Þjóðviljinn - 11.03.1983, Qupperneq 8
8 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN Föstudanur 11. mars 1983
Heimsókn páfans til Mið-Ameríku vekur trúardeilur:
Boðberi frelsis eða
sendiboði dföfulsins?
Páfínn til sölu í El Salvador. Bæði stjórnvöld og framfarasinnuð öfl innan
kirkjunnar vildu eigna sér páfann og óljósan boðskap hans um frið og
sáttfýsi.
Á ferð sinni um Mið-
Ameríkuríkin hefur
Jóhannes Páll páíi
fordæmt það ofbeldi
sem ríkir í þessum
heimshluta með
almennu orðalagi, en
forðast að taka
afstöðu í viðkvæmum
deilumálum. Þó var
það talið
framfarasinnuðum
öílum innan
kirkjunnar í EI
Salvador til
framdráttar að hann
skyldi útnefna Arturo
Rivera y Damas til
erkibiskupsembættis í
E1 Salvador. Rivera
tekur þá formlega við
embætti Romeros
erkibiskups, sem
dauðasveitir
d’Aubbissons
þingforseta í E1
Salvador tóku af lífí
við messu fyrir þrem
árum.
Heimsókn páfans til Mið-
Ameríku hefur enn á ný vakið upp
spurninguna um samband
kaþólsku kirkjunnar við
ríkisvaldið, en sú gagnrýni hefur
orðið æ háværari, að náið samband
kirkju og ríkis hafi gert kirkjuna að
hugmyndafræðilegum og siðferði-
legum verði ríkisvalds sem tæpast
verði talið til fyrirmyndar í
kristilegu tiliiti. Á það ekki hvað
síst við í löndum eins og E1
Salvador, þar sem klofningur hefur
orðið innan kirkjunnar vegna slíks
ágreinings.
El Salvador
Við komu páfans tii El'Salvador
gerði ríkisstjórnin allt sem hún gat
til þess að notfæra sér heimsóknina
stefnu sinni til framdráttar.
Gífurleg áróðursherferð fylgdi
heimsókninni að sögn
fréttamanna, og gekk hún einna
helst út á friðar- og sáttavilja
stjórnarinnar, sem að sögn Mann-
réttindanefndar E1 Salvador hefur
framið 38.650 pólitísk morð á
síðustu 3 árum, látið 5000 manns
„hverfa“ og gert yfir 'L miljón af 5
miljónum íbúa landsins að
flóttafólki. Meðal annars hafa
dauðasveitir stjórnvalda morð á 17
kaþólskum prestum og 4
bandarískum nunnum á samvisku
sinni, auk morðsins á sjálfum
erkibiskupnum.
Við þessar aðstæður hafa margir
kaþólikkar talið að ástæða væri
fyrir kirkjuna til þess að hætta
samstarfi við það ríkisvaid sem
þannig hagar sér. Hins vegar hefur
sú skoðun verið ríkjandi innan efri
hluta valdapíramíða kirkjunnar í
E1 Salvador, að styðja bæri við
ríkisvaldið til hins ýtrasta.
Eftirmaður
Romeros
Hinn nýi eftirmaður Romeros
erkibiskups þykir hins vegar hafa
sýnt frjálslyndari afstöðu. Hann
sagði í fyrstu prédikun sinni eftir
embættistökuna, að hann myndi
fylgja fordæmi fyrirrennara sfns og
afhjúpa brot á mannréttindum í
landinu og berjast fyrir friði. Hann
sagðist jafnframt harma það að enn
á ný væri verið að auka við
bandaríska hernaðaraðstoð til E1
Salvador. Rivera y Damas
erkibiskup sagðist gera sér grein
fyrir áhættunni sem hann tæki, en
hann sagðist vilja hvetja til friðar
og afhjúpa misréttið, jafnvel þótt
hans kynni að bíða sömu örlög og
Romeros.
Um svipað leyti og Rivera y
Damas var vígður í embætti sitt
gerðist sá atburður að stjórnarher-
inn' gerði loftárásir á svæði
skæruliða í hlíðum eldfjallsins
Guazapa skammt fyrir utan
höfuðborgina. f sömu herferð var
gerð skotárás á almenningsvagn og
meðal þeirra föllnu var kaþólsk
nunna.
