Þjóðviljinn - 11.03.1983, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 11.03.1983, Blaðsíða 16
MOÐVIUINN Föstudagur 11. mars 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382,81482 og81527. umbrot 81285, ljósmvndir 81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663 Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamcnn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 Kosið í stúdenta- og háskólaráð á þriðjudag: lafnrétti til náms er eitt helsta baráttumál Vinstri manna Stúdentar munu næstkomandi þriðjudag ganga til kosninga um fulltrúa í Háskólaráð og stúdentaráð. Þrír listar eru í kjöri, B-listi vinstri manna, C-listi umbótasinna og A-listi Vöku, listi lýðræðis- sinnaðra stúdenta. Á kjörskrá eru um fjögur þúsund manns. „Helstu baráttumálin hjá okkur að þessu sinni er að koma Félags- stofnun í að geta kallast fyrirtæki rekið á félagslegum grunni. Nú er svo komið í rekstri þessarar stofn- unar að það er næstum ódýrara að fá sér að borða á veitingastöðum heldur en þar. Meðaiverð á máltíð er frá 60 til 80 krónur og má geta þess að Arnarhóll sem þykir áreið- anlega með dýrari veitingastöðum býður uppá þríréttaða máltíð á 99 krónur. Veitingarekstur sem hefur gróðrasjónarmiðið að leiðarljósi hefur skilað þeim árangri að kaff- istofureksturinn fer upp í 50 þús. króna hagnað á mánuði,“ sagði Kristján Arason í viðtali við Þjv. í gær. Kristján á sæti í stúdentaráði fyrir hönd Vinstri nranna. Kristján sagði að stúdentar væru velflestir mjög andvígir þeim hugmyndum Háskólakórinn í Sovétríkjunum: Frábærar móttökur Háskólakórinn hefur verið á söngferðalagi í Sovétríkjunum og fengið frábærar móttökur söng- elskra Sovétmanna. Tónleikar kórsins hafa allir verið teknir upp til flutnings í útvarpi og sjónvarpi í Sovétríkjunum. Háskólakórinn kom tii Moskvu Vökumanna að þeir sem nú stunda nám við Háskólann kosti nær ein- göngu byggingu á Hjónagörðum, en Vökumenn hyggjast fjármagna byggingarframkvæmdir m.a. með því að stórhækka leigu á Hjóna- görðum. „Þær hugmyndir sem eru uppi um stöðu lánasjóðs námsmanna falla heldur ekki í góðan jarðveg hjá okkur. Þar er gert ráð fyrir að stúdentar hafi sama rétt til náms- lána og að ekki sé tekið tillit til búsetuskilyrða eða annarra aðstæðna. Námslánin myndu nýt- ast sumum sem afgangsfjármagn til fjárfestinga á meðan aðrir yrðu að lifa á peningum senr engan veginn nægja til framfærslu. Þetta er því spurningin um jafnan rétt til náms,“ sagði Kristján. í Háskólaráði eiga nú sæti 15 manns þar af 4 stúdentar. í Stúd- entaráði eiga sæti 30 manns þar af þeir fjórir sem sitja í Háskólaráði. hvert félag býður því fram tvo lista, annarsvegar til Háskólaráðs og hinsvegar lil Stúdentaráðs. Kosið er til tveggja ára, um helming þeirra sem sitjá á þessum ráðum árlega. Nú er kosið um 13 í Stúd- entaráð og tvo í Háskólaráð. Vaka og Félag umbótasinna sitja í meiri- hluta með samtals 17 fulltrúa, Vaka með 10 menn og Umbóta- sinnar með sjö. Vinstri menn eru með 13 fulltrúa. - hól. Arnþór Helgason Framboðslisti ABR Tillaga kjörnefndar samþykkt Fundur fulltrúaráðs Alþýðubandalagsins í ReyRjavík samþykkti í gærkvöldi tillögu kjörnefndar um röðun á lista Alþýðubandalags- ins í Reykjavík í komandi Alþingiskosningum. Félagsfundur tekur endanlega ákvörðurrí málinu hinn 15. mars, en tillaga kjörnefndar er þessi: 1. Svavar Gestsson, ráðherra, 2. Guðmundur J. Guðmundsson, al- þingismaður, 3. Guðrún Helga- dóttir, alþingismaður, 4. Ólafur Ragnar Grímsson, alþingismaður, 5. Grétar Þorsteinsson, form. Trésmiðafélags Rvk., 6. Guðrún Hallgrímsdóttir, matvælafræðing- ur, 7. Margrét Björnsdóttir, kenn- ari, 8. Alfheiður Ingadóttir, biaða- maður, 9. Arnór Pétursson, full- trúi, 10. Ragna Ólafsdóttir, form. Kennarafélags Reykjavíkur, 11. Hallgrímur Magnússon, form. Sveinafélags húsgagnasmiða, 12. Margrét Pála Ólafsdóttir, fóstra, 13. Sigrún Valbergsdóttir, leikari, 14. Þráinn Bertelsson, kvikmynda- gerðarmaður, 15. Jón Reykdal, myndiistarmaður, 16. Hulda Ól- afsdóttir, sjúkraliði, 17. Ragnar Þórsson, verkamaður, 18. Esther Jónsdóttir, varaformaður Starfs- mannafélagsins Sóknar, 19. Þor- steinn Blöndal, læknir, 20. Þor- leifur Einarsson, jarðfræðingur, 21. Silja Aðalsteinsdóttir, bók- menntafræðingur, 22. Hallgrímur Guðmundsson, formaður Torfu- samtakanna, 23. Þorsteinn Hall- dórsson, verslunarmaður og 24. Einar Olgeirsson, fyrrverandi al- þingismaður. 