Þjóðviljinn - 18.12.1982, Blaðsíða 17
Helgin 18. - 19. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
Fyrstu ljóð
Ólafs
Jóhanns
MÁL OG MENNING hefur sent
frá sér Ijóðabókina Nokkrar vísur
um veðrið og fleira eftir Ólaf Jó-
hann Sigurðsson. Þetta er ný og
aukin útgáfa fyrstu Ijóðabókar
skáldsins, cn fyrsta útgáfa hennar
kom út 1952 og er löngu ófáanleg.
í eftirmála höfundar kemur fram
að velflest kvæði þessarar bókar
hefur liann ort unr og innan við
tvítugt, þ.e.a.s. 1937-1943, og ver-
ið síðan að krukka í annað slagið.
Að nokkru leyti má því segja að
Ólafur Jóhann Sigurðsson hafi haf-
ið feril sinn sem ljóðskáld, og er
forvitnilegt að skoða kvæði bóka-
rinnar í því ljósi. Eins og kunnugt
er hlaut Ólafur Jóhann bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs
fyrir aðra og þriðju ljóðbækur sfn-
ar, Að laufferjum og Að brunnum.
Marco Polo
hélt í austur
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf.
hefur gefið út bókina Marco Polo
cftir Richard Humblc í íslcnskri
þýðingu Dags Þorlcifssonar. Bókin
er í bókaflokki er fjallar um fröm-
uði landafunda og frömuði sögunn-
ar og hafa Örn og Örlygur hf. áður
gefið út átta bækur í þessum flokki.
Marco Polo var tvímælalaust
einn af helstu frömuðum sögunnar
og för hans til Kína og margra ann-
arra landa sem tók næstum aldar-
fjórðung var að vonum fræg.
Ferðasaga hans hefur um langan
aldur verið talin meðal sígildra
verka í ferðasagnagerð, en í ferða-
sögu sinni fjallar þó Marco Polo
furðu lítið um sjálfan sig. í bók-
Richard Humble er lögð
áhersla á að kynna Marco Polo
Endur-
minningar
Ingólfs
á Hellu
Ingólfur á Hellu - umhvcrfi og
ævistarf nefnist fyrsta bindi ævi-
minninga Ingólfs Jónssonar fyrrum
ráðherra og alþingismanns, sem
Páll Líndal hefur skráð eftir honum
sjálfum og Fjölnir gefur út.
I bókinni er rakinn uppruni Ing-
ólfs og fyrstu störf, og fjallað er
ítarlega um það umhverfi er hann
ólst upp í á Rangárvöllum. Fjallað
er um kaupfélög og landbúnað, og
fylgst með Ingólfi er hann hefur
þátttöku í stjórnmálum. Ingólfur
segir frá því er liann varð fyrst ráð-
herra og áður þingmaður, frá sam-
þingsmönnum sínum og sam-
ferðarmönnum öðrum, og nrörgu
öðru. Bókin hefur að geyma sæg
Depill
Svart á hvítu hefur gefið út barna-
bókina Depil eftir hinn vinsæla
barnabókahöfund Margret Rey.
Depill er lítil kanína sem er öðru-
vísi en allir aðrir t fjölskyldunni.
Þess vegna er hann skilinn eftir
einn heima þegar öll hin fara í af-
mælisveislu til afa. En óvæntir at-
burðir í lífi Depils verða til þess að
hann tekur gleði sína á ný og allt fer
vel að lokum. Þetta er bók sem
vekur til umhugsunar. Bókin er
prýdd fjölda litmynda.
Þýðandi er Guðrún Ö. Step-
hensen.
NOKKRAR VÍSUR
l)M VEDRIDOÖ FLKIRA
Ölut'or Jóhann Sígurdsson
4,
Þessari útgáfu fylgir viðauki með
fáeinum kvæðum sem kveðin voru
á árunum 1934-1940 og birtust um
svipað leyti í blöðum og tímaritum
en höfðu ekki verið tekin í fyrstu
útgáfu.
sjálfan, persónuleika hansogskap-
gerð. Þykir Humble hafa tekist sér-
lega vel til að skýra sögu Polos og
greina frá svaðilförum hans og
ævintýrum.
VIÐ ÆGISDYR
Saga Vestmannaeyjabæjar
í 60 ár
Eftir Harald Guðnason
Saga Vestmannaeyja-
bæjar er saga byggðar-
lags sem vex úr fá-
mennu sjávarþorpi
stærsta og
þróttmesta
útgeröarstaö
landsins.
Höfundur VIÐ ÆGISDYR I er Haraldur Guönason skjalavöröur
og fyrrum bókavörður í Eyjum, gagnkunnugur sögu Vestmanna-
eyja og lipur penni.
í þessu fyrra bindi er sagt frá kaupstaðarréttindamálinu, rakinn
annáll Vestmannaeyja 1918—1979, sögö hin merka saga heil-
brigöisþjónustu í Eyjum og gerö grein fyrir þingmönnum Vest-
mannaeyja frá 1845.
í sögu Vestmannaeyjabæjar speglast meginþættir íslandssög-
unnar á þessari öld: stjórnfrelsi, breyttir atvinnuhættir og betri
lífskjör.
VIÐ ÆGISDYR er myndskreytt bók.
Útgefandi: Vestmannaeyjabær. Dreifing Setberg Freyjugötu 14, sími 17667.
upplýsinga sem ekki hafa komið
fram áður.
Ingólfur var sem kunnugt er
þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn allt frá 1942 til 1978, og um
áratugaskeið einn helsti leiðtogi
hans. Er fróðlegt að sjá viðhorf
hans til manna og málefna á
löngum starfsferli í fremstu röð ís-
lenskra stjórnmála.
ÞEIR ERU KOMNIRI
✓TIGft.
brunsleðarnir eru
ekta sænsk gæðavara
hraðskreiðir#
sterkir og örugg
Verð kr. 1.296.-
barnasleðar —
níðsterkir, léttir
og mjög öruggir.
Fyrir börn 6 ára
og yngri.
Verð kr. 768.-
sænsku brunsleðarnir frá STIGA sem hafa farið sigurför um Norðurlöndii
Spítalastíg8og
viðóðinstorg.
Símar: 14661 og 26888.
Varahlutaþjónusta
Heildsölubirgðir
f yrírligg jandi.
• •