Þjóðviljinn - 27.11.1982, Side 12

Þjóðviljinn - 27.11.1982, Side 12
12 StÐA — ÞJÓDVILJINN Helgin 27.-28. nóvember 1982 bókmenntir Hugleiðingar af rnanna völdum Kristján J. Jónsson skrifar Af manna völdum Tilbrigði um stef. Höf: Alfrún Gunnlaugsdóttir Útg: Mál og Menning Af manna völdum hefur að geyma níu tilbrigði um stef og það er skemmtilega flókið mál hvert þetta stef er. Ég las það í Helgar- póstinum að sögurnar fjölluðu all- ar um flótta og nokkrum dögum síðar heyrði ég það á bókmenntakynningu að stefið í þessu verki væri ofbeldi, þessu næst frétti ég að í Dagblaðinu hefði staðið að lesandinn gæti bara valið stefið sjálfur og sé það virkilega þannig að ég megi velja stefið í þetta sjálfur þá geri ég það auðvit- að. Ég ætla að halda því fram að stefið sé ótti. Ég ætia þó ekki á þessum vettvangi að leggja fram viðamikinn rökstuðning með þeirri skoðun minni. Það nægir að minna á að í öllum sögunum stendur sög- umaðurinn á einhvern hátt frammi fyrir því óþekkta. Við könnumst öll við hrollinn sem læðist að okkur þegar við höfum ekki lengur tök á aðstæðum okkar, það nægir kann- ski að minna á eitt dæmi úr bóki- nni. í fjórða tilbrigði segir frá stúlku á Spáni sem flækist í mein- leysi inn í námsmannaóeirðir, at- burðarásin dregur hana á áður ó- þekktar slóðir og í lok sögunnar spyr hún sjálfa sig: Og hver var þessi stúlka sem stóð með krepptan hnefa og hrækti á einkennisbúning. Sem misþyrmdi öðrum, þó ekki hefði það verið nema í huganum? Hver var hún? Frásagnartœkni og söguefni Það er tvennt sem við fyrstu sýn virðist einkenna bók Álfrúnar Gunnlaugsdóttur. Annað er áber- andi sparsemi og nýtni í stíl- brögðum og tæknibrellum en hitt er greinileg áhersla á val og túlkun söguefnis. Mér finnst Álfrún velja viðfangsefni sín af óvenjulegri víðsýni og næmum skilningi á manneskjunni. Þó að ég þykist geta talað um þetta hvort í sínu lagi þá verð ég samt að viðurkenna að tækni Álf- rúnar tengist söguefnum hennar einkar vel og oft gerir það nú gæf- umuninn í því hvort bókmenntir eru listsköpun eða slys. f níunda tilbrigði segir sögum- aðurinn á þessa leið: Ég hef alltaf dáðst að fólki sem ritarsjálfsævisögur. Það virðistekki þurfa að velkjast í vafa. Mér dettur ekki í hug að væna það um lygi eða að það hagræði sannleikanum. Það horfir bara á líf sitt eins og sögu. Það lýtur sögulögmálum. Það vil ég ekki gera. Ástæðan fyrir því að söngkonan brýtur uppá þessu er sú að hún get- ur hreint ekki komið því fyrir sig hvernig hún kynntist fólkinu sem hún er áÖ segja frá. Hver einasti ævisöguritari mundi hins vegar greina frá því, vegna þess að skilj- irðu lff þitt eins og sögu er upphafið auðvitað alltaf merkilegt. Það er kannski skítómerkilegt meðan á þvf stendur í raun og veru en ævi- söguklístrarinn er að líma samræmi á líf sitt eins og betrekk á vegg. Hjá honum verður allt að byrja og enda á vissum tíma og í þekktu rúmi. Þessi tilvitnun í sögukonuna vek- ur eina spurningu um leið og hún svarar annarri. Ef við brúkum ekki „rökrétt“ samhengi ævisögunnar þegar við veljum í frásagnir okkar, hvaða aðferð beitum við þá? Hvaða lögmálum lýtur sögukona Álfrúnar ef hún lýtur ekki sögulög- málum? Sögumannsaðstœður Þá held ég að sögunni ætti að víkja að því hvers vegna höfundur- inn kallar þetta ekki smásögur, heldur tilbrigði um stef. Sú eða sá sem segir frá fetar sig ekki eftir troðnum slóðum þess röksamheng- is sem hinir töldu að væri í sínu lífi, heldur styðst sögumaður við reynslu sem skilningarvitum hans hefur ekki tekist að gleyma. Ástæðan fyrir því hve varanleg reynsla sögumannsins verður sýn- ist mér vera óttinn sem ég nefndi í upphafi þessa bókmenntaspjalls. Atburðir þessara