Nicaragua
Tvískinnungur kaþólsku kirkj-
unnar gagnvart ríkisvaldinu kemur
ekki síst fram í Nicaragua, þar sem
yfirbygging kirkjunnar hefur tekið
beina afstöðu gegn stjórn
Sandinista og boðað andóf gegn
henni. Byiting Sapdinista í
Nicaragua hefur hins vegar sótt
hugmyndir sínar ekki hvað síst í þá
kaþólsku guðfræði, serh kölluð
hefur verið guðfræði frelsisins. Sést
það best af því, að í ríkisstjórn
landsins eru tveir prestar.
Á biskuparáðstefnu kaþólsku
kirkjunnar sem haldin var í Mexíkó
1979 var gerð samþykkt sem
beindist ekki hvað síst gegn þessum
prestlærðu ráðherrum í Nicaragua.
Samkvæmt samþykktinni, sem
naut stuðnings páfans, áttu
kirkjunnar menn ekki að hafa leyfi
til að taka þátt í stjórnmálastarfi. í
framhaldi af þeirri samþykkt
skipaði páfinn hinum prestlærðu
ráðherrum í Nicaragua að velja á
milli prestskaparins eða
ríkisstjórnarinnar. Fengu þeir
Miguel d'Escotti utanríkisráðhera
og Ernesto Cardenal
menntamálaráðherra ársfrest til
þess að yfirgefa stöður sínar. Þeir
kusu hins vegar heldur að stafa
fyrir stjórn Sandinista og láta af
preststörfum á meðan þeir gegndu
embættum innan ríkisstjórnarinn-
ar.
Andstaða yfirstjórnar
kirkjunnar í Nicaragua gegn
stjórnvöldum hefur hlotið stuðning
páfa með sérstöku bréfi þar sem
hann m.a. fordæntir þá „kirkju
fólksins“ sem sprottið hefur upp í
Nicaragua í andstöðu við
háklerkavaldið, en þessi
kirkjuhreyfing sem nýtur stuðnings
meirihluta lágpresta í landinu, er
hluti þeirrar kaþólsku hreyfingar
sem breiðst hefur út um alla álfuna
og byggir á „guðfræði frelsisins" og
rétti hinna fátæku til að berjast
gegn misréttinu.
Trúboð
mótmœlenda
í Mið-Ameríku
Heimsókn páfans hefur einnig
oröið til þess að varpa ljósi á það
trúboð sem ýmsir sértrúarsöfnuðir
úr kirkju mótmælenda heyja nú
með mikilli ákefð í þessum
heimshluta. Hefur þeim einkum
orðið ágengt í Guatemala, en
einnig í E1 Salvador og Nicaragua
meðal meskító-indíánanna.
Söfnuðir þessi eru flestir
upprunnir í Bandaríkjunum og eru
angi af þeirri hreyfingu þar, sem
kennir sig við „Moral majority".
Hinn alræmdi harðstjóri í
Guatemala, Efrain Rios Montt
herforingi, sem vann það afrek að
taka 3000 bændur af lífi á fyrstu 60
dögunum sem hann var í embætti,
en einn hinna frelsuðu
mótmælenda í Mið-Ameríku, og
tilheyrir hann fríkirkjudeild sem
kallar sig „Kirkju orðsins". Montt,
sem komst til valda eftir valdarán í
mars s.l., er talinn hafa þegið
umboð sitt beint frá guði af
stuðningsmönnum sínum, og
útrýmingarherferðirnar á hendur
bændum í Guatemala eru því
gerðar í guðsnafni. í skýrslu sem
Alkirkjuráðið gaf út í júlí 1982
segir m.a. um stjórn Montts: „Sú
valdbeiting sem beitt er í Guatemala
við brottrekstur bœnda frá jörðum
sínum, að frumkvæði landeigenda
og stjórnarhersins hefur nú náð því
marki að kallast þjóðarmorð þar
sem þeir er eftir lifa svara með
tvenns konar sjálfsvörn: fjölda-
flótta og vaxandi þátttöku í vopn-
aðri andspyrnu(Úr skýrslu
flóttamannahjálpar Álkirkjuráðs-
ins.
Montt sýndi hug sinn til páfans
með því að hundsa beiðni hans um
náðun pólitískra fanga sem dærndir
höfðu verið til lífláts. Voru þeir
teknir af lífi skömmu fyrir komu
páfa til Guatemala.
