Þjóðviljinn - 15.02.1983, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 15.02.1983, Qupperneq 3
Þriðjudagur 15. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins Samstarfinu stefnt í tvísýnu Viljum nýjan vísitölugrundvöll, en engar kjaraskerðingar - Ég hlýt að harma að forsætis- ráðherra skuli sjálfur ganga fram fyrir skjöldu og tefla þessu stjórn- arsamstarfi í tvísýnu með þvi að leggja fram þetta frumvarp sem fel- ur í sér að verðbætur á laun í mars- mánuði verði teknar af launafólki, sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins í viðtali við Þjóðviljann í gær. - Okkar samstarf í ríkisstjórn- inni hefur verið gott sl. þrjú ár en í þetta skipti lætur forsætisráðherra undan kröfum landbúnaðarráð- herra sérstaklega og viðskiptaráð- herra Framsóknarflokksins. Varpar skugga á sam- starfið - Þessi staðreynd varpar óneit- anlega skugga á stjórnarsamstarfið sem annars hefur verið farsælt til þessa. - A fundi miðstjórnar Alþýðu- bandalagsins var gerð samþykkt þar sem andstaða okkar við vísitöl- ufrumvarp forsætisráðherra er undirstrikuð. Ogerþarm.a. vitnað til stjórnarsáttmálans þar sem segir: „Ríkisstjórnin mun hins veg- ar ekki setja lög um almenn laun nema allir aðilar að ríkisstjórninni séu um það sammála enda sé haft samráð við samtök launafólks“. - í fyrsta lagi er ljóst að ASÍ hefur þegar mótmælt hinu nýja vís- itölufrumvarpi forsætisráðherra. Það samráð sem haft hefur verið, leiðir af sér þessa afstöðu verka- lýðssamtakanna, en áður hefur ríkisstjórnin gripið til ýmissa efna- hagsaðgerða án þess að verkalýðs- hreyfingin hafnaði málum með jafn afgerandi hætti og nú. - í öðru lagi er í stjórnarsátt- málnum kveðið á um setningu laga og þó frumvarpið hafi nú verið lagt fram og flutt er engan veginn ljóst að það verði að lögum. Þvert á móti bendir margt til þess að svo verði ekki eða að frumvarpið taki svo miklum stakkaskiptum að það geti orðið viðunandi frá sjónarmiði verkalýðssamtakanna. Viljum nýjan vísitölugrundvöll - enga kjaraskerðingu - Það er hins vegar ljóst og best að það sé á hreinu strax, að Al- þýðubandalagið samþykkir ekki að launafólk verði svipt verðbótum á laun í marsmánuði eins og frum- varp þeirra forsætisráðherra og sumra Framsóknarráðherra gerir ráð fyrir. - Spurt er hvort við Alþýðu- bandalagsmenn viljum breytingar á vísitölugrundvellinum. Svarið er ótvírætt j ákvætt. Þar þarf mörgu að breyta. En slíkar breytingar verða að vera í tengslum við aðrar efna- hagsaðgerðir og í samráði við verkalýðshreyfinguna, því auðvit- að er vísitalan ekkert annað en Torkennilegur hlutur af himni yfir Austfjörðum: Meirihluti sagði já í réttarhöldum Lífs og lands í kosningum án tillits til búsetu?“ Jón E. Ragnarsson og dómsforseti Gamla bíói á sunnudag, þar sem sögðu 7 kviðdómendur já, en 5 Gunnar G. Schram. Myndin er af réttað var um spurninguna: „Telur nei. þvf þegar eitt vitnanna Halldór dómurinn að atkvæði allra kjós- Sækjandi í rnálinu var Jón Blöndal alþingismaður var tekinn í enda skuli vega jafnt í alþingis- Steinar Gunnlaugsson en verjandi gegn af sækjanda. -. Ljósm. eik. „Birti skyndilega upp” sagði einn sjónarvottur, Jóhann Sveinbjörnsson á Seyðisfirði „Það var um kl. hálf níu í fyrra- kvöld þegar ég var staddur í brekk- unum sunnan við Seyðisfjörð og á leið til bæjarins að skyndilega birti upp allt í kringum mig og varð mun bjartara en í bjartasta tunglsljósi. Blossinn varaði í 2-3 sekúndur og mér fannst eins og hluturinn sem Egill Skúli Ingibergsson hefur sagt starfl sínu sem framkvæmda- stjóri Kísilmálmvinnslunnar hf. lausu frá 1. maí nk. Þetta kom fram á fundi stjórnar sem haldinn var á Austurlandi sl. lýsti svo mjög af félli í Seyðis- fjörðinn“ sagði Jóhann Sveinbjörnsson bæjargjaldkeri á Seyðisfirði í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. „Mér varð auðvitað ekki um sel og datt fyrst í hug að hér væri ein- hver hluti rússneska gervitungl- föstudag. A fundinum var fjallað um kaup á ofnum og búnaði fyrir verksmiðjuna svo og um umhverf- ismál. í tengslum við fundinn var sveitarstjórnarmönnum á Reyðar- firði og Eskifirði gerð grein fyrir framvindu málsins. farsins á ferð en þá rifjaðist upp fyrir mér að vart gæti hann verið á ferð núna. Eftir á að hyggja finnst mér einsýnt að hér hafi loftsteinn verið á ferð“, sagði Jóhann enn- fremur. Nokkrir