Þjóðviljinn - 11.03.1983, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 11.03.1983, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. mars 1983 MOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastióri: Guörún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Útlit og hönnun: Helga Garðarsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Simavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir. Húsmöðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir. innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent h.f. Framsókn hefur lengi langað • Meirihluti Alþingis vill aö þing komi saman eigi síðar en 18 dögum eftir kosningar. Framsóknarflokkurinn vill það ekki og hefur í hótunum um að ganga út úr ríkisstjórninni verði samþykkt þingsályktunartillaga um samkomudag Alþingis. Af heldur litlu tilefni hafa Framsóknarmenn því gerst þrútnir og þungbrýndir og vilja hlaupa úr ríkisstjórn. Rökin fyrir brotthlaupinu eru þau að ef meirihluti sé fyrir því á þingi að kveðja Alþingi saman eftir kosningar verði sá meirihluti einnig að takast á við lausn efnahagsmála og stjórn landsins. • Langt er seilst, en afstaða Framsóknarmanna skýrist þó nokkuð, þegar höfð eru í huga þau orð sem Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknar- flokksins hefur látið falla í viðtölum við fjölmiðla: „Okkur hefur lengi langað til að losna úr þessari stjórn“. Spurningin er: hve lengi hafa Framsóknar- menn haft slíkar langanir, og hve lengi hafa þær stýrt gerðum þeirra og athöfnum í stjórnarsamstarfinu? Svör við þessum spurningum hafa verulega þýðingu, því þau gætu varpað ljósi á það hvers vegna stjórnar- tökin hafa linast. Framsóknarflokkurinn hefur komist upp með að kenna Alþýðubandalaginu um allt sem miður hefur farið í efnahagsmálunum. En löngunin til þess að komast út úr stjórnarsamstarfinu hefur lengi verið sterk hjá Framsóknarflokknum að sögn Stein- gríms Hermannssonar og kannski yfirsterkari viljanum til þess að takast á við efnahagsvandann. • Framsókn vill nú hafa sína hentisemi með þinghald og kosningar samkvæmt breyttum stjórnskipunar- lögum. Hugmynd þeirra er sú að ný ríkisstjórn kippi málum í lið strax eftir kosningar án þess að þingið sé að trufla hana. En þær þjóðfélagsaðstæður sem við blasa eru þess eðlis, að engin ríkisstjórn getur leyft sér það ábyrgðarleysi að kveðja ekki saman þing að loknum kosningum. Eðlilegt er að þingið komi saman til þess að fjalla um efnahags-, atvinnu- og stjórnarskrármál, enda engin vissa fyrir því að takast megi að mynda ríkisstjórn strax eftir kosningar. • í tillögu Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags til þingsályktunar um samkomudag Alþingis felst engin ákvörðun um tvennar kosningar í sumar. En Framsóknarflokknum verður heldur ekki gefið sjálf- dæmi til þess að útiloka að kosið verði fljótlega aftur eftir breyttum stjórnskipunarlögum. Sjái Framsóknar- flokkurinn ástæðu til brotthlaups úr ríkisstjórn vegna þessarar stöðu mála er það einungis yfirvarp til þess að komast hjá að taka á vandamálum líðandi stundar. - ekh. Merk lög • í fyrradag var samþykkt á Alþingi heildarlöggjöf um málefni fatlaðra. Fjölmörg félagasamtök höfðu skorað á alþingismenn að ljúka ekki þinginu fyrr en þetta mikla framfaramál væri komið í höfn. Þingið varð við þessum áskorunum. Samþykkt löggjafarinnar um mál- efni fatlaðra minnir á það að í tíð núverandi ríkisstjórn- ar og undir forystu Svavars Gestssonar heilbrigðis- og félagsmálaráðherra hefur félagsleg þjónusta verið efld á mörgum sviðum. Fað er vert að hafa í huga að á sama tíma hefur samhjálp verið skert víða í nágrannalöndum okkar. Og við skulum heldur ekki gleyma að í fyrstu fjárhagsáætlun Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eftir að hann komst til valda á ný er öll félagsleg þjónusta sett í fjársvelti. klippt Stœkkandi miðja í Vestfirska fréttablaðinu (3. mars) er viðtai við leiðtoga „Bandalags jafnaðarmanna" Vil- mund Gylfason um framboðsæv- intýrið og kosningarnar framund- an. Vilmundur fer á kostum eins- og venjulega. Við birtum hérna sýnishorn úr þessu viðtali við for- ingjann: „Hvernig verður framboðið í Vestfjarðakjördæmi hagað? „Við erum að vonast til að það verði til áhugamannafélög, með einum eða öðrum hætti, nokkuð víða. Þessi félög munu í samráði við þá litlu, en stækkandi miðju, sem sett var upp til bráðabirgða, ganga frá framboðinu. Það fer auðvitað nokkuð eftir því hvenær kosningar fara fram, hversu skjót handtök þarf að hafa.