Þjóðviljinn - 21.04.1983, Side 15
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21. apríl 1983
,i ,<>,)
Fimmtudagur 21. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
\
Eina framboðið
til vinstrí
Það er mikið í húfi
fyrir okkur öll
Við
höfum
hið
dagiega
brauð
að verja
og
sjálf-
sagða
hlutiað
sækja
• Sem beturferer vinstrafólkkröfugerðarfólk-
og mun áreiðanlega aldrei slá af í málafylgju fyrir
réttlætismálum sínum. Hitt er svo annað mál hvort
gleymskan sé ekki helsti fyrirferðarmikil í farteski
hæstvirtra kjósenda nær þeir ganga að kjörborði í
kosningunum á laugardaginn. Að minnsta kosti er
ýmislegt í kosningabaráttunni - og umfram allt í
skoðanakönnunum, sem bendir til þess að f jöldi
fólks hafi ekki hugmynd um hversu mikils virði
félagslegir ávinningar eru, hversu mikið þrátt fyrir
allt hefur áunnist - og síðast en ekki síst hversu
mikiðer íhúfi.
• Félagslegir ávinningar í þjóðfélaginu eru nær einungis til
komnir fyrir baráttu fólks og flokka
launamannahreyfingarinnar. Áður en nokkur veit af eru hinir
einstöku ávinningar orðnir daglegt brauð, sjálfsagðir hlutir.
Það þarf ekki mörg ár til að fyrnist yfir slíka ávinninga. Og víst
er að AljDýðubandalaginu, sem máske hefur tekist að þoka
slíkum félagslegum réttindamáium í höfn í stjórnartíð sinni,
er alls ekki þakkað eða umbunað í kosningum.
• Ástæðan er m.a. sú, að ávinningarnir þykja svo
sjálfsagðir þegar þeir loks komast á, að fáir muna stundinni
lengur hvernig þeir eru til komnir. Auk þess eru þeir aldrei
svo góðir að ekki verði úr bætt.
• Það eru ekki margir kjósendur sem vita t.d. að það er ekki
lengra síðan en 1. janúar 1981, að fæðingarorlof fyrir allar
konur, til þriggja mánaða var í lög leitt í landinu.
• Þetta eru sjálfsögð félagsleg réttindi - en það er ekki
lengra síðan en þau urðu að veruleika. Og nú vill
Alþýðubandalagið lengra fæðingarorlof-aðsjálfsögðu.
• Hin félagslegu réttindi hafa ævinlega mætt andspyrnu
borgaraflokkanna. Verkalýðshreyfingin og
Alþýðubandalagið hafa þurft stundum í áratugi að heyja
harðvítuga baráttu fyrir slíkum réttindum. Iðulega trúa ungir
íhaldsmenn því ekki sjálfir hversu forverar þeirra hafa verið
forstokkaðir gagnvart kröfugerð að þessu tagi.
• Þannig hefur baráttan fyrir barnaheimilum, baráttan fyrir
lágmarkshvíld og betri aðbúnaði á vinnustöðum verið háð í
harðri andstöðu við atvinnurekendavaldið hverju sinni. Og
ennerþað svo.
• Ásl. þingi voru samþykkt lög um lengingu orlofs um eina
viku. Þetta þýddi hækkunorlofsfrá8.33% í 10.17% ákaup.
Sjálfstæðisflokkurinn á þingi snérist öndverður gegn
þessari hugmynd, trúr uppruna sínum.
• Mestar líkur eru á því að Sjálfstæðisflokkurinn muni grípa
til hliðstæðra efnahagsaðgerða og bræðraflokkar hans
erlendis. Þeim fylgja árásir á félagslega ávinninga.
• Þeim árásum fylgja líka árásir á tjáningafrelsi og önnur
mánnréttindi. Þeir sem muna bælingar viðreisnaráranna
vita gleggst á hverju er von. Kosningarnar snúa einnig um
mannréttindamál.
• Með valdatöku Sjálfstæðisflokksins næði
atvinnurekendavaldið að spyrja við fótum gagnvart kröfum
um félagslegar úrbætur.
• Með valdatöku Sjálfstæðisfiokksins og fylgiflokka hans
er veruleg hætta á því að ríkisvaldið ráðist gegn félagslegum
ávinningum síðastliðinna ára.
• Allt vinstra fólk í landinu hlýtur að vilja verja félagslega
ávinninga undangenginna missera og skapa baráttustöðu
til nýrrarsóknar.
• Gleymskan er hættulegur förunautur á kjörstað.
- óg
Húsnæðismál
Alþýðubandalagið
• Stórátakhefurveriðgertí
byggingu íbúðaá félagslegum-
grundvelli. Sett hafa verið ný lög sem
tryggja Byggingarsjóði verkamanna
meira fjármagn til féiagslegra
íbúðabygginga. Jafnframt hefur
öllum verkalýðsfélögum opnast
aðgangur að íbúðakerfinu.
