95952(2/10)
933 11829 59669 66424 75845 94723 97551(2/10) +
937 13456 59791 66546 76080 94969+ 97573(2/10) +
951 13503 60168 66687+ 76136 95074
1480 13895 60388 67650+ 76607 95531+
1579 14138 60478 + 68397 76622+ 95572
1698 14813 61383 68532 76961 95766
1834 15051 61515 68692+ 78162 96661+
2034 15055 61576 68695+ 78163 96912
3804 15295 61789+ 68697+ 78353 97139+
4089 15374+ 62197 68706+ 80015 97254
4277 15339 62271 69100+ 80291 97274+
4954 15753 62464 69848 80910 97714+
5512 15803 62691+ 70799 81209 59769(2/10)
7114 15816 62873+ 70910+ 90019+ 63353(2/10)
7914 16230 63185 70983 90319+ 65690(2/10)
Kærufrestur er til 1. nóvember kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstof-
unni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða
teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða
senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilsfang til
Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK
Grípa verður til aðgerða tii þess að auka áhrifamátt Sameinuðu þjóðanna við friðargæslu í heiminum, segir
Perez de Cuellar aðalritari samtakanna (t.h.), en hvorki Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna (t.v.)
né Schultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafa sýnt áhuga á slíkum aðgerðum.
ugt að taka afgerandi ákvarðanir er
leitt geta til lausnar á alþjóðlegum
deilumálum, og jafnframt verður
það æ algengara, að aðildarríki
samtakanna hefji sig upp yfir álykt-
anir ráðsins og virði þær að vettugi.
Jafnvel þegar Öryggisráðið er ein-
huga stendur það máttvana gagn-
vart vandanum og horfir upp á að
ályktanir þess séu hafðar að engu.
Stórveldin
þögul
Það þótti athyglisvert við setn-
ingu allsherjarþings Sameinuðu
þjóðanna á dögunum, að fulltrúar
flestra þjóða tóku undir orð aðal-
ritarans um nauðsyn þess aðstyrk-
ja stöðu samtakanna, nema full-
trúar þeirra þjóða, sem mesta
möguleika hafa til þess að hafa á-
hrif þar á. Hvorki Gromyko, utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna né
George Schultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna minntust einu orði
á skýrslu aðalritarans í hinum
löngu og ýtarlegu ræðum sínum.
Sú spurning hlýtur því að vakna,
hvort stórveldin æski þess í raun og
veru, að vald Sámeinuðu þjóðanna
til lausnar alþjóðavandamála verði
aukið. Það gæti j ú hugsanlega veikt
stöðu þessara ríkja á alþjóðavett-
vangi.
í skýrslu sinni stingur de Cuellar
upp á nokkrum aðgerðum, er orðið
gætu til þess að styrkja Öryggisráð-
ið. Hann vill að ráðið láti vandá-
málin til sín taka fyrr en hingað til
hefur tíðkast, þannig að það geti
átt frumkvæði að samningaviðræð-
um á milli deiluaðila áður en til
ofbeldisaðgerða er gripið. Hann
segir að ályktanir ráðsins verði
einnig að hafa eitthvert gildi utan
aðalmiðstöðvanna í New York, og
það gerist ekki nema sérhver ríkis-
stjórn skuldbindi sig til þess að
framfylgja þeim heima fyrir, en láti
ekki eins og hún hafi gert skyldu
sína með því einu að greiða at-
kvæði.
Hálfvelgja
Sendiherra Svía hjá Sameinuðu
þjóðunum sagði nýlega í viðtali, að
hvorki Sovétríkin né Bandaríkin
hefðu sérstakan áhuga á að herða á
þeim reglum, er styrkt gætu sam-
þykktir Öryggisráðsins. Pessi ríki
kjósa heldur að starfa innan þess
tvíhöfða diplómatíska kerfis, sem
þau hafa byggt upp með NATO og
Varsjárbandalaginu, sagði sendi-
herrann.
- Virðingin, - eða virðíngar-
leysið - fyrir starfi Sameinuðu
þjóðanna endurspeglast í þeim
hálfvolga áhuga, sem stórveldin
hafa fyrir hinni einstöku uppbygg-
ingu Sameinuðu þjóðanna, sagði
sendiherrann.
Á okkar hættutímum virðist það
brýnt hagsmunamál óháðra ríkja
og smáríkja, að efla áhrifamátt
Sameinuðu þjóðanna, jafnvel þótt
vitað sé, að þegar til kastanna kem-
ur verði aflsmunur látinn ráða í al-
þjóðasamskiptum.
ólg. tók saman.
Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI 53468
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiÖenda skal vakin á því,
að gjalddagi söluskatts fyrir septembermán-
uö er 15. okt.
Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í
þríriti.
Fjármálaráðuneytið
8. okt. 1982.
Lausar stöður
Tvær hlutastöður lektora (37%) í sjúkraþjálf-
un við námsbraut í sjúkraþjálfun í Háskóla
íslands eru lausar um umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vís-
indastörf umsækjenda, ritsmíðar og rann-
sóknir svo og námsferil og störf, skulu send-
ar menntamálaráðuneytinu fyrir 7. nóvember
nk.
Menntamálaráðuneytið,
7. október 1982.
Aðalfundur
samtaka um frjálsan útvarpsrekstur verður
haldinn að Hótel Sögu fimmtudaginn 28.
október n.k. kl. 20.
Framkvæmdastjórn