Þjóðviljinn - 18.12.1982, Blaðsíða 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 18. - 19. desember 1982
Minning
Júlíana Þuríður Gíslína
Að leiðarlokum vil ég votta virð-
ingu mína og þakkir fyrir ómældar
ánægjustundir á liðnum árum á
Norðurkotsheimilinu.
Gengin er góð kona.
Hulda Pétursdóttir
Útkoti
Einarsdóttir
Fædd 24. 7. 1903 — Dáin 13. 12. 1982
Pegar Lúsíuhátíðin gekk í garð
og boðaði frið og kærleika á meðal
manna kvaddi þennan heim öldruð
velgerða- og vinkona mín, hún var
fædd á Apavatni í Grímsnesi.
Móðir: Ólavía Guðmundsdóttir,
Gestssonar og Kristínar Ólafsd. ér
bjuggu í Harðbala á Flóðatanga í
Kjósahrepp.
Faðir: Einar Gíslason, ættaður
austan úr Grímsnesi. Völundur
hinn mesti 02 smiður 2Óður. Höfðu
kynni þeirra Einars og Ólavíu haf-
ist er hann var við smíðar í Kjós-
inni. Flutti hún síðan með honum
austur í Grímsnes og ól barn þeirra
á Apavatni, þar sem hún var vinnu-
kona. Skömmu síðar hvarf hún
aftur heim í sína fæðingarsveit með
dótturina Júlíönu Þuríði.
I Harðbala á Flóðatanga voru aö
minnsta kosti fjórar þurrabúðir um
aldamótin. Kristín og Guðmundur
bjuggu í duggunarlitlum torfbæ er
stóð rétt í flæðarmáli við Hvalfjörð
og í hafátt gekk brimaldan yfir bæ-
inn, sem var nánast aðeins kytra
eða eitt stafgólf og við hlið hans
bæjardyr með hlóðum innst. Þau
voru ekki rík af veraldarauði og
eina ljóstýru við ljórann létu þau
sér nægja sem hitagjafa, máski gat
það orðið leiðarljós litlum árabát á
heimleið úr róðri. Enga klukku
áttu þau til þes að vita hvað tím-
anum leið en fóru eftir sjávarföllum
og almanaki en það var eini mun-
aðurinn sem þau veittu sér, og
kostaði það þá 12 aura. Kristín var
gæðakona en fátæktin skar þeim
þröngan stakk. Guðmundur var
vel gefinn, gamansamur og hnytt-
inn í tilsvörum og snyrtimenni hið
mesta eins og garður sá er hann
hlóð um túnblett þann, er fylgdi
þurrabúðinni sýndi glöggalega.
Á þennan túnblett bar hann vel
þara og þang, heyjaði svo á
sumrum og seldi, því enga skepnu
átti hann og svo mun hafa verið um
flest þurrabúðarfólk. Börn áttu
þau nokkur, meðal þeirra var Unn-
ur er gift var Níelsi á Helgafelli í
Mosfellssveit og Ólavíu móðir Júlí-
önu Puríðar en hana skildi hún
eftir í Kjósinni og fór suður á land
þar sem heitmaður hennar
starfaði.
Vegna fátæktar gátu þau ekki
sett saman heimili en eignuðust þá
fleiri börn. Að endingu settist
Ólavía Guðmundsdóttir að suður
með sjó giftist og átti böm. Hún
andaðist í hárri elli nærri 100 ára
gömul. Einar Gíslason giftist síðar
og átti börn.
Árið 1905 var Júlíönu Þuríði
komið í fóstur, þá alveg ósjálf-
bjarga af næringarskorti, til Guð-
rúnar Jónsdóttur og Einars Jóns-
sonar í Hvammsvík í Kjós og
reyndust þau henni vel. Þremur
árum síðar eða 1908 flytja þau að
Morastöðum í sömu sveit og þar
ólst hún upp. Það voru hamingju-
stundir í lífi lítillar stúlku er hún
fékk að heimsækja ömmu og afa í
Harðbala. En eftir því sem þrek og
kraftar jukust fækkaði ferðunum
þangað, því alltaf var nóg að snúast
heima á Morastöðum og Júlíana
var snúningalipur. Guðrún og Ein-
ar á Morastöðum tóku ýmsa smæ-
lingja á sitt heimili og reyndust
þeim vel. Þau tóku því þess vegna
ekki þegjandi ef gengið var á hlut
barnanna og þau ekki sett undir
sama hatt og aðrir. Þannig atvik-
aðist það að Júlíana Þuríður var
send í skóla í Hafnarfirði, ferming-
arveturinn sinn og fermd þaðan.