23. febrúar sl. í 30 stiga frosti. Að kvöldi 2. mars voru haldnir tón- leikar í Æskulýðshöllinni þar í borg við húsfylli, en margir gesta voru félagar í vináttufélagi Islands og Ráðstjórnarríkjanna. Við upphaf -tónleikanna voru gestirnir boðnir velkomnir á sovéska vísu með því að ung stúlka færði stjórnandan- um, Hjálmari Ragnarssyni brauð, sem liann braut, dýfði-í salt og át af. Á efnisskrá kórsins eru einungis íslensk lög, þar af mikið af nútíma- tónlist. Viðtökur hafa eins og áður sagði verið frábærar að sögn viðsta- ddra og var það ekki síst nútíma- tónlistin sem hreif Moskvubúa. Urðu kórfélagar að syngja mörg aukalög til að sefa hrifna gesti. Kórinn fór einnig til Úkraínu og söng m.a. í Kiev og í Tallin í Eist- landi. Kórinn mun konta úr hinni velheppnuðu tónleikaför nú um helgina. Leigubifreið fyrir fatlaða Sfgur Ég hef ekki heyrt neitt annað en það sem kom fram í fréttum í dag, að menntamálaráðherra ætli að veita mér stöðuna, og geri hann það, tel ég það vera meiriháttar sigur í réttindamálum fatlaðra, sagði Arnþór Helgason í samtaii við Þjóðviljann í gær er hann var inntur álits á þessari afstöðu ráð- herra, að veita honum Annar eigandi leigubíls fyrir fatlaða, Helgi Már Haraldsson, kemur fyrir skábraut. Ljósm. eik. Ný og mjög þörf þjónustustarfsemi við fatlaða er um þessar mundir að hefja göngu sína í Reykjavík, sem er sérhönnuð leigubifreið fyrir fatlað fólk í hjólastólum. Það eru þau Helgi Már Haralds- son og Jóna Gróa Ásgeirsdóttir, sem eiga bifreiðina, en þau hafa bæði starfað við Ferðaþjónustu fatlaðra sem rekin er á vegum borgarinnar og hefur verið það síð- an 1979. Ferðaþjónusta fatlaðra hefur breytt miklu fyrir fatlað fólk og auðveldað því að komast leiðar sinnar. Sá hængur er þó á að panta þarf ferðir hjá henni með dags fyrirvara. Þetta getur komið sér illa ef fatl- að fólk þarf að komast eitthvað fyrirvaralaust og því er mikil þörf fyrir þjónusustarfsemi á borð við þá senr þau Helgi og Jóna hafa nú sett á stofn. Hægt er að hringja í þau hvenær sem er frá kl. 7.30 til 21.00 mánudaga til fimmtudaga, en á föstudögum og laugardögum frá 7.30 og fram á nótt. Gjaldið fyrir afnot af bílnum er 15% hærra en venjulegur leigubílataxti. Hann er sérhannaður fyrir hjólastóla, með sérstakri lyftu og getur tekið tvo hjólastóla og 3 fylgdarmenn. Sími Skyndiferða fatlaðra er 71215. Hér er um mjög vandaða bifreið að ræða, sem kostaði um 500 þús- und krónur. Tolla var ekki af tæknilegum ástæðum hægt að fá fellda niður en til að mæta þeirri kerfisstíflu veitti félagsmálaráð- herra styrk til kaupa á bílnum, sem nam andvirði tolla af honum. Bifreiðin mun að sjálfsögðu þjóna öllu Stór-Reykjavíkursvæð- inu og raunar fara hvert sem óskað er eins og þau Helgi og Jóna sögðu. -S.dór. deildarstjórastöðu við Blindrabókasafn íslands, en áður hefur verið skýrt frá málavöxtum hér í blaðinu. Um þá röksemdafærslu meiri- hluta safnstjórnar að blindur mað- ur geti ekki sinnt deildarstjóra- starfinu, sagði Arnþór að greinar- gerð meirihlutans hefði verið mjög greinargóð, málefnaleg og rök- studd, en ég sé ekkert því til fyrir- stöðu að blindur deildarstjóri geti útbúið námsgögn fyrir blint fólk á framhaldsskólastigi. Hvorki blind- ur maður né sjáandi getur komist af án einhverrar aðstoðar í því starfi og deildarstjórinn þarf alltaf að hafa meira eða minna samstarf við aðra starfsmenn safnsins, sagði Arnþór. Hann sagðist viðurkenna að ef setja þyrfti upp línurit gæti blindur maður ekki gert það, en ég fæ ekki betur séð en að slíkt hljóti ætíð að vera starf tækniteiknara, sagði Arnþór. Hann sagðist að lokum vilja þakka þeirn mörgu sem veittu hon- um siðferðislegan stuðning í bar- áttunni fyrir því að fá þetta starf. -S.dór. í baráttu fadaðra

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.