Þjóðviljinn - 11.03.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. mars 1983
Bridge
Jón Ásbjörnsson og Símon Símonarson
sigruöu aðaltvímenningskeppni B.R., á
dögunum meö miklum glæsibrag. Þeir
unnu þetta mót einnig í fyrra. Hér er sýnis-
horn af handbragði Jóns. Spilið kom fyrir
siðasta kvöldið í keppninni, í 42. umferð
mótsins. KG97 87
D63 ÁKD10 85
ÁK9654 K103 G3
92 G543
Á4 Á1042 D102 876 D92 G8765
Mótherjar Jóns/Símons voru Stefán og
Sigtryggur. Sigtryggur opnaði á 1 hj., í
Vestur, Símon í Norður doblaði, Stefán
pass, Jón 1 spaði, Sigtryggur 2 hj., og
Símon 2 spaða, sem varð lokasögnin. Úl-
spii Sigtryggs var hjartaás, kóngur og
meira hjarta, sem trompað var í boröi með
spaðaniu. Nú spilaöi Jón lágum spaða upp
á ás, og meiri spaða og lét gosann fara.
Tók siðan á spaðakóng. Austur haföi séð
af laufi í öll niðurköstin sín fram að þessu
(utan trompa og hjarta). Nú spilaði Jón
laufakóng. Sigtryggur drap á ás (og hefði
nú átt að spila hjarta, þvi sagnhafi gerir sér
fulla grein fyrir hendi hans) en hann spilaði
tígli. Jón var ekki ýkja lengi að sjá vinnings-
spilamennskuna (að fá 10 slagi). Hann
stakk upp á tígulás, spilaöi laufi úr borði og
stakk upp drottningu. Ekki kom gosinn, en
það skipti ekki máli, því nú spilaði Jón síð-
asta trompinu og henti laufi úr borði. Stefán
sá sitt óvænna og lagði einfaldlega spilin
niður
Skák
Karpov að tafli - 110
Sovétmenn komust auðveldlega í gegn-
um A-úrslitin, töpuðu ekki skák og Karpov
vann allar skákir sínar i undanrásunum,
sex að tölu. Sigrar hans voru flestir á-
reynslulausir ef frá er skilin skákin úr 1.
umferð við Pritchett og skákin við Hort.
Hort sem tapar nær alltaf með svörtu gegn
Karpov náði að byggja upp góða stöðu en
lenti í miklu tímahraki. I hamaganginum
urðu honum á stórkostleg mistök:
8
7
6
5
4
3
2
1
abcdefgh
Karpov - Hort
38. ..Dd3??
Hort var bókstaflega alveg að falla á tima
og sleppti drottningunni, Hann sá um leið'
að textaleikurinn tapar og fann annan betri
staö fyrir hana. En dómari var á staðnum
og gerði athugasemd og Hort varð að láta
sér lynda að leika þessum afleita leik.
Karpov svaraði að bragði...
39. Hd1! Dxd1 +
(Eini leikurinn)
40. Bxd1 Hxd1 +
41. Kh2 Hd4
42. Dc1 h5
43. Dg5+ Kf8
44. Dg6 Rg7
45. Db1! Hh4+
46. Kg1 Hxc4
47. Db8+ Kf7
48. Dxa7 Hc1 +
49. Kh2c4
50. Dd4 Hc2
51. Da1 Re8
52. a6 Rc7
53. a7 Hd2
54. Da5 Hd7
55. Da4
- Og Horl gafst upp.
Borgarlíf
Q4U á hljómleikum í Klúbbnum sl. haust. Frá vinstri: Árni Daníelsson, Ellý og Gunnþór Sigurðsson. Ljósm.
Jón Hólm.
Q4U tveggja ára:
Gefur út sex
laga plötu
Hljómsveitin Q4U hefur nú á Q1Q4U og inniheldur lðgin Gunnþór og Danný Pollock.
tveggja ára afmæli sínu sent frá PLO, Böring, Breiðabólsóður, Hljómsveitin hyggst haldá í
sér sex laga plötu, sem var tekin A.M.D.P., Tíszkufrík og Why. hljómleikaferð til að kynna plöt-
upp í Grettisgati í desember. Utgefandi er Gramm sf.. Með- una sem er hin fyrsta sem hún
Platan ber ytirskrittina limir Q4U eru Árni Dan, Ellý, gefur út.
Uppbygging
æskulýðsheimilis
í Seljahverfi:
Samstarf
við
kirkjuna?
Efri myndirnar sýna heila heilbrigðs manns, en þær neðri heila geðklofasjúklings.
Geðveiki ljósmynduð
Læknar við Karolinska sjúkra-
húsið í Stokkhólmi hafa fundið
aðferð til að „ljósmynda“ með
tölvustýrðum geislum þær
breytingar sem verða á heila
manna sem þjást af geðklofa.
Teljast þetta meiriháttar tíðindi í
sögu geðsjúkdóma.
Geðklofi lýsir sér oft í undar-
legri hegðun, sem tengd er rang-
hugmyndum, og fyigir sjúk-
dómnum einatt hnignun sálar-
gáfna yfir höfuð.
