Þjóðviljinn - 10.12.1982, Page 14
14 StÐA — Bókablað Þjóðviljans
Óskabók
hestamannsins
Sigurbjörn
Báröarson
Á fákspori
Umhiröa, þjálfun
og keppni
Bókin Á fákspori er þriðja bókin í
útgáfuröð Eiðfaxa. Fyrsta bókin
var Á hestbaki eftir Eyjólf ísólfsson
og önnur var Að temja eftir Pétur
Behrens, báðar þessar bækur
fengu mjög góðar móttökur og eru
nú ómissandi í allri umfjöllun um
hesta.
Mikil áhersla hefur verið lögð á
það af hálfu Eiðfaxa að gera þessa
bók sem best úr garði, fjöldi ljós-
mynda og teikninga hefur því verið
unninn í þessu skyni tii glöggvunar
fyrir lesandann.
Segja má að bókin skiptist í þrjá
meginþætti. í fyrsta hlutanum er
fjallað um reiðhestinn, þjálfun
hans og meðferð.
í öðrum hlutanum er rætt um þjálf-
un, uppbyggingu og sýningu
keppnishrossa, stökkhesta sem
vekringa. 1 framhaldi af því er fjali-
að um gæðingakeppni, íþrótta-
keppni og sýningu kynbótagarpa. í
síðasta hluta bókarinnar er fjallað
um umhirðu hesta og aðbúnað, má
t.d. nefna kafla um hesthúsbygg-
ingar, járningar og fóðrun.
Á Fákspori er bók sem enginn
hestamaður getur verið án.
Verð kr. 398.-
Eiöfaxi
CÍSISENZKACHESTSINS CÁ 20. ÖED
Ættbók og
saga
islenska
hestsins
Nú er fjórða bindi Ættbókar og
sögu íslenska hestsins eftir Gunnar
Bjarnason ráðunaut komið út.
Margir biðu þess með óþreyju
enda er hér tekinn upp þráðurinn
þar sem frá var horfið í fyrsta bindi.
Þar náði ættbókin fram til ársins
1960, en núna er seilst allt fram til
ársins 1982.
Ættbók og saga hefur áunnið sér
heiðurssess á heimili hestamanns-
ins, enda er hér stórmerkt ritsafn
sem er nauðsynlegt hverjum þeim
sem fylgist með hrossarækt og
hestamennsku. Ekki spilla fróð-
leiksmolar og frásagnir Gunnars úr
heimi hestamanna.
Verð kr. 1.580.80.
Bókaforiag
Odds Björnssonar
WLmom
OAvmmu
REISTAN
ÍMlAKKA
SÖOUR M> HEETUM
Með reistan
makka
Erlingur Davíösson
Annað bindi rits sem geymir sögur
af hestum, sem Erlingur Davíðsson
hefur skráð. Þaö er mannbætandi
að kynnast þeirri ást og virðingu
sem menn bera í brjósti til hesta
sinna.
Fjöldi mynda prýða bókina.
Verð kr. 37|1,-
Skídakappar
fyrrognú rr
C
Saga *klÁ«íí>ró!tó, «rtor»t og ftwkml afnl
Skrá uro Ólymphj- oa ís!wMlsm«ist*ra
UU ISCANDSMEÍSTARAR SEGJA FRÁ
Skíðakappar
fyrr og nú
Haraldur Sigurðsson
safnaði og skráði
Hér er rakin saga skíðaíþrótta og er
efnið bæði erlent og innlent. ís-
landsmeistarar segja frá og birt er
skrá um heims-, olympíu- og ís-
landsmeistara. Kærkomin bók öll-
um íþróttaunnendum.
Verð kr. 370.50.
Skjaldborg
Skjaldborg
Matur er mannsins megin, er ný
íslensk matreiðslubók eftir Jó-
hönnu Sveinsdóttur. Jóhanna hef-
ur um skeið skrifað fastan pistil í
Helgarpóstinn, mat og matar-
gerðarlist. Hún lætur ekki staðar
numið við uppskriftirnar, heldur
tínir til ýmsan fróðleik og gaman-
mál efninu viðkomandi.
Þótt víða sé leitað fanga við öflun
efnis er allt hráefni í uppskriftirnar
fáanlegt í íslenskum matvöruversl-
unum.
Heilræði um val og meðferð hrá-
efnisins og matargerðina sjálfa eru
óvenju ýtarleg.
Matur er mannsins megin, er
spennandi og skemmtileg mat-
reiðslubók, sérhönnuð fyrir ís-
lenska bragðlauka.
Bókin er prýdd fjölda litmynda.
Verð kr. 448,-
Svart á hvítu.
