Þjóðviljinn - 27.11.1982, Side 15
Helgin 27.-28. nóvember 1982 ÞJöÐVILJINN — SIÐA 15
Rabbaö við „rimlarokkaranriRúnar Þór Pétursson:
í góðri meiningu
Rúnar Þór Pétursson er eini liðsmaður hjómsveitarinnar Fjötra sem er frjáls maður. Þessa dagana hendist
hann víða um land, fyrir hönd félaga sinna sem afplána dóma á Litla Hrauni, og kynnir plötuna Rimlarokk,
hljómplötu fyrstu og einu fangahljómsveitar á íslandi. í kvöid er hann á Hvoli (Rang)og annað kvöld(sunn-
udag) í Hollywood.
Rimiarokk hefur hrundið af stað miklum bréfaskriftum um málefni fanga til lesendasíðu Dagblaðsins.
Hvernig skyldu þau leggjast í fyrrverandi fanga?
- Ég bjóst við fordómum í okkar
garð, fólk tekur nýjungum aldrei
opnum örmum. Við hefðum svo
sem getað beðið þangað til að allir
verða lausir, en ég get ekki séð að
neinn munur sé á því. Þar að auki
held ég að fólk ætti að hafa í huga
þá gullnu setningu: Maður, líttu
þér nær; áður en það fer að stúdera
aðra. Ég hef aldrei verið maður til
að dæma neinn og vona að ég verði
það aldrei. Og þeir sem hafa setið
inni eiga að vera búnir að kvitta
fyrir sínar yfirsjónir og hafa það þá
framyfir aðra sem ekki hafa verið
hankaðir fyrir afbrot. Fólk sem
kemst upp með ólöglegt athæfi er
oft einmitt sama fólkið sem dæmir
aðra harðast.
- Er erfitt að vera fyrrverandi
fangi úti í þjóðfélaginu?
- Sérstaklega fyrst eftir að út er
komið, þá fer maður að hugsa:
Hvar hef ég verið? En það er mis-
jafnt hvernig fólk bregst við. Sumir
vilja fela fortíðina, annað hvort sín
vegna eða aðstandenda. Mín leið
er að koma opinskátt fram og
aðstandendur mínir voru allir sam-
mála um aðég gerði það sem mér
þætti best og réttast í því máli. Ég
tók þátt í rimlarokkinu af því að ég
hafði músíklega séð gaman af því,
og jafnframt ekki síður vildi ég
koma á framfæri því sem maður
pælir í þarna inni. Með textunum
viljum við sýna fólki inn í fangelsið
og þar með hvernig maður á EKKI
að vera.
- Nú hefur verið bent á að það
væri hættulegt að leyfa föngum að
gefa út hljómplötu, það gæti haft í
för með sér að þeir yrðu rokk-
stjörnur sem væri vont fordæmi
fyrir æsku landsins
- Ég get nú alveg fullyrt að eng-
inn okkar Fjötra tók þátt í þessari
plötugerð til að verða frægur - né
ríkur. Ef ágóði verður, fara 2/3
hlutar til þeirra tveggja heimila
sem Vernd rekur í Reykjavík, 1/3 í
kostnað og okkar hlut, sem ekki er
víst að verði nokkur.
Og líttu bara á textana. í stuttu
máli segja þeir allir samanlagt: Ef
þú drekkur nógu mikið brennivín,
reykir nógu mikið „stuð“ og étur
nógu mikið af pillum þá er það
pottþétt leið inn á Hraunið - eða
þú verður fyrr eða síðar geðveikur.
Og hvað poppstjörnutalinu viðvík-
ur þá finnst mér það ekki eftirsókn-
arverður titill, og eitt er víst - sam-
kvæmt eigin reynslu mundi ég
ekki, bæði sem hljómlistarmaður
og fyrrverandi fangi, leggja það á
mig að fara á Litla Hraun til að
verða poppstjarna. Það er erfið
lífsreynsla, en hinsvegar held ég að
Rúnar Þór Pétursson. Á rimla-
rokki leikur hann á raf- og kassa-
gítar og trommur, auk þess sem
hann syngur. - Ljósm. - eik - .
það sé auðvelt að verða popp-
stjarna í íslandi....utan rimla.
Annars hefði ég helst viljað að
allt fangelsið hefði verið með á
plötunni, en það var ekki hægt,
þetta var nógu mikið fyrirtæki
samt. En ég vil koma því á framfæri
að við erum mjög þakklátir Helga
fangelsisstjóra, Birni Einarssyni
fangahjálpara og Ásgeiri Hannesi
Eiríkssyni fyrir þeirra stuðning. Án
þeirra hefði þessi plata ekki orðið
til. Eins eiga fangaverðirnir heiður
skilinn fyrir liðlegheit meðan á
upptöku stóð. Þá var Helgi Krist-
jánsson upptökustjóri í Nema í
Glóru sérstaklega þolinmóður og
jákvæður. Það eina sem vantaði
varmeiritímiístúdíói...ogþó,mér
finnst þetta skemmtilega hrátt...
Ég er ekki viss um að margar
plötur hafi verið unnar með eins
góðu hugarfari og Rimlarokk; allir
fangar voru jákvæðir í meiningu
sinni með útgáfu hennar og ég get
því ekki séð hvernig hún ætti að
skaða nokkurn mann.
