Þjóðviljinn - 01.03.1983, Side 1

Þjóðviljinn - 01.03.1983, Side 1
DJÚÐVIUINN Hefur Menningarstofnun Bandaríkjanna við Neshaga óheftan aðgang að ríkisfj ölmiðlunum? Sjá 8 mars 1983 þriðjudagur 28. tölublað 48. árgangur Kosið verð! tvisvar í ár Alþýðubandalagið er tilbúið til þess að taka inn ákvæði til bráða- birgða um að umboð þingmanna falli niður þannig að kjósa verði strax og næsta þingi lýkur, sagði Svavar Gestsson m.a. í ræðu sinni um stjórnarskipunarmál og kosn- ingalög í neðri deild alþingis í gær. Sagði hann að Alþýðubandalagið teldi rétt að kjósa strax, t.d. um mánaðamótin júní/júlí eftir hinu nýja kerfi. Geir Hallgrímsson gat þess einn- ig í sinni framsöguræðu að Sjálf- stæðismenn hefðu hug á slíku bráðabirgðaákvæði. Vilmundur Gylfason boðaði breytingartillögur um aðskilnað framkvæmda- og lög- gjafarvalds, kosið yrði til fram- kvæmdavaldsins í tveimur umferð- um (þ.e. forsætisráðherra sem veldi sér ráðherra), eftirlitsva alþingis, óbreytta kjördæmaskip: og meira vald kjósenda til að vel persónur. Sagði Vilmundur i með frumvarpinu væri verið ; blekkja þjóðina. Alþýðubandalagið leggur til staðleysu, að iðnaöarráðuneytið hafi matreitt tölur ofan í verk- fræðistofnun HÍ, til þess aðfáút þá niðurstöðu, að raforkusalan til ísal greiði ekki upp Búrfellsmannvirk- in á 45 ára samningstímunum. Þær tölur sem verkfræðistofnun fékk voru óbreyttar tölur Landsvirkjun- ar, og þær aðferðir sem notaðar voru við útreikninga eru viður- kenndar aðferðir við mat á greiðsluröðum af því tagi, sem fjár- festingin við Búrfell og tekjurnar frá ísal eru. í fréttaskýringu á síðu 5 eru rök- semdir Birgis hraktar lið fyrir lið. Sjá 5 Birgir ísleifur stjórnarmaöur í Landsvirkjun opinberar vanþekkingu * sína á samningum við Isal og um fjárfestinguna í Búrfellsvirkjun Mikil vonbrigði í gær er Isiendingum tókst ekki að komast í A-riðil í handknattleik vegna óvænts sigurs Svisslendinga á Spánverjum. „Þessi aðferð er ekki raun- veruleg, enda fá dæmi um að fjárfestingar á íslandi hafi skilað slíkum arði. Hjörleifur seilist þarna æði langt til fanga við að reyna að sverta og rífa niður upphaflegu Búrfells- samningana“, segir Birgir Is- leifur Gunnarsonar í viðtali við Morgunblaðið um helgina. Og ennfremur: „það eru algjör ó- sannindi og fölsun að reyna að klína þessum niðurstöðum á Verkfræðistofnun Háskóla ís- Iands.“ f viðtalinu fer Birgir með þá Birgir íslcifur fer með staðlausa stafi til að reyna að sýna fram á að raforkusalan til ísal greiði upp Búrfellsvirkjun. Áskriftar- verö Áskriftarverð Þjóðviljans hækkar í 180 krónur frá og með 1. mars vegna almcnnra verðhækkana. Þjóðviljinn kostar í lausasölu virka daga kr. 15 og Sunnudagsblaðið kr. 18. Frumvarp um kosningalögin: Til marks um samstöðuvilja Aldrei jafn víðtækt samkomu- lag Það kom fram í máli þing- manna í neðri deild alþingis í gær, að aldrei fyrr hefði náðst jafn víðtækt samkomulag um breytingar á kjördæmaskipan og kosningalögum og nú hefur náðst. Áður hefur Framsóknar- flokkurinnyfirleitteinn staðið á móti breytingum á kosning- alöggjöfinni. Svavar Gestsson rifjaði það m.a. upp í ræðu sinni á alþingi í gær, að árið 1959 hefðu Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur fyrst lagt til að þingmenn yrðu 63 og síðar að þeir yrðu 65. Alþýðu- bandalagið lagði þá til að þeir yrðu 60 - svo sem raun varð á. Frá því 1959 hefur kjósendum fjölgað um helming. -óg- Sagði Svavar Gestsson á alþingi - Þetta frumvarp er til marks um þann ríka samstöðuvilja sem okkar þjóð þarf nú á að halda sem aldrei fyrr, sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins í upphafi umræðna um kjördæmafrumvarpið á alþingi í gær. Geir Hallgrímsson fyrsti flutningsmaður frumvarpsins, Steingrímur Hermannsson og Magnús Magnússon auk Svavars Gestssonar lýstu allir yfir stuðningi flokka sinna við meginefni frumvarpsins en lýstu yfir fyrirvörum flokkanna um ýmis atriði. Vilmundur Gylfason lýsti sig andvígan því og boðaði breytingartillögur um ýmis atriði. Svavar Gestsson sagði m.a. í lok ræðu sinnar að nú hefði náðst víðtækari samstaða um kjördæmamálið en nokkru sinni fyrr þegar kosningalögun- um hefur verið breytt. Þessi áfangi sýndi að kjördærnaskipanin frá 1959 hefði staðist betur en spáð hafði verið fyrir af andstæðingum hennar. En í annan stað er hér um að ræða dýrmætan áfanga vegna þess að einmitt nú ber þjóðlífið fremur vott um sundrungu en samstöðu, sagði Svavar. - Kjördæmaskipunin frá 1959 hefur orðið góður grundvöllur fyrir sam- vinnu byggðarlaganna eins og sést best á uppbyggingu landsins alls á síðasta áratug. Hér liggur fyrir frumvarp um að staðfesta þessa samvinnu enn frekar, frumvarp um sáttmála byggðanna í landinu um leikreglur lýðræðisins. Um þær reglur þarf að ríkja sem best samkomulag og það er ábyrgðarhluti að rjúfa það einmitt á þessum tímum, sagði Svavar Gestsson. _ój> Grettisgatan kvödd Um hclgina hófust flutningar af Grcttisgötu 3 þar sem Alþýðubandalagið hefur haft aðalbækistöðvar í nýju flokksmiðstöðina að Hverfisgötu 105. Á myndinni má sjá þau Baldur Oskarsson frantkvæmdastjóra flokksins og Margréti Tómasdóttir starfsmann bandalagsins í óða önn við að pakka niður gögnum. Og hver flytur svo inn á Grettisgötuna? Hver nema Vil- mundur Gylfason með Bandalag jafnaðarmanna, sent ætlar að hafa þar kosningamiðstöð. Skrifstofur Alþýðubandalagsins opna að Hverfisgötu 105 eftir viku eða svo. - Ljósm. cik. Staðfestir óhagkvæmni samninganna við ísal

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.