Þjóðviljinn - 21.04.1983, Blaðsíða 17
\
Fimmtudagur 21. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
Kristján Gíslason
„Álútir skulu menn ganga....“
Undirritaður hafði ekki hugsað
sér að leggja orð í hinn mikla belg
kosningaumræðunnar, enda ærið
margir til þess kallaðir.
En meðferð eins málefnis hefur
smám saman haft þau áhrif á mig,
að ég get ekki með góðri samvisku
orða bundist. Á ég hér við „álmál-
ið“ svonefnda. Að mínu áliti er
þetta örlagaríka stórmál ekki í
þeim brennidepli sem það
verðskuldaði að vera í kosninga-
slagnum. Eftir mínum skilningi
hefur þróun þessa máls að undan-
förnu leitt í ljós þvílíkar andstæður
í viðhorfum og vinnubrögðum ein-
staklinga og flokkaforustu - slíka
gjá milli heiðarlegra, vandaðra
vinnubragða annars vegar og
ábyrgðarleysis og óheilinda hins
vegar, að með fádæmum sé.
Eg hef eins og hver annar áhorf-
andi fylgst með störfum núverandi
ríkisstjórnar að svo miklu leyti sem
þau hafa verið í sjónmáli. Ef frá er
talinn hringdans eða hringavitleysa
vísitölu og óðaverðbólgu, hefur að
mínu viti margt verið vel gert á
stjórnartímabilinu, en um það ætla
ég ekki að fjölyrða - að undan-
skildu „álmálinu" og störfum
iðnaðarráðherra almennt.
Það hefur varla farið fram hjá
fólki, að Hjörleifur Guttormsson
hefur að undanförnu légið undir
þyngri og illvígari ásökunum og
persónulegu níði en algengt er á
stormasömum vettvangi stjórn-
málanna; flest er þetta tengt af-
skiptum hans af „álmálinu".
Mér er hins vegar engin launung
á því að ég tel iðnaðarráðherra
hafa unnið störf sín af slíkri sam-
viskusemi, hyggindum og dugnaði.
Kristján Gíslason: Einstaklingar og
flokkar andstæðir ríkisstjórninni
ákváðu að koma í veg fyrir að Hjör-
leifur Guttormsson ynni þann sigur
í álmálinu sem efni stóðu til.
að til fyrirmyndar megi telja.
Virðist mér hlutur hans í „álmál-
inu“ hafa einkennst af þessu öllu,
að ógleymdri háttvísri dirfsku og
reisn, sem því miður hefur ekki
verið áberandi einkenni í samskipt-
um okkar manna við erlenda aðila
yfirleitt. Fyrir frammistöðu sína í
iðnaðarráðuneytinu - og „álmál-
inu“ sérstaklega - á því-Hjörleifur
Guttormsson virðingu mína og
þakklæti.
En Hjörleifi tókst ekki að semja
við álhringinn.
A
Kjörfundur
í Kópavogi
Kjörfundur vegna alþingiskosninganna
laugardaginn 23. apríl 1983 hefst kl. 9.00 og
lýkur kl. 23.00. Kjörstaðir verða tveir; í Kárs-
nesskóla fyrir kjósendur sem samkvæmt
kjörskrá eru búsettir vestan Hafnarfjarðar-
vegar, og í Víghólaskóla fyrir kjósendur sem
samkvæmt kjörskrá eru búsettir austan
Hafnarfjarðarvegar.
Aðsetur kjörstjórnar verður í Víghólaskóla.
Vakin er athygli á því að kjörstjórn getur kraf-
ist þess að kjósandi sanni hver hann er með
því að framvísa nafnskírteini eða á annan
fullnægjandi hátt.
Kjörstjórnin í Kópavogi
Bjarni P. Jónasson
Ingólfur Hjartarson
Snorri Karlsson
Hvað olli?
Ekki skorti réttan málstað, hald-
bær rök né örugga málafylgju.