Erlend andlit
Erlend andlit eru skemmtilegar
svipmyndir eftir Ingólf Margeirs-
son sem skráði metsölubókina Lífs-
játningu. Hann sýnir enn að hann
hefur næmt auga fyrir fólki, -
lýsingar hans á margbrotnum
persónum sem á vegi hans hafa
orðið eru minnisverðar. Pólski
bókmenntafræðingurin'n og gleði-
konan, breski kennarinn sem berst
til íslands og vinnur hjá Sláturfé-
laginu, Dínó hinn gríski með sitt
óhagganlega fílótímó, Ellen í
Sæludal - allt þetta fólk og miklu
fleira verður lesandanum ó-
gleymanlegt.
Verð kr. 398.00
Iðunn
Wát, few rtW A Ut&toWkw* h*tt,
*» tfmi vt t
Miðilshendur
Einars á Einarsstöðum
Um þrjátíu manns segja frá reynslu
sinni af því að leita sjúkir til miðils-
ins Einars á Einarsstöðum. Erling-
ur Davíðsson bjó til prentunar.
Þetta er önnur útgáfa bókarinnar.
Verð kr. 296,-
Skjaldborg.
AF MANNÆ V0LDUM
Af manna
völdum
Álfrún Gunnlaugsdóttir
Níu tilbrigði um stef. Söguþætt-
irnir eru víðsvegar að úr heiminum
og margvíslegir að efni, en mynda
þó áleitna heild. Þetta er fyrsta bók
höfundar, sérstæð að stíl og fram-
setningu, enda hefur höfundur gert
víðreist. Óvenju glæsilegt byrj-
andaverk.
Almennt verð kr. 296.40.
Félagsverð kr. 251.95.
Mál og menning
Norður
í svalann
Sigurður Pálsson ræðir við fimm
útlendinga sem gerst hafa íslend-
ingar og sest að hér á landi, og fær
þau til að rekja sögu sína. Þau eru:
Baltasar, myndlistarmaður, Carl
Billich, píanóleikari, Esther Gunn-
arsson, hjúkrunarfræðingur, Einar
Farestveit, forstjóri og Rut Magn-
úsdóttir, organisti.
Óvenjuleg og forvitnileg sam-
talsbók.
Verð kr. 531.00
Bókaútgáfan Salt
Birgir Engílberts
Andvöku-
skýrslurnar
Andvökuskýrslurnar eru þrjár
sögur eftir Birgi Engilberts sem
kunnur er fyrir leikritagerð sína, en
kveður sér nú hljóðs sem sagna-
skáld með eftirtektarverðum hætti.
Sögurnar eru samfelldar að stíl og
frásagnarhætti lýsa atburðum sem
beint hafa sögufólkinu fram á ystu
nöf. Höfundur hefur slíkt vald á stíl
sínum að hann miðlar afar sterkri
tilfinningu fyrir eyðingaröflum í
manneskjunni. Nærgöngular sögur
sem brenna sig í hug lesandans.
Verð kr. 348.00
Iðunn
Tvær fyllibyttur
að norðan
Höfundur Guðmundur Frímann
Sannar skröksögur vill höfundur
kalla þessar bráðskemmtilegu
sögur af ýmiskonar furðufólki.
Guðmundur Frímann hefur hlotið
mikið lof fyrir afbragðsvel gerðar
smásögur.
Verð. kr. 309.00
Skjaldborg
Krydd
f tilveruna
Krydd í tilveruna er einstætt safn af
glensi og gríni úr öllum landshlut-
um. Hér koma við sögu bæði lands-
kunnir og lítt þekktir fslendingar á
öllum aldri. í bókinni eru íslenskar
skopsögur, íhundraðatali, frásagn-
ir af spaugilegum atvikum og uppá-
tækjum, hnyttnum tilsvörum og
öðru, sem lífgað hefur upp á hvers-
dagsleikann. Axel Ammendrup og
Ólafur Ragnarsson söfnuðu efn-
inu. Sérstakan bókarauka skrifa
Vilhjálmur Hjálmarsson og Árni
Elfar skreytir bókina með fjölda
teikninga.
Verð kr. 321.00
Vaka.
Frá konu til
konu
Lucienne Lanson
Höfundurinn er bandarísk kona
sérfræðingur í kvensjúkdómum,
sem miðlar hér af þekkingu sinni á
kvenlegu eðli, konulíkamanum og
sjúkdómum sem konur eiga við að
stríða. Bók sem nýtur sívaxandi
vinsælda í mörgum löndum.
Verð kr. 494,-
Skjaldborg.
Seld norðurljós
er að stofni til viðtöl sem Björn
Th. Björnsson átti við fornvini Ein-