Þjóðviljinn - 10.12.1982, Blaðsíða 7
Bókablað Þjóðviljans— StÐA 7
Barna- og unglingabœkur
KRISH-JÁN P MAGNÚSSON
VIÐ
t VESTURBÆNUM
Við í vestur-
bænum
Segir frá uppvexti atorkusamra
stráka í vesturbænum í Reykjavík.
Lesandinn fylgist með samskiptum
þeirra og hugsunum, uppátækjum
og framkvæmdasemi.
Bókin er blessunarlega laus við
fjölskylduvandamál. Strákarnir
eiga þó sín vandamál við að stríða -
en leysa þau sjálfir.
Þetta er saga um venjulega krakka
- en hversu venjulega? Er nokkuð
til sem er „venjulegt“?
Verð kr. 352,-
ísafold.
Leynilögreglu
maðurinn
Karl Blómkvist
eftir Astrid Lindgren
Komin er út í endurútgáfu sagan
vinsæla um Leynilögreglumanninn
Karl Blómkvist, æsispennandi saga
um Kalla, Andra og Evu Lottu og
það sem gerðist eftir að frændi Evu
Lottu kom til bæjarins. Skeggi Ás-
bjarnarson þýddi. Almennt verð
kr. 197.60. Félagsverð kr. 167.95.
Mái og menning
Jólasveina-
heimilið
Brian Pilkington og Þórarinn Eld-
járn eru báðir að góðu kunnir, Bri-
an fyrir snjallar myndskreytingar,
Þórarinn fyrir kveðskap og sögur.
Hér hafa þeir lagt saman í
skemmtilegt verk um jólasveinana.
Þetta er gamansöm lýsing á lífi
þeirra í nútímanum. Meðal efnis er
viðtal við jólaköttinn, meðmæli frá
nokkrum atvinnuveitendum
Gluggagægis, sjúkdómsgreining
frá sálfræðingi Hurðaskellis, end-
urminningaþættir, lögregluskýrsl-
ur, sakaskrá o.fl. Margt skemmti-
legt kemur hér fram, meðal annars
það að jólasveinarnir vilja verja
starfssvið sitt fyrir aðvífandi jóla-
sveinum frá útlöndum. Bókin
bregður kostulegu ljósi á stöðu
hefðarinnar í líki jólasveinanna
andspænis verslunarþjóðfélagi nú-
tímans. Verð kr. 197.60.
Iðunn
Vésteinn Luðvíksson
SÓLARBLÍÐAN
SESSELÍA OG
Sesselía og
mamman í
krukkunni
Vésteinn Lúðvíksson
Sagan af því þegar Sólarblíðan ætl-
aði að koma Sesselíu vinkonu sinni
til hjálpar og nota til þess galdra-
stein sem strákur nokkur lánaði
henni. En galdrasteinar eru var-
hugaverð tól, það fær Sólarblíðan
að reyna. Þessi saga er sjálfstætt
framhald á sögunni Sólarblíðan.
Almennt verð kr. 197.60. Félags-
verð kr. 167.95.
Mál og menning
Leikritið GOSI eftir Brynju Bene-
diktsdóttur er samið upp úr hinni
víðkunnu ítölsku sögu um Gosa
eftir Collodi. Það fjallar um spýtu-
strák sem fer út í heiminn og lendir
á refilstigum, en lærir af reynsl-
unni, m.ö.o. er dæmisaga um
þroskaferils unglings. - Leikritið
var samið fyrir Þjóðleikhúsið
haustið 1981 og sýnt þar undir leik-
stjórn höfundar. - I bókinni eru
skýringar leikstjórans á sviðsetn-
ingu verksins svo og greinargerð
hans fyrir hugmyndum sem að baki
liggja. Einnig er hér fjöldi mynda
og vinnuteikninga frá sýningunni.
Gerir þetta bókina fróðlega hverj-
um þeim sem áhuga hefur á leik-
húsi og leiklist. Verð kr. 222.30.
Almenna bokafélagið
Mól 09 mcnnlng
Óskasteinninn
Kurusa / Doppert
Ný barnabók frá Venezúela um
krakka sem gera uppreisn og
heimta leikvöll. Það vefst fyrir full-
orðna fólkinu að hlýða þeim - og
þá byggja þau hann bara sjálf! Ingi-
björg Haraldsdóttir þýddi úr
spænsku. Almennt verð kr. 123.50.
