Þjóðviljinn - 13.10.1982, Side 9
Ný plata frá MFA
„Við erum
fólkið”
Maíkórinn syngur
verkalýðs-
og œttjarðasöngva
„Við eruin fólkið“ heitir plata
sem Menningar- og fra;ðslusam-
band alþýðu hefur sent frá sér.
Þar syngur Maíkórinn verkalýðs-
og ættjarðarsöngva undir styrkri
stjórn Sigursveins Magnússonar.
cwm
vrrknKðssömJVíir otí
n'ttjanjursúigvar
NUirrminli Híírun>vrl»n MwHWMi
Hér á landi hefur um margra
ára skeið vantað plötu af þessu
tagi þar sem mætti heyra verka-
lýðssöngva, ekki síst þá sem
sungnir voru svo mjög á fyrri
árum. Nú er úr þessu bætt og von-
andi hefst söngur í verkalýðsfé-
lögunum á íslandi aftur til vegs og
virðingar.
Efni þessarar hljómplötu er
fjölbreytt og hlýtur að vera kær-
komið öllum sem ánægju hafa af
söng. Eru lögin valin í samvinnu
við Sigursvein D. Kristinsson, en
hann hefur löngum verið traustur
liðsmaður verkalýðshreyfingar-
innar þegar tónlistin er annars
vegar.
Þetta er önnur hljómplata
MFA á þessu ári en sú fyrri, Al-
mannarómur, kom út ekki alls
fyrir löngu.
krettvangi
Tæplega 600.000 manns eru atvinnulausir á
Norðurlöndunum og jókst tala atvinnulausra um
heil 17% fyrstu f jóra mánuði þessa árs. Núna
seinni hluta sumars fór talan yfir hálfa milljón
manna án vinnu og því miður bendir ekkert til þess
að hún kunni að lækka á næstu misserum.Þvert á
móti vísa öll teikn til þess að atvinnuleysisvofunni
vaxi enn fiskur um hrygg.
Atvinnuleysisvofan
gengur ljósum logum
Knut Christiansen: Grípa verður til róttækra ráðstafana gegn atvinnuleysi
á Norðurlöndum.
600.000 eru nú atvínnu-
laus á Norðuriöndum
Norræna verkalýðssámbandið
(NFS) fjallar í síðasta tímariti sínu,
sem út kont 1. september, unt hiö
geigvænlega atvinnuleysi á meðal
félaga okkar á Norðurlöndunum
og þar er fullyrt að ef ekki verði
gripið til róttækra ráðstafana stefni
tala atvinnulausra á Norðurlönd-
um í eina ntilljón árið 1984!
Atvinnuleysið vex nú hraðar en
nokkru sinni fyrr og byrðar samfél-
agsins vegna þess arna nálgast að
verða óbærilegar. Eru þá ótaldar
þær fórnir sern hver einstakur verð-
ur að færa í leit sinni að atvinnu.
Á næsta ári er reiknað með að
Danir greiði um það bil 26-27 milj-
arða danskra króna í baráttunni
gegn atvinnuleysisbölinu. Svíar
verja urn 12 miljörðum sænskra
króna á þessu ári í sama skyni. Það
hefur líka verið reiknað út að
atvinnuleysið kosti sænska ríkið
157 miljónirsænskra króna á hverj-
um degi.
Formaður Norræna verkalýðs-
sambandsins, daninn Knud Christ-
iansen segir í bréfi til fjármálaráð-
herra Norðurlandaþjóðanna og
glefsur birtust úr í blaði sambands-
ins, að eina ráðið til að vinna okkur
út úr þessari kreppu sé leið sam-
vinnunnar. Þjóðirnar veröi að
vinna meira saman að lausn sinna
efnahagslegu vandamála auk þess
sem þær verði að vera virkari í al-
þjóðlegu samstarfium lausn efna-
hagsvandantála.
Knud Christiansen nefnir sem
dæmi að ef öll lönd í Vestur-
Evrópu tækju sig til og ykju opin-
berar fjárfestingar um upphæð sem
næmi 1% af þjóðarframleiðslu
landanna, myndi það auka heildar-
framleiðsluna um ca 3% næstu þrjú
árin og um leið skapa atvinnu fyrir
3.5 miljónir manna. Bara þessi
eina aðgerð myndi minnka atvinnu
leysið í þessunt löndum unt 27%,
t'ullyrðir Knud Christiansen.
Ilann spyr einnig hvort Norður-
landaþjóðirnar séu tilbúnar að
starfa meira saman að lausn sinna
efnahagsvandamála. Er til dæntis
Norræna ráðherranefndin tilbúin
að stíga slíkt skref og áður var
minnst á? Hann segir að Norræna
verkalýðssambandið sé tilbúið til
þess, en er pólitískur vilji í löndun-
'unt til að gera slíkt hið sama?
Ef Norðurlandaþjóðirnar bæi;u
gætu til að slást við atvinnuleysis-
drauginn með samstilltu átaki er
ekki að efa að árangur næðist og
það væri einmitt prófsteinn á gildi
norrænnar samvinnu, segir Knud
Christiansen að lokum í bréfinu til
fjármálaráðherranna. - v.
