Þjóðviljinn - 18.03.1983, Síða 5

Þjóðviljinn - 18.03.1983, Síða 5
Björn á Æskunni (krýpur á kné til vinstri á myndinni) og áhöfnin með gjafabréf SÁÁ, sem þeir samþykktu. Áhöfiún á Æskunni gefur í söfnun SÁÁ Fyrsti vinnustaður landsins, sem hefur tekið sig saman um að gefa í söfnun SÁÁ fyrir sjúkrastöðina nýju við Grafarvog, er áhöfn Æskunnar frá Höfn í Hornafirði. „Við gerum þetta fyrir æskuna með litlum eða stórum staf“, sögðu strákarnir á Æskunni, þegar þeir afhentu gjafabréfin allir sem einn fólki frá SÁÁ, sem var á kynning- arfundi á Höfn, en sem kunnugt er hafa kynningarhópar frá SÁÁ far- ið vítt um landið við góðar undir- tektir undanfarnar vikur. Björn Eymundsson, skipstjóri og útgerð- armaður Æskunnar viðraði þessa hugmynd við menn sína, sem allir tóku því þegar vel. Sá eini um borð, sem ekki samþykkti bréfið, var fjarstaddur þegar fólk frá SÁÁ bar að garði. (F réttatilky nning) Yfirlýsing E1 Salvador nefndarinnar Fordæmum þá sem þjálfa böðla í gær, miðvikudaginn 16. mars, bárust okkur hinar hörmulegu fréttir af morðinu á Marianellu Garica Villas. Hún naut virðingar um allan heim fyrir þrotlausa baráttu sína fyrir mannréttindum í E1 Salvador. En mannréttindi samrýmast ekki vilja og gerðum stjórnarinnar þar í landi. Marianella sjálf fékk að kenna á meðferð böðlanna á þegn- um E1 Salvador í fangelsi þar fyrir örfáum árum. Nú hafa þeir enn einu sinni sagt sitt, með þeim einu ráðum sem þeir kunna. Marianella var tekin af lífi á hinn ragmennskulegasta hátt. Við fordæmum þetta morð. Við fordæmum einnig allar þær ríkis- stjórnir og alla þá „þjóðhöfðingja" sem styðja slíka ríkisstjórn í orði eða verki. Við fordæmum alveg sérstaklega íhlutun Reagans og stjórnar hans í innanríkismál E1 Salvador, íhlutun, sem hefur gert leppstjórninni þar kleift að sitja enn við völd. Við fordæmum þá menn og þá stjórn, sem senda böðlunum eiturefni til að þurrka út andstæðinga kúgunarinnar. Við fordæmum þá sem þjálfa böðlana í að svívirða, pynta og myrða konur, karla, börn og gamalmenni. Við virðum starf Marianellu og mannréttindanefndarinnar til af- hjúpunar mannréttindabrota í E1 Salvador. Bandaríkin burt úr E1 Salvador! Styðjum baráttu alþýðu E1 Salv- ador fyrir frelsi og jafnrétti! 17. mars, 1983, EI Salvador-nefndin á íslandi Hallgrímskirkja: Verður vígð 1986? „Við gerum okkur góðar vonir um að við getum lokið smiði Hall- grímskirkju árið 1986 þannig að hægt verði að vígja hana á 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar“, sagði Hermann Þorsteinsson formaður byggingarnefndar á blaðamanna- fundi í gær. Hann sagði að hingað til hefði 60% af byggingarkostnaði komið frá söfnuði og vinum kirkj- unnar bæði hjá alþingi en 40% frá ríki og bæ, en nú væru góðar undir- tektir í borgarstjórn að taka meiri þátt í kostnaði svo að unnt yrði að Ijúka byggingunni árið 1986. Á blaðamannafundinum kom fram að hjá aðstandendum kirkj- unnar að mikill áhugi væri að gera hana að lifandi andlegri miðstöð og fá listamenn til liðs í sambandi við skreytingu kirkjunnar. Þá væru orgelkaup ekki lítill þáttur en hug- myndin væri sú að í hana kæmi fyrsta fullkomna konsertorgelið hér á landi. Hörður Áskelsson org- anisti kirkjunnar sagði að til væri á 7. hundrað þúsund krónur í orgel- sjóði en það væri aðeins um 7% af verði fullkomins 70 radda orgels því að það kostar nú um 12 milj. ísl. króna. Stærsta orgel sem nú er hér- lendis er í Akureyrarkirkju. Það er 43 radda. - GFf- Föstudagur 18. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Neyðarástand í símamálum í Hafnarfirði Engar símapantanir afgreiddar á árinu Yfir 100 umsóknir liggja fyrir en við getum ekkert gert, segir Gunnar Einarsson simstöðvarstjóri „Það er rétt, hér er búið að vera nokkuð lengi algert neyðarástand í símamálum, og vandinn ágerist því lengra sem um líður“, sagði Gunn- ar Einarsson stöðvarstjóri Pósts og síma í Hafnarfirði í samtali við Þjóðviljann. Yfir 100 umsóknir liggja fyrir óafgreiddar um síma í Hafnarfirði og sagði Gunnar að miðað við stöðu mála væri ólíklegt að hægt yrði að tengja nýjar línur á þessu ári. Þá bíða yfir 30 manns eftir flutningi á síma en lítið er hægt að gera, þar sem símstöðin er orðin kolsprungin. „Það streyma inn umsóknir um síma og flutning en við getum lítið gert, höfum t.d. aðeins getað flutt tvo síma það sem af er þessum mánuði. Það má reikna með að þetta ástand vari fram á næsta ár“. Ástæðan fyrir þessu er sú að sögn stöðvarstjórans að símstöðin er orðin alltof lítil fyrir löngu, Ennþá hefur engin ákvörðun verið tekin um að skipta alveg um stöð, sem er það eina sem hægt er að gera og á meðan varir þetta ástand. Gunnar sagði að ástandið væri býsna alvarlegt og stofnunin tapaði miklum tekjum á því að geta ekki „Við reynum að leysa þetta sem best við getum. Það er von á tækja- búnaði að utan sem hægt er að setja upp til bráðabirgða þar til varanleg úrlausn fæst, en í þessu tilviki er það auðvitað spurning um forgang sem ræður. Það er líka býsna slæmt ástand hér í Reykjavík t.d. í gamla mið- sinnt óskum bæjarbúa, auk þess sem hann sagðist hafa heyrt að fólk væri ekki áfjáð að flytja til Hafnar- fjarðar meðan þetta ástand varaði. „Starfsemin er eiginlega hálf- lömuð og við höfum t.d. þurft að vísa frá öllum óskum stjórnmála- flokkanna um kosningasíma hér í bænum. Það eru engar línur til“, sagði símstöðvarstjórinn. -Ig- bænum“, sagði Jón Skúlason póst- og símamálastjóri, aðspurður um ástandið í símamálum Hafn- firðinga. Jón sagði að fyrir lægju tillögur um endurbætur á símstöðinni í Hafnarfirði, en þær hefðu enn sem komið er orðið að sitja á hakanum, þar sem takmarkað fjármagn væri til skiptanna sem og alltaf. Póst- og símamálastjóri Reynum að leysa þetta Landbúnaðar- ráðstefna Alþýðubandalagsins verður haldin á Hótel Varðborg, Akureyri 18. og 19. mars. Dagskrá: Föstudagur 18. mars kl. 20:30 1. Setning: Svavar Gestsson. 2. Skipulagning framleiðslu, landnýting og heimaöflun og nýjar búgreinar. Fram- sögumenn: Jón Viöar Jónmundsson kenn- ari, Þórarinn Lárusson ráðunautur og Jón Árnason ráðunautur. 3. Verðmyndunarkerfi landbúnaðarins. Framsögumaður: Ríkard Brynjólfsson kennari. 4. Úrvinnsla - iðnaður - markaður. Fram- sögumaður: Guðrún Hallgrímsdóttir, og full- trúar Iðnaðardeildar SÍS og Kaupfélags Svalbarðseyrar. 5. Almennar umræður. Laugardagur 19. mars kl. 9:30 1. Viðhorf neytenda til landbúnaðarins. Framsögumaður: Jóhannes Gunnarsson varaformaður Neytendasamtakanna. 2. Stefnumörkun Alþýðubandalagsins í landbúnaðarmálum. Framsögumaður Helgi Seljan alþingismaður. 3. Almennar umræður. 4. Hópstarf - afgreiðsla mála - ráðstefnu- slit. Ráðstefnustjóri: Steingrímur J. Sigfússon. Jóhannes Helgi Gunnarsson Seljan í Jón Vlóar Guðrún ' Jónmundsson Hallgrimsdóttir Svavar Rikharð Gestsson Brynjólfsson Þórarinn Stelngrfmur J. Lárusson Sigfússon Jón Árnason FERÐIR Flogið verður frá Reykjavík kl. 16.00 þann 18. mars og frá Akureyri kl. 20.00 sunnudaginn 20.mars. Allar nánari uppiýsingar eru gefnar á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Hverfisgötu 105. Sími 17500. Þátt- tökutilkynningar þurfa einnig að berast þangað sem fyrst.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.