sjónarvottar voru að þessu fyrirbæri á austfjörðum, m.a. Andrés Filippusson á Dverga- steini. Hann sá til hlutarins tals- vert langt austur í hafi og þegar hann var kominn á bak við ský út við sjóndeildarhring virtist honum sem sendingin splundraðist og af urðu miklar eldglæringar. „Hér á austfjörðum má oft sjá loftsteina falla til jarðar ef skilyrði eru góð, heiðskírt og bjart veður. En þessi sending, hver sem hún var, slær allt það út sem ég hef séð hvað ljósaganginn áhrærir", sagði Jóhann Sveinbjörnsson á Seyðis- firði. -v. Egill Skúli Ingibergsson framkvæmdastjóri Kísilvinnslunnar h.f. Sagði upp starfi Svavar Gestsson: Alþýðubandalag- ið samþykkir ekki að launafólk verði svipt verðbótum á laun í marsmánuði. kaup. Þeir sem vilja afnema vísitö- luna vilja lækka kaupið en við vilj- um laga vísitöluna til þess að hún tryggi betur kaupmátt og jöfnun lífskjara. Þessi var líka stefna ríkis- stjórnarinnar þegar hún gekk frá sínum efnahagsráðstöfunum í jan- úar 1982 og þar var einnig gert ráð fyrir endurskoðun verðlagskerfis landbúnaðarins og sjávarútvegs- ins. Og í yfirlýsingu ríkisstjórnar- innar í ágúst sl. var gert ráð fyrir margs konar lagfæringum á efna- hagskerfinu samhliða breyttum vísitölugrundvelli. - Við erum á móti því að leysa efnahagsvandann með því að velta honum öllum yfir á herðar launa- fólksins í landinu. Við teljum að launafólk hafi þegar tekið á sig kjaraskerðingu og nú sé komið að öðrum aðilum í þjóðfélaginu að leggja fram sinn hlut. - Það á að skera niður yfirbygg- ingu og milliliðakerfið, draga úr innflutningi og auka verðmæta- skapandi framleiðslu.Ef verja á ís- land gegn atvinnuleysi og kreppu verða allir að leggja sitt af mörkum. Með þessum hætti er hins vegar verið að efna til ófriðar í landinu og á því er síst þörf eins og stendur. Breytir engu um verðbólg- una - Vert er að benda á að þetta vísitölufrumvarp forsætisráðherra breytir engu um verðbólgu í landinu og allir vita að stefnir í kosningar eftir örfáar vikur og það er eðlilegt að ný stjórn fjalli um þessi mál í heild sinni. Flutningur frumvarpsins er hins vegar til ntarks um það sem koma skal - og kjósendum því alvarleg viðvörun, sagði Svavar Gestsson að lokum. -óg Borgin hefur hækkað fargjöld SVR um 25% Leitaði ekki heimUdar „Ég samþykkti þessa hækkun á strætisvagnafargjöldum SVR í borgarráði vegna þess að hún var í takt við þá stefnu sem við höfum fylgt um að hlutur farþeganna í rekstri vagnanna færi ekki yfir 60%“, sagði Sigurjón Pétursson, borgarráðsmaður Alþýðubanda- lagsins í samtali í gær. Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að hækka strætisvagna- fargjöld um 25% án þess að leita heintildar Verðlagsstofnunar eins og því ber. Verðlagsráð hafði á fundi sínum samþykkt að heimila 25% hækkun á fargjöldum Stræti- svagna Kópavogs og Landleiða og jafnframt að Reykjavíkurborg fengi sömu hækkun á strætisvagn- afargjöld SVR, ef farið yrði fram á slíkt. Borgaryfirvöld gerðu það ekki heldur tilkynntu einhliða fyrr- nefnda hækkun. „Jafnframt gerði ég það að skil- yrði fyrir mínu samþykki að hafin yrði sala áskriftarkorta þegar í stað og ég mun flytja um það sérstaka tillögu í dag ef sala kortanna verður ekki hafin þá“, sagði Sigurjón enn- frernur. „Ég vil taka það skýrt fram að þegar við fjöllum um hækkunar- beiðnir af hverju tagi sem nefnast í borgarráði er einungis verið að Sigurjón Pétursson borgarráðs- maður: samþykkti 25% hækkun því hlutur farþeganna í rekstri SVR fer ekki yfir 60% markið. taka afstöðu til hækkunarinnar sjálfrar en ekki með hvaða hætti hún er framkvæmd. Framkvæmdin sjálf er tæknilegt atriði og við höf- um hingað til getað treyst því að þar væri farið að lögum í einu og öllu“, sagði Sigurjón Pétúrsson að síðustu. -v. „Flóarharkaður" Þjóðviljans Ný þjónusta við áskrifendur Á fimmtudögum geta áskrifendur Þjóöviljans fengiö birtar smáauglýsingar sér aö kostnaöarlausu. Einu skilyrðin eru aö auglýsingarnar séu stuttorðar og aö fyrirtéeki eöa stofnanir standi þar ekki aö baki. Ef svo er, þá kostar birtinain kr. 100,- Hringiö i síma S1333 ef þiö þurfiö aö selja, kaupa, skipta, leigja, ef ykkur vantar vinnu, þiö hafiö týnt einhverju eöa fundið eitthvaö. Allt þetta og fleira til a heima á Flóamarkaöi Þjoöviljans. ■■■■■■■■■■■■ DIOÐVILIINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.