Þjóðviljinn - 04.12.1982, Side 14
14 StÐA — ÞJóÐVILJlNPi. Helgin 4. - 5. desember 1982
„Grammið”
færist í aukana
Ný verslun og 5 nýjar plötur
Á næstunni eru væntanlegar 5
nýjar plötur frá hljómplötuútgáf-
unni Gramminu, sem nú hefur fært
út kvíarnar og opnað nýja hljóm-
plötuverslun að Hverfisgötu 50.
Þar verður á boðstólum fjölbreyti-
legt úrval af íslenskum og er-
lendum hljómplötum. Grammið
flytur þar að auki inn hljómplötur
frá ýmsum hljómplötufyrirtækjum
sem sérhæft hafa sig í útgáfu á ým-
iss konar nýbylgjurokki og nútíma-
djassi. Þá ætlar Grammið ennfrem-
ur að skipuleggja tónleikahald
fólks erlendis frá hér á landi.
Grammið gefur út alls átta titla
þetta árið:
Klarinettkonsert/BIáa ljósið/Sýn
eru verk eftir Áskel Másson á nýrri
LP-plötu. Áskell tilheyrir yngri
kynslóð íslenskra tónskálda. Hann
fæddist árið 1953, stundaði nám í
London um tveggja ára skeið hjá
þeim Patrick Savill í tónsmíðum og
James Blades í slagverksleik.
Áskell hefur verið í broddi fylking-
ar ungra íslenskra tónskálda sem
hafa haslað sér völl að undanförnu
og vakið verðskuldaða athygli hér
heima og erlendis. Klarinettukons-
ertinn er fluttur af Sinfóníuhljóm-
sveit íslands undir stjóm Páls P.
Pálssonar. Einleikari er Einar Jó-
hannesson. Bláa Ijósið er flutt af
Manuelu Wiesler (flauta), Jósef
Magnússyni (flauta og alt-flauta),
Roger Carlsson (slagverk) og
Reyni Sigurðssyni (slagverk). Sýn
er verk fyrir raddir og slagverk,
flutt af Roger Carlsson (slagverk)
og kvenröddum úr Kór Tónlistar-
skólans í Reykjavík, einsöngvari er
Ágústa Ágústsdóttir, en stjórnandi
Marteinn H. Friðriksson. Guð-
mundur Emilsson kynnir höfund-
inn á bakhlið plötuumslagsins, en í
meðfylgjandi bæklingi fjallar
Hjálmar H. Ragnarsson ýtarlega
um hvert verk fyrir sig. Vel er
vandað til þessarar útgáfu, og fái
hún jákvæðar viðtökur verður
reynt að gefa út fleiri verk eftir ung
tónskáld á næstunni.
Hljómsveitin Vonbrigði sendir
nú frá sér sína fyrstu plötu. Þetta er
7 tommu plata með 4 lögum. Þau
eru Sjálfsmorð, Eitthvað annað,
Börnin mín og Skítseiði. Hljóm-
sveitin Vonbrigði vakti fyrst veru-
lega athygli er hún flutti titillag
kvikmyndarinnar Rokk í Reykja-
vík, O Reykjavík. Síðan hefur
hljómsveitin verið í stöðugri fram-
för og er nú ein efnilegasta ný-
bylgjuhljómsveitin á íslandi.
Kraftur og þéttleiki einkenna
hlómsveitina framar öðru. Þessi
bjartasta von í íslensku rokki veld-
ur engum vonbrigðum.
Sveinbjörn Beinteinsson, alls-
herjargoði Ásatrúarmanna á ís-
landi, er líka með sína fyrstu hljóm-
plötu. Þetta er LP-plata sem hefur
að geyma sýnishorn úr þremur
Eddukvæðum við rímnalög
Sveinbjarnar. Sveinbjöm syngur
40 af 67 erindum Völuspár, kafla úr
Hávamálum og 14 af 37 erindum
Sigurdrífumála. Sveinbjörn fædd-
ist árið 1924 og er löngu landskunn-
ur fyrir störf sín í þágu Ásatrúarfé-
lagsins, kveðskap og rímnasöng.
