Þjóðviljinn - 04.12.1982, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 4. - 5. desember 1982
Vinnustaðasýningar, litskyggnusafn, heimildasafn,
myndlistarmannatal og bœkur
um myndlist og myndlistarmenn
Listaskáli aiþýðu við Grensásveg er viðurkenndur sem einhver besti sýn ingarsalur landsins. Hér er
á listaverkum í eigu Listasafns alþýðu.
Listasafn alþýöu hefur nú
starfaö á 3.áratug og færist æ
meiri þróttur í starfsemi þess.
Þaö nýjasta er útgáfa ritraðar
um íslenska myndlist og
myndlistarmenn og eru tvær
fyrstu bækurnar komnar út.
Onnur er um Ragnar í Smára
en safnið varð til vegna
listaverkagjafar hans og hin er
um Eirík Smith listmálara. Við
tókum Þorstein Jónsson,
forstöðumann safnsins, tali um
daginn og spjölluðum við hann
um listasafnið og nýjungar í
starfi þess.
Skyldan við
vinnandi fólk
- í hugum margra er safn að-
eins sýningarsalur og geymsla.
Hvert er þitt álit á hiutverki lista-
safns?
- Það er eðlismunur á safni og
sýningarsal eða galleríi. Það síðar-
nefnda er einungis miðað við sýn-
ingu á myndlistarverkum en safn á
hins vegar að vera virk stofnun sem
stuðlar að rannsóknum á myndlist
auk þess að standa fyrir fræðslu og
kynningu á henni. Safn er vitanlega
byggt upp af myndlistarverkum,
sem gerir það að safni, en það fer
svo eftir möguleikum hvers og eins
hvernig það byggir upp aðstöðu til
rannsókna og almennrar upplýs-
ingar. Listasafn alþýðu hefur þá
sérstöðu að það er eign verkalýðs-
hreyfingarinnar og hefur þar af
leiðandi skyldum að gegna við
vinnandi fólk. Þeim hefur það
m.a. gegnt með því að halda uppi
listkynningu á vinnustöðum um allt
land. Að jafnaði eru 10-15 mynd-
listarsýningar frá Listasafni alþýðu
á vinnustöðum.
- Er óskað eftir þessum sýning-
um eða eru þær til komnar að ykk-
ar frumkvæði?
- Við höfðum frumkvæðið í byrj-
un en nú er orðin svo mikil aðsókn í
þær að við höfum aðeins bolmagn
til að sinna óskum sem okkur ber-
ast frá v rkalýðsfélögum og vinnu-
stöðum.
- Geturðu nefnt mér dæmi um
slíkar sýningar sem nú standa yfir?
- Já, á Höfn í Hornafirði eru sýn-
ingar á fjórum mismunandi vinnu-
stöðum. Þá eru uppi sýningar í
húsnæði Verkalýðsfélags Akra-
Unnið er skipulega að þvf að gera litskyggnur af íslenskum myndlistar-
verkum og eru gæði þeirra það mikil að hægt er að nota þær til litgreining-
ar og fjölföldunar. Hér er Þorsteinn við spjaldskrána.
ness, Rafiðnaðarsambandsins,
Trésmiðafélags Reykjavíkur og
Málm- og skipasmiðasambandsins.
Ennfremur í húsakynnum Alþýðu-
bankans við Laugaveg og Suður-
landsbraut og í Þjónustumiðstöð
aldraðra við Dalbraut. Þá er nýbú-
ið að taka niður sýningu í Félags-
málastofnun alþýðu í Ölfusborgum
en 5 nýjar sýningar verða settar
upp á næstunni.
- Eru einhverjir fyrirlestrar eða
önnur listkynning í tengslum við
þessar sýningar?
- Það er ekki enn orðinn fastur
þáttur í starfsemi safnsins en þó
hafa litskyggnur verið sýndar í
tengslum við slíkar sýningar.
- Nú hefurðu nefnt vinnustaða-
sýningar. Hver er starfsemi safns-
ins að öðru leyti?
Listasafn alþýðu
hefur þá sérstöðu
að það er eign
verkalýðshreyf
ingarinnar og
hefur þ.a.l.
skyldum að
gegna við
vinnandi fók
Eitt af störfum forstöðumanns Listasafns alþýðu er að færa litskyggnurn-
ar inn á spjaldaskrá og hér er hann að skrá allar upplýsingar með mynd
eftir Kristján Davíðsson. Ljósm.: Atli.
- Pað má segja að hún sé fjór-
þætt. I fyrsta lagi eru sýningar og
safnvinna í safninu sjálfu, í öðru
lagi vinnustaðasýningarnar, í
þriðja lagi litskyggnuútgáfa til
skóla og almenns áhugafólks og í
fjórða lagi bókaútgáfa.
Litskyggnusafn
og
heimildasafn
- Hvernig gengur safnvinnan
sjálf fyrir sig?
- Það eru nú rétt rúm tvö ár síðan
safnið komst í eigin húsakynni og
fyrst í stað fór eiginlega öll okkar
atorka að koma okkur sæmilega
fyrir með sýningarsalinn. Upp á
síðkastið höfum við svo reynt að
byggja þetta upp sem safn með
hvers konar safnvinnu. Nú erum
við t.d. að koma upp heimildasafni
um íslenska myndlist og starfsemi
íslenskra myndlistarmanna. Þetta
gerist m.a. með skipulegri ljós-
myndun og skráningu listaverka
sem verður væntanlega stofn að lit-
skyggnusafni um íslenska mynd-
list. Það hefur þau gæði að hægt er
að nota það til hvers konar lit-
greiningarútgáfu og fjölföldunar.
Listasafnið er þegar byrjað útgáfu
á litskyggnum fyrir almenning og
skólakerfið og eru komnar út tvær
36-mynda litskyggnuraðir ásamt
textaheftum með skýringum.
- Hvaða raðir eru þetta?
- Önnur er um Gísla Jónsson