Þjóðviljinn - 11.03.1983, Side 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. mars 1983
Alusuisse
illa rekinn auðhringur
Alusuisse auðhringurinn á
nú í mjög miklum fjárhags-
erfiðleikum, og telja sumir,
að svo kunni að fara, að
hann verði gjaldþrota.
Alusuisse hefur lang-versta
stöðu af stóru álhringunum
ásamt Keiser, sem er
yngstur stóru hringanna.
Ástæðan fyrir þessum erfið-
leikum Alusuisse er fyrst og
fremst, að hringnum hefur verið
mjög illa stjórnað síðustu ára-
tugi.
Tvíeykið Emanuel Meyer og
Poul Miiller hefur verið nær ein-
rátt í fyrirtækinu síðan á sjötta
áratugnum. Helsta aðferð þeirra
til að auka hagnað Alusuisse var
að þröngva sem allra hag-
stæðustu samningum fyrir Alu-
suisse uppá fákunnandi viðsemj-
endur sína út um allan heim.
Þessi aðferð hefur þó reynst
skammgóður vermir, því að ann-
ars vegar hefur Alusuisse fengið
mjög slæmt orð á sig út um allan
heim og menn því verið tregir til
að ganga til samninga við þá.
Hins vegar hafa ýmsir samn-
ingar Alusuisse ekki staðist þegar
til kastanna hefur komið og
viðsemjendur þeirra hafa áttað
sig á inntaki þeirra. Hefur Alu-
suisse þegar tapað fleirum en
einu dómsmáli í þessu sambandi.
Tæknilega
vanbúnir
Auk vægast sagt vafasams
stjórnunarstíls þeirra tvímenn-
inga Meyers og Múllers hefur
Alusuisse dregist mjög aftur úr
keppinautum sínum hvað tækni
og almenna samkeppnisgetu í ál-
framleiðslu snertir.
Þetta hefur valdið því að hagn-
aðarhlutfall fyrirtækja Alusuisse
hefur j afnvel í góðu árferði reynst
minna en hjá keppinautum þess.
Þótt talsverðan hluta þessa mis-
munar í arðsemi megi vafalaust
rekja til hagnaðartilfærslna innan
samsteypunnar í formi yfirverða
á hráefnum og undirverða á
afurðum,eins ogm.a. hefurverið
sýnt fram á í ísal, er munurinn
svo mikill að hann verður ekki
útskýrður nema með lélegum
rekstri.
Þess má reyndar geta, sem
Sala, hagnaður og hagnaðarhlutfall nokkurra ál-
hringa í Bandaríkjunum árin 1979 og 1980. í milj.
dollara.
AR
1979
1980
Alusuisse
(Consolidated
Aluminium)
Alumax
Martin
Marietta
Kaiser
Sala milj. $ Hagn- aöur Hagn. hlutt. »Sala miij. $ Hagn- aður Hagn. hlutf. Sala Hagn. Hagn. hlutf. Sala Hagn.
825 4,1 0,5% 873 97 11,1% 550 95 17,3% 2.083 273
928 19,9 2,1% 968 104 10,7% 669 83 12,4% 2.272 251
Hagn.
hlutf.
13,1%
11,0%
áður hefur komið fram í fjölmiðl-
um, að Meyer og Múller hefur
verið vikið frá störfum í Alu-
suisse. Múller fær hins vegar að
klára samningamál sín út um
heiminn, þ.á m. á íslandi, og má
því nærri geta, að hans sjónarmið
er að tryggja skammtímahagnað
Alusuisse (Heimsendir kemur
eftir minn dag).
Græða minnst
Dótturfyrirtæki Alusuisse í
USA, Consolidated Alumini-
um, rak á árunum 1979 og 1980 3
álbræðslur í USA, auk nokkurra
úrvinnsluverksmiðja.
Þjóðviljanum hefur tekist að
afla sér upplýsinga um veltu og
hagnað þessa fyrirtækis, ásamt
samanburði við önnur fyrirtæki
af sömu stærð í USA 1979-80.
Þessi samanburður er framsettur
í meðfylgjandi töflu.
í ljós kemur að hagnaðarhlut-
fall Alusuisse er aðeins brot af því
sem hin fyrirtækin ná.
Lesendur geta síðan sjálfir
hugleitt hversu mikinn hluta mis-
munarins megi rekja til yfirverða
og bókhaldstilfærslna og hversu
mikinn til mismunandi frammi-
stöðu í rekstri.
Lesendur ættu þá jafnframt að
hugleiða hver hagur það er fyrir
íslendinga að binda trúss sitt við
rekstraraðila á borð við AIu-
suisse (Burtséð frá grundvallaraf-
stöðu til. samstarfs við erlenda
auðhringa).
Hver er ávinningur íslendinga
af því, að afhenda þeim til
ráðstöfunar helming allrar raf-
orku í landinu og gefa þeim vil-
yrði um allt að helmingi meira,
eins og öfl í Sjálfstæðisflokki og
Framsóknarflokki vilja?
Uppstokkun á texta
Dauði gegn dauða
Avarp frá
Patreksfjarðar-
söfnun:
Söfnun
haldið
áfram
til
15. mars
Nú er mánuður liðinn síðan fiár-
söfnunin hófst vegna nauðstaddra
Patreksfirðinga eftir náttúruham-
farirnar, sem þar urðu þann 22.
janúar síðastliðinn.