sagna eiga það sameiginlegt, eftir því sem ég best fæ séð, að þeir sýna togstreituna á milli einfalds og flókins veruleika á einkar skemmtilegan hátt. Þegar sögurnar hafa, hver um sig, farið. frá einföldum lífsskilningi og yfir í flókinn, þá má ljóst vera að á bak- við hversdagslegasta yfirborð leynist hyldýpi óttans og óslökkv- andi bruni þeirra margvíslegu hvata sem halda reynslu okkar heitri. Vegna þess arna lúta sögu- menn Álfrúnar ekki sögulögmál- um og muna allt með upphafi miðju og endi ævisögunnar, heldur lúta þeir sínum tilfinningum og muna lífið eins og það hefur komið til þeirra og kannski þrengt sér uppá þá. Þetta mótar oft frásögn- ina og gerir það að verkum að hún stekkur fram og aftur í tíma svo að stundum er kastað fram minninga- broti í upphafinu sem skýrist ekki fyrr en í lokin, enda hefur sögu- Framhald á 22. slöu. Metnaðurinn, uppeldið og blóðið í kúnni Arni Bergmann skrifar Jón Óttar Ragnarsson Strengjabrúður Helgafell 1982. Þessi fyrsta skáldsaga Jóns Ótt- ars Ragnarssonar fjallar um Metn- aðinn mikla, drauminn um frægð og fram og áhrif. Hjón amrísk eru svo altekin af þessum fjanda að vinur þeirra telur þeim „ekki sjálf- rátt.“ Regina Karska er óperu- söngkona sem rétt vantar herslu- muninn á heimsfrægðina ljúfu og maður hennar, Angus, lífefna- fræðingur, sem sýnist standa höll- um fæti en á reyndar stutt í sjálfan Nóbelinn. Frægðarsóknin hefur verið svo fyrirferðarmikil í lífi þeirra, að hjónabandið er í rúst. Þá ber Ástin að dyrum í iíki Ricardos þingmanns, sem kann vel að meta list og konur. En einnig í því dæmi er metnaðurirín til tafala - þegar á reynir treystir áhrifamikill þing- maður sér ekki til þess að fórna frama sínum í hneykslanlegum skilnaðarmálum. Regina er heldur betur í klemmu, en „á misjöfnu þrífast börnin best“ segir sagan - og kreppur hennar verða eins og skírsla til sigurs í list og til nýs sjálf- stæðis, væntanlega. Saga þessi gengur rösklega áfram, þótt taktar samkvæmislífs- ins skilji eftir dauða punkta hér og þar. Hún er skrifuð af skilningi á fólki og aðstæðum - en, nota bene, - sá skilningur fær ekki að njóta sín neitt að ráði. í hverri skáldsögu af raunsæis- ætt, skáldsögu, sem líkir eftir senn- ilegum persónum og aðstæðum, er sífellt verið að leysa sama dæmið: hvert verður vægi hins sértæka, þeirra þátta sem gefa hverri pers- ónu lit og rödd og visst sjálfstæði - og hver verður þáttur hins „al- menna" í persónulýsingum, hins dæmigerða? Best fer náttúrlega á því að lesandinn taki alls ekki eftir því að þessi vandi sé til. En í Strengjabrúðum lætur hann tölu- vert á sér kræla. Sumpart ræður hið framandlega umhverfi Amríkunn- ar því, að útlínur persónanna deyfast. En það er þó fyrst og fremst mikil sparsemi höfundarins Jón Óttar Ragnarsson sem ræður því, að persónurnar verða fyrst og fremst Vísinda- maðurinn, Listakonan og Stjórn- málamaðurinn í Metnaðar- og Skilnaðarmálum sem við kynn- umst - en alltof lítið Reginu Karska eða Angusi eða Ricardo Antonini. Mike heitir maður sem reynir að hafa vit fyrir fólkinu í sögunni. Honum eru lagðar í munn nokkrar A Hallœrisplaninu Árni Bergmann skrjfar Páll Pálsson Hallærisplanið Skáldsaga fyrir börn og fullorðna Iðunn 1982. Þessi stutta skáldsaga lýsir viku- lokum í heimi tánings, foreldra hans og félaga. Tíminn líður þar hratt í undirbúningi helgarfyllirís, ástarævintýri, táningapartí í for- eldralausu húsi og síðan í kulda, ölvun, glerbrotum, misheppn- uðum uppáferðum og slagsmálum sjálfs Hallærisplansins. Höfuðkostur þessarar stuttu sögu er líkast til trúverðugleikinn - lesandinn finnur enga þörf hjá sér til að efast um atvik og aðstæður og sá sem þetta skrifar hefur