Þjóðviljinn - 13.10.1982, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. október 1982
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalag Selfoss
og nágrennis
Garðar Sigurðsson alþingismaður verður með við-
talstíma að Kirkjuvegi 7, Selfossi laugardag 16. okt-
óber kl. 14.00.
Stjórnin. Garðar.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
- Fundaröð um efnahagsmál
VALKOSTIR í EFNAHAGSMÁLUM -
TILLÖGUR ALÞÝÐUBANDAI
er yfirskrift þriðja fundarins í
fundaröö Alþýðubandalagsins í
Reykjavík um efnahagsmál, sem
haldinn verður fimmtudaginn 14.
október kl. 20:30 í Sóknarsalnum
að Freyjugötu 27. Frummælendur:
Ragnar Arnalds og Björn Arn-
órsson.
Félagar og stuðningsmenn, fjöl-
mennið. Stjórn ABR.
AÍÍSINS
Ragnar Björn
Hverjir ætla norður?
Fyrirhugaö er að efna til höpferöar frá Reykjavík til Akureyrar á ráð-
stefnu ABA 30.-31. október. Þeir Alþýðubandalagsmenn á Reykjavíkur-
svæðinu sem hýggjast taka þátt í ráðstefnunni á Akureyri eru beðnir ;ið
hafa samband við skrifstofu ABR sem allra fyrst. síminn er 17500. - ABR.
Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis
Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis heldur félagsfund að Kirkjuvegi 7
laugardaginn 16. október kl. 16.00.
Fundarefni:
Kosning fulltrúa á flokksráðsfund.
Efnahags- og utanríkismál.
Framsögu liafa þeir: Ragnar Árnason og Pétur Reimarsson.
Félagar Ijölmvnnið.
Orðsending til styrktarmanna
Alþýðubandalagið hvetur styrktarmenn flokksins til aö greiða útsenda
gíróseðla hið allra fyrsta. — Alþýðubandalagið.
Ilallgrímur
Lúðvík
Páll
Aiþýðubandalagið í Hafnartlrði
- Almennur félagsfundur
ABI1 hejdur almennan félagsfund miðvikudaginn 13. október í Skálanum
(Strandgötu 41) og hefst hann kl. 20.30.
Dagskrá:
1) Umneöur og afgreiösla á nýjum starfxrcglum fyriFÁxejarmálaráö.
Frumni;elandi: Páll Árnason.
2) Starfsáætlun ABH fram að áramótum. Frummælandi: Hallgrínutr
1 Iróðmarsson.
3) Utgáfa Vegamóta. Frummælandi: Lúðvík Geiisson.
4) Almennar umræður.
5) Kosning fulltrúa í bæjarmálaráö.
lélagar fjölmennið. - Kaffi á könnunni. - Stjórnin.
Eru luktir
og glitmerki
í lagi á hjólinu
þínu?
Mmningarsi óftur um
Jón
Júlíus
Þor-
steins-
son
Ákveðið hefur verið að stofna
minningarsjóð um Jón Júlíus Þor-
steinsson, kennara frá Olafsfirði,
síðast starfandi við Barnaskóla Ak-
ureyrar. Tilgangur sjóðsins verður
að gefa út kennsiugögn fyrir hljóð-
lestrar-, tal-, og söngkennslu.
Fyrsta verkefni sjóðsins verður
að gefa út kennslugögn Jóns Júl-
íusar. Þar er um að ræða svokallað
■ar hljóðstöðumyndir og kennslu-
leiðbeiningar. Fyrir liggur það álit
margra sérfróðra manna sem kynnt
hafa sér þetta efni að það muni
verða mjög gagnlegt fyrir lestrar-,
tal- og söngkennslu.
Þeim er hefðu áhuga á að minn-
ast Jóns Júlíusar og um leið stuðla
að útgáfu á þessu framlagi hans til
menningarauka er vinsamlega bent
á að hægt er að gerast stofnfélagi
sjóðsins til 1. nóvember n.k. Listar
ásamt greinargerð liggja frammi á
eftirtöldum stöðum:
I Reykjavík: Á fræðsluskrifstof-
unni, Tjarnargötu 12, Þjónustu-
miðstöð kirkjunnar, Klapparstíg
27, Söngskólanum, Hverfisgötu
Markmið sjóðsins er að gefa út hljóðstöðumyndir sem Jón Júlíus gerði og
nýta þær við hljóðlestrar-tal- og söngkennslu. Þessi mynd er af Jóni og
einum nemanda hans.
45, og Heyrnar- og talmeinastöð,
Háaleitisbraut 1.
Á Akureyri: Á Hótel Varðborg,
Barnaskóla Akureyrar, Glerár-
skóla og Oddeyrarskóla, á fræðslu-
skrifstofunni, Hjá Haraldi Sigur-
geirssyni, bæjarskrifstofunum, og
Guðrúnu Sigbjörnsdóttur, Trygg-
ingaumboðinu.
Á Ólafsfirði: Á bæjarskrifstof-
unni og í barnaskólanum.
Framlög í sjóðinn eru frjáls og
verða gíróseðlar sendir út fljótlega.
Einnig skal bent á að hægt er að
greiða beint inn á gíróreikning nr.
