Þjóðviljinn - 18.12.1982, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 18.12.1982, Blaðsíða 5
Helgin 18. - 19. desember 1982 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 5 Loðnuleiðangur farinn í janúar Við munum fara í loðnurann- sóknarleiðangur í janúar, senni- lega i annarri viku ársins og sam- kvæmt okkar hugmyndum fara bæði Bjarni Sæmundsson og Árni Friðriksson til leitar. En þar sem ekki er búið að ganga frá skipaá- ætlun Hafrannsóknastofnunar- innar er of snemmt að segja til um það, sagði Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur er Þjóðviljinn spurðist fyrir um loðnuleiðangur í byrjun næsta árs. Hjálmar sagði að samkvæmt þeim loðnurannsóknum sem gerðar voru í haust og mælingum, er gert ráð fyrir að hrygningarstofn loðnunnar, sem hrygna mun í mars á næsta ári verða um 200 þúsund lestir. Hrygningarstofn þessa árs var aðeins 140 þúsund lestir. Hjálmar sagðist vona að á árinu 1984 yrði útlitið heldur betra, þótt enn væri of snemmt að spá þar um. - S.dór. Athugasemdir frá höfundi bókarinnar „Ó, þaö er svo dýrlegt að drottna”: Missagnir í ritdómi Ég er þakklátur Einari Karli Haraldssyni fyrir að skrifa ritdóm í blað sitt um bók rnína, „Ó það er dýrlegt að drottna'1, en hann birtist í blaðinu þriðjudginn 7. des. sl. Reyndar var ritdómur Einars Karls undarlega keimlíkur ritdómum Jónasar stýrimanns í Tímanum og Björns Bjarnasonar (heitins Bene- diktssonar) í Mogganum. Það er dálítið skrítið að þessir ritdómarar - sem eru reyndar allir pólitískar púðurtunnur - skuli vera svona samstiga um að skrifa sem minnst um bókina sem þeir eru að rit- dæma, en fjasi þeim mun rneira um höfundinn og svarta fortíð hans og/ eða um bókina sem hann hefði heldur átt að skrifa en þessa. En nóg um það. í ritdómi Einars Karls er missagnir sem leiðrétta verður. 1) Ég hef aldrei kvartað undan því að bók mín væri ekki ritdæmd í Þjóðviljanum. Aðeins tiltölulega fáar bækur fá slíka umfjöllun í blöðunum, og enga kröfu er hægt að gera til blaðanna í þeim efnum. Hins vegar er eðlilegt að fara frant á það að blöðin sýni þá kurteisi við lesendur sína að birta fréttir um útkomu nýrra íslenskra bóka. Þjóðviljinn fékkst eitt blaða ckki til að birta frétt um að þessi bók væri komin út. 2) Ég neita að láta þjófkenna mig. Eg hef engum ljósmyndum stolið úr myndasafni Þjóðviljans, eins og Einar Karl heldur fram. Sennilega ráða þessari staðhæfingu hans ein- hver samskiptavandamál í Þjóðviljahúsinu. Ég veit ekki betur en fullt leyfi ljósmyndara hafi legið fyrir því að þær yrðu birtar í þessari bók. Og ég hef þakkað fyrir lánið, bæði þegar ég skilaði þeim til myndasafnsins og jafnframt í bók- inni sjálfri, auk þess sem þar er vandlega tilgreint, hvaðan mynd- irnar eru ættaðar. En það er sjálf- sagt að endurtaka þakkirnar. Þakka ykkur fyrir, Ijósmyndarar. Ég hef hins vegar ekki fært Einari Karli neinar þakkir, enda var mér ekki Ijóst að hann væri rétthafi þeirra að neinu leyti. Mér skilst að ljósmyndararnir hafi lánað þessar myndir án þess að ætlast til greiðslu fyrir, en hafi Einar Karl einhverjar fjárkröfur á mig fyrir sína hönd, bið ég hann að senda mér reikning- inn og birta hann jafnframt í blaði jsínu, svo að ekkert fari á milli ímála. 3) Það er ósmekklegt, ókurteist og ósanngjarnt af Einari Karli að sparka í þá ágætu leikara Alþýðu- ieikhússins sem sátu fyrir í leiknum myndum í bókinni. Þeir unnu sína vinnu injög vel og samviskusam- lega skv. nákvæmum handritum og bera enga ábyrgð á boðskap bókar- innar, þótt Einar Karl vilji láta líta svo út. Með bestu þökk fyrir birtinguna. 8. des. 1982, Guðmundur Sæmundsson. w Þjóðleg og bráðskemmtileg íslenskir sagnaþættir I. bindi Safnað hefur Gunnar Þorleifsson Bók þeirra er unna þjóðlegum fróðleik Safn frásagna frá liðinni tíð. í þessu bindi I. eru m.a. þessir þættir: Sagnaþættir 5 frásagnir; Náttúruhamfarir 4 frásagnir; Einkennilegir menn 7 frásagnir; Sagnir af Tyrkjaráninu 1627; Sagnir af útilegumönnum 3 frásagnir; Þjóðsagnaþættir með 17 sögum. Bókaútgáfan HILDUR Skemmuvegi 36 Kópavogi Símar: 76700 - 43880 Metsölubókin, sem náð hefur miklum vinsældum í mörgum löndum Hk Skjaldborgar Gissur Ó. Erlingsson islenskaði, en Brynleifur H. Steingrimsson, lækn- irá Selfossi, las yfir handrit og ritar formála. rojfi Lni . K\0NU eftir LUCIENNE LANSON M.D., F.A.C.O.G. BÓKAÚTGÁFAN SKJALDBORG Hafnarstræti 67, Akureyri Sími 24024 REYKJAVÍK Ármúla 38, 2. hæð Sími31599 Meðal hinnafjölmörgu atriða sem svaraðer í þessari bók má nefna: • Er nokkuð hægt aö gera viö fyrirtíðastreitu? • Er brottnám legs alltaf nauösynlegt i sambandi viö að- gerð viö leghálskrabba á byrjunarstigi? • Er hugsanlegt aö kona veröi þunguð ef hún hefur barn á brjósti og hefur ekki haft á klæöum? • Geta getnaðarvarnapillur valdið blóösega og hjarta- áföllum? • Er nokkurt samband á milli getnaöarvarnalyfja og krabbameins? • Hvaða þættir ráða lífslikum viö brjóstakrabba? • Hversu öruggar eru getnaðarvarnir þinar? (Pillur? Lykkja? Hetta? Ófrjósemistimabil? o.s.frv.) Þessi bók nýtur sivaxandi vinsælda i mörgum löndum siðan hún kom fyrst út i Bandarikjunum árið 1975. - Bókin sviptir hinum uggvænlega dularhjúp af öllu þvi sem kvenlækningar varðar. - Margar skýringarmyndir eru í bókinni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.