Félagsverð kr. 105.00.
Mál og menning
Útsmoginn
Einar Askell
Gunilla Bergström
Spánný bók um þennan vinsæla
strák. Frændur hans klifa á því að
hann sé lítill kjáni sem ekkert viti
og ekkert skilji. En er það nú víst?
Einar Áskell getur verið býsna út-
smoginn. Sigrún Árnadóttir þýddi.
Almennt verð kr. 88.90. Félags-
verð kr. 75.60.
Mál og menning
Utsmoginn
CinorAskell
Gilitrutt
Þjóðsagan kunna í myndbúningi
Brians Pilkington sem vakti verð-
skuldaða athygli fyrir myndir sínar
í Ástarsögu úr fjöllunum eftir Guð-
rúnu Helgadóttur. Gilitrutt er
prýdd fjölda mynda, öllum í litum,
og er hin vandaðasta að allri gerð.
Verð kr. 168.00.
Iðunn
„Óskasteinninn” eftir Ármann Kr.
Einarsson er með öll einkenni
þessa vinsæla höfundar. Sagan er
ljúf og létt, góð og glettin. I bók-
inni er hversdagsleikinn ekki grár,
heldur blandaður lífi og lit - og áð-
ur en varir taka ótrúleg ævintýri að
gerast. „Óskasteinninn” er aukin
og endurskoðuð útgáfa á bók Ár-
manns, „Óskasteinninn hans Óla”.
Hún kom út fyrir tveimur áratug-
um, seldist þá upp og hefur verið
ófáanleg síðan. Verð kr. 197.60.
Vaka
Leikvöllurinn
okkar
MWDSKREYTING WUAN WUONGION
KÖTTURINN
Kötturinn
sem hvarf
Nína Tryggvadóttir
Sígild saga í máli og myndum eftii
einn fremsta myndlistarmann okk
ar. Sagan um litlu kisu með ljósið
rófunni hefur verið ófáanleg svc
áratugum skiptir og munu börr
taka endurútgáfunni fegins hendi
Almennt verð kr. 135.85. Félags
verð kr. 115.45.
Mál og menning
Sagan af
Dimmalimm
Sagan af
Dimmalimm
Bókaútgáfan Helgafell hefur gefið
út að nýju hið sígilda ævintýri
Muggs, af Dimmalimm og er þetta
6. útgáfa bókarinnar. Bókin er í
nýjum listrænum búningi og sá
Torfi Jónsson um tilhögun útlits og
uppsetningu. Prentstofa G. Bene-
diktssonar setti bókina, Kassagerð
Reykjavíkur litgreindi og prentaði
og bókin er bundin í Bókfelli hf.
Sagan af Dimmalimm er 28 bls.
Verð kr. 148.20.
Helgafell
Viltu byrja
með mér?
Andrés Indriðason
Ný unglingabók eftir höfund verð-
launabókanna Lyklabarn og Polli
er ekkert blávatn. Hér er sögð enn
á ný sú sígilda saga þegar hjörtun
mætast og hrífandi tónlist heyrist í
vindinum! Hildur kemur ný í skól-
ann og er látin setjast hjá Elíasi,
þannig byrjar það. Almennt verð
kr. 197.60. Félagsverð kr. 167.95.
Mál og menning
Veröld
Busters
Bjarne Reuter
Bækurnar um Buster eftir danska
rithöfundinn Bjarne Reuter hafa
farið sigurför víða um lönd. Nú
kemur sú fyrsta út í þýðingu Ólafs
i Hauks Símonarsonar, bráðfyndin
og nýstárleg bók sem kemur öllum
í gott skap. Almennt verð kr.
197.60. Félagsverð kr. 167.95.
Mái og menning
Ævintýri
æskunnar
í þýðingu Rúnu Gísladóttur
Endurprentun þessarar skemmti-
legu og eftirspurðu ævintýrabókar
sem hefur verið ófáanleg í nokkur
ár. 29 ævintýri frá 17 löndum.
Ríkulega myndskreytt. Verð kr.
247.00.
Minnum einnig á Ævintýri barn-
anna - kr. 123.50 og Ritsafn H.C.
Andersen, þrjú bindi, kr. 370.50.
Æskan