Mun mörgum þykja tími til kominn
að færa þennan forna menningar-
arf sem rímurnar eru nær nútímaf-
ólki. Veglegur bæklingur fylgir
plötunni þar sem alla kvæðatex-
tana er að finna og auk þess ritar
Sigurður A. Magnússon kynning-
arpistil.
Líf heitir ný sólóplata með Þor-
steini Magnússyni. Þetta er 12
tommu 45 snún. plata og hefur Þor-
steinn samið bæði tónlist og texta
og sér auk þess um allan hljóðfæra-
leik. Þorstein þarf vart að kynna
fyrir rokkaðdáendum. Hann hefur
um árabil verið í fylkingarbrjósti í
íslenskri rokktónlist, þ.á. m. í
hljómsveitinni Eik og er nú gítar-
leikari hljómsveitarinnar Þeyr sem
gerir það gott um þessar mundir.
Eitt er víst að þessi plata á eftir að
koma verulega á óvart og sýnir
Þorsteinn þar á sér nýjar hliðar.
Modern heitir kassetta með Pet-
er Hamill og Graham Smith sem
Grammið gefur út í samvinnu við
Graham Smith. Söngvarinn og gít-
arleikarinn Peter Hamill og fiðlar-
inn Graham Smith léku árum
saman í hljómsveitinni Van Der
Graaf Generator sem ávann sér
talsverðar vinsældir og virðingu.
Þeir félagar, Hamill og Smith, tóku
upp þráðinn að nýju árið 1979 og
hér er 90 mín. upptaka frá tón-
leikum í Roxy Theatre í Los Ange-
les. Graham Smith hefur starfað
með Sinfóníuhljómsveit íslands
síðustu ár og hefur gefið út tvær
plötur með íslenskum lögum sem
notið hafa feikilegra vinsælda.
Nýlega kom út fyrsta hljómplata
hljómsveitarinnar Jonee Jonee,
Svonatorrek. Þetta er LP-plata
með 16 lögum eftir meðlimi hljóm-
sveitarinnar með textum eftir ýmsa
höfunda. Hljómsveitin hefur vakið
athygii fyrir sérstæða hljóðfæra-
skipan, fjölbreytilegar útsetningar
og hnyttna texta, en þeir fjalla um
aðskiljanlegustu fyrirbæri, allt frá
innihaldslausum orðaleikjum til
harðskeyttra árása á skólakerfið,
og allt þar á milli. Platan hefur vak-
ið verðskuldaða athygli, enda eru
hér farnar ótroðnar slóðir.
No Time to Think er 4 laga smá-
skífa með Purrki Pillnikk. Hún var
tekin upp í Englandi og hefur að
geyma lögin Excuse Me, Surprise.
Googooplex og For Viewing. Ó-
þarfi er að kynna Purrk Pillnikk, en
það er óhætt að segja að aldrei hafi
þeir verið kraftmeiri en á þessari
plötu. Eins og kunnugt er af frétt-
um hefur hlómsveitin nú hætt störf-
um, en óhætt er að fullyrða að
aldrei hefur grafskrift verið rituð
með jafn mikilli áfergju.
Googooplex er tvær 12 tommu 45
snún. plötur með Purrki Pillnikk.
Á henni eru 13 lög sem gefa góðan
þverskurð af tónlist Purrksins á
blómaskeiði hans.
Þá annast Grammið dreifingu á
tveimur nyjustu plötum hljóm-
veitarinnar Þeys, Fourth Reich og
As Above, sem verið hefur með
öllu ófáanleg um nokkurn tíma.
• Blikkiðjan
Asgarði 7, Garðabæ
önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 53468
Vit megna ...
Framhald af bls. 2
Hvert er viðhorf Færeyinga til
NATO herstöðvarinnar hér?
„Lögþingið hefur tvisvar sam-
þykkt, með öllum greiddum at-
kvæðum, að land okkar eigi að
vera herlaust land. En utanríkis-
mál okkar eru í höndum Dana svo
hér verður engu um breytt. Fólk
ræðir ekki mikið um þetta enda má
segja að farið hafi verið aftan að
okkur í þessu máli.
„Kommagrýlan“ lifir og góðu lífi
hér og á sér marga áhangendur.