Nei, annað köm til:
Einstaklingar og flokkar and-
stæðir ríkisstjórninni, (og
iðnaðarráðherra sérstaklega,) á-
kváðu að koma t' veg fyrir að þessi
ríkisstjórn, að Hjörleifur Gutt-
ormsson ynni þann stóra sigur í
málinu, sem efni stóðu til. I stað
þessaðstyðjaviðbakið áiðnaðar-
ráðherra í samningunum við ál-
hringinn tóku ráðamenn stjórnar-
andstöðuarms Sjálfstæðisflokksins
sér stöðu með mótaðilanum -
gerðu honum beint og óbeint ljóst
að hann þyrfti ekki að semja - og
að ekki væri til þess ætlast að hann
semdi við þessa ríkisstjórn og allra
síst við Hjörleif Guttormsson.
Eftir þetta var samningsaðstaða
iðnaðarráðherra vitaskuld von-
laus. Svona einfalt var þetta.
Þetta er einhver ljótasti leikur
sem ég minnist að hafa séð á tafl-
borði stjórnmálanna og hefur þó
sitthvað borið fyrir augu á langri
leið.
En tilbrigði leiksins birtust í hin-
um fjölbreytilegustu ásökunum,
rógi og níði á hendur Hjörleifi -
einn daginn fyrir tilteknar athafnir
- annan daginn fyrir athafnaleysi.
Samt voru stærstu ávirðingarnar
augljóslega fólgnar í því að sýna
fulla einurð og festu í skiptunum
við álhringinn - eins og málefnaleg
staða, þjóðarhagsmunir og em-
bættisskylda bauð- íþví aðstanda
uppréttur andspænis hinum er-
lendu peningafurstum. Þetta var
dauðasyndin. - „álútir skulu menn
ganga og hoknir í hjnánum!" -
stendur þar.
Margir munu skilgreina háttsemi
foringja Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokks sem glórulaust of-
stæki stjórnarandstöðu, sem
hvorki getur unnt pólitískum ands-
tæðingi að ná árangri, né látið hann
njótá sannmælis í smáu eða stóru.
Hins vegar gæti ég trúað að það
vefðist fyrir ýmsum að skýra af-
stöðu framsóknarmanna undir lok-
in og hlutdeild þeirra í lúalegri að-
för að iðnaðarráðherra. Hvað sem
því líður hafa þeir nú verið staðnir
að þátttöku í skemmdarverkum
gegn íslenskum hagsmunum og
ódrengilegri framkomu gagnvart
samstarfsmanni í ríkisstjórn.
Menn greinir á um æskilegan
þátt erlendar stóriðju í íslensku
efnahags- og atvinnulífi. Slíkur á-
greiningur á sér ýmsar eðlilegar
forsendur og engin ástæða til að
amast við málefnalegum skoðana-
skiptum um þau efni fremur en
önnur álitamál, svo lengi sem ís-
lenskir hagsmunir eru hafðir að
leiðarljósi.
En hvort sem hlutur slíkrar stór-
iðju verður meiri eða minni hlýtur
það jafnan að skipta afar miklu
máli, að þeir menn, sem mæta er-
lendum viðsemjendum fyrir okkar
hönd, telji sig ekki þurfa að ganga
til slíkra funda „álútir og hoknir í
hnjánutn", heldur hafi þeir kjark
og aðra burði til að standa upprétt-
ir - eins og Hjörleifur Guttormsson
hefur gefið fordæmi fyrir í skiptum
sínum við herramennina í Sviss.
18. 4 1983
Kristján Gíslason
Verum saman —
tölum saman —
gleöjumst saman.
Kjósendur og
stuðningsfólk
Kvennalistans
Opiö hús á kjördag 23. apríl aö Hverfisgötu
50 3. hæö, frá kl. 9 f.h.
Rjúkandi kaffi á könnunni, gosdrykkir og ný-
bökuö brauð og kökur.