• Alþýðubandalagiðleggurtilað
haldið verði áfram með uppbyggingu
félagslegra íbúðakerfisins. Auk þess
leggur bandalagið til að sérstakur
sjóður verði settur á laggirnar til að
fjármagna kaup á hóflegu húsnæði
fyrir fólk sem er að kaupa og byggja í
fyrsta sinn. Sjóðnum verði tryggt
fjármagn þegar í upphafi m.a. með
lögbundinni þátttöku
bankakerfisins, lífeyrissjóða og
hugsanlega einu söluskattstigi.
• Auk þess leggur
Alþýðubandalagið til að hafin verði
bygging sérstakra kaupleiguíbúða,
námsmannaíbúða, og á íbúðum fyrir
gamalt fólk. Þá verði
byggingarsamvinnufélögum veitt
sérstökfyrirgreiðsla.
• Alþýðubandalagiðstóðfyrir
skuldbreytingu húsnæðiskaupenda
og byggjenda 1980 sem fór þannig
fram að hægt var að safna saman
skammtímalánum á eitt stærra lán til
lengri tíma.
• Alþýðubandalagiðgerðitillögu
um það sl. haust að aftur yrði gengið
til skuldbreytinga til að koma
húsbyggjendum úr klemmu vegna
afleiðinga raunvaxtastefnunnar.
Tillaga um lánalengingu til 12 ára var
felld en samþykkt lánalenging til
fimm ára í ríkisstjórninni.
-óg
Húsnæðismál
Sjálfstæðisflokkur
• Sjálfstæðisfiokkurinnog
Framsóknarflokkurinn hafatalað um
að stefna eigi að 80%
húsnæðislánum til lengri tíma.
Ekkert er minnst á f jármögnun.
• Sjálfstæðisflokkurinn predikar
„eign fyrir alla“ og lætur ýmis
lítilsvirðingar- og fyrirlitningarorð
falla um félagslegar ibúðir.
• Útibú Sjálfstæðisf lokksins talar
hreint út og leggur til að allt fjármagn
verði tekið frá Byggingarsjóði
ríkisins frá og með 7. maí n.k. Sá
sjóður fjármagnar almenn
húsnæðislán. Verslunarráðið leggur
einnig til að allt fjármagn verði tekið
frá Byggingarsjóði verkamanna frá
og með 7. maí. Verslunarráðið gerir
ráð fyrir að ný ríkisstjórn taki við í lok
apríl og þessi niðurskurður á
fjármagni til húsnæðis nemi 209
miljónum 694 þúsundum.
• Bankamálaráðherra
Framsóknarf lokksins stóð í vegi fyrir
því að síðari skuldbreytingin næði
fram að ganga. Kosningaloforð um
skuldbreytingu núna eru því
ófyrirleitnari hjá Framsóknarf lokki.
• Einn helsti hugmyndafræðingur
Sjálfstæðisflokksins heitir Jónas
Haralz. Hann segir Morgunblaðinu i
sl. viku, að hann hafi sagt á fundi
þingfunda sl. haust að EKKI væri
ástæðatil skuldbreytinga. Hann
sagði einnig að bankarnir sæju ekki
ástæðu til að lengja lán. Þannig
koðnaði lánalenging niður hjá
Framsókn og Sjalfstæðisflokknum á
sl. vetri.
-óg
Nokkurdæmi
frá síðustu
árum
• Lög um fæðingarorlof
voru sett, sem opna
öllum foreldrum rétt til
fæðingarorlofs.
• Framlög til lis ta hafa
aukist verulega að
raungildi og er nánast
um tvöföldun að ræða á
árunum 1979-1982.
• Lenging orlofs um eina
viku með lögum.
• 60 ára sjómönnum,
sem verið hafa á sjó í25
árhefur verið tryggður
réttur til lífeyris.
• Fjárframlög til
Lánasjóðs ísl.
námsmanna hafa farið
vaxandi.
• Skriður koms t á
málefni þroskaheftra
m.a. með lagasetningu
1979.
• Heildarlöggjöfverið
sett um málefni
fatlaðra.
• Nýlög um a tvinnuleys-
istryggingar, bætur
hækkaðar og afnám
misréttis kynjanna.
• Lög um vinnuvernd,
aðbúnað og
hollustuhætti, og um
lágmarksh víldartíma.
• Réttindi
farandverkafólks aukin
með lögum og
reglugerðum.
• Stórátak ímálefnum
aldraðra. Margföldun á
framlagi til
Framkvæmdasjóðs
aldraðra sem
fjármagnar húsnæði
fyrir eldra fólk.
Heildarlöggjöf
samþykkt 1982.
• Barnalífeyrir greiddur
að 18áraaldri.
• Unnin áætlun fyrir
sjúkrahús og
heilsugæslustöðvar til
næstu fimm ára.
• Nýlögum
atvinnuréttindi
útlendinga.
• Gefin út reglugerð um
jafnréttismál.