Við megum aldrei gleyma því, að
svo lengi sem NATO herstöð er
hér erum við samábyrg í öllum ógn-
arverkum NATO hvar sem er í
heiminum. Við eigum að fordæma
allt hervald hvort svo sem það eru
Rússar í Afganistan og Póllandi
eða Bandaríkjamenn í E1 Salv-
ador.
Stundum finnst mér sem við ber-
urn ekki nægjanlega virðingu fyrir
okkur sem þjóð og skynjum ekki
nóg að við eigum okkar rödd í
heiminum sem aðrir. Við eigum að
láta frá okkur heyra. Kannske er
þetta afleiðing af margra alda lífi
okkar undir erlendu valdi.
Hugsaðu þér t.d. að á sjálfum
þjóðhátíðardegi okkar setur forseti
lögþings þingið með því að biðja
þingmenn að rísa úr sætum og
hrópa nífalt húrra fyrir hennar há-
tign Danadrottningu og á eftir eru
menn beðnir að hrópa þrefalt
húrra fyrir okkar eigin landi, Fær-
eyjum!
Allir þingmenn, nema við þing-
menn þjóðveldisflokksins og einn
jafnaðarmaður standa upp og
hrópa húrra fyrir drottningu Dana.
Ég hef lagt fram tillögu um að þessi
siður verði aflagður og móttökurn-
ar voru hastarlegar. Áð hreyfa við
þessu máli hér er jafn slæmt og
ráðast á sjálfa trúna. Kannske er
það að berja höfðinu við steininn
að neita því að standa upp, en fyrir
mér er þessi siður eitt tákn þess
valds sem ég vil ekki lifa undir.“
Hvernig er að vera eina konan á
þingi?
„Ef satt skal segja þá var það erfitt
fyrst. Ég hafði á tilfinninguni, að
ekki væri tekið mark á orðum mín-
um. „Bassinn“ hefur svo lengi ver-
ið tákn valds og visku. Svo kemur
allt í einu mjúk konurödd. En ég
held þetta hafi algjörlega breyst og
nú trúi ég þeir líti á mig sem sam-
starfsmann og jafningja. Annars er
það almennt erfitt fyrir konur að
fara inn á svið sem karlmenn hafa
áður einokað. Um þær heyrir
maður sagt, að það eina sem þær
þurfi sé að „sleppa i song vit einurn
ordilgum mandfolki." Við eigum
talsvert langt í land. Enn erurn við
metnar eftir því hver tengsl okkar
eru við karlmenn á ýmsum sviðum
en ekki eftir því hverjar við erum
sjálfar."
Eru sérstök kvenfélög innan
flokkanna?
„Nei, það er ekki. En hér eru kon-
ur einungis á listum upp á punt.
Árið 1976 stuðlaði ég að því, að
konur úr öllum flokkum hittust,
jafnmargar frá hverjum flokki og
fulltrúar flokksins á þingi. Ætlunin
var að við ræddum helstu mál
þingsins og athuguðum hvort okk-
ar viðhorf væru þau sömu og við-
horf flokksmanna okkar í þinginu.
Niðurstöður áttu svo að sendast
þinginu. Síðan hefur þetta verið
gert á hverju ári. En því miður hef-
ur þessi tilraun ekki þróast í þá átt
sem ég ætlaði. Þessi þing okkar eru
orðin að huggulegum kaffibolla-
samkvæmum, því miður. Hér er
ekki kvenlegt að ræða stjórnmál af
alvöru. Ég held, að margar konur
séu ekki hrifnar af því að kynsystur
þeirra séu að „vasast“ í stjórnmál-
um. Það er t.d mín tilfinning að
mínir kjósendur séu karlmenn. En
við eigum margar góðar konur.“
Og eitthvað að lokum?
„Já, þótt ég hafi látið gamminn
geisa um ýmislegt sem mér finnst
miður fara þá vildi ég hvergi annars
staðar eiga heima en í Færeyjum.
Hér er gott að vera, hér er gott
fólk. Ég er bjartsýn. Þetta kemur
allt saman. ^S.
' Þú hefur J
nú lítið inn
á þing að gera,
Jón minn,
Kannt ekki
einu sinni
mann-
k ganginn