Þjóðviljinn - 21.04.1983, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 21.04.1983, Qupperneq 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21. aprfl 1983 UOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfuiélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Úlafsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gislason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. Iþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Helga Garðarsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir. Húsmóðir: Bergljót Guöjónsdóttir. Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, simi 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent h.f. Iskaldir hœgri vindar • Sumarkoman er kuldaleg, og þótt kunni að bregða til betri tíðar fyrr en varir, má búast við pólitískum harðindum. Hvernig sem blessaðri sólinni þóknast að skína á fólk og jarðargróður í sumar, þá bendir margt til þess, að ískaldir hægri vindar muni næða í stjórnmálum og skjóllítið verði fyrir þá sem ekki hafa búið þeim mun betur um sig í þjóðfélaginu. • Þeir sem efast hafa um viðvaranir Þjóðviljans þurfa ekki að velkjast lengur í vafa eftir sjónvarpsþáttinn í fyrrakvöld, þar sem hin nýja afturhaldsstjórn var boðuð með nokkrum tilbrigðum. Það var átakanlegt að horfa upp á endurtekningu á síðasta sjónvarpsþættin- um fyrir borgarstjórnarkosningar 1982. Ólafur Jóhann- esson biðlaði til Sjálfstæðisflokksins og bauð„sterka stjórn“ og meiri hernaðarframkvæmdir. Jón Baldvin Hannibalsson útilokaði samstarf við alla flokka nema Sjálfstæðisflokkinn, og mændi vonaraugum til Alberts Guðmundssonar í þeirri trú að Sjálfstæðisflokkurinn muni lána Alþýðuflokknum atkvæði til þess að tolla á þingi sem íhaldshækja. • En alveg eins og í borgarstjórnarkosningunum vísaði Albert Guðmundsson bónorðum á bug og bað þjóðina um meirihluta til handa Sjálfstæðisflokknum. íhaldið er búið að taka út kosningasigur sinn. Það stefnir á meirihluta, en náist hann ekki bítast Framsóknarflokk- ur og Alþýðuflokkur um að koma til hjálpar. Og sam- kvæmt yfirlýsingum Friðriks Sophussonar varafor- manns Sjálfstæðisflokksins verða þeir að „gangast undir stefnu“ íhaldsins eigi þeim að hlotnast sú náð að verða hækja undir ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar. Það á semsagt að reka hreinræktaða íhalds- og leiftur- sóknarstefnu eftir kosningar hvort sem íhaldið gerir það eitt eða í félagi við milliflokkana. • Þegar hægri öflin læsa saman klónum með þessum hætti er Alþýðubandalagið eina andsvarið, eina mót- vægið og eina sóknaraflið gegn íhaldinu. Aðeins með því að veita Alþýðubandalaginu styrk til afskipta af stjórnarmyndun, eða öflugrar stjórnarandstöðu verður hægt að verja íslenskan málstað í álmáli og hermáli og verja ísland gegn atvinnuleysi sem stefnu í efnahags- málurn. - ekh Alusuisse bíður og vonar • Kosningaúrslitanna er beðið með eftirvæntingu hjá Alusuisse, sem vonast eftir hagstæðari ríkisstjórn eftir kosningar samkvæmt frétt svissnesks blaðs. Fær Hjör- leifur Guttormsson og Alþýðubandalagið styrk til þess að standa á íslenskum málstað gagnvart Alusuisse og hækka raforkuverðið, eða fá íhaldið og milliflokkarnir stuðning til þess að semja af sér í þriðja sinn? Látum forstjórum auðhringavaldsins í Sviss ekki verða að ósk sinni. Kjósum G-listann á laugardaginn og gerum vonir þeirra um undanslátt í álmálinu að engu. - ekh Siðbót verður siðleysi • Sjónvarpsþátturinn í fyrrakvöld var gagnlegur að því leyti að rækilega var flett ofan af hugmyndum Vilmund- ar Gylfasonar um valddreifingu og þjóðkjörinn ríkis- stjóra. Bent var á það að óhjákvæmileg niðurstaða af tillögum hans, ef þær kæmust í framkvæmd, yrði sam- þjöppun valds til embættismanna. Framkvæmdastofn- un í hverju kjördæmi væri tiltæki sem fljótlega fengi á sig svipað orð og Framkvæmdastofnun nú. Og það var einnig bent á að mun minni spilling væri á Norðurlönd- um sem búa við þingræðisskipulag heldur en í Banda- ríkjunum, þar sem löggjafarvald og framkvæmdavald er vissulega aðskilið, en atkvæði þingmanna ganga op- inskátt kaupum og sölum. Hvern skyldi hafa grunað að Vilmundur Gylfason teldi það sitt höfuðverkefni í sið- bót íslenskra stjórnmála að gera alla islenska þingmenn eins og Eggert Haukdal? - ekh klippt 60 Haukdœlar í sjónvarpskynningunni í fyrra- kvöld varð greinileg niðurstaða um stjórnbót Vilmundarmanna, að myndi leiða til enn meiri spil- lingar