Hún var með afbrigðum hlédræg
og fáskiptin um annarra hagi en
það var kært með henni og Mora-
staðasystkinum og fannst henni
jafnan, hún vera ein af þeim.
Júlína Þuríður var lagleg stúlka,
grönn og kvik á fæti og óþrjótandi
vilji hennar til að gera.öðrum til
hæfis, einkenndi allt hennar líf.
Það kom sér líka vel, því strax og
Morastaðabræður uxu úr grasi fóru
þeir á vetrarvertíðir og þá tók hún
við öllum þeirra útiverkum. Páll
fósturbróðir hennar, sem var níu
árum yngri en hún og er nú látinn,
varð fyrir slysi á unga aldri og var
bæklaður á fæti eftir það og átti
erfitt með gang, þó vildi hann
hjálpa til við útiverkin. Júlíana
Þuríður lét sig þá ekki muna um að
bera hann á bakinu milli staða ef
svo bar undir og það þó hann væri
orðinn bæði hærri og þyngri en
hún. Unglingsár hennar liðu í þrot-
lausu starfi heima á Morastöðum
eða annars staðar, þar sem vantaði
skammtímavinnukraft eins og títt
var á þeim tíma og fengu þá hús-
bændurnir launin ef einhver urðu.
Júlíana Þuríður var orðin fullra
25 ára gömul þegar hún upplifði
æskuvor sitt.
Svo var það eina septembernótt,
eftir langan vinnudag í kalsarign-
ingu á dýjamýrum, að hún vaknar
með sárar þrautir.í baki. Guðrún
fóstra hennar sem svaf ekki langt frá
í baðstofunni, vaknar við lágværar
stunur, rís upp við dogg og hvíslar
út í dimmuna, hvað er að þér rýjan
mín, hefur þú nú étið yfir þig. Svar-
ið sem hún fékk var sem þruma eða
öllu heldur ísköld vatnsgusa.
Á meðan beðið var eftir ljósinu
og verið var að búa allt í haginn,
tautaði gamla konan, Guðrún
fóstra: Hvemig gastu gert mér
þetta?, því sagðir þú mér ekki frá
þessu?, þá hefði ég að minnsta
kosti séð um að þú værir ekki látin
ganga í verstu verkin. Svo hækkaði
hún róminn og sagði með þunga,
hver á krakkann og hvað ætlar þú
að gera við hann?
Brátt var fæddur nýr íslending-
ur, reyndar ósköp lítill og magur en
samt sólargeisli móður sinnar. Það
átti þó eftir að birta enn meir í huga
hennar þegar sagt var við hana.
„Sannaðu til þetta er þitt gæfu-
spor“.
Þegar Gunnar Einarsson tók við
búinu á Morastöðum og kom með
konuefni sitt Aðalheiði Jónsdóttur
úr Grindavík var sem nýtt líf hæfist
fyrir Júltönu Þuríði og drengnum
hennar. Aðalheiður var ung og tók
hana sem jafningja og með þeim
myndaðist gagnkvæm vinátta sem
að entist á meðan báðar lifðu. I
stríðsbyrjun eða árið 1940 söðlaði
Júlíana Þuríður um og flutti alfarin
frá Morastöðum eftir 35 ára veru
með þessu góða fólki. Þá réði hún
sig sem vinnukonu í Gufunesi og
hafði drenginn með sér. Eftir
tveggja ára veru þar flutti hún með
son sinn að Norðurkoti á Kjalar-
nesi til barnsföður síns, Sigfúsar
Jónssonar f. 1/4 1891 á Blikastöðum
Mosfellssveit. Þar tók hún við
húsmóðurskyldunum sem að voru
bæði krefjandi og annasamar, þar
eð hún settist í gróið heimili og
gestkvæmt. Sigfús var vinamargur
og gestrisinn og engan bar svo að
garði að hann yrði ekki að ganga í
bæinn og þiggja veitingar. Sigfús
galt líka heimsóknirnar og var
hrókur alls fagnaðar, hvar sem
hann kom.