“.” „Okkar einu hagsmunir(( „Aðalatriðið er það að þetta er bandalag utan um hugmyndir eða hugsjónir, en ekki hagsmuna- vörslu í skilningi stjórnmála- flokkanna fjögurra, sem stofnað- ir voru fyrir áratugum síðan. Þeg- ar svona stendur á, eins og núna, hversu lengi sem það varir, þá eru okkar hagsmunir þeir - og um það held ég að sé algjör samstaða með okkur - að við bjóðum þannig fram að það sé sem væn- legast til árangurs. Það eru okkar einu hagsmunir." Einhver félög - hugsanleg aðild Blaðamaðurinn er að vonum óhress með að hafa ekki fengið gleggra svar við spurningunni um framboð á Vestfjörðum - en um það var spurt. Svo hann spyr enn á ný: „Ertu með þessu að segja að enn hafið þið ekki fundið fram- bjóðendur í kjördæfnunum yfir- leitt? „Bandalagsfólk veit af því að innan tíðar á að leggja fram fram- boðslista og vinnur að því.“ - Er til félag á Vestfjörðum til að vinna að framboði? „Mér skilst hér á ísafirði séu áhugamenn að fara af stað með einhverja tegund af félagi, sem hugsanlega sækir um aðild að Bandalaginu, og við vitum að víða um Vestfirði eru áhugasamir einstaklingar, sem hafa haft samband við okkur. Hvað kemur út úr því, verður reynslan að leiða í ljós.““ Tálsýnir um markaðinn Ásgeir Daníelsson skrifar grein í síðasta Neista, málgagn Fylkingarinnar, þar sem hann víkur m.a. að skoðanakönnun- um. Ásgeir segir, að þær sýni greinilega sveiflu til hægri, þó niðurstöður þeirra séu að ýmsu leyti óræðar m.a. vegna upp- lausnar í þjóðfélaginu. Asgeir sér skýringuna á því, að Sjálfstæðis- flokkurinn fái minna fylgi samkv. síðustu skoðanakönnun miðað við þær á undan, í því að Banda- lag jafnaðarmanna hafi tekið fylgi frá Sjálfstæðisflokknum: „Þessi tengsl á milli „fylgis“ Sjálfstæðisfl. og þess „fylgis“ sem Bandalag jafnaðarmanna er að reyna að ná til, sýnir ákveðin sérkenni þeirrar hægri þróunar sem við verðum vör við. Þessi þróun tjáir oft meir óánægju en meðvitaða hægri stefnu. Hún tjá- ir tálsýnir um möguleika mark- aðarins til að leysa þau efnahags- legu vandamál sem auðvaldið hefur skapað, og eins mikla óá- nægju með frammistöðu verka- lýðsfélaganna og verkalýðsflokk- anna.“ í fangið á Geir Hallgrímssyni Og Ásgeir Daníelsson heldur áfram: „En samtímis er þarna um að ræða launafólk - oft tiltölulega vel stætt launafólk - sem alls ekki er reiðubúið að taka sjálft á sig kjaraskerðingar. Það er þess vegna sem Geir Hallgrímsson, í áðurnefndu viðtali við Morgun- blaðið, bendir sérstaklega á það að „kjarninn í stefnu Sjálfstæðis- flokksins“ varðandi kaup og kjör sé sá sami og hjá Bandalagi jafn- aðarmanna, þ.e. „að aðilar beri sjálfir ábyrgð á þeim samningum sem þeir gera um kaup og kjör”.” Postular kjaraskerðinga Ásgeir Daníelsson minnir á að þessir menn hafa staðið fyrir kjaraskerðingum nær þeir hafa haft aðstöðu til: „Það er óneitanlega spaugilegt að sjá manninn sem samdi febrú- arlögin frægu árið 1978 með Ólafi Jóhannessyni tala þannig til mannsins sem samdi Ólafslög með Ólafi!“ y Vaðallinn í Vilmundi í áranna rás er svo umfangsmikill að fáir nenna stundinni lengur að elta ól- ar við þau ósköp. Hitt er svo ann- að mál einsog Asgeir minnir á, að alveg er ástæðulaust að firra hann ábyrgð af þeim pólitísku aðgerðum sem hann hefur staðið að sem krati og leiftursóknar- krati. Og fátt bendir til þess að annað sé uppi á teningnum eftir að búið er að mynda miðstjórn fyrir stjórnmálaflokk um hugmynda- fræðina; „litlu en stækkandi miðju“ sem er að ganga frá fram- boðum einsog meistarinn sagði. - óg ocj skorið Páfinn í Róm og Framsókn Staksteinar á Mogganum er gamansamur í gær og segir að Þórarinn Tímaritstjóri sé haldinn þeirri áráttu að eigna Framsókn- arflokknum kosningasigra í öðr- um löndum: „Hefur Þórarinn farið inn á hinar ólíklegustu brautir í þessu .efni. Á sínum tíma var John Lindsay, frambjóðandi demó- krata í borgarstjóraembættið í New York, lýstur framsóknar- maður, Franklín D.Roosevelt, fyrrum Bandaríkjaforseta, hefur af Þórarni Þórarinssyni verið lýst sem miðjumanni og því til- heyrandi Framsóknarflokknum. Charles de Gaulle,fyrrum Frakk landsforseti, var einnig Fram- sóknarmaður að mati Þórarins og jafnvel Jóhannes Páll páfi II hef- ur verið dreginn inn í Framsókn- arflqkkinn. í forystugrein Tímans í gær er því lýst yfir að Helmut Kohl, ný- endurkjörinn kanslari Vestur- Þýskalands, sé Framsóknarmað- ur.“ Tíminn vinnur aldrei á Ólafur bóndi í Selárdal Hanni- balsson hefur yfir fagra vísu eftir Huldu í vísnaþætti sínum í Tím- anum, sem byrjar svona: „Tíminn vinnur aldrei á okkar bestu stundum,” Sér Ólafur ástæðu til að taka fram innan sviga að hér sé ekki átt við hið „trausta og fjölbreytta fréttablað" Tímann. - óg ekh.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.