Þjóðviljinn - 13.10.1982, Page 8
8 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Migvikudagur 13. október 1982
„Við verðum að ná tengslum
við hátt settan herforingja í
Líbanon. Við verðum að vinna
hann á okkar band eða múta
honum til að útnefna sig sem
bjargvætt kristinna íbúa
landsins. Næsta skref verður
síðan að ráðast inn í Líbanon og
hertaka mikilvæga hluta
landsins og setja á laggirnar
ríkisstjórn maronóníta,
nátengda Israel. Fyrst þá mun
verða grundvallarbrey ting á
ástandinu í Miðausturlöndum.
En svona umbyltingu náum við
ekki fram við núverandi
ástand. Á tíinum upplausnar,
eftir byltingu eða
borgarastyrjöld, má ná fram
þessum markmiðum“.
ísrael
vffl
Fjöldamorðirt í Beirút.
ekki fríð í Miðausturíöndum
Pessi orö gætu veriö komin frá
Begin eöa Sharon er þeir unnu aö
undirhúningi innrásarinnar í Lí-
banon. Ln þau eru þaö ekki. Pau
eru komin úr dagbókum Moshe
Sharetts, fyrrverandi varnarmála-
ráðherra ísraels, og eru brot úr
samræðum hans við Ben Gurion og
Moshe Dayan. 'Samræðurnar fóru
fram fyrir nálægt 30 árum, árið
1954.
Ríkisstjórn Begins
kölluð til ábyrgðar
Áriö 1982 var tíminn kominn —
herir ísraels réðust inn í Líbanon.
í fimmta skipti frá stofnun ísraels-
ríkis 1948 fór herinn í stríð - og
vann eins og venjulega. Eftir sigur
á palestínumönnum í S-Líbanon
var sest um Beirút. Umsátrið kost-
aöi íbúa V-Beirút miklar þjáning-
ar. Um sjö þúsund manns hafa ver-
iö drepin með sprengjuregni og
hernaðaraðgeröum samfara inn-
rásinni í borgina, og um 30.000
særst. Yfirgnæfandi meirihluti
hinna föllnu eruóbreyttirborgarar.
Meðal hinna særðu hafa yfir þrjú
þúsund fengið brunasár af völdum
fosfórsprengja. 12.000 hinna særðu
eru undir 15 ára aldri, og 25000
eldri en 60 ára. Fyrir hvern her-
mann sem felldur var, voru drepin
10 börn.
Ríkisstjórn ísraels ber Tulla
ábyrgð á innrás ísraelshers í V-
Beirút. á sama hátt og hún ber fulla
ábyrgð á innrás hersins í Líbanon.
Pegar nú fréttir berast um fjölda-
morð á óbreyttum borgurum í
flóttamannabúðunum Sabra og
Shatila, ber ríkisstjórn ísraels fulla
ábyrgð á þeim líka. Ég ákæri stjórn
Begins fyrir að hafa skipulagt
fjöldamorðin og haft höndum
framkyæmd þeirra
Fjöldamorðin
skipulögð
Begin og Sharon neita því að
þeir beri nokkra ábyrgð á fjölda-
morðunum. En þeir hafa líka lagst
gegn opinberri rannsókn á fjölda-
morðunum og aðdraganda þeirra,
og þar með dregið sjálfa sig til á-
byrgðar. Það leikur vart nokkur
vafi á, að fjöldamorðin voru liður í
stjórnlist Begins, stjórnlist, sem
gengur út á að skapa stór-ísrael
Skoðum þetta aðeins nánar.
- í byrjun september var hald-
inn fundur arabaleiðtoga í Fez. í
fyrsta skipti í langan tíma.ríkti ein-
ing meðal þátttakenda um friðará-
ætlun fyrir Miðausturlönd. Áætl-
unin innibar kröfur um að ísrael
færi burt frá herteknu svæðunum,
að ólöglegt landnám gyðinga yrði
stoppað þar og samyrkjubúin lögð
niður, að fullur réttur^palestínsku
þjóðarinnar yrði viöurkenndur, að
Vesturbakkinn ög Gazasvæðið
yrðu sett undir umsjón SÞ í ákveð-
inn tíma, að stofnað yrði sjálfstætt
ríki palestínumanna, og að öryggis-
ráð i SÞ sæi um að allar ályktanir
þess er varða svæðið yrðu virtar.
Þetta síðastnefnda felur í raun í sér
viðurkenningu á ísrael.