Þau eignuðust þrjú börn: Krist-
inn f. 10/9 1929, kona Gréta Jóns-
dóttir frá Vestmannaeyjum. Þau
eiga 3 börn, Gerði, Hrönn og Sig-
fús, þau slitu samvistum. Guð-
mund f. 12/1 1944, ógiftur í Norð-
urkoti. Lilju f. 7/1 1946, maður
Pétur Guðjónsson, bóndi Vogi á
Fellsströnd í Dalasýslu. Börn,
Hrefna, Hulda Júlíana, Sigfús,
Einar og Hanna Björg.
Þeim auðnaðist þó ekki að njóta
langra samverustunda því Sigfús
andaðist 7/1 1951. Sama ár tók
Kristinn sonur þeirra við búinu í
Norðurkoti með konu sinni. En Júlí-
ana Þuríður dvaldi þar áfram með
börn sín og hafði eitthvað af ‘
skepnum. Síðustu árin hefur Júh'-
ana Þuríður búið með sonum sín-
um og notið umhyggju og alúðar.
Alla tíð var hún viljasterk og vinn-
usöm og til hinstu stundar reyndi
hún að gera skyldu sína og hjálpa
til eins og þrek og kraftar leyfðu.
í dag 18/12 1982 verður borin til
hinstu hvíldar í Saurbæ á Kjalar-
nesi, Júlíana Þuríður Einarsdóttir.
Hún er horfin, dáin. Þetta orð
kemur svo illa við mig. Þó höfðum
við ekki þekkst lengi en á milli okk-
ar hafði myndast kærleiksband
kynslóðabilsins sem dóttur og
móður. Ég man hvað ég kveið fyrir
fyrsta fundi okkar. Ég hafði lofað
að líta til hennar og hlynna að
henni. Ég hafði heyrt að hún væri
fáskiptin og hlédræg, jafnvel sér-
sinna. Þegar ég heilsaði henni svo
með hálfum hug, leit hún á mig
brosandi og full af trúnaðartrausti.
Þar með urðum við vinir við fyrstu
kynni.
Velkomin nótt, sem allir
þreyttir þrá
sem þjáða getur svæft
með friðarkossi.
Þessar ljóðlínur eftir Davíð Stef-
ánsson eiga svo vel við og segja allt
sem ég ætlaði að segja. Hún var svo
þreytt og þráði svo heitt að losna
við viðjar líkamans og vera ekki
öðrum til byrði. Nú er hún horfin
inn á friðarlandið en ég gleðst yfir
öllum þeim ánægjustundum sem
að við áttum saman.
Guð blessi minningu hennar.
Gunna.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Landspítalinn
Aðstoðardeildarstjóri óskast á sængurkvennagang
22b.
Hjúkrunarfræðingar með Ijósmæðramenntun ósk-
ast á sængurkvennaganga.
Ljósmæður óskast á sængurkvennaganga.
Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir hjúkrunar-
forstjóri í síma 29000.
Kleppsspítali
Aðstoðardeildarstjóri óskast á deild I frá 1. mars
1983.
Aðstoðardeildarstjóri óskast á deild XI.
Hjúkrunarfræðingar óskast við hinar ýmsu deildir
spítalans. Fastar vaktir koma til greina.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarfor-
stjóri Kleppsspítalans í síma 38160.
Læknaritari óskast á Kleppsspítala og geðdeild
Landspítalans. Stúdentspróf eða sambærileg mennt-
un áskilin ásamt góðri vélritunar- og íslenskukunn-
áttu. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist
Skrifstofu ríkisspítalannafyrir30. desembern.k. Upp-
lýsingar veitir læknafulltrúi Kleppsspítalans í síma
38160 eða skrifstofustjóri geðdeildar Landspítala í
síma 29000.
Starfsmaður óskast í fullt starf við barnaheimili
Kleppsspítala frá 1. janúar n.k. Upplýsingar veitir for-
stöðumaður barnaheimilisins í síma 38160.
Kópavogshæli
Sálfræðinguróskast við Kópavogshæli. Umsóknirer
greini menntun og fyrri störf sendist stjórnarnefnd
ríkisspítalanna fyrir 15. janúar 1983.
Upplýsingar veitir yfirsálfræðingur Kópavogshælis í
síma 41500.
Ríkisspítalar
Reykjavík, 19. desember 1982.