Þjóðviljinn - 04.12.1982, Síða 7
Helgin 4. - 5. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
DLW vegg- og gólfdúkarnir. Heimsfræg gæðavara.
Urval allra nauðsynlegra verkfæra og áhalda til
dúklagninga.
Thomson hreinsilögur - hreinsar upp gamla dúka.
Sofix bón gerir gamla dúkinn sem nýjan - nýja dúkinn
enn betri.
Úrval af málningu og málningarvörum.
50 ára þjónusta í sölu vegg-og gólfefna.
Valin gæöavara
vönduð vinnubrögð
+ leiðbeiningar og góð ráð
= ánægjulegur árangur
Lítið við, verið velkomin.
tflpGfÓÐBÍffllKK^
W Hverfisgötu 34 - Reykjavík
_____Simi 14484 - 13150
Végg- og gólfdúkur
sem flytur það undir stjórn Mart-
eins H. Friðrikssonar. Hvernig
stendur á því?
- Þetta verk er samið að beiðni
Dómkirkjunnar og var frumflutt
þar nú í lok október. Það er samið
við latneskan, kirkjulegan texta,
en er að því leyti óvenjulegt að
mest áhersla er lögð á miskunnar-
bænina (miserere nobis), en lof-
söngurinn sjálfur er dapurlegur,
andstætt við það venjulega.
- Hvernig er það hugsað?
- Ég tel að nútímamaðurinn hafi
ekki efni á að lofa Drottin með
miklum látum. Þar á hæversk bæn
betur við.
- Og svo að lokum Canto.
- Já, það var samið í sumar og
haust í samvinnu við Þóri Kr.
Þórðarson prófessor í guðfræði, en
hann skeytti saman textum úr hin-
um ýmsu bókum Gamla testament-
isins í samræmi við hugmyndir mín-
ar. Með þessu verki reyni ég að
brjóta nýjar leiðir fyrir kórformið,
bæði hvað varðar tónlistina sjálfa
og leikrænt svið hennar. í fyrsta
lagi er kórnum skipt í þrennt og við
heyrum hljóma og tóna úr ýmsum
áttum, og einnig er leikið á
hljóðgervil. í öðru lagi er notuð
breytileg lýsing við verkið og í
þriðja lagi byggist það upp á þrem-
ur víddum, á þögninni, sem er
guðfræðilegs eðlis, tóninum eina,
sem er verunin, og hinu mótstæði-
lega, sem eru hinir dumbu öfl sem
búa í geimnum eða sálu mannsins.
Þ.essi svið eru uppistaða tón-
verksins. Það er mjög erfitt tón-
rænt séð ,á köflum allt að því 24
radda. Það krefst því gífurlegrar
einbeitingar og þrótts söngfélaga.
- Hvers vegna valdirðu efni úr
Gamla testamentinu?
- Hugmyndin er fengin úr frétt-
um frá hinum stóra heimi, hörm-
ungum og neyð fólks á slóðum Bib-
líunnar í Líbanon.
Þess skal svo að lokum getið að
aðstoðarkórstjóri er Hanna G. Sig-
urðardóttir og hljóðgervill Kjartan
Ólafsson. Lýsingu annast David
Walters.
- GFr
Viötal viö Hjálmar H. Ragnarsson en í dag eru tvennir tónleikar á vegum
Háskólakórsins þar sem eingöngu verða flutt verk eftir hann
Canto fyrir
ídag, laugardag, heldur
Háskólakórinn tvenna
hljómleika í Félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut, þá
fyrri kl. 17, en þá seinni kl.
20.30. Það sem gerir þessa
tónleika sérstaka er að öll
verkin, sem flutt verða eru eftir
kórstjórann Hjálmar H.
Ragnarsson tónskáld. Við
náðum í skottið á Hjálmari og
spurðum hann nánar út í þessa
tónleika.
- Eru þetta nýleg verk eftir þig,
Hjálmar?
- Þau eru öll samin á rúmlega
einu ári. Það er því mj ög spennandi
fyrir mig að heyra þau flutt öll
saman, því að þau gefa yfirlit yfir
þetta tímabil mitt. Líkt og málari
sem heldur myndlistarsýningu á
verkum sínum frá ákveðnu tímabili
gefst manni því kostur á að endur-
skoða stöðu sína og taka nýja
stefnu.
- Mér sýnast verkin vera trúar-
legs eðlis eftir heitum þeirra að
dæma. Ertu á kafi í trúarhug-
leiðingum?
- Þetta eru þrjú verk, og eru tvö
þeirra Gloria og Canto, trúarlegs
eðlis. Það þriðja, Romanza, er að
vissu leyti trúarlegt, en að vissu
leyti heimspekilegt. Það má segja
að það sé rómantískt sönglag
mannsins í dag, skrifað fyrir
hljóðfæri. í miðju verksins er
langur hægur og fallegur kafli um
rómantíkina eins og við höldum að
og samið
undir
áhrifum
frétta frá
Líbanon
hún hafi verið eða vildum að hún
væri, eins konar nostalgíukafli, en
hinir kaflar verksins eru allharðari.
- Þú segir að þetta verk sé skrif-
að fyrir hljóðfæri. Tekur þá kórinn
ekki þátt í því?
- Nei, það eru þrír hljóðfæra-
leikarar sem flytja það. Martial
Nardeu á flautu, Óskar Ingólfsson
á klarínett og Snorri Sigfús Birgis-
son á pí anó.Romanza var frumflutt
haustið 1981 á tónleikum í Stokk-
hólmi sem haldnir voru á vegum
sænska ríkisútvarpsins.
- Ég tek eftir því í verkinu Glor-
ia, að það er Kór Dómkirkjunnar
24 raddir
Hjálmar R. Ragnarsson: Reynir að brjóta nýjar leiðir fyrir kórformið.
Ljósm.: eik.