Þjóðviljinn - 18.12.1982, Blaðsíða 19
Helgin 18. - 19. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA M
Við Ægisdyr
Saga Vestmannaeyjakaupstaöar í
60 ár eftir Harald Guðnason
Út er komið fyrra bindið af sögu
Vestmannaeyjakaupstaðar og
nefnist Við Ægisdyr. Saga Vest-
mannaeyjakaupstaðar í 60 ár. Höf-
undur ritsins er Haraldur Guðna-
son skjalavörður og fyrrum bóka-
vörður í Vestmannaeyjum.
Rit þetta er tekið saman að
frumkvæði bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja, en hún samþykkti á
hátíðarfundi í febrúar 1979, þegar
60 ár voru liðin frá fyrsta fundi
hennar, að láta skrá sögu Vest-
mannaeyjakaupstaðar, og fékk til
þess verks Harald Guðnason sem
er gagnkunnugur sögu Vestmanna-
eyia.
I þessu fyrra bindi er sagt frá
aðdraganda þess að Vestmanna-
eyjasýsla varð kaupstaður með
lögum frá 1918; dregin er upp
mynd af bæjarlífinu á þeim tíma og
sagt frá fyrstu bæjarstjórnarkosn-
ingunni. Rakinn er annáll Vest-
mannaeyja 1919-1979 og getið þess
helsta er við bar á hverju ári. Þá er í
riti þessu gerð rækileg grein fyrir
heilbrigðisþjónustu í Eyjum og
rakin viðburðarík byggingarsaga
sjúkrahúsanna. Örn Bjarnason
fortjóri Hollustuverndar ríkisins,
og fyrrum héraðslæknir í Eyjum, er
meðhöfundur þess kafla. Loks eru
svo þættir af þingmönnum Vest-
mannaeyja frá endurreisn alþingis.
í síðara bindi verður fjallað um
hafnargerð, rafveitu, samgöngur,
skipulag, bæjarútgerð, hitaveitu og
fleiri stofnanir auk bæjarfulltrúa-
tals 1919-1979.
Haraldur Cuðnason
VIÐ ÆGISDYR
Saga Vestmannaeyjabæjar
í 60 ár
I
Við Ægisdyr er 340 bls. Bókina
prýða fjölmargar myndir frá því
tímabili sem um er fjallað. Sigur-
geir Jónasson hefur séð um þann
þátt. Ástmar Ólafsson auglýsinga-
teiknari hefur séð um útlit bók-
arinnar. Útgefandi er Vestmanna-
eyjabær, en dreifingu annast Set-
berg.
Vistfræði
fyrir
byrjendur
Vistfraeði fyrir byrjendur heitir
bók sem bókaforlagið Svart á hvítu
hefur sent frá sér. Hún er eftir Cro-
all og Rankin og er önnur af
tveimur fyrstu bókunum í nýjum
flokki. Er lögð áhersla á léttleika og
kímni og myndasöguformið notað á
nýstárlegan hátt þannig að hið al-
varlegasta efni verður öllum að-
gengilegt.
Vistfræði fyrir byrjendur fjallar
um umhverfismál og þá hættu sém
lífinu á iörðinni stafar af mengun
og slæmri umgengni. Haukur
Hafstað.i framkvæmdastjóri
Landverndar, skrifar eftirmála
og segir meðal annars: „Þessi bók
getur vonandi sannfært einhvern
lesanda sinn um að við erum ekki
einir í heiminum og að við berum
sameiginlega ábyrgð á framtíð
okkar allra.“ Þýðandi er Pétur
Reimarsson.
Techiiics
Geröu drauminn að veruleika
Matur er
mannsins
megin
Eftir Jóhönnu
Sveins0ttur
Matur er mannsins megin er ný
íslcnsk matreiðslubók eftir Jó-
hönnu Sveinsdóttur. Jóhanna hef-
ur um skeið skrifað fastan pistil í
Helgarpóstinn um mat og matar-
gerðarlist. Hún lætur ekki staðar
numið við uppskriftirnar, heldur
tínir til ýmsan fróðleik og gaman-
mál cfninu viðkomandi.
Þótt víða sé leitað fanga við öfl-
un efnis, er allt hráefni í uppskrift-
irnar fáanlegt í íslenskum matvöru-
verslunum.
Heilræði urn val og meðferð hrá-
efnisins og matargerðina sjálfa eru
óvenju ýtarleg.
Matur er mannsins megin er
spennandi og skemmtileg mat-
reiðslubók sérhönnuð fyrir ís-
lenska bragðlauka.
Bókin er prýdd fjölda litmynda.
Útgefandi er Svart á hvítu.
Technics Z-25
Verð aðeins
19.890.- Stgr.
KEFLAVÍK
$
KAUPFELAG
HAFNFIRÐINGA.
STRANDGÖTU 28
Einar
Guðfinnsson
Bdlungarvík
m
WJAPIS hf.
BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 27133
“ Technics e