Þjóðviljinn - 21.04.1983, Page 8

Þjóðviljinn - 21.04.1983, Page 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21. aprfl 1983 Byrjaö að taka á móti pöntimum á kjördag Geir Gunnarsson efsti maður G-listans á Reykjanesi:_ íhaldið gæti unn- ið okkar þingsæti Ungir sem gamlir tóku þátt í öllum samkomum hópanna að Laugarvatni. ef vinstri menn kasta atkvæði sínu á smáframboðin Rokk gegn kreppu og atvinnu- leysi í Sigtúni á mörgun Þeir eru margvíslegir gestirnir í morgunkalTinu á Hótel Borg þenn- an morguninn, a.m.k. á ytra borðinu: við citt borðið ráðuneytis- stjórar, annað alþingismenn, það þriðja rokkarar og poppskríbent- ar. Ekki er vitað hvort tilefnið er annað en kaffisopinn á fyrsta og öðru borði. Á því þriðja er hann líka vel þeginn og gerð góð skil þótt þeim hópi þyki sjaldan tímabært að fara á kaffihús kl. 10 á morgnana. En nú, síðasta vetrardag, er það ekki bara tímabært, frekar að það sé að verða um scinan, því að tilefni kafiidrykkjunnar er blaðamanna- fundur til að kynna rokkhljómleika sem haldnir verða í Sigtúni annað kvöld (föstudag) - GEGN KREPPU og ATVINNULEYSI, KJARN- ORKU og EASISMA. Oft var þörf, en nú er nauðsyn: kosningar á laugardaginn og skoðanakannanir spá íhaldinu gífurlcgri fylgis- aukningu. Rokkhljómleikarnir í Sigtúni hefjast kl. 10 á föstudgskvöldið og standa til kl. 3 eftirmiðnætti. Fram koma Egó, sem mun líklega hefja hljómleikana, Tappi tíkarrass, iss!, Baðverðirnir (Gunnþór í Q4U o.fl., en eitt laga þeirra heitir því pólitíska nafni Það er kúkur í lauginni), Bylur, Vonbrigði, Vinstra rokk, Puppets og Ragn- hildur Gísladóttir kemur fram. Á blaðamannafundinum kom m.a. fram, að oft hefur verið talað um að pönkararnir hér hefðu enga, eða a.m.k. sáralitla ástæðu til að vera að kvarta undan kerfinu miðað við „kóllega" sína í Bret- landi, þár sem þeir, eins og lág- launafólk og atvinnuleysingjar- og reyndar almenningur nema þeir vel stæðu -, hafa heldur betur fengið að finna fyrir kreppu og atvinnu- leysi undir íhaldsstjórn. Nú eru hins vegar teikn á lofti um að sömu öfl með sömu stefnu Sumarfrí og samvera á vegum Alþýðubandalagsins „Ef smáframboðum hér í þessu kjördæmi tekst að tæla til sín vinstra íylgið frá Alþýðubandalaginu er hættan augljóslega sú að Sjálf- stæðisflokknum takist það ætlun- arverk sitt að vinna manninn af G- listanum. Það er því meiri nauðsyn en nokkru sinni fyrr að vinstri menn fylki sér um Alþýðubanda- lagið en kasti ekki atkvæði sínu á smáflokka aronskunnar sem vega að úr öllum áttum“, sagði Geir Gunnarsson efsti maður G-listans í Reykjaneskjördæmi í stuttu spjalli við Þjóðviljann. „Það kom vel fram í sjónvarpsum- ræðunum í fyrrakvöld að leiðtogi Alþýðuflokksins stefnir hiklaust á viðreisnarstjórn með íhaldinu eftir kosningar. Framsóknarflokkurinn hefur lagt grunninn að sinni hægri stjórn eftir kosningar með undir- lægjuhættinum í deilu íslendinga við Alusuisse og enginn vinstri maður þarf að fara í grafgötur um hvað bíður okkar ef Sjálfstæðis- flokknum tekst að mynda stjórn í næstu viku, með eða án stuðnings leppflokkanna. Efsti maður Kvennalistans í Reykjaneskjör- dæmi hefur lýst stuðningi við veru bandaríska hersins á Miðnesi og Geir Gunnarsson: hvert einasta at- kvæði vinstra fólks getur ráðin úr- slitum. allir vinstri menn vita hver er stefna Vilmundar og Bandalags jafnaðar- manna í herstöðvamálinu. Það er því á eigin ábyrgð hvers einasta vinstri manns í þessu landi ef hann kastar atkvæði sínu á smáfram- boðin og leggur um leið grunninn að valdatöku íhaldsins, strax eftir næstu helgi“, sagði Geir Gunnars- son sem skipar 1 sæti G-listans í Reykjaneskjördæmi. ,v Tolli Morthens er aðalhvatamaður Rokks gegn kreppu. Bráðlega kemur frá honum ný plata þar sem Megas syngur sem gestur. Ekki vildi Tolli segja neitt um hvort þeir hygðust koma fram í Sigtúni annað kvöld eða annars- staðar