- En svo eru aðrir sem finnst þið
ekki vera nógu „töfÞ' í textunum...
- Ég skal segja þér, að ef ein
hljómsveit yrði sett inn og látin
dúsa í smátíma mundu textar henn-
ar breytast. Áður fyrr samdi ég ým-
ist ástarljóð eða eitthvað „töff“ og
ýkt. Nú sem ég um raunverulega
upplifun, og það þýðir sko ekkert
að vera með einhverja stæla gagn-
vart raunveruleikanum. Pönkið er
hrátt alveg eins og ég var... og Bítl-
arnir. Þeir byrjuðu í leðurfötum,
fóru úr þeim í jakkaföt og síðan í
gallabuxur. Ég var að semja lag um
daginn sem heitir Leðurjakka-
Láki...
- Og að lokum: Er fangelsi glæp-
askóli, eins og segir í einum textan-
um á plötunni?
- Það getur verið það, - ef fang-
ar hafa bara hver annan til að apa
eftir og fá ekki tækifæri til að vera í
skóla og læra hjá kennara sem
mundi gera þá öruggari þegar út í
samfélagið er komið og þar með
hæfari og jákvæðari. En eins og ég
sagði áðan þá er langt frá því að
nokkur maður sé í hefndarhug á
Rimlarokkinu og ég segi bara að
lokum allra vegna: Lifi friðúrinn..
Marxísk sögutúlkun
Á vegum undirritaðra er í undirbúningi nám-
skeið í marxískri sögutúlkun. Hefst líklega
eftir jól.
Námsefni:
Leo Huberman - Jarðneskar eigur.
Mál og menning 1976.
Marx og Engels - Kommúnistaávarpið.
Þátttökugjald 50 kr. Þátttaka tilkynnist undir-
rituðum sem jafnframt gefa nánari upplýsing-
ar.
Ingólfur Á. Jóhannesson, sími 39205
Þorvaldur Örn Árnason, sími 29116
Veist
þú hverju
það getur
forðað
9
y^EROAR
Byggingahappdrœtti SATT ’82
Verðlaunagetraun - Seðill 1
Dregið út vikulega úr réttum svörum - ath. rétt svör þurfa að hafa borist innan 10
daga frá birtingu hvers seðils.
HVAÐ HEITA ÞESSIR TÓNLISTARMENN ?
Vinningar í boði í verðlaunagetrauninni:
1. Kawai kassagítar frá hljóðfærav. Rín Verðmæti kr. 2580.-
2-5. 5 stk. nýjar íslenskar hljómplötur:
Magnús Eiríksson Smámyndir- Útg. Fálkinn.
Jakob Magnússon - Tvær systur Utg. Steinar.
Þorsteinn Magnússon - Líf Utg. Gramm
Sonus Future - Þeir sletta skyrinu ...
Myndirnar hér að ofan eru af þekktum tónlistarmönnum sem allir eru meðlimir í SATT
(Samband Alþýðutónskálda- og Tónlistarmanna). Ef þið vitið nöfn þeirra, skrifið þá viðeigandi
nafn undir hverja mynd. Fyllið síðan út í reitinn hér fyrir neðan; nafn sendanda, heimilisfang,
stað, símanúmer. Utanáskriftin er: Gallery Lækjartorg Hafnarstræti 22 Rvík. sími 15310. Látið
45 kr. fylgja með og við sendum um hæl 1 miða í Byggingahappdrætti SATT (dregið 23. des.).
ATH: Rétt svör þurfa að berast innan 10daga frá birtingu hversseðils en þá verður dregið úr
réttum lausnum.
Alls birtast 4 seðlar fyrir jól.
NAFN
Utg. Hljóðriti Dreif.: Skífan
Verðmæti: kr. 1.500,- u.þ.b.
Heildarverðmæti vinninga samtals kr: 8.580.-
HEIMILI--------------------------------------------
STAÐUR—--------------------------------------------
SÍMI ----------------------------------------------
ATH: Utanáskrift: Gallery Læjartorg Hafnarstræti 22 Rvík. sími
15310
ATH: Þú mátt senda inn eins marga seðla og þú vilt. Kr. 45 þurfa að
fylgja hverjum seðli og þú færð jafnmarga miða í Byggingahappdrætti
SATT senda um hæl.
Jólagjöíin
í ár er
íslensk
hijómplata
+ miði í
bygginga-
happdrætti
SATT.
VINNINGAR í BYGGINGAHAPPDRÆTTI SATT:
(Dregið 23. des. 82)
1. Renault 9 kr. 135.000.-
2. Fiat Panda 3. Kenwood og AR kr. 95.000.-
hljómtækjasamstæða 4-5. Úttekt í hljóðfæraversl. Rín & kr. 46.000.-
Tónkvísl að upph. kr. 20.000.- samt. kr. 40.000.-
6. Kenwood ferðatæki ásamt tösku kr. 19.500,-
7. Kenwood hljómtækjasett í bílinn •27. Úttekt [ Gallery Læjartorgi og Skífunni-fslenskar hljómplötur kr. 19.500,-
(að upph. kr. 1.000.-) kr. 20.000,- Verðmæti vinninga alls kr. 375.000,-
(Ath. verðmæti vinninga miðað við apríl 1982)