Begin og Shamir vísuðu þessari
friðaráætlun umsvifalaust á bug.
Begin vill enga málamiðlun. Hapn
stefnir að algerri innlimun her-
teknu svæðanna íísrael. En vanda-
mál Begins var, að í augum um-
heimsins standa arabaríkin og PLO
sem boðberar friðar sem bjóða upp
á málamiðlanir til að binda endi á
stríð og hörmungar í þessum
heimshluta.
Israel varð því að gera eitthvað
til að breyta afstöðu arabaríkjanna
og koma í veg fyrir að PLO fengi
almenningsálit heimsins í lið með
sér. Tilgangur fjöldamorðanna í
Sabra og Shatila var að skapa hatur
og reiði er kæmi í veg fyrir allar
friðarumleitanir. Stjórn Israels
reyndi á þennan óhugnanlega hátt
að eyðileggja þær friðarumleitanir
sem leiðtogafundurinn í Fez varð
upphaf að.
Viðbrögð PLO
PLO hélt miðstjórnarfund í
Damaskus eftir að fréttir bárust um
fjöldamorðin. Blaðamaöur Le
Monde, Eric Rouleau, átti þar við-
tal við Yassir Arafat um morðin og
afleiðingar þeirra. Aðspurður
hvort PLO myndi hefna fjölda-
morðanna með hryðjuverkum
gegn ísrael, sagði Arafat að hann
væri grundvallarlega andsnúinn
beitingu hryðjuverka í hvaða mynd
sem væri. í framtíðinni myndu
palestínumenn berjast með öllum
ráðum gegn hernámi ísraels á
Vesturbakkanum og Gazasvæð-
inu, en jafnhliða því sækja fram á ,
vettvangi alþjóðastjórnmála. Ara-
fat sagðist ætla að beita sér fyrir því
að friðaráætlunin frá Fez næði fram
að ganga. Um fórnarlömb fjölda-
morðanna sagði Arafat: „Dauði
þeirra mun ekki verða til einskis..
Við lifum-eftilvill tímamót í sorg-
legri sögu þjóðar okkar”.
Það eru því ekki palestínumenn
sem standa gegn friði t Miðaustur-
löndum, heldur Begin og Sharon.
Hvað vakir
fyrir Begin?
Markmiðið með innrás Israels í
Líbanon var endanleg lausn á Pal-
Olafur Ingólfsson
skrifar
estínuvandamálinu, lausn sem
innibar útrýmingu leiðtoga PLO og
herafla samtakanna. Auk þess átti
að reka palestínumenn enn á
flótta, væntanlega til Sýrlands og
Jórdaníu. I kjölfar innrásarinnar
átti að innlima Vesturbakkann og
Gazasvæðið, og í krafti hernaðar-
yfirburða að þvinga Jórdaníu og
Sýrland til friðarsamninga eða sæta
stríði öðrum kosti. Það er margt
sem rennir stoðum undir þessa
mynd. Hér gefst ekki tækifæri
nema til að drepa á örfá atriði.
— Starfsmenn sænsku neyðar-
hjálparinnar til Líbanon segja ísra-
elsmenn gera þeim ókleift að
starfa meðal palestínuflótta-
manna. Til þess er tekið að ísraelsk
yfirvöld krefjist þess að allar fast-
eignir sem palestínumenn eigi skuli
eyðileggjast. Starfsmönnum
neyðarhjálparinnar er bannað að
reisa hús yfir flóttamennina og
hús er enn standa uppi í flótta-
mannabúðunum eftir loftárásirn-
ar.
Þetta getur aðeins verið til þess
gert að knýja flóttamennina til að
flytja. Fjöldamorðin voru liður í að
skapa þá skelfingu er fengi fólk til
að flýja.
— Margt bendir til þess að ísra-
elsmenn hafi staðið að baki morð
JnuáBashirGemayel. Engiraðrir
vc'ru í aðstöðu til að koma 200 kg.
af sprengiefnum inn í höfuðstöðvar
falangista, en kannski það sem
mikilvægara er, engir aðrir
„græddu” á dauða hans. ísraels-
menn héldu að Gemayel yrði þeim
leiðitamur. En þegar hann reyndi
að halda sjálfstæðri stefnu gagn-,
vart ísrael var hann þeim til trafala.