Trúardeilur
á Guatemala
Þótt Mont sé mótmælandi. þá er
meirihluti þjóðar hans kaþólskur
eða stundar heiðin indíánatrúar-
brögð. Hins vegar hefur mótmæl-
endaprestum fjölgað mjög upp á
síðkastið í Guatemala samhliða því
að káþólskir prestar hafa mátt sæta
ofsóknum stjórnarinnar. Er talið
að trúboð „Kirkju orðsins" í
Guatemala sé kostað að miklu leyti
frá heimbyggð safnaðarins, sem er
í Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Eymdin í Mið-Ameríku hefur
skapað góðan' jarðveg fyrir slíka
ofsatrúarsöfnuði sem þessa, er
boða himneska sælu fyrir hina
jarðnesku kvöl og trúa á
endurkomu Krists. Fyrir söfnuðum
þessum er öll pólitísk starfsemi er
beindist gegn stjórnvöldum af hinu
illa, því fólk eigi að lifa í fyrirbæn,
auðmýkt og guðhræðslu.
Páfinn
sendiboði djöfulsins
Söfnuður sem kallar sig Elim-
kirkjuna og hefur náð talsverðri
fótfestu í E1 Salvador lýsti páfanum
sem sendiboða djöfulsins í tilefni
heimsóknar hans til landsins.
Söfnuður þessi starfar í
höfuðborginni og hefur um 5000
meðlimi.
Það er skoðun sumra að slíkir
fríkirkjusöfnuðir séu nú að taka við
af kaþólsku kirkjunni í þessum
heimshluta sem helstu verndarar
fasismans og valdstjórnarinnar.
Þannig standa málin að minnsta
kosti í Guatemala þessa stundina.
En fyrir Bandaríkjastjórn virðist
það vera sama, hvaðan gott kemur.
Stuðningur hennar við blóðugar
valdstjórnir í E1 Salvador og
Guatemala er nú aukinn með
hverjum mánuðinum. En barátta
fólksins til frelsis er líka óháð
trúnni: skæruliðar fátækra bænda í
E1 Salvador og Guatemala eflast í
baráttunni sinni með hverjum
deginum sem lfður.
- ólg. tók saman
Fiskadauði af völdum efnamenguna I ánni Rín, Fosfat og köfnunar
efnismengun í ferskvatni og sjó veldur súrefnisskorti og rotnun, og
dauða sjávardýra.
Þörungar
breyta
skolpi
í áburð
og orku
Sjávarlíffræðingar í Þýska-
landi hafa komist að því að hægt
er að hreinsa ólífræn
köfnunarefnis- og fosfatsambönd
úr skólpi og frárennslu og breyta
þeim í áburð eða orku með sjá-
varþörungum.
I blaðinu Die Welt var nýlega
skýrt frá því, að líffræðingar við
Kielarháskóla ynnu nú að til-
raunum með að blanda sjó og
grænþörungum úr Eystrasalti
saman við frárennslisskólp í sér-
stökum tönkum. í ljós kom að
þörungarnir átu á tiltölulega
skömmum tíma upp
köfnunarefnis- og fosfat-
sambönd, sem ekki hafði tekist
að hreinsa úr með öðrum hætti.
Þörungagróðurinn sem við
þetta myndast er síðan hægt að
nota sem áburð við jarðrækt, en
einnig er hægt að breyta honum í
lífrænar gastegundir með því að
nota gerjun með bakteríum. Er
talið að hægt sé aðnota metangas-
ið sem þannig myndast til þess
m.a. að hita upp gerjunartank-
ana og flýta þannig fyrir gas-
mynduninni.
Köfnunarefnis- og fosfatmeng-
un í ferskvatni og sjó er víða ál-
varlegt vandamál, sem orsakað
hefur ofvöxt þörunga, súrefnis-
skort'og dauða fiska og síðan
rotnun í veiðivötnum, ám og á
grunnsævi.
Vísindamennirnir telja að
einnig megi nota rauðþörunga í
þessum tilgangi. Með þeim hætti
væri hægt að vinna úr úrgangin-
um hlaup sem rauðþörungarnir
framleiða og nota er m.a. við
framleiðslu á tannkremi og prent-
svertu, en skortur er nú orðinn á
þesu hráefni á markaðnum að
sögn blaðsins.
Enn er þessi starfsemi á til-
raunastigi en talið er að hún verði
tekin í notkun í stærri stíl innan
skamms. - ólg.