Þjóðviljinn - 04.12.1982, Qupperneq 15
íslenskar
skopsögur
Bókaútgáfan VAKA hefur sent
frá sér bókina Krydd í tilveruna -
íslenskar skopsögur og annað spé.
Axel Ammendrup og Olafur Ragn-
arsson söfnuðu sögunum og höfðu
umsjón með útgáfu. Sérstakan
bókarauka með kímnisögum um ís-
lenska stjórnmálamenn skrifar Vil-
hjálmur Hjálmarsson, fyrrverandi
ráðherra, en Árni Elfar skreytir
bókina með fjölda teikninga.
í bókinni er úrval íslenskra skop-
sagna sem ganga manna á meðal
um þessar mundir, eins konar
þjóðsögur samtímans. Sumt er nýtt
af nálinni, annað eldra en hefur
varðveist í munnlegri geymd eins
og sagt er um gömlu þjóðsögurnar.
Á bókarkápu segir meðal ann-
ars: Hér koma við sögu bæði lands-
kunnir og lítt þekktir íslendingar á
öllum aldri. í bókinni eru skopsög-
ur í hundraðatali, frásagnir af
spaugilegum atvikum og uppátækj-
um, hnyttnum tilsvörum og öðru,
sem lífgað hefur upp á hversdags-
leikann.
„Hí,
karl
a
hjóli!
Þó að ég sé orðinn svo gamall
að árum að mér sé jafnvel farið
að finnast það óþægilegt þegar
fólk spyr um aldur minn, er ég í
eigin vitund alltaf sami krakka-
kjáninn. Það kemur mér óþægi-
lega á óvart þegar mér yngra fólk
telur mig allt að því afgamlan
karl. Þetta henti mig fyrst þegar
ég var nær helmingi yngri en ég er
núna. Þá var ég að lesa undur
stúdentspróf og fór stundum út
að hjóla á kvöldin til að hressa
mig upp. Ég hafði í fyrsta sinn á
ævinni látið vaxa á mig skegghý-
jung og eitt kvöldið gerðu smá-
krakkar hróp að mér og kölluðu:
„Hí, karl á hjóli!“ Þetta þótti mér
mjög undarlegt.
Seinna fór ég að kenna í
menntaskóla úti á landi og lifði
lengi í þeirri trú að ég væri nánast
jafngamall nemendum mínum,
bæði í anda og að árum. Svo
komst ég að því einn góðan
veðurdag að þau litu á mig sem
hvern annan karlfausk í kennar-
astól og óralangt frá þeim í hugs-
un. Þetta þótti mér vægast sagt
undarlegt, enda vissi ég ekki bet-
ur en ég hefði nánast öll sömu
áhugamál og þau, nema þá helst
námsefnið.
Síðan hef ég oft orðið fyrir.
svipaðri lífsreynslu og alltaf verð
ég jafn undrandi. Og aldrei læri
ég af reynslunni. Ég er alltaf sami
ungi og hressi strákurinn.
Þetta rifjaðist upp fyrir mér í
óveðrinu sem skall á í Reykjavík
síðdegis á sunnudaginn. Mér
þótti það ákaflega spennandi og
vonaði að það stæði sem allra
lengst og allt færi á kaf í snjó. Á
heimilinu er sjö ára patti, og það
mátti ekki á milli sjá hvor væri
uppveðraðri. Við vorum alltaf að
fara út í glugga og gá hvað væri nú
kominn mikill snjór og vonuðum
báðir innst í hjarta okkar að raf-
magnið færi til þess að hægt væri
að tendra kertaljós. Svo héldu
honum engin bönd þrátt fyrir
myrkur og blindhríð. Hann fór út
að moka tröppurnar. Ég dauðöf-
undaði hann þó að auðvitað væri
þetta hálffáránlegt þarna í skaf-
renningnum. Svo stóðst ég ekki
mátið. Ég fór út að hreinsa srnó
af nýja bílnum, mitt í bylnum. Ég
réttlætti verknaðin með því að þá
yrði minna að moka daginn eftir.
Mikið var gaman.
Af ótta við álit nágrannanna
stillti ég mig um að búa til engil á
bílaplaninu, en kastaði nokkrum
snjóboltum upp á húsið.
Svo fórum við báðir út í sjoppu
að kaupa kaffi og lakkrís og hurf-
um nær út í sortann. í baka-
leiðinni lentum við í mikilli
mannraun þar sem slydduhríðin
lamdi okkur án afláts í framan.
Við illan leik náðum við húsi á ný
og gengum inn, rjóðir og sælir.
Við köstuðum mæðinni og þótt-
umst heldur betur menn með
mönnum.
Þegar við sofnuðum seinna um
kvöldið áttum við örugglega báð-
ir þá ósk sameiginlega og heitasta
að allt yrði ófært þegar við vökn-
uðum daginn eftir.
Guðjón
sunnudagskrossgátan
Nr. 350
/ z 3 ¥ 5 b 7- 99 10 li 1Z /3
/¥ 15 í (p 3 w~ /¥ ¥ 18 15 8 99 20 21
22 12 lo 23 TT 99 12 10 u 1Z 99 8 )o 11 13
¥ 99 V- \T~ T~ T~ 15 11 ¥ ir 99 11 ¥ ¥
25- 2& i3 12 tv) 22 U* W 99 3 1 °t lo §9
99 13 12 & 23 l-o 99 ¥ 3 2¥ /6> 10 99
TT 23 T~ «/ b> > 99 13 99 23 lo i3 13 10
7<e i(t tr 99 2t T 3 12 12 (p W~ 22 23 11
v 22 L? ¥ 11 99 1*1 T~ ¥ v 99 1 tíO K
10 lb 99 ¥ )o VT 5" )o 99 ¥ ze /V (p 99 10
99 11 > L? JH 99 24 30 í> 99 ií IO /<7 8 99
18 /4 31 ¥ 9? 3 99 ¥ 32 12 // 99 /o
2g V 25 10 ii ir~ 10 ur 99 ¥ (p 5 ¥ 10 /é>
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá bæjarnafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðu-
múla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 350“. Skilafrestur er
þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningahafa.
20 3 13 )¥ 10 lj 2¥ 21 lj (o
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp,
því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því
eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir
því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í
þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér-
hljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á og öfugt.
Verðlaunin
Verðlaun fyrir krossgátu nr. 346
hlaut Rósa Halldórsdóttir, Mel-
gerði 25, 108 Reykjavík. Þau eru
Vorganga í vindhæringi eftir
Bolla Gústavsson. Lausnarorðið
er Pelíkani.
Verðlaunin að þessu sinni er
skáldsagan Birgir og Ásdís eftir
Eðvarð Ingólfsson.