Þjóðviljinn - 21.04.1983, Blaðsíða 1
MQÐVIUINN
Ijleðilegt
sumar
apríl 1983
fimmtudagur
86. tölublað
48. árgangur
Þitt atkvæði getur ráðið úrslitum
Fleiri og fleiri til liðs
yið Alþýðubandalagið
Gunnar segir af sér að líkindum
eftir helgina.
Kjósendur geta stöðvað
hægriöflin strax á laugardag
- Ljóst er að aðvörunarorð okkar að undanförnu um hættu til hægri hafa hitt í
mark, sagði Svavar Gestsson í gær í viðtali um kosningabaráttuna. Hann segir
ennfremur að eftir yfirlýsingar Steingríms og Pálma bendi flest til þess að
ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen fari frá strax eftir helgina. í næstu viku megi því
gera ráð fyrir að tilraunir hefjist til nýrrar stjórnarmyndunar og þá ræður
útkoma kosninganna úrslitum mála. Hvert atkvæði greitt Alþýðubandalaginu er
atkvæði gegn hægriöflunum og krafa um þjóðleg viðhorf og félagsleg sjónarmið
við stjórn landsins.
Sjá~3
Reynir Geir að mynda ríkisstjórn?
Ólafur Ragnar Grímsson flytur mál sitt og kynnir samstarfsgrundvöll Alþýðubandalagsins á fundi í Borgar-
túni 7, þar sem nokkrar opinberar stofnanir hafa matstofu sína. Ljósm. eik.
Sigur G-listans
í Reykjavík tryggir
Olaf Ragnar á þing
Kosningabaráttan hefur sjaldan verið eins hörð í
Reykjavík og nú, og hefur hún ekki síst átt sér stað á
vinnustöðum. í Reykjavík stefnir G-Iistinn að því að fá
fjóra menn kjörna, en það verður harðsótt m.a. vegna
fleiri framboða nú en áður.
í fjórða sæti G-listans í Reykja- J. Guðmundsson formaður VMSÍ
vík er Ólafur Ragnar Grímsson, sagði á kosningafundi G-listans í
einn skeleggasti þingmaður sósíal- Háskólabíói að það yrði mikill
ista, og einn ötulasti liðsmaður her- fögnuður í bandaríska sendiráðinu
stöðvaandstæðinga. Guðmundur ef Ólafur Ragnar næði ekki kjöri á
laugardaginn og síst væri ástæða til
að efna í fagnaðarveislu fyrir
NATÓ-öflin. Frambjóðendur G-
listans í Reykjavík hafa heimsótt
mikinn fjölda vinnustaða og 4.
maður listans hefur komið á annað
hundrað vinnustaði í þessari kosn-
ingalotu. Skelegg kosningabarátta
Ólafs Ragnars hefur vakið athygli
og sigur G-listansá laugardaginn
getur tryggt honum og Alþýðu-
bandalaginu verðugt þingsæti.
- ekh
Dagblað í Sviss:
Alusuisse
vonast eftir
hagstœðari
ríkisstjórn!
Geir vill gera stækkun álversins
að skilyrði, en nefnir ekki
hækkun raforkuverðsins
í Ziirich í Sviss þar sem aðalbæk-
istöðvar Alusuisse eru bíða for-
stjórar auðhringsins óþreyjufullir
eftir kosningaúrslitum á Islandi.
Dagblaðið Tribune de Lausannc
birtir í dag frétt þar sem fram kem-
ur að Alusuisse vænti þess að við
hagstæðari ríkisstjórn verði að etja
eftir kosningar heldur cn þá sem nú
cr að fara frá.
Blaðamaðurinn Bernard Bridell
skrifar grein þar sem m.a. greinir
frá mismun á orkuverði til almenn-
ings á íslandi og til ÍSAL. Þar segir
hann frá því tiltæki Nýrra sjónar-
miða að efna til söfnunar til þess að
rétta við bágan fjárhag Alusuisse
og gefur upplýsingar um árangur
hennar.
Bridell kveðst einnig hafa haft
samband við aðalstöðvar Alusuisse
í Ziirich og þar hafi sér verið tjáð
að Alusuisse hafi ekki haft afskipti
af kosningabaráttunni á íslandi, en
að sjálfsögðu sé þess vænst í Ziirich
að stjórnarskipti eftir kosningar
muni reynast Alusuisse hagstæð.
Þá sé hægt að hefja samninga-
viðræður að nýju.
Og það er ekki að ófyrirsynju. í
ræðu Geirs Hallgrímssonar á ísa-
firði sagði hann orðrétt:
„Eg tel að það sé alger nauðsyn
af hálfu okkar Sjálfstæðismanna og
skilyrði að kosningum loknum að
nýrri ríkisstjórn að sú stjórn gangi
hreint til verks, leysi t.d. deilumál-
in við Svisslendingana og semji um
stækkun álversins í Straumsvík...“
Hugsið ykkur samningsstöðu
nýrrar stjórnar sem fyrirfram setur
stækkun álversins sem skilyrði, -
hvað þarf hún að lúta lágu raforku-
verði frá Alusuisse til þess að fá
fram stækkun, sem er áhugamál
Svisslendinga, en er einnig orðið
úrslitaatriði hjá formanni Sjálf-
stæðisflokksins. Hér er svo sannar-.
lega verið að undirbúa það að
semja af sér í þriðja sinn. ekh
Flokksmiðstöðin í dag
Guðrún í opnu húsi
Opið hús verður í Flokksmiðstöð Alþýðubanda-
lagsins að Grettisgötu 3 kl. 15 í dag, sumardaginn
fyrsta. Guðrún Helgadóttir alþm., 3. maður G-
listans í Reykjavík, ávarpar gesti og kosninga-
starfsmenn. Kolbeinn Bjarnason leikur á flautu.
Flokksmiðstöðin nýja er að Hverfisgötu 105.