Kvennalistinn í Reykjavík
símar 13725, 24430 og 17730.
Gleffilegt
sumar
„Síðasti snjórinn“ vildi Ijósmynd-
arinn okkar að þessi mynd héti en
hún var tekin í gær í Reykjavík í
tilefni sumarkomu. Þjóðviljinn
óskar lesendum sínum gleðilegs
sumars! Ljósm. Atli.
Kvennalisti á Háskólabíósfundi
„Hagsýni” í heri
DV birti í gær spurningu og svar
Guðrúnar Agnarsdóttur við henni
um það hvernig kvennalistinn
myndi bregðast við á þingi ef tillaga
um brottför hersins eða úrsögn úr
Nató kæmi fram á alþingi.
Svar Guðrúnar fer hér á eftir:
„Ég held að það sé alveg Ijóst að
við erum dvergur á milli tveggja
risa, við erum smáþjóð meðal ann-
arra þjóða, sem við erum í sam-
böndunt við. Áður en ákvörðun er
tekin um þetta mál þá verður að
spyrja spurninga eins og þessarar:
að hve miklu léyti er efnahagur ís-
lands háður veru þessa hers sem
hér er? Hvað með fiskimarkaðinn
okkar í Bandaríkjunum, hvað með
lánstraust, erum við í rauninni
efnahagslega sjálfstæð þjóð? Síðan
skulum við svara spurningunni,"
svarar Guðrún Agnarsdóttir."
Stefnubreyting hjá Framsókn
Herinn og Nato
„Við höfum hér útlent herlið,
sem ekki er fyrirsjáanlegt að hverfi
héðan í bráð. Það er hér af því að
við höfum skipað okkur í sveit með
ýmsum þjóðum öðrum á Vestur-
löndum sem búa við lýðfrelsi og al-
menna velmegun og vilja fá að gera
það áfram. Við getum því ekki
skotið okkur undan því að leggja
okkar af mörkum til þess þótt
auðvitað sé illt að þurfa að hafa hér
erlent herlið“, segir Helgi H. Jóns-
son frambjóðandi Framsóknar-
flokksins í Reykjaneskjördæmi í DV
í gær. Hér er um að ræða stefnu-
breytingu hjá Framsóknar-
mönnum, því hingað til hafa þeir
litið á herinn og Nató sem óskylda
þætti. Einmitt þcss vegna hefur
Framsóknarflokkurinn á sumum
tímabilum getað rökstutt að herinn
eigi að fara brott, þótt þcir séu
áfram hlynntir aðild að hernaðar-
bandalaginu. En nú kveður við
annan tón.
— óg
Jón Þorsteinsson fyrrv. alþm. krata
Samstjórn með íhaldi
Ekkert lát cr á yflrlýsingum Al-
þýðuflokksmanna um nýja
viðrcisnarstjórn með Sjálfstæðis-
flokknum. Jón Þorsteinsson skrifar
í fyrradag grein í Alþýðublaðið
segir þar m.a.: „Að vandlega at-
huguðu máli sé ég ekki að það
bjóðist betri leið en ný viðreisnar-
stjórn, það er að segja samstjórn
Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins, en forsenda hennar er að
sjálfsögðu að þessir tveir flokkar
fái samanlagt kjörna að minnsta
kosti 32 þingmenn“. Einsog kunn-
ugt er ber kosningastefnuskrá Al-
þýðuflokksins hcitið: „Betri leiðir
bjóðast“.
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og systir
Þorbjörg Friöriksdóttir
hjúkrunarkennari
Stigahlíö 37
verður jarösungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 22. apríl kl.
15.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabba-
meinsfélags íslands.
Sigurður Kr. Árnason
Sigurður Páll Sigurðss. Þórhallur Sigurðss.
Arni Þór Sigurðsson Steinar Sigurðsson
Friðrik Sigurðsson Margrét H. Eydal
Ásta Friðriksdóttir