Á þingi norrænu
atvinnuhollustufræðinganna
voru flutt mörg merk erindi. Of
mikið væri að gera þeim öllum
skil hér, og enda ekki víst að þau
eigi öll erindi í dagblöð. Þarna
var greint frá ýmiss konar
rannsóknum, og fyrirhuguðum
rannsóknum. Þeir sem áhuga
hafa á efninu er bent á að snúa
sér til Vinnueftirlitsins í
Síðumúla 13, en þar munu
menn fá greinargóð svör.
Eitt þeirra erinda, sem vakti
sérstaka athygli undirritaðs blaða-
manns, fjallaði urn áhrif ákveðins
efnis á kynhormón og kyngetu
karlmanna. Rannsóknin var gerð á
karlmönnum í prentiðnaði, en eng-
in ástæða er til að ætla annað en
þetta ákveðna efni, sem rannsakað
var, hafi sömu áhrif á konur.
Efnið, sem hér um ræðir, er toul-
en, en það hefur sannast að það
hefur bein eituráhrif á nýru, lifur,
hjarta og beinmerg. í tilraun, sem
nýlega var gerð á rottum, fékkst
frarn aukin framleiðsla á yfirkyn-
hormóni í rottunum, ef þær komust
í tæri við toulen. Til þess að rann-
saka hvort svipað kæmi frant á
mönnum, voru valdirhópar manna
úr prentiðnaði, þar sem unnið
hafði verið með toulen í nokkuð
langan tíma.
Valdir voru 382 ntenn til rann-
sóknarinnar, og höfðu suniir unnið
með efnið en aðrir ekki, en allir
unnu þeirí prentiðnaði. Fundið var
Djúp-þrykk pressa. Sýnt hefur verið
frarn á, að efnið toulen, sem mikið er
notað við djúp-prentun, hefur
varanlcg áhrif á kynhormóna.
út hversu mikil sú mengun var, sem
hver og einn hafði búið við út frá
vinnutíma og -lengd, vinnustað í
húsi og eðli vinnunnar.
Eftir margs konar síur í rann-
sókninni stóðu eftir 18 ntenn, sem
ekki höfðu lent í toulen-mengun,
og 49, sem höfðu lent í henni. Þess-
ir tveir hópar voru bornir saman
nteð tilliti til aldurs, áfengisnotk-
unar, reykinga, blóðþrýstings, hæð
ar ogþyngdar. Hjá þeim, sem lent
höfðu í toulen-mengun, kom fram
Efnið toulen, sem
notað er í vissum tegundum prent-
unar, hefur uggvænleg áhrif á kyn-
hvöt og kynhormónastarfsemi
aukið magn af yfirkynhórmóninu
S-FSH. Sömuleiðis sögðust 18 af
þessum 49 finna fyrir truflunum á
kyniífi (náttúruleysi). Enginn í 18
manna samanburðarhópnum til-
kynnti slíkt.
Niðurstaðan er þessi: ef menn
eru lengi í vinnu, þar sem toulen er
notað, eiga þeir á hættu að það segi
til sín í starfi kynhormóna (með ó-
könnuðum aflciðingum á t.d. af-
kvæmi) og auk þess trufiunum í
kynlífi!
Uggvænleg
áhrif toluens
Toluen - lítið
notað hér
í prentiðnaði
Fullt af
varasömum
efnum i umferð
Við forvitnuðumst um það
hjá Félagi bókagerðarmanna
hvort efnið toulen væri notað í
prentsmiðjum hér á landi.
Fyrir svörum varð Omar
Harðarson.
„Þetta efni er ekki notað í
prentiðnaði hérlendis nema þá í
afskaplega litlum mæli. Efnið er
aðallega notað í svonefndri djúp-
prentun, en hér munu starfa um 6
fyrirtæki, sem þeirri aðferð beita.
Norðurlandaþjóðirnar hafa
gert afskaplega ntikið í vinnu-
verndarmálum í prentiðnaði og
má nefna. að þar eru til katalógar
með öllum hugsanlegum efnum,
sem beitt er innan prentiðnaðar-
ins og þar geta menn strax séð
hvaða áhrif eitthvert tiltekið efni
hefur, til hvers það er notað,
hvort notast megi við eitthvert
annað efni. Engin slík skrá er til
hér á landi en væri vissulega mik-
ið gagn að slíkri skrá, og þá ekki
aðeins fyrir prentiðnaðinn,”
sagði Ómar Harðarson.
Því má bæta við, að þótt þetta
tiltekna efni sé notað hér í litlum
mæli þá er fjöldinn allur af efnum
Mönnum er eindregið bent á að
snúa sér til Vinnueftirlitsins ef
þeir tclja niinnstu líkur á að
unnið sé með hættuleg efni.
hér í umferð, sem hafa skaðvæn-
leg áhrif á heilsu manna til lang-
frama, bæði í prentiðnaði og öðr-
um atvinnugreinum. Vinnueftir-
lit ríkisins á til skrár yfir efnin,
sem notuð eru í prentiðnaði, og
'mönnum er eindregið bent á að
snúa sér þangað og láta kanna
málin. Oft er það þannig, að
framleiðandinn skráir ekkert
utan á umbúðir hvaða efni eru í
pakkanum og rnenn eru því litlu
nær. Og þá er best að snúa sér til
Vinnueftirlitsins. ast