Með þessu stutta ávarpi viljum
við, sem að söfnuninni höfum stað-
ið, færa alúðarþakkir þeim fjöl-
mörgu víðsvegar um landið, sem
þegar hafa lagt þessu málefni lið
með rausn og myndarskap.
Við viljum leggja áherslu á það
að með fjársöfnun þessari er um
skyndihjálp að ræða, sem hvergi
nær til að bæta nema lítið eitt af
skaða fjölda fólks, en mun koma sér
vél fyrir þá, sem njóta, þrátt fyrir
mikinn sársauka og margháttað
óbætanlegt eignatjón.
Söfnunin nemur nú á fimmta
Ifiundrað þúsund króna. Og verður
það fé nú þegar sent vestur og af-
hent hinum mætustu mönnum á
Patreksfirði til úthlutunar í sam-
ráði við hreppsnefnd, sem öllum
hnútum er kunnugust.
Við höfum ákveðið að halda
áfram söfnuninni til 15. þ.m. - 15.
mars og væntum þess að við bætist
og enn fleiri verði sem sjá sér fært
að leggja með okkur hönd á
plóginn.
í þeirri von, kæru samborgarar,
kveðjum við ykkur að sinni og
minnum á Patreksfjarðarsöfnun-
ina, gíróreikning nr. 17007-0 á
pósthúsum, í bönkum og spari-
sjóðum landsins.
Virðingarfyllst,
Sigfús Jóhannsson
Svavar Jóhannsson
Tómas Guðmundsson
Steingrímur Gíslason
Hannes Finnbogason
Grímur Grímsson.
Slæm uppstokkun varð á texta í
grein Bjarna Hannessonar,
Dauði gegn dauða, sem birtist í
blaðinu sl. fimmtudag. Vegna
þessa cr hér birtur sá kafli
greinarinnar er hófst neðst í
fyrsta dálki og fram á annan dálk
neðarlega um leið og Þjóðviljinn
biðst velvirðingar á mistökunum.
í forsetastól U.S.A. komst R.
Reagan, að mínu mati, á eins
ómerkilegum áróðursforsendum
eins eins og hægt er að viðhafa í
ríki er telur sig vera lýðfrjálst,
heilbrigt og til fyrirmyndar.
Um klæki þeirrar kosningabar-
áttu veit ég fæsta, en minnist laus-
lega kappræðuþáttar milli Reag-
ans og Carters f.v. forseta sem
hafði reynt eftir mætti að rétta
hag síns ríkis og færa ti( betri veg-
ar eftir hið ógeðslega Wiet Nam
stríð ásamt Nixon hneykslinu (í
Wíet Nam sprengdi U.S.A.
„heiður ríkisins" út úr mannkyns-
sögunni.
Þar voru eftir vanalegt pólitískt
karp sett fram ýmis atriði af hálfu
R. Reagans í spurnarformi til
kjósenda, að ef tilgreindir mála-
flokkar sem helst höfðu farið
aflaga í þjóðýélaginu teldust að
mati þeirra yera í góðu lagi þá
kysu þeir Carter en ef þeir teldu
þá í ólagi þa kysu þeir sig.
Þetta gléyptu kjósendur þó
heimskulegt væri og á slíkum
trúðleik ýann hann að líkum
kosninguna og eftir tveggja ára
reynslu stendur fátt eftir af kosn-
ingaloforðum nema stórauknar
fjárveitingar til „stríðsvæðingar“
í einni af fyrstu ræðum nýkjör-
ins forseta voru ávarpsorð, laus-
lega þýdd: „Vér höfum fyllsta
rétt til að dreyma hetjudrauma".
Að draumum sínum eru að
sjálfsögðu allir menn frjálsir, en
þegar hetjudraumar koma fram í
verki á þann hátt sem stefna og/
eða ákvarðanir R. Reagans eru
þá er alvara á feröufn sem kemur
öllum íbúum þessa hnattar við,
mönnurn jafnt sem dýrum.
Þessa stefnu er ekki hægt að
flokka undir annað en skamm-
sýni í efnahagsmálum og skepnu-
skap í mannréttindamálum. Tek
sem dæmi aðstoð við slátrara-
stjórn í E1 Salvador ásamt beinni
og/eða óbeinni aðstoð við ýmsar
keimlíkar stjórnir í Mið- og
Suður-Ameríku. Slæmt er fyrr-
greint en „brjálæðið“ þó eftir. En
það er stríðsvæðing í hernaðar-
uppbyggingu sem dulbúin er með
svokallaðri varnarstefnu og föls-
uðum og upplognum sögum um
misvægi í vopnabúnaði milli hins
sósíalíska og kapítalska hluta
hnattarins. Hafa hernaðarsinnar
í þjónustu sinni mikinn grúa „tví-
fættra hunda" til að túlka þennan
málstað í hinuin svokölluðu
frjálsu fjölmiðlum víða um heim.
Er þar ekkert sparað að „ljúga
miklu og ljúga oft“ í trausti þess
að fáfræði sé nægjanlega mikil
hjá fjölmiðlaneytendum.