í myndum af heila hundraða
manna, sem af þessum sjúkdómi
þjást, sýndu 20-30% mjög svip-
aðar breytingar á framheila. Þær
skemmdir sem geislarnir skráðu
eru sagðar mjög ólíkar þeim sem
fylgja annarri andlegri hnignun -
t.d. þeirri sem fylgir elli og
drykkjusýki.
„Myndatakan" er tengd því, að
hægt er að fylgjast með því,
hvernig heilafrumur bregðast við
glúkósa - þær frumur sem nota
minna en eðlilegt er hafa orðið
fyrir skemmdum. Hér er að vísu
ekki um aðferð að ræða sem gerir
mögulegt að „skrá“ öll tilbrigði
geðklofa, en þau eru mörg. En
hún færir menn nær skilningi á
vissri tegund sjúkdómsins.
Þær frumur, sem myndirnar
sýna skaddaðar, eru einkum úr
þeim hlutum heilans sem stýra
samræmingu og áætlunum.
Byggingarnefnd Seljasóknar
hefur ritað Æskulýðsráði
Reykjavíkur og óskað viðræðna
um samstarf við uppbyggingu á
félagsaðstöðu í Seljahverfi. Á
þessu ári er ekki veitt fé til
neinnar nýrrar framkvæmdar í
æskulýðsmálum í Reýkjavík, en
fyrri meirihluti hafði hafið undir-
búning að byggingu nýrrar æsku-
lýðsmiðstöðvar í Seljahverfi.
Nú eru þrir valkostir ræddir í
þessu efni: Samstarf við sóknar-
nefnd Seljasóknar um uppbygg-
ingu félagsaðstöðu í kirkjunni, en
fordæmi um slíkt samstarf er í
Bústaðakirkju, - samstarf við
Seljaskóla um félagsaðstöðu við
skólann og í þriðja lagi uppbyg-
ging eigin húsnæðis á vegum æsk-
ulýðsráðs.
Ur landsmála-
blöðunum
Brotnar rúður í Akureyrarkirkju
...Dagur greinir frá því að nokk-
uð hafi borið á því að ótilgreindir
einstaklingar hafi þann leiða sið
að taka sér grjót í hönd og fleygja
í rúður Akureyrarkirkju. Það veit
sem til þekkir að rúður í kirkj-
um eru æði dýrar í verði og ný-
lega voru brotnar 18 rúður í
kirkjunni, þar af 10 í kapellunni
og 8 í aðalkirkjunni. Allar voru
rúðurnar brotnar með grjótkasti.
Stjórn
Vinnu-
skólans
Ný orkusparnaðarleið
Seglskip ryðja
sér til rúms á ný
Japanir eru nú með tvö seglskip í
notkun til flutninga og enda þótt
þau séu trúlega ekki þeirrar
gerðar, sem hér er sýnd, er drif-
krafturinn sá sami: vindurinn
Víða um heim er fylgst af
áhuga með tilraunum með far-
skip, sem búin eru seglum og nýta
þannig vindorku samhliða því að
brenna olíu. Með þessu móti
sparast verulegur orkukcstnaður
og er því haldið fram, að miðað
við 4000 klst. úthald á ári, sé olí-
ukostnaður minni en helmingur
af kostnaði fyrir samskonar skip,
sem ekki er búið seglum.
í Japan eru um þessar mundir
tvö slík skip í notkun, en verið er
að ljúka smíði þriggja að auki.
Haft er eftir eiganda þeirra, að
notkun seglanna auki svo stöðug-
leika skipanna, að þau geti siglt í
helmingi meiri vindhraða en
hefðbundin skip. Japanskir
myndasmiðir hafa mikinn áhuga
á að mynda skipin í stórsjó, og
voru nýlega gerðar tvær tilraunir
til þess. í annað skiptið sigldi skip
við hlið seglskipsins með hóp
ljósmyndara um borð. Slíkur var
veltingurinn, að jafnvel þeir, sem
staðið gátu uppréttir, voru engan
veginn í ástandi til að taka mynd-
ir. f hitt skiptið var um að ræða
kvikmyndatökur fyrir japanska
sjónvarpið. Engar myndir feng-
ust þó heldur við það tækifæri,
þar sem þyrlan, sem fljúga átti
yfir skipinu kornst ekki á loft
vegna óveðursins. Með notkun
seglanna í óveðri geta skipin
þannig siglt meðan önnur verða
að leita skjóls, og er meðalút-
haldstími þeirra á Japanshafi um
5000 klst. á ári meðan úthaldstími
annarra skipa er um 3500 klst.
Kristín Ólafsdóttir og Kol-
beinn Pétursson hafa verið kosin
í stjórn Vinnuskóla Reykjavfkur-
borgar. í borgarráði var varpað
hlutkesti milli Kristínar (af G-
lista) og Magdalenu Schram (af
V-lista) en þær hlutu sitt hvort
atkvæðið og kom nafn Kristínar
upp.
Gætum
tungunnar
Sagt var: Hann kemur ekki, alla-
vega ekki í dag.
Rétt væri: Hann kemur ekki, að
minnsta kosti ekki í dag.
Eða: ... alltjent ekki í dag.
(Ath.: alla vega merkir: á allan
hátt, með ýmsu móti.)