18973-1 Póstgíróstofunni, Ármúla
6. Tekið er við greiðslum í öllum
bönkum og pósthúsum. Heimilis-
fang minningarsjóðsins verður
fyrst um sinn að Hjallalandi 22,
Reykjavík. Stofnfundur verður
haldinn á Akureyri í nóvember.
Stéttarsamband bænda um matvælasmygl:
Tollskoðun verði efld
og afnumin sérréttindi varnarliðsins
Sá orðrómur fer ekki leynt að
töluvert sé um að matvælum sé
smyglað til landsins. Augljóst er,
að slíkur ólöglcgur innflutningur
felur í sér þá hættu, að háskalegir
búfjársjúkdómar berist hingað,
mcð ófyrirsjáanlegum afleiðing-
um. Fyrir því samþykkti síðasti
aðalfundur Stéttarsambands
bænda svofellda ályktun:
„Fundurinn... skorar á landbún-
aðarráðherra að beita áhrifum sín-
um til að stórefld verði tollskoðun
á öllum flutninga- og farartækjum,
sem koma til landsins og einnig á
persónulegum farangri.
Þá telur fundurinn mjög áríð-
andi að afnema þau sérréttindi er
gilda um innflutning landbúnaðar-
vara til varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli."
-mhg
Formannafundur LIS:
Vmnuverndarmálin rædd
F'ormannafundur starfsmanna-
félaga innan Landssambands ísl.
samvinnustarfsmanna var haldinn
í Bifröst 11. þ.m. Meðal mála, sem
þar var fjaliað um, voru málefni
lífeyris- og eftirlaunaþcga. Ákvað
fundurinn að halda sérstaka ráð-
stcfnu um þau mál.
Þá var rætt um hugmvndir um
nýjar orlofshúsabyggðir samvinnu-
starfsmanna, og kom fram, að í at-
hugun er að fá stað fyrir slíka byggð
á Norðausturlandi, einna helst í
nágrenni Mývatns. Mikið var rætt
um vinnuverndarmál, kjör öryggis-
trúnaðarmanna og verkefni þeirra
og samskipti og samstarf LÍS og
Vinnumálasambands samvinnufé-
laganna. Framsögu í þeim mála-
flokki höfðu þeir Vigfús Geirdal og
Júlíus Kr. Valdimarsson,
framkvstj. VMS.
Fundurinn ítrekaði ályktun síð-
asta landsþings LÍS þar sem mörk-
uð var sú framtíðarstefna að LÍS og
starfsmannafélögin yrðu samnings-
aðilar um kaup og kjör við VMS.
Áfangi að því marki væri að ítreka
kröfur að um orlofssjóðsgreiðslur
frá samvinnufyrirtækjum r.enni í
sérstakan orlofssjóð samvinnu-
starfsmanna í stað orlofssjóða
stéttarfélaganna, svo sem nú er.
Lýst var ánægju með hina nýju
stefnuskrá samvinnuhreyfingar-
innar og lögð áhersla á að þeirri
umræðu og því starfi, sem fram
hefur farið undanfarin ár við gerð
stefnuskrárinnar, verði haldið
áfram og að hún verði í stöðugri
endurskoðun. Fundurinn hvatti
alla samvinnustarfsmenn, sem ekki
eru nú þegar félagsmenn kaupfé-
laganna, að gerast félagar og taka
virkan þátt í félagslegu starfi
þeirra.
- mhg
Styttur
Framhald af 7. siðu.
hefði af sama tilefni samþvkkt að
láta gera áætlun um endurbætur og
viðgerðir á styttunum og leifa til
myndhöggvarafélagsins unt gerð
forgangslista þar um.
Davíð Oddsson sagðist telja að
viðtalið við Ragnar Kjartansson
væri nokkuð orðum aukið, - ekki
væri eins mikil alvara á ferðum og
þar kæmi fram. Ilins vegar væri
fagnaðarefni að umhverfismálaráð
hefði nú þegar fjallaö um þetta mál
og væri sjálfsagt aö samþvkja til-
lögu Gerðar. Hún hlaut 21 at-
kvæði.
- ÁI
Félag járniðnaðarmanna:
Lánskjörin fylgi kaupi
Á fundi í Félagi járniðnaðar-
manna l'yrir stuttu var samþykkt
eftirfarandi tillaga.
„Félagsfundur í Félagi járniðn-
aðarmanna haldinn 28. sept. 1982,
samþykkir að skora á Alþingi og
ríkisstjórn að verða við þeirri rétt-
mætu kröfu, að breyting lánskjara-
vísitölu miðist við breytingu al-
menns kaupgjalds.
Staðreynd er að sífellt dregur í
sundur með lánskjaravísitölu og al-
mennu kaupgjaldi launafólki j,
óhag, og kemur slíkt meö mestum
þunga á þá sem ieitast Við að
eignast eigið húsnæði og dregur
jafnframt úr kjarki launafólks til að
ráðast í íbúðakaup.
Þegar verðbætur á laun eru
skertar eins og nú er gert og
stemmt að, er samræming breyt-
inga á lánskjaravísitölu og al-
mennu kaupgjaldi, þýðingarmikið
réttlætismál fyrir launafólk.