síðar: Fólk verður bara að stunda alla hljómleika stíft ef það vill verða vitni að því. séu orðin ógnvænlega sterk hér á landi, og því ekki til setunnar boðið þeim hljómlistarmönnum sem taka vilja upp merki þeirra kollega sinna í Bretlandi sem í nokkur ár hafa með tónlist sini og textum ráðist gegn kreppustjórninni í heimalandi sínu. Hér hafa hljóm- sveitir hins vegar ekki verið nógu harðar í baráttunni, spili jafnvel á stjórnmálafundum fyrir flokka sem þær styðja ekki og segjast jafnvel vera á móti. (Ekki ég, takk, segir Bubbi. Ég er búin að afþakka mörg atvinnutilboðin í þessari kosninga- baráttu!). En svo koma oft upp vandamál innan hljómsveitanna, þegar einn vill styðja það sem ann- ar er á móti. Þeir sem koma fram á hljóm- leikunum í Sigtúni á föstudags- kvöld standa hins vegar saman gegn kreppu og atvinnuleysi, þar kemur enginn fram sem ekki vill styðja málstaðinn. Sögðust aðstandendur vona að fólk fjöl- mennti og hljómleikarnir hefðu áh- rif í þá átt að það brygðist við á kjördag á þann hátt sem best dugar gegn boðþerum kreppunnar. Ekki vildu blaðamannafundar- haldarar gefa stuðningsyfirlýsingu við neinn ákveðinn lista f.h. allra rokkflytjenda á hljómleikunum, en hins vegar er ljóst að hljóm- leikunum er stefnt gegn íhaldi og leiftursókn í anda þess. Allir hugs- andi inenn hljóta hins vegar að gera sér grein fyrir að gegn því er raunhæfasti kosturinn X G. - A Alþýðubándalagiðefnirtil sumarfrís og samveru á Laugarvatni síðari hluta júlímánaðareinsog í fyrrasumar. Yfirfullt var í þessum sumarbúðum fjölskyldunnarsl. sumarog þóttí þessi nýbreytni takast afarvel. Byrjað verðurað taka á móti pöntunum í Laugar- vatnsdvöl á kjördag og munu kosningaskrifstofur Alþýðu- bandalagsins um land allt taka að sér að koma þeim á- leiðis. Baldur Óskarsson og Einar Karl Haraldsson munu eins og í fyrra vera umsjónarmenn sumar- frís og samveru Alþýðubanda- lagsins á Laugarvatni. Baldur Óskarsson sagði í gær að það væri mjög ánægjulegt að tekist hefðu á ný samningar við Rúnar Jökul Hjaltason bryta Héraðsskólans á Laugarvatni, enda hefði hann og starfslið hans átt drjúgan þátt í því hversu vel tókst til í fyrra. í megindráttum verður dvölin á Laugarvatni skipulögð með svipuðu sniði og í fyrra. Um er að ræða vikurnar 18. til 24. júlí og 25. til 31. júlí. Gist verður í Hér- aðsskólanum þar sem aðalbæki- stöðin er og matsalur, og í húsum sem tengjast Héraðsskólanum. Rúm er fyrir 80 til 90 manns hvora viku. í sumar verður verðið fyrir hvern fullorðin kr. 2800, kr. 1600 fyrir börn 6-12 ára og kr. 300 fyrir börn 0-6 ára. Innifalið er allur matur, gisting, barnagæsla, skemmtanir og ýmis önnur þjón- usta. „Það var sérstaklega ánægju- legt á Laugarvatni sl. sumar hve aldurshóparnir blönduðust vel og að menn gátu bæði notið þess að vera saman í hóp og útaf fyrir sig þegar þeim hentaði", sagði Bald- ur Óskarson. „Það var líka alltaf nóg við að vera, göngu- og fróðleiksferðir í nágrenni Laugarvatns, gufubaðið og íþr- óttaaðstaðan, heimsóknir foryst- umanna Alþýðubandalagsins, fyrirlestrar um ólík málefni, rútu- ferðir um Suðurlandsundirlendi, skemmtiatriði sem búin voru til af hæfileikafólki úr hópunum og Hressir krakkar úr öðrum hópnum sem dvaldi á Laugarvatni í fyrra. Baldur Óskarsson stjórnar fjöldasöng á Laugarvatni á sl. sumri kærkomnar heimsóknir heima- manna á Laugarvatni, sem voru boðnir og búnir að fræða okkur og rétta okkur hjálparhönd." Eins og áður sagði munu kosn- ingaskrifstofur Alþýðubanda- lagsins um allt land taka á móti pöntunum á kjördag og koma þeim áleiðis til aðalskrifstofunn- ar í Reykjavík. Að kiördegi lokn- um eru það Baldur Óskarsson og Margrét Tómasdóttir íFlokks- miðstöðinni að Hverfisgötu 105 Reykjavík, sími 17500, sem taka á móti pöntunum og gefa allar nánari upplýsingar. _

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.