og hrossakaupa. Það er ekki fýsilegt fyrir þjóðina að eiga von á 60 eintökum af Eggert Haukdal á alþingi, sagði Ólafur Ragnar. Það var vonum seinna, að bent væri á það í sjónvarpi hvernig háttar í því landi sem næst kemst í stjórnarfari því fyrirkomulagi sem Vilmundur vill koma á í landinu. Bentu þeir nafnar Jó- hannesson og Ragnar Grímsson á, að í Bandaríkjunum væri þetta fyrirkomulag Vilmundar í raun. Þurfa þeir sem eru í vafa um stjórnbótina ekki annað en líta til guðs eigins lands. Við höfum aldrei svikið Stór, sterkur, björt framtíð, sagði Albert Guðmundsson og bað kjósendur að gefa Sjálfstæð- isflokknum 48 mánuði til að stjórna landinu. Það er ekki beð- ið um mikið, enda sagði Albert að þetta væri skammur tími í sögu þjóðar. En hann gat ekki um það hversu afdrifaríkur sá tími gæti orðið. Hitt vakti og meiri athygli hversu samstíga þeir voru Ólafur Jóhannesson og Albert Guð- mundsson. Greinilegt var á þætt- inum að tilbrigði númer eitt við eins flokks stjórn Sjálfstæðis- flokksins er samstjórn Framsókn- ar og Sjálfstæðisflokks. Féllu mörg hlýleg orð frá talsmönnum þessara flokka í garð hvors ann- ars. Af því varð ekki veruleg skemmtun fyrr en Ólafur sagði: Við Albert höfum aldrei svikið. Liúa íhaldið Litla íhaldið, efsti maður A- listans við komandi kosningar lét vaða á súðum gegn Alþýðu- bandalaginu og Framsókn. Taldi Jón Baldvin upp allra handa á- virðingar á gömlu flokkana - nema Sjálfstæðisflokkinn. Itrek- aði hann í anda fyrri yfirlýsinga nauðsyn á nýrri viðreisnarstjórn. Tilbrigði númer tvö við eins flokks stjórn Sjálfstæðisflokksins náði aldrei að verða umfjöllunar- efni í þættinum, enda trúlegt að talsmenn hinna flokkanna hafi ekki viljað spandera selahlaðinu á gæs. Beitti skólameistarinn fyrrverandi útilokunaraðferðinni og sagði að það ætti að gefa Fram- sókn frí, Alþýðubandalagið ætti að fara í endurhæfingu og við Vil- mundarflokk og kvennalista þýddi ekkert að tala. Síðan ætti að mynda sterka viðreisnarstjórn. Þessar yfirlýs- ingar virtust fara framhjá Albert, nema að hann hafi talið á- stæðulaust að endurtaka við- brögð sín frá „einvígisfundi“ þeirra í Sigtúni á dögunum. Og svo hitt að hann hafi talið að allir sjónvarpsáhorfendur hafi verið á þeim fundi - og miðað þá við töl- fræðilegar upplýsingar Alþýðu- blaðsins um fundarsókn. Kvennalisti aronskur? Það var einsog fyrri daginn hjá talsmanni samtaka um kvenna- lista, að erfitt var að henda reiður á því hver afstaðan á að verða til pólítíkurinnar. Þó bar nýrra við í röksemda- flutningi fyrir því, hvers vegna herinn ætti að fá að vera um kyrrt í landinu að þeirra mati. Ein ástæðan væri nefnilega sú, að mörkuðum íslendinga erlendis gæti verið stefnt í hættu! Þetta sjónarmið kom fyrst fram á fundi DV í Háskólabíó á dögunum, og var áréttað í þe'ssum sjónvarps- þætti. -óg Metal Bulletin Published Tuesdays and Fridays Alusuisse- söfnunin vekur athygli Þegar fjallað er um málefni málmiðnaðar um víða veröld er oft vitnað til tímaritsins Metal Bulletin. Eins og vænta mátti hef- ur það virta og ábyrga tímarit tekið eftir þeim tíðindum, að upp hafa risið á íslandi samtök, Ný sjónarmið, sem hafa gengist fyrir söfnun fjár til Alusuisse. í dálki blaðsins Hotline, þar sem sagðar eru fregnir af ýmsuni fyrirtækjum, er getið um söfriun þessa þann tólfta apríl. Þar segir m.a.: „Það er alkunna að stórfyrir- tæki í áliðnaði hafa orðið fyrir miklum skakkaföilum í krepp- unni, en samt kemur það á óvart að komast að því að einu þeirra hefur verið lyft í stöðu styrkþega góðgerðarstarfsenri. Svo virðist sem Alusuisse hafi vakið samúð íslensku þjóðarinnar, sem hefur í formi nefndar fjórtán háskóla- manna og annarra menntamanna ýtt af stað stöfnunarherferðinni „Hjálpum Alusuisse". Hvetur nefndin til að almenningur leggi fram fjárgjafir til að hjálpa fyrir- tækinu yfir fjárhagslega erfið- leika þess...“ Þeir verða glaðir Þann fimmtánda apríl er þetta mál svo aftur á dagskrá í Hotline í Metal Bulletin. Þar segir: „Fyrirsvarsmenn Alusuisse verða án efa glaðir að frétta að í miðri þessari viku hefur her- ferðin „Hjálpum Alusuisse", sem hafin var fyrir skemmstu á ís- landi, safnað alls um 2400 ís- lenskum krónum - en það svarar til um 120 dollara. Sjóður þessi er samt enn opinn frekari fram- lögum og peningarnir verða þeg- ar þar að kemur afhentir Sviss- lendingum formlega...“ - áb

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.