vottorð upp á það frá táningi að málfarið sé ekta. Persónurnar eru dregnar ein- földum dráttum, sem nægja í þessa stuttu skáldsögu eða löngu smá- sögu: einn er ástfanginn, annar með sportdellu, þriðji er átvagl, en hver einstakur skiptir ekki höfuð- máli heldur sjálft andrúmsloft þess hallæris sem planið er kennt við. Höfundur skilur það á þann veg, að unglingarnir séu í eftirhermu- leik, þeir vilja flýta sér þangað sem þeir fullorðnu eru. Þegar Eiríkur og Stína ætla að laumast inn í kenn- araafdrepið í skólanum til að kanna ljúfa leyndardóma eru þar fyrir kennarar tveir með allt niður um sig. Fylleríið hjá Halla heildsalasyni er ekki óskylt því fullorðinnapartíi sem haldið er heima hjá Eiríki á meðan. Þessar hliðstæður eru settar fram án 6- þarfa vorkunnsemi með aumingja táningunum sem mega hvergi vera: þær tala sínu máli og það nægir. Og ömurleiki Hallærisplansins er líka skýrt dreginn fram og án útlegg- inga. Rammi sögunnar er þröngur og því veit lesandinn færra um Ei- rík og hans lið en hann hefði kann- ski viljað en það er ekki til baga. Og hvað gerist síðan, hvað gerist þegar hallærisleiðangurinn hefur endurtekið sig nógu oft til að hætta f\ i T'AUB K ‘RiV*-frrfrVfrj B m wtj i | • r ltollIzl ; að sæta tíðindum? Því er að sjálf- sögðu ekki svarað - en uppákomur og aðstæður sögunnar gera þessa spurningu áleitna vel. ÁB. lykilsetningar um uppeldi og um- hverfi sem ráðandi þætti í til- orðningu persónuleikans: „Við erum leiksoppar. Strengjabrúður. í milli okkar og umhverfisins eru milljón þræðir. Flesta höfum við aldrei hugmynd um. Samt stjórna þeir lífi okkar.“ Þetta eru vitanlega ekki nýjar upplýsingar - en allt væri það í lagi ef að úr þessu yrði annað og meira en staðhæfing. Höfundur virðist sætta sig við þau orð Mike að „flesta höfum við aldrei hugmynd um.“ Og því lætur hann sér það nægja að minna á það einu orði, að bæði Angus og Reg- ina séu innflytjendabörn sem hafi alist upp í amríska draumnum sem kreppan og fleira (í dæmi Angusar að minnsta kosti) truflaði. En lengra er heldur ekki gengið í út- færslu þess mannskilning sem lýsir yfir því að „umhverfið“ sé gífurlega mikils ráðandi. Eða eins og Mike ítrekar síðar: „Þetta er í'umhverf- inu, Regina. Ykkur er ekki sjálf- rátt. Öllum er stjórnað upp að vissu marki en þið eruð heltekin.,, Persónurnar eru þarna og ákveðin viðbrögð þeirra við frama og ástum - en umhverfið sjálft er eitthvað sem lesandinn verður að leggja sér til sjálfur. Þessi sparsemi er mjög á sama veg í ástamálunum. Regina kemur til New York hundleið á manni sín- um og kynnist fríðum þingmanni ítalskrar ættar. Eftir litlaus kynni, kvöldmatogdiskótekfaraþauí ból- ið saman: „Þetta var nóttir. langa. Nóttin þegar allt gerðist samtímis. Nóttin þegar hún losnaði úr álög- unum. Vaknaði til nýs lífs. Byrjaði að kynnast sjálfri sér og heimin- um“ (55). Allt er það gott og bless- að - en verður ekki annað en stað- hæfing. Önnur kynni lesandans af elskhuganum eru svo miklu hvunn- dagslegri, að hann á erfitt með að hugsa sér hann sem einskonar Tristan, Cyrano de Bergerac nú eða elskhuga Lady Chatterley ef menn vilja það heldur. Endur- lausnarann. Sú sparsemi sem hér hefur verið átalin er í ætt við kvikmyndahand- rit. Það getur vel verið að Strengja- brúður yrði vel nýtilegt sem slíkt. En kvikmyndahandrit er ekki skáldsaga, því miður - þar er eftir að gera svo margt, sem ekki er hægt að ætlast til að lesandi skáld- sögu taki að sér. Frumraun Jóns Óttars Ragnars- sonar er fróðleg um margt og úr- ræðabetri verður hann eftir því sem líður á söguna. En semsagt: það vantar meira blóð í kúna. ÁB.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.