ísraelsmenn væntu þess að í kjölfar
morðsins blossuðu að nýju upp
bardagar milli kristinna og
múhameðstrúarmanna — slíkt
hefði gefið þeim átyllu til að her-
nema líka N-Líbanon. Þegar það
brást; og múhameðstrúarmenn
jafnt sem kristnir fordæmdu morð
in og lögðu ábyrgðina á hendur
ísraelsmönnum, varð að gripa til
nýrra ráða. Þá varð tekið til lepps-
ins Haddads, og hermenn hans
sendir inn í Sabra og Shatila tíl að
vinna á varnarlausum íbúum þar.
Með því væntu þeir Begin og Shar-
on þess að bardagar blossuðu upp
að nýju. Enn hefur það ekki gerst,
og ástæðan er vafalítið sú, að Lí-
banir sameinast nú gegn sínum
raunverulega fjandmanni, fjand-
manni sem alið hefur á hatri og
hermdarverkum í Líbanon undan-
farin ár, ísraelsmönnum.
Begin og Sharon
eru
hryðjuverkamenn
Þú lesandi góður hugsar e.t.v.
svo, eru þetta ekki bara hugarórar
og ímyndun. Óskandi væri að svo
væri. En við skulunr ekki gleyma
því, að þeir þrír menn sem í dag
stjórna ísrael, Begin, Sharon og
Shamir eru gamlir hryðjuverka-
menn. Begin var leiðtogi hryðju-
verkasamtakanna Irgun, og var á
stjórnartíma Breta í Palestínu
dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk.
Shamir var leiðtogi annarra
hryðjuverkasamtaka sionista,
Stern, sem m.a. stóð fyrir morðinu
á Bernadotte greifa, sáttasemjara
SÞ í Miðausturlöndum á árunum
eftir stríð.
Begin og Sharon fóru árið
inní smábæinn Deir Yassin í Palest-
rnu og myrtu alla íbúa er þeir náðu
í, alls 254 manneskjur. Eftir
ódæðið var ekið með líkin á opnum
vörubílum um Jerúsalem til að
vekja ógn og skelfingu meðal pal-
estínumanna. Afleiðingarnar urðu
að um hálf milljón palestínumanna
flúðu, m.a. til Líbanon. Það er
þetta sama fólk og afkomendur
þeirra sem Begin í dag ræðst gegn.
Um fjöldamorðin í Deir Yassin
hefur Begin sagt: „Þau voru nauð-
synleg til að stofna ísrael“. Sharon
hóf feril sinn sem foringi innan
hersins með því að fara með rnenn
sína inn í bæinn Qibia að næturþeli
og myrða alla íbúa hans í svefni.
Leiðtogar ísraels í dag eru gaml-
ir hryðjuverkamenn. Munurinn er
bara sá, að áður fyrr réðu þeir fyrir
nokkrum hundruðum nranna, en í
dag stýra þeir fjórða öflugasta her í
heimi.
Viðurkennum PLO
í dag er mikilvægt að allir leggi
sitt af mörkum til að stöðva manna-
veiðar Begins og kumpána, og
binda endi á hörmungar þær sem
alþýða manna þarf að þola í Mið-
austurlöndum. Það dugir ekki
bara að mótmæla níðingsverkum
stjórnar Begins. Begin hundsar al-
gerlega almenningsálitið í heimin-
um, og hann hundsar mótmæli og
ályktanir alþjóðastofnanna. Þess
verður að krefjast af ríkisstjórn ís-
lands að hún frysti þegar í stað öll
samskipti við ísrael, en viðurkenni
PLO sem fullgildan fulltrúa palest-
ínsku þjóðarinnar. Enn fremur ætti
ísland á alþjóðavettvangi að krefj-
ast þess að ísrael verði beitt við-
skiptabanni uns allt ísraelskt herlið
er á brott frá Líbanon.
Þó Island sé lítið land er óþarfi
að halda að rödd íslands megi sín
lítils. ísland hefur áður tekið frum-
kvæði á alþjóðavettvangi, eins og
gerðist í hafréttarmálum. Island
hefur alltaf haft góð samskipti við
Israel, og t.a.m. var Island fyrsta
landið í Evrópu sem Ben Gurion,
fyrrum þjóðarleiðtogi ísraels,
heimsótti opinberlega.
Látum nú ekki máttlaus mót-
mæli duga. Sýnum að okkur sé of-
boðið. Viðurkennum PLO og
frystum stjórnmálasamskipti við
ísrael!
Lundi, Svíþjóð, 28/9 1982
Ólafur Ingólfsson
jarðfræðingur